Starfsumhverfi atvinnulífsins
21.12.2006
ESB hyggst auka álögur á flugsamgöngur
Framkvæmdastjórn ESB hefur tilkynnt um áform sín að auka álögur á flugsamgöngur til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Komið verður á fót sérstöku kvótakerfi vegna útstreymis gróðurhúsalofttegunda frá flugi en viðbúið er að verð á farmiðum og vöruflutningum muni hækka vegna þessa. Áhrifin á íslenskt efnahagslíf gætu orðið mikil þar sem flugsamgöngur eru gríðarlega mikilvægar Íslendingum. Kostnaður á hvern flugmiða gæti t.d. vaxið um allt að 5.000 krónur en forstjóri Icelandair hefur bent á að sérstakir umhverfisskattar séu engin lausn heldur geti þvert á móti dregið úr möguleikum flugfélaga á að fjárfesta í nýrri tækni til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
18.12.2006
Veikindafjarvistir og starfsmannavelta 2002-2005
Samkvæmt gagnasafni ParX viðskiptaráðgjöf IBM voru starfsmenn á íslenskum vinnumarkaði fjarverandi í tæplega 10 daga að meðaltali á árinu 2005 vegna veikinda eða slysa. Það nemur 4,3% vinnudaga. Fjarvistir jukust mikið á árinu, einkum skammtímafjarvistir en áætla má að veikindalaunagreiðslur hafi numið að minnsta kosti 25 milljörðum króna á árinu 2005. Þá var starfsmannavelta nokkuð mikil á árinu 2005 eða 14,2% sem samsvarar því að sjöundi hver starfsmaður fyrirtækjanna hafi skipt um starf. Starfsmannaveltan var helmingi meiri en fyrir tveimur til þremur árum þegar tíundi hver starfsmaður skipti um starf. Náið samband kemur fram á milli starfsmannaveltu og þenslu á vinnumarkaði.











