Beint á leiðarkerfi vefsins

Menntamál

6.12.2007

Mennt slitið

Á aðalfundi Menntar 27. nóvember var ákveðið að slíta félaginu. Fyrir rúmu ári var staða og hlutverk félagsins endurmetin og gerð úttekt á starfsemi og fjármálum þess. Niðurstaða þeirrar úttektar var lögð fyrir framhaldsaðalfund í janúar s.l. Þar var lagt til að Mennt skyldi vera áfram til í breyttri mynd, rekstur skorinn niður og haldnir yrðu tveir félagsfundir á ári. Formlegum rekstri skrifstofu skyldi hætt á miðju ári og verkefnum komið fyrir annars staðar. Þetta gekk ekki eftir sem skyldi. Ákvað aðalfundur því nú að leggja Mennt alfarið niður og fól stjórn að ganga frá lausum endum og slíta félaginu formlega  á fyrri hluta næsta árs.

6.12.2007

Icelandair fékk Starfsmenntaverðlaunin 2007

Starfmenntaverðlaunin voru afhent í áttunda sinn nýverið og fékk Icelandair verðlaunin í flokki fyrirtækja og félagasamtaka. Icelandair fékk verðlaunin fyrir þá áherslu sem lögð er á þjálfun og símenntun starfsmanna svo hæfileikar þeirra njóti sín sem best en fyrirtækið lítur á þekkingu og öfluga þjálfun sem samkeppnisforskot til framtíðar. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum fékk verðlaunin í flokki fræðsluaðila fyrir öflugt starf og Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi  formaður starfsmannafélagsins Sóknar og fyrrverandi varaformaður Eflingar, fékk verðlaunin í opnum flokki fyrir margvíslegt frumkvæði í starfsmenntamálum. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs

6.12.2007

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) fór fram 28. nóvember. Sama dag kom út Gátt 2007, ársrit um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun. Á ársfundi FA fengu Elín Þór Björnsdóttir og Kornína Óskarsdóttir viðurkenningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fyrir að vera „Fyrirmyndir í námi fullorðinna 2007” en þær hafa sýnt frumkvæði og kjark og yfirstigið hindranir sem getur hvatt aðra til náms. Sjá nánar um starfsemi ársins í Gáttinni og á vef FA

25.9.2007

Símenntunardagur í fyrirtækjum

Árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum er miðvikudagurinn 26. september. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum starfsmanna, t.d. með því að kynna fræðslustefnu sína eða halda námskeið. Þá fjalla fræðsluaðilar almennt um fræðslumál. Mímir símenntun stendur m.a. fyrir opnum fundi undir yfirskriftinni Viskubrunnar fyrirtækjanna þar sem fjallað verður um þarfir, hindranir og tækifæri fyrirtækja og einstaklinga með litla formlega menntun. Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flytur ávarp en meðal frummælenda er Gunnhildur Arnardóttir, forstöðumaður starfsmannasviðs Securitas. Skráning er á vef Mímis

5.9.2007

Styrkir til íslenskukennslu starfsmanna

Samtök atvinnulífsins minna félagsmenn sína á að frestur til að sækja um styrki til íslenskukennslu starfsmanna haustið 2007 rennur út 7. september. Sækja verður um styrkina til menntamálaráðuneytisins en þetta er í annað sinn sem ráðuneytið veitir slíka styrki. Í mars síðastliðnum voru veittir styrkir til 60 aðila til að halda námskeið fyrir samtals 3.360 nemendur og var fjöldi fyrirtækja og stofnana í þeim hópi. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytisins

10.7.2007

Ungt fólk á vinnumarkaði fær fjármálafræðslu

Ungt fólk á höfuðborgarsvæðinu, sem margt er nú í sínu fyrsta launaða starfi, mun fá tilsögn í að ráðstafa launum sínum á ábyrgan hátt. Vinnuskólinn í Reykjavík mun í júlí halda tveggja daga ráðstefnu um starfstengd efni fyrir hina ungu starfsmenn sína og hefur farið þess á leit við Unga frumkvöðla, sem eru frjáls félagsamtök, að þau fræði unglinga um fjármál þar.

18.6.2007

Aðgangur að háskólum verði takmarkaður

Stýra þarf námsframboði í íslenskum háskólum og takmarka frekar aðgang að þeim til að nýta betur fé. Efla þarf kennslu í raunvísindum, verk- og tæknifræði. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr ályktunum Ríkisendurskoðunar í nýlegri skýrslu um kostnað, skilvirkni og gæði háskólakennslu.

16.5.2007

Málþing um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu

Landsmennt  efnir til málþings um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu í lok maí. Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni en á þinginu verður einnig fjallað um starfsemi Landsmenntar. Í fyrra veitti sjóðurinn fræðslustyrki til 79 fyrirtækja fyrir um 17 milljónir króna. Þá voru veittir 1866 styrkir samtals að upphæð 46 milljónum króna. Málþingið verður í Skíðaskálanum í Hveradölum 30. maí kl. 11.30 – 15.30.

30.4.2007

Rætt um Nýjan framhaldsskóla

Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla heldur félagsfund um Nýjan framhaldsskóla 3. maí næstkomandi. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum og áherslum í skýrslu starfsnámsnefndar um Nýjan framhaldsskóla og stöðu málsins. Þá munu fulltrúar aðila vinnumarkaðarins og menntastofnana sem eiga aðild að Mennt gera grein fyrir sínum viðhorfum og áherslum. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna gera í lok fundarins grein fyrir viðhorfum flokkanna til þeirra meginsjónarmiða sem fram koma í tillögunum um Nýjan framhaldsskóla og með hvaða hætti þeir munu beita sér í því máli í eða utan næstu ríkisstjórnar. Sjá nánar á vef Menntar

 

10.4.2007

Blikur á lofti á íslenskum vinnumarkaði

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar Námsmatsstofnunar sem gerð var fyrir SA stefnir meginþorri ungs fólks sem er á leið í framhaldsnám á Íslandi að því að verða háskólamenntaðir sérfræðingar sem starfa í mennta- eða heilbrigðisgeiranum eða starfa við verslun og þjónustu. Rætt var við 15 ára ungmenni árin 2000, 2003 og 2006. Niðurstöður rannsóknarinnar endurspegla viðhorf þess fólks sem verður ráðandi í íslensku þjóðfélagi á árunum 2030-2050. Samtök atvinnulífsins telja niðurstöðurnar gefa vísbendingar um framtíðarþróun á íslenskum vinnumarkaði og að upp kunni að koma alvarlegt misvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir starfsfólki í atvinnulífinu.

2.2.2007

Framlög til fræðslu hækka

Framlög til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins hækka um rúmlega hundrað milljónir á ári samkvæmt þjónustusamningi  menntamálaráðuneytis annars vegar og Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Greiðslur til fræðsluaðila um land allt verða því um 215 milljónir á ári. Áhersla er lögð á að veita fólki á vinnumarkaði með litla formlega grunnmenntun tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að stuðla að símenntun starfsfólks sem kostur er.

19.1.2007

SA mótmæla ákvörðun HÍ í máli rektors á Bifröst

Samtök atvinnulífsins vilja koma á framfæri óánægju sinni með þá ákvörðun Háskóla Íslands um að synja nýráðnum rektor Háskólans á Bifröst, dr. Ágústi Einarssyni, um launalaust leyfi í þrjú ár. Samtök atvinnulífsins eru meðal aðstandenda Háskólans á Bifröst, tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum hans og beittu sér fyrir ráðningu dr. Ágústs í rektorsstarfið. Í bréfi framkvæmdastjóra SA til rektors HÍ kemur m.a. fram að synjun um launalaust leyfi komi samtökunum mjög á óvart og þau líti svo á að þessi synjun sé í algjöru ósamræmi við stöðu og metnað Háskóla Íslands, í andstöðu við hagsmuni atvinnulífsins vegna uppbyggingar háskólamenntunar í landinu og alls ekki í neinu samræmi við viðleitni til þess að rækta og efla samstarf Háskóla Íslands við atvinnulífið í landinu. SA vilji eiga gott samstarf við HÍ og hvetji eindregið til þess að ákvörðun skólans um að synja Ágústi Einarssyni um launalaust leyfi verði endurskoðuð.

16.1.2007

Styrkir til námskeiða í íslensku

Menntamálaráðuneyti hefur auglýst fyrstu úthlutun styrkja til fræðsluaðila og fyrirtækja sem bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi árið 2007. Styrkveitingar þessar byggja á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. nóvember síðastliðnum þar sem ákveðið var að fela menntamálráðuneyti framkvæmd verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga og verja til þess 100 milljónum króna árið 2007. Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki sem ekki eru fræðsluaðilar þurfa að hafa samning við hæfan fræðsluaðila sem annast kennsluna. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2007. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytis.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english