Beint á leiðarkerfi vefsins

Samkeppnismál

30.3.2001

Forsjárhyggjan og löggæslumenn viðskiptalífsins

„Forsjárhyggjan lifir enn góðu lífi og ný stétt manna – löggæslumenn viðskiptalífsins – hefur sprottið upp,“ sagði Óli Björn Kárason m.a. í erindi sínu á aðalfundi SVÞ. Óli rakti þrjú dæmi um „hvernig ríkið setur eða ætlar að setja skorður við athafnafrelsi manna.“ Valgerður Sverrisdóttir sagði samruna milli fyrirtækja í fæstum tilfellum skapa samkeppnisleg vandamál.

1.3.2001

Samkeppnislög þarf að endurskoða

Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar í prentsmiðjumálinu er mikið fagnaðarefni, og vekur menn til umhugsunar um hver afstaða nefndarinnar hefði verið í bankamálinu. Samkeppnisráð hefur verið á rangri leið í áherslu sinni á markaðsráðandi stöðu og í þröngri skilgreiningu markaða. Þörf er á nýrri endurskoðun samkeppnislaga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

27.2.2001

Úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála fagnað

Samtök atvinnulífsins fagna þeirri niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að kaup Odda hf. á Steindórsprenti-Gutenberg ehf. standist samkeppnislög og úrskurði hennar þess efnis að ákvörðun samkeppnisráðs frá 15. desember 2000 skuli felld úr gildi.

4.1.2001

Bjarnargreiði við neytendur

Hlutverk Samkeppnisstofnunar er ekki að stýra uppbyggingu íslensks atvinnulífs, heldur að beita sér gegn ólögmætu atferli. Það sem skiptir mestu máli er að bregðast við misnotkun á markaðsráðandi stöðu en ekki að banna markaðsráðandi stöðu í sjálfri sér, skrifar Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Það hlýtur að vera algert neyðarúrræði að banna samruna fyrirtækja. Því miður virðist veruleg hætta á að óbreyttar áherslur Samkeppnisstofnunar verði fyrst og fremst ósigur fyrir
framleiðniþróun og bætt lífskjör á Íslandi.

4.1.2001

Bjarnargreiði við neytendur

Hlutverk Samkeppnisstofnunar er ekki að stýra uppbyggingu íslensks atvinnulífs, heldur að beita sér gegn ólögmætu atferli. Það sem skiptir mestu máli er að bregðast við misnotkun á markaðsráðandi stöðu en ekki að banna markaðsráðandi stöðu í sjálfri sér, skrifar Ari Edwald, framkvæmdastjóri í leiðara fréttabréfs SA sem kom út í dag. Hann segir að það hljóti að vera algert neyðarúrræði að banna samruna fyrirtækja. Því miður virðist veruleg hætta á að óbreyttar áherslur Samkeppnisstofnunar verði fyrst og fremst ósigur fyrir framleiðniþróun og bætt lífskjör á Íslandi.  Sjá nánar

1.1.2001

Nýtum tækifærið

Finnur Geirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu að framundan sé ómetanlegt tækifæri fyrir fyrirtækin í landinu, stjórnvöld og launafólk að tryggja framhald stöðugleikans, efla samkeppnisstöðu Íslands og treysta grunn sífellt betri lífskjara. Við höfum ekki efni á að sleppa því tækifæri.  Sjá nánar

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english