Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

25.9.2006

Verslunin tapar þremur milljörðum á ári vegna þjófnaða

Verslanir á Íslandi tapa yfir 3.000 milljónum króna á ári vegna þjófnaða starfsmanna og viðskiptavina, að því er fram kemur í fréttabréfi SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, en vegna þjófnaða þurfa verslunareigendur að hækka vöruverð til að mæta kostnaði sem hlýst af þeim. Þá kemur fram að áhrif þjófnaða á neysluvísitölu hækkar vísitölutryggð lán um u.þ.þ 150 milljónir á ári. Það sé því ekki aðeins verslunin sem tapar á þjófnuðum, heldur þjóðfélagið allt. Sjá nánar á vef SVÞ.

15.9.2006

Ákvörðun Seðlabankans veldur vonbrigðum

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið að ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti í 14% valdi miklum vonbrigðum. Hann hafi ekki haft miklar væntingar en ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivextina um 0,5 prósentustig sé ekki rétt. Bankinn hafi í það minnsta átt að halda vöxtunum óbreyttum að sinni.  „Afleiðingarnar af þessari ákvörðun eru fyrst og fremst þær að bankinn er að gera hlutina erfiðari þegar það fer að hægjast um í efnahagslífinu á seinni hluta ársins,” segir Vilhjálmur og bætir við: „Þegar samdráttarferlið kemur þyrfti bankinn að vera að komast í vaxtalækkunarferli en ekki hækka stýrivextina.”

13.9.2006

Seðlabanka ber að lækka vexti

„Við teljum mjög mikilvægt að Seðlabankinn hækki ekki vexti á fimmtudag og að full ástæða sé til að hefja vaxtalækkunarferli í ljósi þess samdráttar í efnahagslífinu sem er framundan,” segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. Hannes segir ánægjulegt að hækkun vísitölunnar hafi reynst minni en gert var ráð fyrir í samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins í júní. „Verðbólgukúfurinn virðist því mun lægri en búist var við og vekur það vonir til þess að við náum verðbólgumarkmiðum mun hraðar en stefnt var að,” segir Hannes og bendir á að ein helstu markmið samkomulagsins um að hafa áhrif á verðbólguvæntingarnar hafi náðst og einkaneysla hafi dregist saman í kjölfarið. Einnig hafi það veruleg áhrif að dregið hafi úr hækkunum á fasteignamarkaði.

12.9.2006

Tillögum skilað um „Einfaldara Ísland“

Starfshópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem forsætisráðherra skipaði til að undirbúa aðgerðaáætlunina „Einfaldara Ísland“ hefur skilað tillögum sínum. Meginmarkmið áætlunarinnar verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Starfshópurinn leggur m.a. til að tekin verði upp samræmd vinnubrögð hjá ráðuneytunum um samráð við hagsmunaaðila og aðra sem löggjöf snertir áður en frumvörp eru lögð fram á Alþingi. Þá er hvatt til þess að betur verði hugað að áhrifum löggjafar áður en reglur eru settar, m.a. kostnað fyrirtækja af nýrri löggjöf.

7.9.2006

Gagnrýni á Seðlabankann réttmæt

Hætta er á að Seðlabankinn sé að segja sig frá hagstjórninni í næstu uppsveiflu með því að lækka ekki vexti nú þegar niðursveifla er hafin, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að með hækkun stýrivaxta sé Seðlabankinn á öfugu róli miðað við hagsveifluna og muni því frekar magna sveiflurnar en að draga úr þeim. Hætta sé því á að þegar uppsveifla í hagkerfinu komi á árinu 2008 með nýjum framkvæmdum við álver og virkjanir verði bankinn illa í stakk búinn að vinna gegn verðbólguhættu á þeim tíma vegna þess að vaxtastigið verði allt of hátt og gengið væntanlega líka.

7.9.2006

Ný lög um starfskjarastefnu

Þann 1. október nk. taka gildi breytingar á hlutafélaga- og einkahlutafélagalögum sem snerta mörg fyrirtæki. Í lögunum er kveðið á um að félög sem uppfylla tvö af eftirfarandi skilyrðum: eiga eignir er nema 120 milljónum, hafa rekstrartekjur er nema 240 milljónum eða hafa 50 ársverk á reikningsári tvö ár í röð, svo og öll félög sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði eða leggja ekki hömlur á viðskipti með eignarhluta beri skylda til að setja árlega fram starfskjarastefnu. Í starfskjarastefnunni skulu koma fram grundvallaratriði stefnu félagsins varðandi samninga við stjórnendur og stjórnarmenn hvað varðar ákvæði um umbun í formi hlutabréfa, kaupréttar, söluréttar, forkaupsréttar eða annars konar greiðslna sem byggjast á verði hlutabréfa í félaginu.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english