Menntamál
8.9.2011
Fjárfesting í menntun skilar arđi
30.8.2011
Styrkir til vinnustađanáms
20.6.2011
Atvinnulífiđ veitir 200 milljónum til HR
19.4.2011
Atvinnulífiđ fjárfestir til ađ minnka atvinnuleysi
28.2.2011
Sumarvinnuverđlaun stúdenta og SA
Atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa tekið höndum saman og hvetja íslensk fyrirtæki til að ráða háskólanema til sín í vinnu nú í sumar. Sérstök verðlaun og viðurkenningar verða veitt þeim fyrirtækjum sem flesta stúdenta ráða til sín í vinnu fyrir sumarið.
15.2.2011
Mikil tćkifćri í tölvuleikjaiđnađi á Íslandi
Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um 10 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware auk þess að kenna í Háskólanum í Reykjavík. Betware var m.a. útnefnt frumkvöðull ársins 2010 af Viðskiptablaðinu en stafræna byltingin og netið hafa skapað einstök tækifæri og leikjaframleiðendur hér á landi hugsa hátt. Þeir benda á að ef rétt verður að málum staðið megi ná því markmiði árið 2021 að starfsmenn í íslenskum leikjaiðnaði verði um fimm þúsund og þeir skapi um 70 milljarða króna útflutningsverðmæti. Ólafur Andri segir þó að til að ná þessu háleita markmiði þurfi rétt skilyrði og nefnir þar fyrst efnahagslegan stöðugleika.











