Starfsumhverfi atvinnulífsins
25.9.2007
Um hluthafalýðræði
„Að efla hluthafalýðræði við stjórnun félaga er eitt af markmiðum Evrópusambandsins á sviði félagaréttar. Í kjölfar birtingar nýrrar könnunar og skýrslu sem Evrópusambandið lét vinna um jafnan rétt hluthafa fer nú fram mikil umræða innan Evrópusambandsins um hvort framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eigi að hafa frumkvæði að nýrri löggjöf um hluthafalýðræði í hlutafélögum.” Þetta segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá SA, í grein í Viðskiptablaðinu um hluthafalýðræði. Greinina má nálgast í heild sinni hér á vef SA.
12.9.2007
Uppspretta auðæfa í smáríkjum
Rannsóknasetur um smáríki við Háskóla Íslands stendur fyrir ráðstefnu um útrás smáríkja föstudaginn 14. september kl. 9:00-17:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þar verður spurt hver sé uppspretta auðæfa í smáríkjum. Innlendir og erlendir fræði- og athafnamenn halda erindi og tala um lærdóma sem draga má af útrás smáríkja á alþjóðavettvangi og reynslu sína af starfsemi í útrásinni. Megináhersla er á hið svokallaða írska undur, en efnahagur Írlands hefur breyst gífurlega á liðnum árum, en Ísland og Írland eru borin saman, auk þess sem árangri og stöðu
6.9.2007
Nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga
SA og ASÍ hafa á undanförnum mánuðum rætt ítarlega um nýtt fyrirkomulag áfallatrygginga en það er eðlilegt að











