Menntamál
19.1.2007
SA mótmæla ákvörðun HÍ í máli rektors á Bifröst
Samtök atvinnulífsins vilja koma á framfæri óánægju sinni með þá ákvörðun Háskóla Íslands um að synja nýráðnum rektor Háskólans á Bifröst, dr. Ágústi Einarssyni, um launalaust leyfi í þrjú ár. Samtök atvinnulífsins eru meðal aðstandenda Háskólans á Bifröst, tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum hans og beittu sér fyrir ráðningu dr. Ágústs í rektorsstarfið. Í bréfi framkvæmdastjóra SA til rektors HÍ kemur m.a. fram að synjun um launalaust leyfi komi samtökunum mjög á óvart og þau líti svo á að þessi synjun sé í algjöru ósamræmi við stöðu og metnað Háskóla Íslands, í andstöðu við hagsmuni atvinnulífsins vegna uppbyggingar háskólamenntunar í landinu og alls ekki í neinu samræmi við viðleitni til þess að rækta og efla samstarf Háskóla Íslands við atvinnulífið í landinu. SA vilji eiga gott samstarf við HÍ og hvetji eindregið til þess að ákvörðun skólans um að synja Ágústi Einarssyni um launalaust leyfi verði endurskoðuð.
16.1.2007
Styrkir til námskeiða í íslensku
Menntamálaráðuneyti hefur auglýst fyrstu úthlutun styrkja til fræðsluaðila og fyrirtækja sem bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi árið 2007. Styrkveitingar þessar byggja á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. nóvember síðastliðnum þar sem ákveðið var að fela menntamálráðuneyti framkvæmd verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga og verja til þess 100 milljónum króna árið 2007. Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki sem ekki eru fræðsluaðilar þurfa að hafa samning við hæfan fræðsluaðila sem annast kennsluna. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2007. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytis.











