Samkeppnismál
7.6.2007
Tillögur ESB um útstreymi frá flugi eru óhóflega dýrar og brengla samkeppni
Evrópusamband flugfélaga hefur kynnt óháð mat á tillögum framkvæmdastjórnar ESB um að fella flug undir útstreymistilskipun ESB. Niðurstöður matsins eru m.a að kostnaður flugfélaga vegna tillagnanna sé stórlega vanmetinn og að þær muni hafa áhrif á getu félaganna til fjárfestinga og um leið dragi stórlega úr þeim ávinningi sem þær geti haft fyrir umhverfið. Tillögur ESB geta haft veruleg áhrif á íslensk flugfélög og samkeppnisstöðu þeirra auk þess sem fargjöld og gjöld fyrir vöruflutninga munu hækka.
7.6.2007
Frjálst flæði matvöru til og frá Íslandi í undirbúningi
Verið er að undirbúa innleiðingu matvælalöggjafar Evrópusambandsins hér á landi. Miðað er við að löggjöfin geti tekið gildi í ársbyrjun 2010 og að eftir það falli niður bann við innflutningi á ýmsum matvælum frá Evrópska efnahagssvæðinu svo sem kjötvörum, eggjum og mjólkurvörum. Sama gildir um útflutning íslenskra afurða.
1.3.2007
Alvarlegar athugasemdir við breytingar á samkeppnislögum
Samtök atvinnulífsins gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp til breytinga á samkeppnislögum þótt ýmislegt í því sé til bóta. SA telja að refisheimildir séu hertar um of og benda á að í frumvarpinu sé gengið lengra en í nágrannaríkjum Íslands. Það er mat SA að fyrningarfrestur vegna brota á samkeppnislögum eigi að vera 5 ár eins og í nágrannalöndunum, bæði fyrir lögaðila og einstaklinga, og að viðurlög við brotum á samkeppnislögum eigi að meginstefnu til að vera í formi sekta. SA taka undir sjónarmið forstjóra Samkeppniseftirlitsins um mikilvægi þess að samtök fyrirtækja séu ekki skjól eða vettvangur samkeppnislagabrota.
13.2.2007
Harðari viðurlög en í nágrannalöndunum
Alþingi hefur nú til meðferðar frumvörp til laga um breytingu á samkeppnislögum annars vegar og um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði hins vegar. Í frumvörpunum er gengið lengra en í nágrannalöndum Íslands og lagðar til strangari refsiheimildir en þar tíðkast gagnvart einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum fyrirtækja.
1.2.2007
Samkeppnislög gegn málfrelsi og skoðanafrelsi?
Nú liggur fyrir frumvarp til breytinga á samkeppnislögum þar sem gert er ráð fyrir nýjum og að verulegu leyti mjög hertum refsiheimildum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að sá þáttur frumvarpsins sem snúi að starfsemi samtaka fyrirtækja sé um margt mjög sérstakur og ef það yrði að lögum yrði það mjög heftandi fyrir starfsemi samtaka í atvinnulífinu, þ.á.m. Samtaka atvinnulífsins. Sérstaklega er varað við því nýmæli sem felst í frumvarpinu að heimilt verði að beita samtök fyrirtækja sektum sem nemi allt að 10% af veltu þeirra fyrirtækja sem forsvarsmenn samtakanna tengjast. Vilhjálmur segir gengið lengra í frumvarpinu en við nýlegar breytingar á samkeppnislögum í Danmörku og bendir á að











