Starfsumhverfi atvinnulífsins
23.1.2003
Vaxandi áhyggjur af þróun peningamála
SA hafa vaxandi áhyggjur af þróun peningamála í landinu. Gengi krónunnar hefur hækkað það mikið að verulega þrengir að samkeppnisstöðu atvinnulífsins, stefnan er í átt til verðhjöðnunar og mikill slaki á vinnumarkaði. Nauðsyn-legt er að stuðla að lækkun gengis með lækkun stýrivaxta.
22.1.2003
Enn meiri launahækkanir í opinbera geiranum
Laun opinberra starfsmanna og bankamanna hækkuðu að meðaltali um 7,3% á 4. ársfjórðungi 2002 árs miðað við sama tíma árið 2001. Á almennum markaði hækkuðu laun á sama tíma um 4,6%. Í heild hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 5,8%.
20.1.2003
Ráðstefna um rýrnun í verslunum
„Öryggi í verslunum – skilvirkar leiðir til að koma í veg fyrir rýrnun“ er yfirskrift ráðstefnu SVÞ sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík 10. febrúar. Gert er ráð fyrir að árleg rýrnun í íslenskum verslunum sé á fjórða milljarð króna.











