Starfsumhverfi atvinnulífsins
12.1.2012
Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækjanna: Heldur skárra mat á horfum en áður
Þótt mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telji aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar þá hefur þeim fækkað hlutfallslega síðustu mánuði. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent fyrir SA og Seðlabanka Íslands meðal stærstu fyrirtækja landsins. Nú telja 67% stjórnenda aðstæður vera slæmar en hlutfallið var 72% í síðustu könnun sem gerð var fyrir tveimur mánuðum síðan. 29% telja að þær séu hvorki góðar né slæmar en 4% að þær séu góðar. Á landsbyggðinni er þungt yfir stjórnendum, þar sem fjórir af hverjum fimm telja aðstæður slæmar, og enginn stjórnandi í sjávarútvegi telur aðstæður góðar. Á höfuðborgarsvæðinu telja þrír af hverjum fimm aðstæður vera slæmar en 5% að þær séu góðar. Jákvæðasta matið á núverandi aðstæðum er í ýmsum þjónustugreinum.
11.1.2012
Formaður SA: Atvinnulífið þarf öflugar rannsóknir og trausta stjórnsýslu
Ríkisstjórnin hefur unnið að breytingum á verkaskiptingu ráðuneyta og stefnir að því að færa rannsóknarstofnanir atvinnuveganna undir umhverfisráðuneytið. Þetta er varasöm stefna sem felur í sér að tengsl milli atvinnuvegaráðuneyta og ákvarðana um nýtingu auðlinda, rannsókna, ráðgjöf og verndun auðlinda verða rofin. Hætt er við að breytingarnar hafi neikvæð áhrif á nýsköpun íslenskra fyrirtækja og vöruþróun. Rétt er að fara aðrar leiðir.
3.1.2012
2011 leið hjá án þess að tækist að örva fjárfestingar og atvinnusköpun
Morgunblaðið fjallaði á gamlársdag um þróun efnahagsmála á árinu 2011 og þau markmið sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld settu sér í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í maí 2011. Samningarnir hvíla m.a. á yfirlýsingu stjórnvalda sem gáfu fyrirheit um að greiða fyrir stórum fjárfestingarverkefnum þannig að umfang fjárfestinga verði 350 milljarðar króna á ári í lok samingstímans. Enn bólar ekkert á stóru fjárfestingarverkefnunum og ekki hefur tekist að ná margboðaðri sátt í sjávarútvegsmálum sem viðheldur óvissu í einum af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og veldur verulegum skaða.











