Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

31.12.2008

Afleitar aðstæður en von um bjartari tíð

Eins og vænta mátti staðfestir ársfjórðungsleg könnun meðal stærstu fyrirtækja landsins á stöðu og framtíðarhorfum að aðstæður í efnahagslífinu eru afleitar og verri en áður hefur komið fram í sambærilegum könnunum. Könnunin fór fram 24. nóvember til 2. desember 2008. Stjórnendur 99% fyrirtækja sem svöruðu könnuninni töldu að aðstæður í efnahagslífinu væru þá mjög (73%) eða frekar (26%) slæmar og einungis um 1% álitu aðstæður hvorki góðar né slæmar. Ekkert fyrirtæki taldi aðstæður vera góðar. Í öllum atvinnugreinum kemur hins vegar fram jákvæðara mat þegar litið er sex mánuði fram í tímann, en um fjórðungur fyrirtækjanna telur að aðstæður verði þá nokkuð betri, jafnvel þótt röskur meirihluti (54%) telji að þær verði verri. Um 96% fyrirtækjanna telja framboð á starfsfólki nú vera nægjanlegt.

31.12.2008

Skýrar línur á nýju ári

Ef alþjóðlegu efnahagslægðinni lýkur upp úr miðju næsta ári munu Íslendingar njóta góðs af því og komast í kraftmikinn vöxt á ný. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA, í áramótagrein í Markaðnum. „Til þess þurfum við að viðhalda lausnadrifnu hugarfari en gera um leið kröfu til þess að ríkisstjórnin bregðist skjótar við aðsteðjandi vanda og setji skýra stefnu. Lausn á vandanum er augljós: strax þarf að afnema gjaldeyrishöft, lækka stýrivexti, beita meiri ráðdeild í ríkisrekstri og endurreisa bankakerfið í samstarfi við lánadrottna. Loks þarf ríkisstjórnin að setja skýrar línur um stefnuna í peningamálum þjóðarinnar og undirbúa það teymi í ríkisstjórn og í stjórnkerfinu sem skapar trúverðugleika," segir Þór.

30.12.2008

Samstaða gegn atvinnuleysi

Þór Sigfússon, formaður SA, hvetur til samstöðu gegn atvinnuleysi á nýju ári í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir íslensk fyrirtæki hafa náð nú þegar samstöðu með starfsfólki um aðrar leiðir en uppsagnir til að mæta samdrætti og þannig hafi tekist að koma í veg fyrir umtalsvert meira atvinnuleysi en raunin er eftir eitt mesta hrun fjármálakerfis sem um getur í Evrópu. Þór hvetur stjórnvöld til að bregðast skjótt við og lækka stýrivexti. Færra fólki verði sagt upp hjá fyrirtækjum ef stýrivextir verði lækkaðir með skjótum hætti.

19.12.2008

Fyrirtækjum heimilað að gera 2008 upp í erlendri mynt

Alþingi hefur samþykkt ný lög sem heimila fyrirtækjum að gera upp ársreikninga sína í erlendri mynt fyrir árið 2008. Félög geta sótt um heimild ársreikningaskrár til 30. desember  til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli annars vegar vegna reikningsárs sem hefst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hefst 1. janúar 2009. Fyrirtæki sem uppfylla skilyrði aljóðlega reikningsskilastaðalsins um annan starfrækslugjaldmiðil en íslenska krónu geta sótt um.

16.12.2008

Skiptar skoðanir innan SA um ESB og evru

Niðurstöður skoðanakönnunar meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um afstöðu þeirra til þess hvort samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru liggja nú fyrir. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi stjórnar SA í dag. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en meirihluti í þremur er því andvígur. Skoðanir eru mjög skiptar í þessu máli innan samtakanna og á grundvelli niðurstaðna könnunarinnar er staðfest að SA muni ekki beita sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru á Íslandi. SA verða áfram virkur þátttakandi í Evrópuumræðunni og munu gæta hagsmuna allra félagsmanna á grundvelli þess að skoðanir eru skiptar um hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki.

11.12.2008

Skilyrði vegna uppgjörs í erlendri mynt verði rýmkuð

Samtök atvinnulífsins, Samtök fiskvinnslustöðva og Landssamband íslenskra útvegsmanna fagna því að fram sé komið stjórnarfrumvarp á Alþingi um að fyrirtækjum verði heimilað að gera upp ársreikninga í erlendri mynt á þessu ári enda hafa samtökin hvatt til þess að umrædd heimild verði veitt. Samkvæmt frumvarpinu geta félög sótt um heimild ársreikningaskrár fyrir 15. desember 2008 til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli annars vegar vegna reikningsárs sem hefst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hefst 1. janúar 2009. Samtökin leggja þó áherslu á að skilyrðum sem uppfylla þarf verði rýmkuð og að tímafrestur verði lengdur til 31. desember.

11.12.2008

Ekki verði gengið á rétt smáríkja í loftslagsmálum

Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Poznan í Póllandi lýkur á morgun. Íslenska sendinefndin leggur á það áherslu að ekki verði gengið á rétt smáríkja og að árangur Íslands í loftslagsmálum og sérstaða njóti áfram viðurkenningar. Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, situr ráðstefnuna. Hann segir að samstaða sé um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda en mikill vandi sé fyrir höndum. Öll ríki verði að grípa til aðgerða ef raunverulegur árangur eigi að nást. Auka verði nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, bæta orkunýtingu, auka notkun kjarnorku og binda verði koltvísýring í jarðlög. Aðeins með gríðarlegu átaki á öllum þessum sviðum megi vænta árangurs.

9.12.2008

Unnið að úrlausn útlánavandamála fyrirtækja

NBI, Nýi Glitnir og Nýja Kaupþing hafa komið sér saman um aðgerðir til að vinna að úrlausn útlánavandamála fyrirtækja. Er það gert í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 2. desember þar sem því var m.a. beint til hinna nýju banka að ráðast í aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað bönkunum að vinna saman að þessu mikilvæga máli enda hafa stjórnvöld kallað eftir samræmdum vinnureglum.

8.12.2008

Evrópusamtök atvinnulífsins hvetja ESB til að efla atvinnulíf

Forsetar og formenn aðildarsamtaka BUSINESSEUROPE (Evrópusamtaka atvinnulífsins) hittust á fundi í París föstudaginn 5. desember og ræddu m.a. um efnahagsástandið við Sarkozy, forseta Frakklands og Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Þór Sigfússon, formaður SA, ávarpaði fundinn og tók undir þá skoðun fundarmanna að mikilvægt væri að varast verndarstefnu í lengstu lög þar sem frjáls markaður sé undirstaða hagsældar. Forseti BUSINESSEUROPE hefur sent Sarkozy og Barroso bréf þar sem samtökin hvetja til þess að leiðtogaráð ESB taki réttar ákvarðanir á fundi sínum í lok vikunnar svo flýta megi endurreisn atvinnulífsins við þær erfiðu aðstæður sem nú ríki.

4.12.2008

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti

Fjármálaráðuneytið hefur í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem er á gjalddaga 5. desember 2008 og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 12. desember 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

3.12.2008

Framtíðarlandið Ísland

Mikilvægt er að stjórnvöld taki réttar ákvarðanir varðandi framtíð íslensks atvinnulífs. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA, á ráðstefnu Útflutningsráðs sem fram fór á fullveldisdaginn. Þór sagði grundvallaratriði að standa vörð um fyrirtækin í landinu til að þau geti haldið áfram rekstri. Stefna skuli að því að hér á landi verði rekstrarumhverfi þar sem hægt sé að gera áætlanir til minnst tveggja ára sem ómögulegt sé í dag, verðbólga verði ekki hærri en 3% og stýrivextir ekki hærri en 4%.

2.12.2008

Unnið að stofnun Endurreisnarsjóðs atvinnulífsins

Nokkrir stórir lífeyrissjóðir vinna nú að stofnun sérstaks fjárfestingasjóðs í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins. Sjóðurinn, sem hefur verið nefndur Endurreisnarsjóður atvinnulífsins, verður stofnaður þannig að lífeyrissjóðirnir leggja honum til fjármagn sem fjárfestar. Endanleg upphæð liggur ekki fyrir en stofnféð gæti numið tugum milljarða króna. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

1.12.2008

Tækifæri til að auka þjónustuviðskipti

Möguleikar íslenskra fyrirtækja til að bjóða þjónustu sína í Evrópu munu aukast eftir að þjónustutilskipun ESB hefur verið innleidd í íslensk lög á næsta ári. Jafnframt mun erlendum fyrirtækjum reynast auðveldara að sækja inn á íslenskan markað. Stefnt er að því að minnka reglubyrði og einfalda samskipti stjórnvalda og fyrirtækja til að auðvelda samkeppni fyrirtækja milli landa þannig að neytendur njóti aukinna gæða og hagstæðara verðs á þjónustu. Umbætur á lögum og reglum koma jafnframt þjónustuveitendum á innlendum markaði til góða. Þetta kom fram á morgunfundi SA um þjónustutilskipun ESB sem fram fór á föstudag.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english