Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

26.9.2011

Formaður LÍÚ: Hægt að skapa hundruð nýrra starfa ef óvissu um sjávarútveginn verður eytt

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ -  Landssambands íslenskra útvegsmanna, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Þar sagði hann m.a. að ef óvissunni um sjávarútveginn yrði eytt þá myndu fljótt skapast hundruð starfa í fjölda atvinnugreina. Auðvelt væri að ryðja þeirri hindrun úr vegi. „Rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna gengur almennt vel og því ættum við að vera að fjárfesta af krafti með tilheyrandi margfeldisáhrifum á hagkerfið.  Þess í stað hefur ríkisstjórnin komið málum þannig að fjöldi fólks gengur um atvinnulaust," sagði Adolf.

 

Adolf sagði að allt frá því núverandi ríkisstjórn var mynduð vorið 2009 og  setti fram stefnu sína um svokallað fyrrningarleið hafi íslenskur sjávarútvegur verið í uppnámi. Hann gagnrýnir harðlega að enginn úr atvinnugreininni hafi verið fenginn að málum og engin fræðileg úttekt gerð á afleiðingum lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða áður en það var lagt fram á Alþingi sl. vor. Með frumvarpinu sé markvisst stefnt að því að gera aflaheimildir útgerðanna verðlausar og færa þær til ríkisins með ómældu tjóni fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og íslenskt efnahagslíf.

26.9.2011

Framkvæmdastjóri ÍSTAKS: Dýrkeypt að gera ekki neitt

Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Kolbeinn sagði tekjur fyrirtækisins hér á landi hafi dregist mikið saman undanfarin ár og það væri til marks um erfiða stöðu á innanlandsmarkaði að það hafi ekki verið fyrr en í september sem fyrsti nýi innlendi verksamningur árins hafi verið undirritaður. ÍSTAK hefur brugðist við samdrættinum með því að leita verkefna á erlendum mörkuðum en Kolbeinn segir mikilvægt að hefja uppbyggingu innanlands og snúa þróuninni við. Atvinnuleysi sé að festast í sessi sem afleiðing af „það er öruggast að gera ekki neitt" stefnunni sem sé dýrkeypt.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english