Starfsumhverfi atvinnulífsins
28.12.2009
Samkeppniseftirlitið fjallar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja
Samkeppniseftirlitið hefur birt umræðuskjal um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og óskað umsagnar SA um málið. Aðildarfyrirtækjum SA gefst jafnframt kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Í umræðuskjalinu er fjallað um skuldavanda íslenskra fyrirtækja og samkeppnisleg álitaefni tengd honum. Frestur til að skila athugasemdum er til 8. janúar 2010.
21.12.2009
Sjálfheldan rofin með Kaupmannahafnarsamkomulaginu
„Á fimmtudag í síðustu viku hófst lokatilraun til að ná samkomulagi um niðurstöðu í tveggja ára samningsferli um langtímasamkomulag í loftslagsmálum en umboð til samninga var veitt á Balí 2007. Á sama tíma hófst lokatilraun til að ná samkomulagi um framhald Kyoto-bókunarinnar eftir 2012 en þær viðræður hafa staðið í 4 ár. Skemmst er frá því að segja að það voru engar líkur til þess að samkomulag næðist. Embættismenn 194 ríkisstjórna hafa verið vakandi og sofandi yfir málinu allan þennan tíma og hafa haldið endalausa fundi og ráðstefnur. Þrátt fyrir það standa eftir sömu ágreiningsmálin ár eftir ár, fund eftir fund." Þetta segir Pétur Reimarsson í nýjum pistli um niðurstöður loftslagsráðsefnu S.Þ. í Kaupmannahöfn.
17.12.2009
Óásættanleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar
Samtök atvinnulífsins eru aðilar að stöðugleikasáttmála við ríkisstjórnina sem undirritaður var 25. júní og ennfremur gaf ríkisstjórnin út sérstaka yfirlýsingu 28. október í tengslum við framlengingu kjarasamninga. Bæði í stöðugleikasáttmálanum og yfirlýsingunni er tekið fram að deilumál vegna stjórnar fiskveiða eigi að reyna að leysa í svokallaðri sáttanefnd sem nú er að störfum. Frumvarp um breytingu á stjórn fiskveiða sem nú hefur verið lagt fram gengur þvert á fyrirheit ríkisstjórnarinnar og slík vinnubrögð eru á engan hátt ásættanleg gagnvart Samtökum atvinnulífsins.
10.12.2009
SA vísað frá stöðugleikasáttmálanum?
„Samtök atvinnulífsins hafa leitast við að halda góðum samskiptum við ríkisstjórnina og talið að hún væri að vinna í góðri trú að sameiginlegum hagsmunamálum. En frumvarp sjávarútvegsráðherra, þvert á yfirlýsingar um sáttavilja, og tillögur um afdrifaríkar breytingar í skattaumhverfi atvinnulífsins sem ekki eru kynntar eða ræddar á meðan viðræður um skattamál atvinnulífsins standa yfir vikum saman vekja óneitanlega upp mikla tortryggni um heilindi ríkisstjórnarinnar í því samstarfi sem markað var með stöðugleikasáttmálanum." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA.
3.12.2009
Opinber embættismaður með dylgjur um tiltekið fyrirtæki
Í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi var viðtal við Aðalstein Hákonarson, forstöðumann eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra, þar sem hann gerði málefni eins fyrirtækis að umtalsefni og fjallaði um það með niðrandi hætti. Ef þessi málsmeðferð er ný stefna af hálfu embættisins markar það þáttaskil í opinberri umræðu hér á landi.
2.12.2009
Ótækt að opinber fyrirtæki safni dráttarvöxtum
Það gengur ekki upp að fyrirtæki hins opinbera greiði birgjum ekki fyrir vörur á réttum tíma og safni þess í stað skuldum á háum dráttarvöxtum. Þetta kom skýrt fram á ráðstefnu um opinber fjármál sem SA, fjármálaráðuneytið og Félag forstöðumanna ríkisstofnana héldu nýverið. Björn Zoëga, starfandi forstjóri LSH, sagði að úr þessum vanda þyrfti að bæta en dæmi væru um fyrirtæki sem stæðu frammi fyrir lokun af hálfu opinberra aðila vegna vanskila á virðisaukaskatti á sama tíma og LSH skuldi þeim fé. Samkvæmt viðtali við Björn í Fréttablaðinu í dag stefnir í að dráttarvextir næsta árs af skuldum LSH við birgja verði nálægt 400 milljónum króna.











