Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

31.12.2005

Nýtum tækifærin

Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.

29.12.2005

Stjórnarhættir fyrirtækja, önnur útgáfa

Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Kauphöll Íslands hafa gefið út endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja sem fyrst komu út árið 2004. Mikil og góð reynsla var af leiðbeiningunum og ákveðið var að gefa út nýjar og uppfærðar leiðbeiningar til að svara kalli atvinnulífsins. Það er vænleg leið til árangurs að atvinnulífið sjálft sýni frumkvæði og taki upp starfsreglur sem styrkja innviði fyrirtækja og auka traust milli almennings og fyrirtækja.

28.12.2005

Skýr skilaboð

Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segir í samtali við Morgunblaðið, að SA séu sátt við viðbrögð forsætisráðherra við úrskurði Kjaradóms. „Í þessu felast skýr skilaboð um að stjórnvöld vilji sporna gegn þeirri keðjuverkun sem augljóslega var að byggjast upp að undanförnu í sambandi við launabreytingar. Ég vona að þetta verði skýr skilaboð inn í þá umræðu sem verður á vettvangi sveitarfélaganna um miðjan næsta mánuð," segir Ingimundur ennfremur.

21.12.2005

Gjald fyrir heilbrigðiseftirlit nær nýjum hæðum

Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur gefið út nýja gjaldskrá þar sem tímagjald fyrir eftirlitsstörf eru hækkuð um 10% frá fyrri gjaldskrá sem gefin var út í janúar 2004. Fyrir „tímabundna starfsemi tengda stóriðju og virkjunum“ er gjaldið hins vegar 30% hærra en hjá þeim sem stunda það sem eftirlitið kallar hefðbundna starfsemi. Þessi sérstaka gjaldtaka er fordæmalaus og svarar gjaldið til þess að kostnaður við dagvinnu eins heilbrigðisfulltrúa séu tæplega 1,5 milljónir króna á mánuði.

19.12.2005

Pennastriksaðferð borgarstjóra

Innistæðulítil pennastrik stjórnmálamanna bæta ekki lífskjör almennings, segir í grein Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu. Þar fjallar hann m.a. um þá þróun að sveitarfélögin í landinu geri kostnaðarsamari kjarasamninga en bæði ríkið og almenni markaðurinn á meðan sveitarfélögin í heild séu rekin með tapi. Ari segir um viðbrögð borgarstjórans í Reykjavík við gagnrýni SA á þessa þróun að það sé dapurlegt að borgarstjóri treysti sér ekki í málefnalegar umræður um kjaraþróun og efnahagsmál, en haldi sig þess í stað við gamalkunnar lýðskrumsaðferðir.

15.12.2005

Könnun Útflutningsráðs vegna verkefna á árinu 2006

Útflutningsráð kannar nú hvar áhugi íslenskra fyrirtækja liggur og hvert þau vilja stefna árið 2006. Um er að ræða skoðanakönnun með hugmyndum að verkefnum tengdum sýningum erlendis, viðskiptasendinefndum og námskeiðum á árinu 2006. Áhugasamir eru beðnir að taka þátt í könnuninni á vef Útflutningsráðs.

14.12.2005

Áherslur Evrópusamtaka atvinnulífsins

Efla þarf samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs á tímum vaxandi alþjóðlegrar samkeppni og tilskipun um frelsi í þjónustuviðskiptum gegnir þar lykilhlutverki. Þetta er meðal áhersluatriða af fundi formanna aðildarsamtaka UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Fundurinn lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að árangur náist í WTO-viðræðunum í Hong Kong og hafnaði einhliða skuldbindingum Evrópuríkja á sviði loftslagsmála. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, og Vilmundur Jósefsson, formaður SI, sóttu fundinn.

13.12.2005

Lög um mengun hafs og stranda

Um áramótin taka að fullu gildi lög um mengun hafs og stranda. Fyrirtæki sem lögin ná til þurfa að tryggja sig sérstaklega vegna hugsanlegrar bráðamengunar en í fylgiskjali með lögunum geta fyrirtæki séð hvort þau þurfi að kaupa auka tryggingar og útbúa sérstaka viðbragðsáætlun vegna bráðamengunaróhapps eins og kveðið er á um í lögunum.

10.12.2005

UT-dagurinn 24. janúar 2006

Stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk. undir nafninu UT-dagurinn þar sem haldin verður ráðstefna á Hótel Nordica. Er deginum ætlað að beina sjónum að þeim tækifærum og möguleikum sem við höfum á sviði upplýsingatækni. Markmið dagsins er m.a. að vekja athygli á upplýsingatækninni og upplýsingatækniiðnaðinum, umfangi hans og gildi fyrir samfélagið. Sjá nánar á vef forsætisráðuneytisins.

1.12.2005

Karlar um borð

Karlar fjölmenntu í dag í Salinn í Kópavogi til að ræða jafnréttismál út frá sjónarhóli karla á ráðstefnunni Karlar um borð. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins var meðal frummælenda, en í erindi sínu  fjallaði hann um það hvernig atvinnulífið græðir á jafnrétti og mismunun feli í sér sóun. Nefndi Ari einnig að áhersla á jafnrétti og fjölbreytileiki innan fyrirtækja tengdist betri stjórnunarháttum og betri afkomu fyrirtækja. Ari benti m.a. á þá jákvæðu þróun að á síðustu fimm árum hefur konum í stöðu framkvæmdastjóra í skráðum hlutafélögum fjölgað umtalsvert - íslenskt þjóðfélag stefni því í rétta átt þó allt of hægt miði.

25.11.2005

Ný reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum

Undanfarna rúma 20 mánuði hefur verið unnið að því á vegum Vinnueftirlits ríkisins að semja ný drög að reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum. Reglugerð þessi sem sett verður samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum á að koma í stað reglna nr. 77/1982 um sama efni. Einnig er nú tekið mið af þeim breytingum sem urðu á lögunum með lögum nr. 68/2003 þar sem atvinnurekendur eru gerðir ábyrgir fyrir því að gerð sé skrifleg áætlun um heilbrigði og öryggi á vinnustað ásamt mati á áhættu, áætlun um heilsuvernd og að þetta sé gert í samráði við starfsmenn. Reglugerðinni er ætlað að ná til allra vinnustaða stórra og smárra.

23.11.2005

Mikilvægt skref í átt að frelsi í þjónustuviðskiptum

Evrópuþingið hefur færst nær niðurstöðu um raunverulegt frelsi í þjónustuviðskiptum, en tilskipunardrög þar að lútandi hafa nú verið afgreidd úr nefnd þingsins um innri markaðinn og neytendamál. UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, fagna niðurstöðunni sem mikilvægu skrefi í átt að raunverulegu frelsi í þjónustuviðskiptum. Forseti samtakanna segir frelsi í þjónustuviðskiptum nauðsynlegt til þess að efla hagvöxt, auka samkeppni og fjölga störfum.

18.11.2005

Hagnaður fyrirtækja undirstaða betra umhverfis

Hagnaður í atvinnulífinu er undirstaða alls hagvaxtar og allrar sjálbærrar þróunar. Þetta sagði Þorgeir Baldursson, varaformaður SA, m.a. í ræðu sem hann flutti við upphaf Umhverfisþings. Þorgeir sagði ekki nóg að horfa á málefnið með gleraugum umhverfisráðuneytisins, einstakra stofnana eða umhverfisverndarsamtaka, heldur yrði að horfa á málin heildstætt. Þorgeir skoraði á umhverfisráðuneytið að grisja reglugerðarskóg sinn í samræmi við átak forsætisráðherra einfaldara Ísland og hvatti jafnframt til að eftirlitskerfi með starfsemi fyrirtækja yrði fært til nútímans. Hann sagði engin skynsemisrök fyrir því að takmarka nýtingu á orkulindum Íslands með alþjóðlegum samningum – slíkt leiddi einungis til tjóns fyrir umhverfið.

16.11.2005

Fundur um úrvinnslugjald á umbúðir

Samtök iðnaðarins og SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu boða til morgunverðarfundar um álagningu úrvinnslugjalds á umbúðir úr pappa, pappír og plasti miðvikudaginn 23. nóvember frá 8:30 til 10:00 á Grand Hótel, en umrædd álagning hefst nú um áramót. Meðal annars verða kynntar reglur um undanþágu frá gjaldinu vegna útflutnings. Sjá nánar á vef SI.

10.11.2005

Alcan á Íslandi hlýtur íslensku gæðaverðlaunin 2005

Íslensku gæðaverðlaunin í ár hlýtur fyrirtækið Alcan á Íslandi. Fyrirtækið rekur álver í Straumsvík þar sem framleiðslan nú er 20% meiri en verksmiðjan er hönnuð til að framleiða, en sá árangur skýrist af mikilli tækni- og verkþekkingu sem orðið hefur til innan fyrirtækisins auk markvissrar stjórnunar. Fyrirtækið hefur vottað gæðakerfi (ISO 9001), umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001) og öryggisstjórnunarkerfi (OHSAS 18001) og hefur verið leiðandi á ýmsum sviðum. Að íslensku gæðaverðlaununum standa Samtök atvinnulífsins, forsætisráðuneytið, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Háskóli Ísland og Stjórnvísi. Sjá nánar á vef Stjórnvísi.

3.11.2005

Áfengis- og vímuefnapróf á vinnustað

Samkvæmt nýrri könnun styðjast 70 af 100 stærstu fyrirtækjum í Svíþjóð við próf til að sporna gegn  vímuefnanotkun meðal starfsmanna sinna og í flestum atvinnugreinum eru fyrirtæki farin að gera kröfu um að starfsfólk sitt undirgangist vímuefnapróf, sem stuðla að auknu öryggi á vinnustað. Er þessi þróun í Svíþjóð í takt við þróunina í Evrópu í heild og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðað slík próf réttlætanleg. Íslensk fyrirtæki hafa áskilið sér rétt til að kalla starfsmenn í vímuefnapróf í starfsumsókn og ráðningarsamningi sem starfsmaður undirritar, þótt það sé ekki algengt enn sem komið er.

3.11.2005

Upplýsingar um umhverfismál - fyrirtæki gæti hagsmuna sinna

Umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Meginreglan er sú að almenningur getur fengið allar upplýsingar um umhverfismál sem fyrir liggja hjá stjórnvöldum eða þeim sem starfa í umboði stjórnvalda. Mikilvægt er að fyrirtæki fari yfir það hvaða upplýsingar eru látnar í hendur stjórnvalda og taki það fram ef upplýsingarnar varða fjárhags- eða viðskiptahagsmuni sem skuli fara leynt.

31.10.2005

Áhersla á aðgerðir gegn þenslu

Mikilvægt er að ákvörðun verði tekin nú þegar um aukin kaup á gjaldeyri og söluandvirði Símans nýtt til þess m.a. Einnig er brýnt að breyta strax reglum Íbúðalánasjóðs varðandi vexti og lánshlutföll. Slíkar aðgerðir munu draga úr þenslu. Þetta kemur fram í efnahagsályktun 66. aðalfundar LÍÚ. Aðalfundurinn samþykkti einnig ályktanir um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, hvalveiðar, loðnurannsóknir, eftirlit vegna skipaskoðunar og ráðgefandi stjórn Fiskistofu. Sjá nánar á vef LÍÚ.

27.10.2005

Rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja óviðunandi

Á aðalfundi LÍU, sagði Björgólfur Jóhannsson, formaður samtakanna, að staðan í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja í dag væri óviðunandi, sem rekja mætti fyrst og fremst til styrkingar íslensku krónunnar. „Ég hef mikið velt því fyrir mér á undanförnum mánuðum hvað sé eiginlega að gerast á gjaldeyrismarkaði. Mér finnst málin liggja þannig að Seðlabanki Íslands hækkar vexti, eina ráðið að sagt er, til að halda aftur af verðbólgu, verðbólgu sem hefur verið drifin áfram af annars vegar utanaðkomandi aðstæðum og hins vegar heimatilbúnum,” sagði Björgólfur. „Heimatilbúnar aðstæður kalla ég hækkun á verði fasteigna sem fyrst og fremst má rekja til ákvarðana um hækkun lánshlutfalls og lækkun vaxta hjá Íbúðalánasjóði. Erlendir aðilar koma svo með fé og nýta sér háa vexti með tilheyrandi afleiðingum.” Sjá nánar ræðu Björgólfs á vef LÍÚ.

19.10.2005

Hræðsla við erlent starfsfólk ástæðulaus

Í grein í nýjasta tölublaði  Newsweek, er fjallað um hræðslu Evrópubúa við erlent starfsfólk. Greint er frá því hvernig frjáls för starfsfólks frá tíu þjóðum sem gerðust aðilar að ESB og EES 1. maí 2004 var takmörkuð af nær öllum ríkjum sem voru fyrir aðilar að EES. Þá er fjallað um að ein af þeim hindrunum sem standi í vegi fyrir aðild Tyrklands að ESB sé rótgróin ótti við að Tyrkir muni taka störf af Evrópubúum. Fram kemur hjá greinarhöfundi að ótti sem þessi er ástæðulaus og bent er á að þeim þjóðum hafi farnast best sem engar takmarkanir hafi gert, þar sem þær hafi notið krafta starfsfólks sem eftirspurn hafi verið eftir til að auka hagvöxt og velferð.

12.10.2005

Menntun og aftur menntun

Í vaxandi alþjóðlegri samkeppni verða samkeppnishæf almenn starfsskilyrði fyrir atvinnulífið stöðugt mikilvægari. Þá verður menntun og aftur menntun ásamt með ræktun frumkvöðlaanda lykilatriði í áframhaldandi árangri. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga um hræringar á vinnumarkaði.

11.10.2005

Útilokað að fiskvinnslan taki á sig aukinn launakostnað

„Útilokað er að fiskvinnslan taki á sig aukinn launakostnað um næstu áramót sem orsakast af þensluástandi undanfarinna mánaða, á sama tíma og þrengt er að rekstri fyrirtækjanna,” segir í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva sem haldinn var þann 7. október. Aðalfundur SF lýsti yfir furðu sinni á aðgerðum í efnahags- og peningamálum sem leitt hafi til gengishækkunar krónunnar og grafið um leið undan rekstri útflutningsfyrirtækja í landinu. Fundurinn benti á að á síðustu 12 mánuðum hafi gengi krónunnar hækkað um 15% gagnvart erlendum gjaldmiðlum og muni það að óbreyttu geta haft í för með sér 18 milljarða króna samdrátt í útflutningsverðmætum sjávarafurða á einu ári. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja við þessar aðstæður sé óviðunandi. Sjá nánar vef SF.

9.10.2005

Barátta gegn búðaþjófnaði – fundur 11. október

Þriðjudaginn 11. október standa SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þar sem kynntur verður samanburður á umfangi búðaþjófnaða á Íslandi og í 24 öðrum Evrópulöndum. Sjá nánar á vef SVÞ.

3.10.2005

”Meet the winners”: Ísland

Á aðalfundi dönsku samtaka iðnaðarins á dögunum var fjallað um Ísland undir fyrirsögninni Meet the Winners. Að mati Dana eru Íslendingar í hópi þeirra þjóða sem hafa náð framúrskarandi árangri á sviði viðskipta og efnahagsmála. Hagstætt og samkeppnishæft skattaumhverfi, ríkur frumkvöðlakraftur og viljinn til að vinna eru Dönum efst í huga um Ísland.

28.9.2005

Endurskoða þarf eftirlitskerfið frá grunni

Það er tímabært og gríðarlega mikilvægt að endurskoða eftirlitskerfi hins opinbera og leyfisveitingar frá grunni. Í dag er þetta kerfi allt of flókið og íþyngjandi og of dýrt í framkvæmd. Þetta sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í setningarávarpi ráðstefnunnar Hreinn ávinningur, þar sem fjallað var um hvað fyrirtæki geta grætt af umhverfisstarfi. Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, sagði ráðuneytið vera markvisst að fara í gegnum eftirlitskerfi á þess vegum og að fljótlega yrðu kynntir áfangar í því starfi.

8.9.2005

Uppskriftin að velgengni Norðurlanda á heimsvísu birt

Samtök atvinnurekenda á Norðurlöndum hafa búið til sameiginlega uppskrift að því hvernig Norðurlöndin geti tryggt áframhaldandi velgengni sína á heimsvísu. Uppskriftin er birt í skýrslunni The Nordic recipe for global success. Skýrslan fjallar um það hvernig Norðurlöndin geti brugðist við sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni og í henni kemur fram að Norðurlandaþjóðirnar verði að sækja í sig veðrið, með því að bæta starfsumhverfi atvinnulífsins og efla menntun fólks enn frekar, ef takast eigi að tryggja velferð þjóðanna til framtíðar.

1.9.2005

Samkeppnisstaða fyrirtækja aldrei verið verri

Raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags er um þessar mundir hærra en nokkru sinni og er samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verri en hún hefur verið frá upphafi þessara mælinga. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að því fari fjarri að hagkerfið geti staðið undir núverandi gengi krónunnar. Gríðarlegur viðskiptahalli beri því órækt vitni. Hagnaður atvinnulífsins í heild hafi farið minnkandi samhliða hækkandi raungengi. Vissulega finnist ánægjulegar undantekningar í Kauphöllinni, en sá hagnaður eigi að stórum hluta rætur að rekja til starfsemi erlendis.

22.8.2005

Danir leita fyrirmynda í íslensku viðskiptalífi

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í Danmörku (Dansk Industri), verður horft til þeirra þjóða sem njóta velgengni á sviði viðskipta og efnahagsmála. Yfirskrift fundarins er: Meet the Winners en Dönum er hugleikið að finna leiðir til að bæta árangur sinn á sem flestum sviðum þjóðfélagsins til að koma Danmörku í fremstu röð þjóða á tímum þegar alþjóðleg samkeppni fer sífellt vaxandi. Að mati frænda okkar eru Íslendingar í hópi þeirra sem mestum árangri hafa náð og er fjallað sérstaklega um árangur Íslands á fundinum.

10.8.2005

Umbætur í stærstu ríkjum ESB?

Nýr forsætisráðherra Frakklands hefur auðveldað smærri fyrirtækjum að segja upp starfsfólki og hraðað einkavæðingu. Kristilegir demókratar boða breytingar í svipaða átt í Þýskalandi hafi þeir sigur í væntanlegum þingkosningum, og leiðtogi jafnaðarmanna þar í landi hefur barist fyrir svipuðum umbótum. Ýmislegt bendir því til þess að leiðtogar þessara forysturíkja muni á næstu misserum auka sveigjanleika á vinnumarkaði og frelsi í atvinnulífinu, í þeim tilgangi að auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi.

7.7.2005

Opinber fjármálastjórn og fækkun starfa í atvinnulífinu

Störfum fækkar í gengisháðum greinum í alþjóðlegri samkeppni og miklu meira aðhald opinberra fjármála er nauðsynlegt til að sporna gegn þeirri öfugþróun sem hátt gengi krónunnar hefur í för með sér, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir stjórnmálamenn bera litla virðingu fyrir þeim fjárlögum sem þeir samþykkja og að núverandi starfshættir Íbúðalánasjóðs séu bein ógnun við þann verðstöðugleika sem óumdeilanlega sé helsta forsenda vinnufriðar í landinu. Sveitarfélög auka á vandann.

7.7.2005

Þúsundir starfa horfin í sjávarútvegi og iðnaði

Hátt gengi krónunnar undanfarin ár hefur stuðlað að verulegri fækkun starfa í iðnaði og sjávarútvegi – um rúm 4.000 frá árinu 1998 - og enn sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Öflugur útflutningsgeiri og kraftmikil samkeppni við innfluttar vörur og þjónustu er hins vegar forsenda jafnvægis í utanríkisviðskiptum og áframhaldandi hagvaxtar.  Hátt kostnaðarstig er því mikið áhyggjuefni.

5.7.2005

Lagafrumvarp um efni og efnavöru: ábendingar berist SA

SA hafa borist til umsagnar drög að frumvarpi til laga um efni og efnavöru, sem unnið var af nefnd opinberra starfsmanna. Þar er m.a. að finna fjölmargar nýjungar um efnavöru-skráningu, leyfi til markaðssetningar nýrra efna, ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu auk viðamikilla krafna um eftirlit, leyfisveitingar, gjaldtöku og fleira. SA hafa frest til 20. ágúst til að skila inn athugasemdum við frumvarpið og þeir sem vilja kynna sér frumvarpið og gera við það athugasemdir geta snúið sér til SA.

5.7.2005

SA gera kannanir með fjármálaráðuneyti og Seðlabanka

Samkomulag hefur orðið um að SA gangi til samstarfs við fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands um gerð kannana meðal fyrirtækja á horfum í rekstri og efnahagsmálum, sem IMG Gallup framkvæmir. Samhliða munu SA láta af gerð eigin kannana meðal aðildarfyrirtækja sinna, sem hafa verið um margt sambærilegar.

15.6.2005

Breyta verður Íbúðalánasjóði sem fyrst

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur mikilvægt að starfsemi Íbúðalánasjóðs verði breytt sem fyrst til að tryggja fjármálastöðugleika og að bönkunum verði gert kleift að starfa áfram á húsnæðislánamarkaði. Jafnframt verði stjórnvöld að beita auknu aðhaldi í ríkisfjármálunum til að bregðast við hagsveiflum. Nefndin hefur kynnt sér stöðu efnahagsmála hér á landi og rætt bæði við stjórnvöld og fulltrúa atvinnulífsins.

2.6.2005

Ekkert eftirlit með gjaldskrám sveitarfélaga

Mjög mismunandi er milli sveitarfélaga hversu há gjöld eru innheimt af fyrirtækjum vegna eftirlits með starfsemi þeirra. Almennt er mörg hundruð prósenta munur á hæsta og lægsta gjaldi og dæmi er um að mismunurinn hlaupi á hundruðum þúsunda. Stórlega er dregið í efa að hæstu gjöldin séu í samræmi við kostnað af eftirliti og geta sveitarfélög þanið eftirlitið út að eigin geðþótta – án eftirlits – og sent atvinnulífinu í landinu reikninginn. Sveitarfélög stunda jafnframt mörg hver umfangsmikinn atvinnurekstur og sjá um að hafa eftirlit með eigin starfsemi, sem er ólíðandi.

31.5.2005

UNICE harma höfnun Frakka

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, harma höfnun Frakka á nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins og telja að hið franska nei muni hafa neikvæð áhrif í álfunni. UNICE  eru fylgjandi gildistöku hinnar nýju stjórnarskrár og telja hana vera nytsamlegt plagg, þar sem hún sé nauðsynlegur grunnur fyrir gegnsæja, lýðræðislega og skilvirka stjórnsýslu – eitthvað sem Evrópusambandið vanti sárlega.

27.5.2005

Basel II: hærri vextir og aukinn kostnaður fyrirtækja?

Skiptar skoðanir voru um áhrif gildistöku Basel II reglu-verksins á ráðstefnu sem haldin var um fyrirbærið á vegum Sambands íslenskra sparisjóða og SA, en það  tekur gildi árið 2007. Fjármálafyrirtæki munu þurfa að meta viðskiptavini sína mun betur og  fyrirtæki þurfi að gefa þeim mun ítarlegri upplýsingar. Kostnaður af innleiðingu Basel II er ekki ljós en kjör sumra fyrirtækja gætu batnað á meðan kjör annarra gætu versnað. Þolinmæði fjármálafyrirtækja gagnvart vanskilum mun minnka og innheimta verður hert.

12.5.2005

Vilji forsætisráðherra að lágmarka opinbert eftirlit

Í ræðu sinni á aðalfundi SA tók forsætisráðherra undir sjónar-mið SA um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Þetta er fagnaðarefni, enda er aukin hagkvæmni á þessu sviði gríðarlegt hagsmunamál fyrir atvinnulífið, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann nefnir sem dæmi að í dag þarf gjarnan fimm leyfi til að reka eitt veitingahús og segir blasa við að eitt leyfi hljóti að nægja.

12.5.2005

Ríki og sveitarfélög borgi reikningana sína!

Ríki og sveitarfélög á Íslandi greiða ekki reikninga á tilsettum tíma og neita að borga dráttarvexti. Forstjóri Tæknivals, Sigrún Guðjónsdóttir, sagði þetta landi og þjóð til skammar á aðalfundi SA. Könnun SA frá 2003 sýndi fram á verulega greiðslutregðu opinberra aðila en vandamálið virðist enn vera til staðar.

10.5.2005

Ársskýrsla SA 2004 - 2005

Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2004-2005, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 3. maí, má nálgast hér á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl. Sjá ársskýrslu SA (pdf-skjal).

4.5.2005

Lækkun félagsgjalda SA

Á aðalfundi SA var samþykkt að lækka iðgjald til vinnudeilu-sjóðs samtakanna úr 0,04% í 0,02% af iðgjaldsstofni næstliðins árs. Jafnframt var samþykkt að veita stigvaxandi afslátt af árgjöldum til samtakanna umfram eina milljón króna. Félagsjöld SA voru síðast lækkuð árið 2001 en lækkunin nú er enn meiri.

3.5.2005

Umsvif erlendis þýða sérfræðistörf á Íslandi

Aukin umsvif íslenskra fyrirtækja erlendis hafa m.a. haft í för með sér fjölgun sérfræðistarfa fyrir hámenntað fólk hér á landi. Íslendingar hafa sýnt að þeir geta keypt stór fyrirtæki erlendis en verða dæmdir af því hvernig þeim gengur að reka þau. Öflugt menntakerfi og öflugt umhverfi nýsköpunar eru lykilatriði fyrir framtíðar velgengni Íslendinga. Þetta er meðal þess sem fram kom í umræðum á aðalfundi SA.

3.5.2005

Halda ber áfram að laga skattaumhverfið

Í ræðu sinni á aðalfundi SA sagði Halldór Ásgrímsson forsætis-ráðherra m.a. að halda bæri áfram að laga skattaumhverfið til að styrkja samkeppnisstöðu atvinnulífsins og bæta lífskjörin. Hann tók undir stefnumörkun SA á sviði eftirlits með atvinnu-starfsemi, sagði áframhaldandi uppbyggingu stóriðju til alvarlegrar skoðunar, sagði nauðsynlegt að skoða hvernig örorkuréttur stofnast og auglýsti eftir meira trausti í samfélaginu.

3.5.2005

Hagsmunir atvinnulífsins eru almannahagsmunir

Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður samtakanna, m.a. um mikilvægi samkeppnishæfs starfsumhverfis og lagði hann áherslu á að hagsmunir atvinnulífsins væru almannahagsmunir. Gjöld og álögur á fyrirtæki væru á endanum borin af neytendum. Þá sagði hann einungis fjórðung hækkunar verðlags stafa af hækkun á verði vöru og þjónustu. Einsýnt væri að ekki yrði litið framhjá þessu við mat á verðlagsþróun og eðlilegum viðbrögðum hennar vegna.

3.5.2005

Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áherslur sínar í ellefu málaflokkum sem varða starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja. Um er að ræða niðurstöður víðtæks og kraftmikils málefnastarfs þar sem fjöldi fólks frá aðildarfélögum samtakanna, einstökum fyrirtækjum og fleiri aðilum lögðu drög að stefnu SA, sem vilja tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði, landsmönnum öllum til hagsbóta. Sjá nánar

19.4.2005

Samþykktar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum

Stjórn SA hefur samþykkt texta í nýjar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum, sem drög hafa verið lögð að í öflugu málefnastarfi samtakanna undanfarna mánuði. Fjallað er um efnahagsmál, vinnumarkaðsmál, skattamál, reglubyrði og eftirlit, samkeppnismál, menntamál, rannsóknir og nýsköpun, umhverfismál, jafnréttismál, lífeyrismál og alþjóðamál.

4.4.2005

Ármann, Jón Ásgeir, Katrín, Ragnhildur og Svafa

Áherslur atvinnulífsins og framtíðarsýnin verða efni umræðna á aðalfundi SA 3. maí nk., að loknum ræðum formanns SA og Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Þátttakendur verða þau Ármann Þorvaldsson framkvæmdastjóri fyrirtækja-ráðgjafar KB banka, Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group, Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis hf., Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri FL Group og Svafa Grönfeldt fram-kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Actavis Group. Umræðunum stýrir Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2. Sjá nánar um aðalfund SA.

18.3.2005

Ályktun iðnþings: stöðugleiki nauðsynlegur

Stöðugleika þarf til að samkeppnis- og útflutningsgreinar þrífist, segir í ályktun iðnþings Samtaka iðnaðarins. Þar segir að hátt gengi krónunnar, óhóflegur vaxtamunur, sífelld útþensla í ríkisrekstrinum og mjög hátt raungengi um þessar mundir valda því að framleiðslu- og þjónustufyrirtæki leggi upp laupana eða fari úr landi í stórum stíl. Kallað er eftir samstilltu átaki um efnahagslegan stöðugleika. Sjá nánar á vef SI.

8.3.2005

Hrund Rudolfsdóttir formaður stjórnar SVÞ

Á aðalfundi SVÞ var Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu hf. kjörin formaður stjórnar samtakanna. Hrund tekur við af Sigurði Á. Sigurðssyni, forstjóra BÚR hf. Í erindi sínu á fundinum fjallaði fráfarandi formaður m.a. um samkeppnislög og sérlög um markaðssamráð í landbúnaði, um þjónustutilskipun ESB o.fl. Þá ályktaði fundurinn um stofnun eins atvinnuvegaráðuneytis.

3.3.2005

Af erlendu starfsfólki og svartri atvinnustarfsemi

Það er að sjálfsögðu með öllu óþolandi fyrir heiðarleg fyrirtæki að þurfa að keppa við aðila sem fara framhjá lögum og reglum, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hún segir slíka starfsemi ekki eiga neinn rétt á sér og að hana beri að uppræta. Slík starfsemi megi hins vegar ekki verða til þess að kasta rýrð á þá útlendinga sem hér starfa á eðlilegum forsendum og þá vinnuveitendur sem nýta sér krafta erlends starfsfólks eftir löglegum leiðum.

3.3.2005

Nýtt eftirlit án lagastoðar?

Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega nýju eftirliti Aðfangaeftirlitsins með útfluttu fiskmjöli og lýsi. Samtökin telja þetta nýja eftirlit og gjaldtöku ekki eiga sér neina stoð í lögum. Dæmi er um að einu sjávarútvegsfyrirtæki sé gert að greiða á annan tug milljóna á ári í ný eftirlitsgjöld. Innheimta eftirlitsgjaldanna er nú fyrir dómstólum. Sjávarútvegs-ráðuneytið telur þetta nýja eftirlit bæði ólögmætt og óþarft.

3.3.2005

Garðabær sker sig úr

Sumarlokanir leikskóla valda víða óhagræði fyrir foreldra og fyrirtæki. Samtök atvinnulífsins hafa kannað hvernig þessu verður háttað hjá stærstu sveitarfélögunum. Í flestum þeirra loka leikskólar í tvær til fjórar vikur á mismunandi tímum. Sums staðar er boðið upp á einhver úrræði á borð við að einn leikskóli sé opinn. Garðabær sker sig hins vegar úr því þar loka engir leikskólar og foreldrar ráða því sjálfir hvenær börnin fara í frí.

18.2.2005

Hættulega rangur skilningur á kapítalismanum

Talsmenn aukinnar félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja eiga það sameiginlegt að byggja á hættulega röngum skilningi á kapítalismanum, segir í leiðara vikuritsins Economist. Heiðar-leg fyrirtæki sem virða lög og reglur og starfa á samkeppnis-markaði þjóna stöðugt almannahag, án þess þó að hafa það beinlínis að markmiði. Skaðleg góðvild er algeng niðurstaða áherslu á aukna félagslega ábyrgð.

16.2.2005

Nýta megi endurnýtanlegar orkulindir

Mikilvægt er að skuldbindingar um minnkun á losun gróður-húsalofttegunda nái til fleiri ríkja en nú er, þar á meðal til Bandaríkjanna og landa á borð við Indland og Kína. Þá er afar mikilvægt að Íslendingar og aðrir fái áfram að nýta endur-nýtanlegar orkulindir. Þetta er meðal þess sem fram komi í máli Péturs Reimarssonar frá SA á málþingi um Kyoto-bókunina.

7.2.2005

Endurskoða þarf hlutverk Íbúðalánasjóðs

Bæði Seðlabankinn og SA hafa ítrekað bent á að í stað þess að hækka almenn lán Íbúðalánasjóðs væri fyllsta þörf á að endurskoða hlutverk sjóðsins, en hækkun húsnæðisverðs skýrir um helming allrar hækkunar vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði. Ríkið er þarna í mótsagnarkenndu hlutverki, þar sem Íbúðalánasjóður keppir um útlán við fyrirtæki á frjálsum markaði á meðan Seðlabankinn eykur aðhald peninga-stefnunnar með hækkun stýrivaxta.

3.2.2005

Sporna þarf gegn ofþenslu

Uppsagnir á Stöðvarfirði og í Þorlákshöfn vitna um almenna þróun starfsskilyrða segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að staðan sé alvarleg og að huga þurfi vandlega að öllum leiðum til að draga úr þenslu.

3.2.2005

Versnandi afkoma í fiskvinnslu

Framlegð fiskvinnslufyrirtækja hefur að meðaltali lækkað úr tæpum 9% árið 2003 í tæp 4% í janúar á þessu ári, fyrir fjármagnsliði, samkvæmt lauslegri athugun SA. Líklegt verður því að telja að við núverandi aðstæður sé meirihluti fisk-vinnslufyrirtækja rekinn með tapi og ljóst að greinin mun áfram eiga verulega undir högg að sækja við óbreytt eða enn hærra gengi krónunnar.

13.1.2005

Breytingar á skattaumhverfi – áherslur SA

Þróun skattumhverfis fyrirtækja hefur verið afar jákvæð undanfarin ár, en brýnustu verkefnin framundan eru m.a. afnám stimpilgjalds á viðskiptabréf, endurskoðun vörugjalda og virðisaukaskatts og frekari lækkun tekjuskatts fyrirtækja. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á skattadegi Deloitte, SA, VÍ og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins.

11.1.2005

Siðferði í góðu lagi hjá íslenskum stjórnendum

Í nýrri könnun á siðferði í íslensku viðskiptalífi kemur fram að mál eru í ágætum farvegi. Stjórnendur segjast huga að siðferðilegum afleiðingum ákvarðanna sinna og þeir segja stöðu mála betri í dag en áður. Jafnframt telja þeir siðferði í viðskiptum á Íslandi vera betra en í nágrannalöndum.  Könnunin var kynnt á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins, Glímunnar og Verslunarráðs sem fór fram í morgun, þar sem rætt var um traust og siðferði í íslensku viðskiptalífi.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english