Beint á leiðarkerfi vefsins

Samkeppnismál

2.11.2006

RÚV og jafnræði á markaðnum

Með áformuðum breytingum í fyrirliggjandi frumvarpi verður Ríkisútvarpið mun öflugri keppinautur en áður þar sem sveigjanleikinn í rekstrinum verður aukinn og litlar hömlur lagðar á þróun starfseminnar. Skilgreiningin á útvarpsþjónustu í almannaþágu er svo rúm að hún getur náð yfir lang stærstan hluta starfseminnar og því er hætt við að mjög þrengi að keppinautum Ríkisútvarpsins og það fái algjöra yfirburði á markaðnum í krafti 2,7-2,8 milljarða króna skatttekna, með þeim afleiðingum að í heild verði framboð af efni fábreyttara og einhæfara en nú er. Þess vegna verður aldrei friður um Ríkisútvarpið ohf. í fyrirhugaðri mynd, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

14.6.2006

Húsleitir í fyrirtækjum: Áhersla á ríka ástæðu og skýr markmið

Virk samkeppni í viðskiptum er brýnt hagsmunamál fyrir atvinnulífið og samkeppnislög og samkeppniseftirlit gegna þar mikilvægu hlutverki, sagði Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, m.a. í samtali við fréttastofu RÚV. Varðandi húsleitir lagði Hrafnhildur áherslu á tilefni og markmið og sagði atvinnulífið verða að geta treyst því að Samkeppniseftirlitið færi ekki inn í fyrirtæki nema rík ástæða væri til. Þá yrði markmið með leitinni þyrfti að vera skýrt – leitin yrði að beinist að því sem málið snerist um.

26.4.2006

Upptaka af erindi Quentin Peel á vef SA

Á vef SA er nú hægt að horfa á ræðu Quentin Peel, ritstjóra alþjóðamála hjá Financial Times, sem hann flutti á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins. Peel kom víða við og ræddi meðal annars um þróun efnahagsmála á Íslandi og sagði enga hættu á að Ísland yrði „annað Taíland eða Indónesía“ í efnahagssamdrætti enda um að ræða opið hagkerfi með skýru regluverki. Íslendingar yrðu hins vegar að gera ráð fyrir einhverju tímabili minni hagvaxtar en verið hefði og sagði Íslendinga eiga að vera vana því að sigla í ólgusjó. Horfa á Quentin Peel.

20.4.2006

Hvað er að frumvarpi um RÚV?

Í frumvarpi um RÚV skortir nothæfa skilgreiningu á því hvað RÚV á að gera sem og eftirlit með því hvað það gerir í raun, segir Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá SA, í grein í Morgunblaðinu. Hann segir að Alþingi væri sómi að því að ráða bót á þessu með nútímalegri ákvæðum og forðast nýleg mistök í hliðstæðu máli, en þar vísar hann til nýlegrar niðurstöðu EFTA dómstólsins í máli Íbúðalánasjóðs. Krafa EES samningsins er að ríkisstyrkir raski ekki samkeppni og taldi dómurinn vafa leika á því að fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs stæðist þá kröfu.

27.3.2006

Varað við verndarstefnu innan ESB

Ernest-Antoine Seillière forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, ávarpaði leiðtogafund ESB á dögunum. Í erindi sínu varaði Seillière við tilhneigingu til einhvers konar verndarstefnu sem orðið hefur vart innan sambandsins nýverið, þar sem tilteknar ríkisstjórnir hafa beitt sér gegn samruna fyrirtækja yfir landamæri, einkum á sviði orkumála. Seillière fjallaði m.a. um mikilvægi frjálsra þjónustuviðskipta, aukins sveigjanleika á vinnumarkaði og minni reglubyrði fyrirtækja. Mikla athygli vakti að Jacques Chirac forseti Frakklands yfirgaf salinn þegar Seillière hóf að flytja ræðu sína á ensku, en Seillière er fyrrverandi formaður frönsku samtaka atvinnulífsins. SA og SI eru meðal aðildarsamtaka UNICE.

15.2.2006

Frumvarp um RÚV samræmist ekki EES-reglum

SA telja að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið feli í sér vissa framför frá fyrra frumvarpi. Samtökin telja þó að frumvarpið samræmist ekki ákvæðum EES samningsins um ríkisstyrki, sé í andstöðu við markmið samkeppnislaga og tryggi ekki ásættanlegt jafnræði milli opinberra aðila og einkaaðila í útvarpsrekstri. Þannig er t.d. í frumvarpinu, ólíkt því sem EES reglur um ríkisaðstoð krefjast og getið er um í athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA, ekki beinlínis mælt fyrir um skyldu RÚV til að veita tiltekna og magngreinda þjónustu í almannaþágu gegn þeim ríkisstyrk sem félaginu er ætlaður, heldur er ákvæðið skrifað nánast eins og heimildarákvæði í kringum alla núverandi starfsemi RÚV.

2.1.2006

Fundur um lækkun matvælaverðs og landbúnaðarstefnu

Fimmtudaginn 5. janúar nk. standa SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu og Félag viðskipta- og hagfræðinga fyrir morgunverðarfundi undir heitinu Lækkun matarverðs og landbúnaðarstefna. Frummælendur verða Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, Jón Þór Sturluson forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar og Aðalsteinn Leifsson aðjúnkt í  Háskólanum í Reykjavík. Sjá nánar á vef FVH.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english