Starfsumhverfi atvinnulífsins
23.1.2007
Sprotaþing haldið 2. febrúar
Í samstarfi við þingflokka stjórnmálaflokka, ráðuneyti iðnaðar-, viðskipta- og menntamála, háskóla og aðila stoðkerfis og atvinnulífs efna SI og aðildarfélög til Sprotaþings 2007 föstudaginn 2. febrúar næstkomandi. Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi og tillögur þingheims lagðar fram til afgreiðslu. Sprotaþing 2007 markar einnig upphaf Sprotavettvangs sem formlega hefur störf í kjölfarið. SA eru meðal samstarfsaðila um Sprotaþing. Sjá nánar á vef SI.
11.1.2007
Tugmilljóna skattahækkun mótmælt
Á fyrsta degi ársins tóku gildi breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun sem fela í sér tugmilljóna króna hækkun á gjöldum fjarskiptafélaga til stofnunarinnar. Breytingarnar voru lagðar fram í frumvarpi til Alþingis á síðustu starfsdögum þess fyrir jólafrí og var afgreitt með hraði án samráðs við atvinnulífið. Samtök atvinnulífsins mótmæltu þessu harðlega en rökstuðning fyrir þessari skattahækkun skortir og líkur eru á að breytingarnar stangist á við ákvæði Evrópuréttar. Viðbúið er að fjarskiptafyrirtækin láti reyna á lögmæti þessarar auknu skattheimtu.
9.1.2007
Óheftri og órökstuddri skattheimtu mótmælt í umsögn til Alþingis
Í umsögn til landbúnaðarnefndar Alþingis lýsa Samtök atvinnulífsins eindreginni andstöðu við frumvarp um breytingar á lögum um eldi og heilbrigði sláturdýra, enda feli það í sér ógegnsæja og órökstudda skattlagningu á fyrirtæki. Bent er á að engin tilraun sé gerð til að leggja bönd á þann kostnað sem Landbúnaðarstofnun geti lagt á fyrirtæki, engin takmörk verði lögð á gjaldtöku á kjöti og engar áætlanir liggi fyrir um upphæð gjalda og ráðstöfun þeirra. SA mótmæla ennfremur vinnubrögðum landbúnaðarráðuneytisins sem hefur ítrekað hafnað því að ganga til samstarfs við hagsmunaaðila um að semja nútímalega eftilitslöggjöf. Ekki er lagst gegn því að greitt verði sanngjarnt gjald fyrir nauðsynlegt opinbert eftirlit.











