Starfsumhverfi atvinnulífsins
31.12.2005
Nýtum tækifærin
Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.
29.12.2005
Stjórnarhættir fyrirtækja, önnur útgáfa
Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Kauphöll Íslands hafa gefið út endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem fyrst komu út árið 2004. Mikil og góð reynsla var af leiðbeiningunum og ákveðið var að gefa út nýjar og uppfærðar leiðbeiningar til að svara kalli atvinnulífsins. Það er vænleg leið til árangurs að atvinnulífið sjálft sýni frumkvæði og taki upp starfsreglur sem styrkja innviði fyrirtækja og auka traust milli almennings og fyrirtækja.
28.12.2005
Skýr skilaboð
Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að SA séu sátt við viðbrögð forsætisráðherra við úrskurði Kjaradóms. „Í þessu felast skýr skilaboð um að stjórnvöld vilji sporna gegn þeirri keðjuverkun sem augljóslega var að byggjast upp að undanförnu í sambandi við launabreytingar. Ég vona að þetta verði skýr skilaboð inn í þá umræðu sem verður á vettvangi sveitarfélaganna um miðjan næsta mánuð," segir Ingimundur ennfremur.
21.12.2005
Gjald fyrir heilbrigðiseftirlit nær nýjum hæðum
Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gefið út nýja gjaldskrá þar sem tímagjald fyrir eftirlitsstörf eru hækkuð um 10% frá fyrri gjaldskrá sem gefin var út í janúar 2004. Fyrir „tímabundna starfsemi tengda stóriðju og virkjunum“ er gjaldið hins vegar 30% hærra en hjá þeim sem stunda það sem eftirlitið kallar hefðbundna starfsemi. Þessi sérstaka gjaldtaka er fordæmalaus og svarar gjaldið til þess að kostnaður við dagvinnu eins heilbrigðisfulltrúa séu tæplega 1,5 milljónir króna á mánuði.
19.12.2005
Pennastriksaðferð borgarstjóra
Innistæðulítil pennastrik stjórnmálamanna bæta ekki lífskjör almennings, segir í grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu. Þar fjallar hann m.a. um þá þróun að sveitarfélögin í landinu geri kostnaðarsamari kjarasamninga en bæði ríkið og almenni markaðurinn á meðan sveitarfélögin í heild séu rekin með tapi. Ari segir um viðbrögð borgarstjórans í Reykjavík við gagnrýni SA á þessa þróun að það sé dapurlegt að borgarstjóri treysti sér ekki í málefnalegar umræður um kjaraþróun og efnahagsmál, en haldi sig þess í stað við gamalkunnar lýðskrumsaðferðir.
15.12.2005
Könnun Útflutningsráðs vegna verkefna á árinu 2006
Útflutningsráð kannar nú hvar áhugi íslenskra fyrirtækja liggur og hvert þau vilja stefna árið 2006. Um er að ræða skoðanakönnun með hugmyndum að verkefnum tengdum sýningum erlendis, viðskiptasendinefndum og námskeiðum á árinu 2006. Áhugasamir eru beðnir að taka þátt í könnuninni á vef Útflutningsráðs.
14.12.2005
Áherslur Evrópusamtaka atvinnulífsins
Efla þarf samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs á tímum vaxandi alþjóðlegrar samkeppni og tilskipun um frelsi í þjónustuviðskiptum gegnir þar lykilhlutverki. Þetta er meðal áhersluatriða af fundi formanna aðildarsamtaka UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Fundurinn lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að árangur náist í WTO-viðræðunum í Hong Kong og hafnaði einhliða skuldbindingum Evrópuríkja á sviði loftslagsmála. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, og Vilmundur Jósefsson, formaður SI, sóttu fundinn.
13.12.2005
Lög um mengun hafs og stranda
Um áramótin taka að fullu gildi lög um mengun hafs og stranda. Fyrirtæki sem lögin ná til þurfa að tryggja sig sérstaklega vegna hugsanlegrar bráðamengunar en í fylgiskjali með lögunum geta fyrirtæki séð hvort þau þurfi að kaupa auka tryggingar og útbúa sérstaka viðbragðsáætlun vegna bráðamengunaróhapps eins og kveðið er á um í lögunum.
10.12.2005
UT-dagurinn 24. janúar 2006
Stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk. undir nafninu UT-dagurinn þar sem haldin verður ráðstefna á Hótel Nordica. Er deginum ætlað að beina sjónum að þeim tækifærum og möguleikum sem við höfum á sviði upplýsingatækni. Markmið dagsins er m.a. að vekja athygli á upplýsingatækninni og upplýsingatækniiðnaðinum, umfangi hans og gildi fyrir samfélagið. Sjá nánar á vef forsætisráðuneytisins.
1.12.2005
Karlar um borð
Karlar fjölmenntu í dag í Salinn í Kópavogi til að ræða jafnréttismál út frá sjónarhóli karla á ráðstefnunni Karlar um borð. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins var meðal frummælenda, en í erindi sínu fjallaði hann um það hvernig atvinnulífið græðir á jafnrétti og mismunun feli í sér sóun. Nefndi Ari einnig að áhersla á jafnrétti og fjölbreytileiki innan fyrirtækja tengdist betri stjórnunarháttum og betri afkomu fyrirtækja. Ari benti m.a. á þá jákvæðu þróun að á síðustu fimm árum hefur konum í stöðu framkvæmdastjóra í skráðum hlutafélögum fjölgað umtalsvert - íslenskt þjóðfélag stefni því í rétta átt þó allt of hægt miði.











