Beint á leiđarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

29.12.2011

Ár glatađra tćkifćra

Viðskiptablað Morgunblaðsins fjallar í dag um árið sem er að líða og gerir upp þau mál sem snúa að atvinnulífinu. „Það sem stendur upp úr á árinu var að í maí tókst að ljúka kjarasamningum, að undangenginni langri fæðingu og löngum meðgöngutíma," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins m.a. í samtali við blaðið. „Samningarnir tryggðu vinnufrið, en kostuðu það líka að atvinnulífið teygði sig eins langt og mögulegt var og var sumt jafnvel alveg á jaðri skynseminnar. Útkoman mun líklega jafngilda að jafnaði 13% launahækkunum yfir þriggja ára tímabil."

20.12.2011

Ađilar taki höndum saman um sköpun nýrra starfa

Gerðardómur hefur nú úrskurðað í ágreiningsmáli HS Orku og Norðuráls á þann veg að afhenda skuli alla umsamda orku til álversins að því gefnu að ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Samtök atvinnulífsins fagna því að komin er niðurstaða í þetta mál og hvetja alla aðila sem að málum koma til að taka höndum saman um að ryðja burt þeim hindrunum sem enn standa í vegi þess að framkvæmdir við álverið í Helguvík og tengdar virkjanaframkvæmdir komist á fullt skrið.

13.12.2011

Til Alţingis frá SA: Virkjum tćkifćrin og rjúfum kyrrstöđuna

Samtök atvinnulífsins sætta sig ekki við núverandi ástand og horfur í atvinnumálum. Með markvissum aðgerðum er hægt að koma efnahagslífinu á rétta braut. Efnahagsleg stöðnun er heimatilbúinn valkostur. Það er löngu tímabært að atvinnumálin fái forgang.

 

Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu. Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. „Eitthvað annað" stefnan er fullreynd.

 

Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt.

 

Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins.

 

Sækjum fram. Rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þau tækifæri sem blasa við.

 

Sent til allra alþingismanna 13. desember 2011. 

20.10.2011

Horfur á ađ útflutningur og erlend starfsemi fyrirtćkja aukist

Sóknarhugur er í fyrirtækjum sem starfa í útflutningsgreinum eða eru með starfsemi erlendis. Ríflega helmingur þeirra (56%) hyggst auka útflutning eða erlenda starfsemi á næstu 2-3 árum, tæpur þriðjungur (29%) telur það óvíst en 15% fyrirtækjanna hyggjast ekki gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins á rekstrarhorfum fyrirtækja innan SA sem gerð var dagana 6.-11. október 2011. Um 27% fyrirtækjanna sem tóku þátt í könnuninni  starfa í útflutningi eða eru með starfsemi erlendis.

18.10.2011

Ţriđjungur fyrirtćkja telur ađgerđir stjórnvalda sitt helsta vandamál

Rúmlega þriðjungur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telur aðgerðir stjórnvalda vera helsta vandamál fyrirtækisins við núverandi aðstæður og tæplega fjórðungur til viðbótar setur aðgerðir stjórnvalda í annað sæti meðal helstu vandamála þeirra. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á rekstrarhorfum fyrirtækja sem gerð var dagana 6.-11. október 2011. Um 70% fyrirtækja í sjávarútvegi telja aðgerðir stjórnvalda vera helsta vandamál fyrirtækisins og um 40% í verslun og þjónustu.

13.10.2011

Kyrrstađa á almennum vinnumarkađi og slakar horfur

Rúmur helmingur (55%) aðildarfyrirtækja SA áætla að ekki verði breytingar á starfsmannafjölda fyrirtækja þeirra á þessu ári. Tæpur fjórðungur (24%) áætla að starfsmönnum fyrirtækjanna fækki og rúmur fimmtungur (21%) að þeim fjölgi. Þegar þessar niðurstöður eru vegnar saman eftir stærð fyrirtækja fæst að heildarfjöldi starfa á almennum vinnumarkaði verði óbreyttur milli áranna 2010 og 2011. Starfsmönnum fjölgar í ferðaþjónustu og sjávarútvegi en fækkar í fjármálaþjónustu, verslun og þjónustu og iðnaði.

 

Á næstu sex mánuðum hyggjast sex af hverjum tíu (63%) aðildarfyrirtækjum SA ekki gera breytingar á starfsmannafjölda, 18% áforma fjölgun starfsmanna en 19% fækkun.  Þegar niðurstöðurnar eru vegnar með starfsmannafjölda atvinnugreinanna þá koma fram heldur meiri áform um fækkun starfsmanna þar sem fyrirtæki með 21% starfsmannafjöldans hyggjast fækka en þau með 17% starfsmannafjöldans hyggjast fjölga.

13.10.2011

Enn horfur á lítilli atvinnuvegafjárfestingu

Nærri sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 27% telja það óvíst en einungis 14% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna.

 

Þegar svörum er skipt eftir atvinnugreinum kemur í ljós að niðurstöður í sjávarútvegi, iðnaði, og verslun og þjónustu eru svipaðar heildarniðurstöðunni, þ.e. 11-14% fyrirtækjanna í þessum greinum áforma fjárfestingar á næsta ári, en 55-62% ætla ekki að gera það. Fjárfestingaáformin eru algengust í ferðaþjónustu þar sem 26% fyrirtækjanna hyggjast ráðast í fjárfestingar en 35% ekki. Í fjármálaþjónustu hyggjast 79% fyrirtækjanna ekki ráðast í fjárfestingar.

26.9.2011

Formađur LÍÚ: Hćgt ađ skapa hundruđ nýrra starfa ef óvissu um sjávarútveginn verđur eytt

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ -  Landssambands íslenskra útvegsmanna, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Þar sagði hann m.a. að ef óvissunni um sjávarútveginn yrði eytt þá myndu fljótt skapast hundruð starfa í fjölda atvinnugreina. Auðvelt væri að ryðja þeirri hindrun úr vegi. „Rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna gengur almennt vel og því ættum við að vera að fjárfesta af krafti með tilheyrandi margfeldisáhrifum á hagkerfið.  Þess í stað hefur ríkisstjórnin komið málum þannig að fjöldi fólks gengur um atvinnulaust," sagði Adolf.

 

Adolf sagði að allt frá því núverandi ríkisstjórn var mynduð vorið 2009 og  setti fram stefnu sína um svokallað fyrrningarleið hafi íslenskur sjávarútvegur verið í uppnámi. Hann gagnrýnir harðlega að enginn úr atvinnugreininni hafi verið fenginn að málum og engin fræðileg úttekt gerð á afleiðingum lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða áður en það var lagt fram á Alþingi sl. vor. Með frumvarpinu sé markvisst stefnt að því að gera aflaheimildir útgerðanna verðlausar og færa þær til ríkisins með ómældu tjóni fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og íslenskt efnahagslíf.

26.9.2011

Framkvćmdastjóri ÍSTAKS: Dýrkeypt ađ gera ekki neitt

Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Kolbeinn sagði tekjur fyrirtækisins hér á landi hafi dregist mikið saman undanfarin ár og það væri til marks um erfiða stöðu á innanlandsmarkaði að það hafi ekki verið fyrr en í september sem fyrsti nýi innlendi verksamningur árins hafi verið undirritaður. ÍSTAK hefur brugðist við samdrættinum með því að leita verkefna á erlendum mörkuðum en Kolbeinn segir mikilvægt að hefja uppbyggingu innanlands og snúa þróuninni við. Atvinnuleysi sé að festast í sessi sem afleiðing af „það er öruggast að gera ekki neitt" stefnunni sem sé dýrkeypt.

25.8.2011

Almenn viđhorfsbreyting nauđsynleg gegn svartri vinnu

Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Ríkisskattstjóri hófu  þann 14. júní sl. sameiginlegt átak undir yfirskriftinni „Leggur þú þitt af mörkum?". Markmiðið er  að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að skattskilum og samningum sín í milli.  Athyglinni hefur einkum verið beint að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á sköttum og launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum séu skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni.

17.8.2011

Vaxtahćkkun verđi dregin til baka

Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega 0,25% vaxtahækkun Seðlabankans og hvetja bankann til þess að draga hana til baka við næstu vaxtaákvörðun. Vaxtahækkunin gengur þvert á viðleitni til þess að auka fjárfestingar og hagvöxt í landinu og gerir það erfiðara að ná niður atvinnuleysi og bæta lífskjör almennings.

7.7.2011

Ađhald Seđlabankans ađ hverju?

Áform í peningastefnunefnd Seðlabankans um hækkun vaxta valda áhyggjum. Þau áform geta ekki valdið heimilum og fyrirtækjum öðru en skaða. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA. Hann segir vissulega tilefni til að hafa áhyggjur af verðlagsþróun undanfarið en verðbólgan muni hjaðna á ný. Bent hefur verið á að verðbólgan er að mestu leyti innflutt og að hækkun vaxta við núverandi aðstæður muni magna skuldakreppu Íslendinga og fjölga gjaldþrotum.

 

Hannes segir vexti Seðlabankans bíta nú sem aldrei fyrr. Í ljósi þess mikla slaka sem er í efnahagslífinu og birtist í stöðnun einkaneyslu, fjárfestingum í sögulegu lágmarki, samdrætti opinberra umsvifa, fjöldaatvinnuleysi og fjöldagjaldþrotum séu margir forviða yfir áformum í Seðlabankanum um aukið aðhald með hækkun stýrivaxta.

24.6.2011

Atvinnuleiđin forsenda árangurs í ríkisfjármálum

Samtök atvinnulífsins hafa stutt markmið um jöfnuð í ríkisfjármálum og telja mikilvægt fyrir endurreisn atvinnulífs í landinu að þeim verði náð. Samtökin hafa hins vegar gagnrýnt þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa beitt til að ná þessum markmiðum og telja að tilætluðum árangri verði ekki náð með þær að vegarnesti.

22.6.2011

Stjórnendur 400 stćrstu fyrirtćkjanna: Flestir telja ađstćđur slćmar

Mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar samkvæmt reglubundinni könnun Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í maí og júní 2011, telja 78% stjórnenda aðstæður slæmar, 21% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar. Þetta er nánast sama niðurstaða og fékkst í mars  síðastliðunum þegar 79% stjórnenda töldu aðstæður slæmar.

1.6.2011

Á skjön viđ gefin loforđ

„Það er ótrúlegt að reynt sé að keyra þessi mál í gegnum þingið með offorsi, áður en skýrsla hagfræðinga er lögð fram og áður en reynt er að ná sátt við hagsmunaaðila. Þetta er algerlega á skjön við gefin loforð," segir Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið um áhrif kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar á framlengingu kjarasamninga. Aðilar vinnumarkaðarins munu meta fyrir 22. júní hvort nauðsynlegar forsendur séu til staðar þannig að nýir kjarasamningar sem skrifað var undir 5. maí sl. gildi til þriggja ára. Margir fyrirvarar eru í samningunum en mögulega gilda þeir aðeins til loka janúar 2012.

20.5.2011

Frumvörp sjávarútvegsráđherra ávísun á áralangar deilur og skađa fyrir ţjóđfélagiđ

Frumvarpsdrög sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða ganga þvert á ítrekaðar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði til langs tíma. Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin til samráðs og samvinnu við ráðherra þannig að unnt verði að ná sátt um rekstrargrunn þessarar mikilvægu atvinnugreinar.

 

Ljóst er að frumvarpsdrögin geta ekki orðið grundvöllur að sátt. Þau munu kalla fram áframhaldandi deilur og átök á komandi árum og verða tilefni stöðugra breytinga á fiskveiðistjórninni. Þessi átök geta ekki leitt til neins annars en þess að afkoma sjávarútvegsins verður verri en ella og um leið rýra þau hag fyrirtækjanna, fólksins sem hjá þeim starfar, þjónustuaðila, sveitarfélaga og um leið þjóðarinnar allrar.

19.5.2011

Íslendingar fari atvinnuleiđina út úr kreppunni

Hagsmunir allra Íslendinga eru miklir af því að fara atvinnuleiðina út úr kreppunni en margt þarf að ganga upp til þess að það gerist. Kjarasamningarnir sem slíkir með fyrirsjáanleika á vinnumarkaði fram á árið 2014 eru mikilvægt framlag til atvinnuleiðarinnar og vegferðarinnar út úr kreppunni. Kjarasamningarnir setja vissulega byrðar á atvinnulífið en atvinnuleiðin er fær og í raun eina skynsamlega leiðin fyrir land og þjóð. Því hljóta allir sem ábyrgð hafa að þurfa að leggja sig fram um að tryggja að atvinnuleiðin verði farin. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna sem kemur út í dag.

17.5.2011

Ríkisstjórnin standi viđ gefin fyrirheit í sjávarútvegsmálum

Nýtt kvótafrumvarp stjórnarflokkanna veikir rekstrarskilyrði sjávarútvegsins og er því ekki í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands sem gefin var út í tengslum við undirskrift kjarasamninga á almennum vinnumarkaði til næstu þriggja ára. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. „Mér sýnist að í engu atriði sé verið að bæta rekstrarskilyrði sjávarútvegsins en í flestum atriðum verið að veikja þessi rekstrarskilyrði." Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí segir að sjávarútveginum verði tryggð góð rekstrarskilyrði.

16.5.2011

Endurskipulagning skulda fyrirtćkja hefur gengiđ of hćgt

Fjallað var um skuldamál fyrirtækja í fréttum Bylgjunnar um helgina og árangur af Beinu brautinni sem er átaksverkefni um endurskipulagningu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Aðspurður sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, endurskipulagningu skulda fyrirtækjanna hafa gengið of hægt m.v. upphaflegar væntingar og að staða fyrirtækjanna væri betri ef stjórnvöld hefðu greitt fyrir fjárfestingum í atvinnulífinu með tilheyrandi auknum umsvifum. SA eru meðal aðila sem koma að Beinu brautinni.

19.4.2011

Reyndir stjórnmálamenn leggi grunn ađ sátt um stjórn fiskveiđa

 „Ég held að svo reyndur stjórnmálamaður sem forsætisráðherra er hljóti að sjá að á endanum þarf að leysa þetta mál með sátt og samningum eins og önnur mál." Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær um deilur um breytingar á stjórn fiskveiða. SA hafa lagt fram tillögur að umfangsmiklum breytingum á fiskveiðikerfinu og óskað eftir viðræðum við ríkisstjórnina um farsæla langtímalausn sem þjóðin, stjórnmálamenn og atvinnugreinin geti sætt sig við. Vilhjálmur segir það sitt mat að lög um stjórnun fiskveiða henti illa til þjóðaratkvæðagreiðslu eins og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hafi ljáð máls á í vikunni. Vilhjálmur hvetur  utanríkisráðherra til að beita sér fyrir lausn deilunnar um framtíð sjávarútvegsins innan ríkisstjórnarinnar.

5.4.2011

Sáttatillaga SA í sjávarútvegsmálum felur í sér viđamiklar breytingar

Samtök atvinnulífsins hafa  kynnt ríkisstjórninni og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tillögu til sátta um efnislega útfærslu samningaleiðar í sjávarútvegi. Tillagan felur í sér grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða frá því sem nú er og komið er verulega til móts við sjónarmið stjórnarflokkana í þessum efnum. SA telja að nú sé  einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins. Samtök atvinnulífsins hafa fulla trú á að ríkisstjórnin muni taka í útrétta sáttahönd atvinnulífsins í þessum efnum.

29.3.2011

Umhverfisráđherra fer rangt međ

Umhverfisráðherra hefur á Alþingi og víðar kvartað yfir því að Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins sýni ekki nægan metnað í umhverfismálum fyrir hönd fyrirtækja landsins. Þessi staðhæfing ráðherra er röng. Samtökin hafa lagt áherslu á að hér gildi sambærilegar reglur og rekstrarskilyrði og hjá öðrum Evrópuþjóðum og hafa hvatt fyrirtækin til að sýna fulla ábyrgð í umhverfismálum.

18.2.2011

Ađalfundur Samorku: Ný gjaldtaka og styttri leigutími auđlinda ţýđir hćrra orkuverđ

Í ályktun aðalfundar Samorku sem fram fór í dag er áhersla lögð á mikilvægi arðsemi við nýtingu orkuauðlinda. Þá minna samtökin á að ný gjaldtaka, hvort sem er í formi auðlindagjalds eða skatta, skapar ekki ný verðmæti. Aukin gjaldtaka leiði til hærra orkuverðs og sama gildi um mikla styttingu leigutíma orkuauðlinda. Þá vara samtökin við öllum áformum stjórnvalda um að „vinda ofan af" löglega gerðum samningum við einkaaðila á sviði orkunýtingar, sem og við hugmyndum um að færa auðlindastýringu og -rannsóknir undir umhverfisráðuneytið.

18.2.2011

Allt of langan tíma tekur ađ fá svör um skipulags- og byggingarmál

Athugun SA á úrskurðum úrskurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál sem kveðnir voru upp á árinu 2010 gefur til kynna að það taki að jafnaði meira en 15 mánuði að fá úrskurð nefndarinnar. Samkvæmt reglugerð á nefndin að kveða upp úrskurð innan tveggja mánaða nema málið sé umfangsmikið en þá skal kveða upp úrskurð innan þriggja mánaða. Ljóst er að sigið hefur á ógæfuhliðina í þessum efnum en í athugun umboðsmanns Alþingis árið 2004 kom fram að meðalafgreiðslutími úrskurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál var þá tæpir 8 mánuðir þrátt fyrir fyrrgreind tímamörk.

17.2.2011

Úrskurđarnefnd virđir ekki lög

Samtök atvinnulífsins hafa kannað hversu langan tíma það tekur úrskurðarnefnd sem starfar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir að kveða upp úrskurði í þeim málum sem þangað er beint. Þau mál sem nefndin fjallar um tengjast meðal annars starfsleyfum fyrirtækja og ýmsum þáttum sem umrædd lög taka til. Aðeins í eitt skipti af 20 hefur úrskurðarnefndin kveðið upp úrskurð innan lögbundinna tímamarka en að meðaltali tók það nefndina 40 vikur að kveða upp úrskurð sinn eða sem nemur tíföldum lögbundnum fresti (4 vikur) í hefðbundum málum.

10.2.2011

Frumvarp um breytingar á lögum um náttúruvernd óljóst og getur leitt til réttaróvissu

Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um drög að breytingum á lögum um náttúruvernd til umhverfisráðuneytisins.Samtökin telja frumvarpið vera mjög óljóst, það geti leitt til réttaróvissu, þrengt að möguleikum til nýtingar auðlinda lands og sjávar og sé ekki til þess fallið að skapa sátt um málið. Lítið samráð hafi verið haft við hagsmunaaðila þvert á gefin loforð en mikilvægt er að sem flestir komi víðtækri samfélagslegri umræðu um þessa mikilvægu löggjöf. Samtökin gera víðtækar efnislegar athugasemdir við frumvarpsdrögin.

21.1.2011

Vögguvísa yfir erlendum fjárfestingum og atvinnulífinu

Á síðasta ári var samdráttur á vinnumarkaði samkvæmt nýrri skýrslu Hagstofunnar. Það voru fleiri atvinnulausir en árið áður og vinnutíminn styttri. Um áramótin voru svo um 14.000 atvinnulausir samkvæmt Vinnumálastofnun. Fjárfestingar í hagkerfinu eru um þessar mundir minni en nokkru sinni síðustu 70 árin.

 

Samtök atvinnulífsins leggja á það megináherslu nú þegar unnið er að gerð nýrra kjarasamninga að stjórnvöld grípi til allra nauðsynlegra ráðstafana til að skapa skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar og þá sérstaklega í útflutningsgreinum. Þar er átt við greinar sem nýta orku til framleiðslu sinnar, sjávarútveg, sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.

14.1.2011

Stöđnun ekki bođleg

Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs.

 

Óhugsandi er að hefja sókn þjóðarinnar til framfara og aukins útflutnings og fjárfestinga án þess að sjávarútvegurinn, ein helsta útflutningsgreinin og um leið ein helsta stoð samfélagsins, eigi þar öflugan hlut að máli.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english