Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

29.12.2010

Algjört úrslitaatriði að koma fjárfestingum í gang

Mikilvægasta verkefnið um þessar mundir er að koma fjárfestingum í atvinnulífinu í gang - það er raunar algjört úrslitaatriði. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en rætt var við hann í morgunþætti Bylgjunnar um stöðuna í atvinnulífinu, takmarkaða bjartsýni stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins og hvort viðsnúningur í efnahagsmálunum sé á næsta leiti. Vilhjálmur segir fjárfestingarnar í raun svo litlar að mikil hætta sé á að þjóðin dragist verulega aftur úr í lífskjörum og samkeppnishæfni.

28.12.2010

Ráðningaráform fyrirtækja ekki uppörvandi

Í nýrri reglubundinni könnun Capacent meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins kemur fram að nær allir aðspurðra telja sig hafa nægt starfsfólk og einungis 5,5% búa við skort á starfsfólki. Ráðningaráform stjórnenda eru ekki uppörvandi þar sem 14% hyggjast fjölga starfsmönnum á næstu sex mánuðum, 26% hyggjast fækka en 60% halda óbreyttum fjölda. Þetta er heldur lakari niðurstaða en í síðustu könnunum. Mesta fjölgunin er áformuð í fjármála- og tryggingastarfsemi en mesta fækkunin í iðnaði og framleiðslu.

27.12.2010

Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækjanna: Aðstæður enn slæmar

Yfirgnæfandi hluti stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður slæmar í atvinnulífinu. Þetta kemur  fram í reglubundinni könnun Capacent meðal fyrirtækjanna. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í desember 2010, telja 84% stjórnenda aðstæður slæmar, 15% að þær séu hvorki góðar né slæmar en nánast enginn að þær séu góðar. Þetta er svipuð niðurstaða og fengist hefur frá miðju ári 2008. Þeir örfáu stjórnendur sem telja aðstæður góðar starfa í sjávarútvegi og í iðnaði en í öðrum greinum telur enginn að aðstæður séu góðar.

17.12.2010

Gögn frá fundi um lausnir á skuldamálum fyrirtækja

Á fjórða hundrað stjórnenda mættu á opinn upplýsingafund í morgun um nýtt samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Um víðtækt samkomulag er að ræða sem efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands standa að.

 

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvetur fyrirtæki til að snúa sér sem fyrst til síns viðskiptabanka til að skoða hvaða möguleikar standi þeim til boða og taka ákvarðanir í framhaldinu. Margir aðilar eru tilbúnir til að veita fyrirtækjunum hlutlausa þjónustu í þeirri vinnu sem framundan er og verða upplýsingar um þá birtar hér á vef SA.

15.12.2010

Samkomulag um úrlausn á skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Víðtækt samkomulag hefur náðst um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið í dag í Rúgbrauðsgerðinni. Samkomulagið verður kynnt á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8.30-10.00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

6.12.2010

Hröð úrlausn á skuldavanda heimila og fyrirtækja mikilvæg

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir jákvætt að niðurstaða sé fengin varðandi aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Mikilvægt sé að unnið verði hratt úr vanda þeirra en einnig verði ráðist hratt í að leysa úr skuldavanda lífvænlegra fyrirtækja eins og boðað hafi verið. Hannes segir að ef endurskipulagning á fjárhag heimila og fyrirtækja gangi vel sé mögulega hægt að sjá fyrir botn hagsveiflunnar og jafnvel viðspyrnu.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english