Beint á leiðarkerfi vefsins

Starfsumhverfi atvinnulífsins

31.12.2004

Ár landvinninga í atvinnulífinu

Árið 2004 einkennist af góðum árangri íslensks atvinnulífs og samfélagsins alls í efnalegu tilliti og eftirtektarverðum land-vinningum einstakra fyrirtækja, segir Ingimundur Sigurpáls-son, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali Morgunblaðsins. Hann segir samkeppnishæf starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja mikil-vægari en nokkru sinni fyrr á tímum hnattvæðingar. Náum við enn frekari árangri á þeim sviðum höfum við alla burði til þess að vera áfram í fremstu röð meðal þjóða.

11.12.2004

Gengi sem ekki fær staðist

Núverandi gengi íslensku krónunnar fær ekki staðist og samræmist ekki raunstærðum í hagkerfinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Segir hann samtökin telja um klárt yfirskot að ræða, sem sjá megi af gríðarlegum viðskiptahalla enda sverfi að samkeppnis-atvinnuvegunum.

9.12.2004

Þúsund fyrirtækjastjórnendur krefjast umbóta innan ESB

Um eitt þúsund fyrirtækjastjórnendur eru saman komnir í Brussel á degi samkeppnishæfni til að krefjast umbóta á því sviði innan ESB. Draga þarf úr reglubyrði, ryðja burt hindrunum á innri markaðnum og auka sveigjanleika á vinnumarkaði, segja UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins. Meðal annars er bent á að erfiðara er að stofna fyrirtæki innan ESB en t.d. vestanhafs auk þess sem þau vaxa hægar.

8.12.2004

Mæla á kostnað fyrirtækja af lögum og reglum

Evrópusambandið undirbýr nú að mældur verði kostnaður atvinnulífsins af einstökum lögum reglum og er mælingunni ætlað að auðvelda minnkun reglubyrðinnar og þess kostnaðar sem af henni hlýst. Fyrirmyndin er sótt til Hollands, þar sem stjórnvöld stefna að lækkun kostnaðar atvinnulífsins vegna reglubyrði um fjórðung.

2.12.2004

Af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja

SA fagna umræðu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja hér á landi, en hún hefur verið nokkuð fyrirferðarmikil á Evrópu-vettvangi. Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi minnir Ari Edwald framkvæmdastjóri samtakanna þó á að meginhlutverk fyrirtækja sé að skapa verðmæti og bera arð, en það er jú forsenda almennrar velferðar. Samkeppnishæf starfsskilyrði atvinnulífsins séu mikilvægari en nokkru sinni fyrr nú á tímum hnattvæðingar.

2.12.2004

Afkomuvæntingar svipaðar milli ára

Afkomuvæntingar fyrirtækja eru mjög svipaðar og fyrir ári síðan, skv. könnun SA. Rúmur helmingur reiknar með svipaðri afkomu á næstu mánuðum, eða 56%, samanborið við 52% fyrir ári síðan. 29% reikna með batnandi afkomu í stað 30% fyrir ári síðan, og 12% með versnandi afkomu, í stað 16%. Bjartsýnin er minni á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæði og horfur bjartastar meðal verktaka en dekkstar í sjávar-útvegi.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english