Beint á leiđarkerfi vefsins

Menntamál

8.9.2011

Fjárfesting í menntun skilar arđi

„Fjárfesting í menntun er fjárfesting sem skilar arði" sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, við undirskrift samninga um verkefnið Nám er vinnandi vegur, þar sem því var fagnað að átakið hefur fengið fljúgandi byr. Aðilar vinnumarkaðarins sömdu við ríkisvaldið síðastliðið vor um þessa fjárfestingu samhliða kjarasamningum. Markmiðið er að fyrirtæki hafi aðgang á hverjum tíma að vel menntuðu fólki til fjölbreytilegra starfa. Til þess þarf að auka menntunarstig þjóðarinnar og skiptir miklu að þeim, sem af ýmsum ástæðum hafa hætt námi á framhaldsskólastigi, sé gert kleift að mennta sig til starfa sem bjóðast nú og hugur þeirra stendur til.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english