Menntamál
24.11.2006
Alcan hlýtur Starfsmenntaverðlaunin 2006
Starfsmenntaverðlaun Menntar og Starfsmenntaráðs fyrir árið 2006 hlýtur Alcan í flokki fyrirtækja og félagasamtaka. Alcan hlýtur verðlaunin fyrir Stóriðjuskólann og uppbyggingu náms við hann. Í flokki skóla og fræðsluaðila hlýtur Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra verðlaunin fyrir öflugt samstarf á svæðinu við grunnskóla og fyrirtæki, til að kynna og gera veg iðnnáms sem mestan. Í opnum flokki hlýtur Björg Árnadóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur verðlaunin. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun, hvort sem um er að ræða skóla, samtök, frumkvöðla eða fyrirtæki sem sinna vel fræðslumálum starfsmanna sinna. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin.
27.10.2006
Starfsmenntaverðlaunin 2006 – tilnefningar fyrir 31. október
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2006 verða veitt í nóvember. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Nánari upplýsingar um verðlaunin, verðlaunahafa síðustu ára og tilnefningar er hægt að nálgast á vef Menntar.
25.9.2006
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir Vikunni en Mennt sér um skipulagningu og framkvæmd verkefnisins í samstarfi við símenntunarmiðstöðvar. Símenntunarstöðvarnar á landsbyggðinni og Mímir á höfuðborgarsvæðinu munu skipuleggja dagskrá í Vikunni þar sem boðið verður upp á ókeypis námskeið og ráðgjöf. Þá verður símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum miðvikudagurinn 27. september, en þann dag eru fyrirtæki og stofnanir hvött til að tileinka fræðslumálum starfsmanna til dæmis með því að kynna starfsmönnum fræðslustefnu eða halda námskeið. Sjá nánar á vef Menntar.
5.9.2006
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin dagana 24. - 30. september næstkomandi.
15.8.2006
Samkeppni eykur gæði í skólastarfi
Sænskir einkaskólar fá sömu greiðslur með hverjum nemanda frá hinu opinbera og þeir skólar fá sem eru í opinberum rekstri. Nýlegur samanburður sænskra menntayfirvalda sýnir að námsárangur nemenda er betri í einkaskólunum en í skólum í opinberum rekstri, einnig þegar tekið hefur verið tillit til ýmissa félagslegra þátta og efnahags. Þá kemur fram að því hærra sem hlutfall einkaskólanna er í hverju sveitarfélagi, því betri er námsárangur nemenda í skólum í opinberum rekstri innan sveitarfélagsins. Samkeppnin virðist því hafa jákvæð áhrif á gæði skólastarfsins, hvort sem horft er til einkaskólanna eða til skóla í opinberum rekstri.
8.8.2006
Skólafólk spreytir sig í rekstri fyrirtækja í stað bæjarvinnu
Í nokkrum sveitarfélögum á Skáni í Svíþjóð býðst skólafólki að kynnast rekstri fyrirtækja í sumarfríinu, í stað hefðbundnari sumarstarfa á vegum sveitarfélaganna. 15 til 17 ára unglingar fá þannig tækifæri til að fræðast almennt um fyrirtækjarekstur, heimsækja fyrirtæki og spreyta sig á framkvæmd eigin viðskiptaáætlunar. Hugmyndin með slíkum verkefnum er fyrst og fremst sú að efla frumkvöðlaanda meðal unga fólksins. Sjá nánar á vef sænsku samtaka atvinnulífsins.
12.7.2006
Athyglisverðar tillögur til eflingar starfsnáms o.fl.
Nefnd menntamálaráðherra um endurskoðun starfsnáms hefur nú lokið störfum og skilað tillögum um hvernig efla megi starfsnám til framtíðar. Í tillögum starfsnámsnefndar felst m.a. að hefðbundinni aðgreiningu framhaldsskólanáms í starfsnám og bóknám verður vikið til hliðar. Allt framhaldsskólanám verður því jafngilt. Þá er lagt til að skólunum verði veitt frelsi til að bjóða viðtökumiðað nám, þ.e. nám sem miðast við lokamarkmið og þarfir nemenda, kröfur næsta skólastigs og/eða atvinnulífs. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytis.
12.5.2006
Stoðkerfi starfsmenntamála óhemju flókið
„Er kannski ástæða til að losa enn frekar um aðkomu ríkisvaldsins að starfsmenntamálum? Á ekki meginreglan einfaldlega að vera sú að opinbert fjármagn fari þangað sem viðurkenndir aðilar eru að svara raunverulegri eftirspurn?“ Þessara spurninga spurði Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, m.a. í opnunarávarpi á málþingi Starfsmenntaráðs og félagsfundi Menntar. Hann sagði stoðkerfi starfsmenntamála óhemju flókið og að aðilar vinnumarkaðarins væru þar ekki barnanna bestir. „Stundum virðist sem mem menn missi eilítið sjónar á markmiðum starfseminnar en leggi sig full mikið fram við að framleiða fleiri kennitölur, fleiri heimasíður, lógó, stjórnir, ársreikninga o.s.frv.,“ sagði Gústaf.
9.5.2006
Framtíðarsýn í starfsmenntun – málþing 12. maí
Föstudaginn 12. maí nk. verður félagsfundur Menntar haldinn samhliða málþingi Starfsmenntaráðs á Hótel Nordica. Yfirskriftin er Framtíðarsýn í starfsmenntun og fjallað verður um endurskipulagningu starfsnáms á Íslandi, stefnumótunarvinnu í stoðkerfi íslensks starfsmenntakerfis og kynnt dæmi um áhugaverð verkefni og framkvæmd. Rektor Tækniháskólans í Oulu í Finnlandi (sem oft er kölluð „Nokiatown“) segir frá samstarfi atvinnulífs og skóla þar og einnig verður kynnt fræðslustarf hjá Marel o.fl. Sjá nánar á vef Menntar.
10.3.2006
Vel heppnaðri fundaröð SA með framhaldsskólanemum lokið
Fundaröð SA með útskriftarnemum framhaldsskóla er nú lokið. Yfirskrift hennar var Ætlar þú að vinna úti? en að þessu sinni sóttu fulltrúar SA heim fimm skóla og ræddu við alls um 400 nemendur um framtíð lands og þjóðar og hvaða leiðir þau ætluðu sér að fara í framtíðinni, hvaða menntun þau hygðust sækja sér, við hvað þau vildu helst starfa, hvar þau vildu helst búa, og hvernig Ísland gæti nýtt sér þau tækifæri sem eru fyrir hendi til að sækja fram á tímum aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Það sem upp úr stendur eftir heimsóknir SA er jákvætt viðhorf nemendanna til framtíðarinnar og þeirra áskorana sem Ísland stendur frammi fyrir.
23.2.2006
Styrkir vegna starfsmenntunar
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Að þessu sinni leggur ráðið ekki áherslu á tiltekin verkefni eða málaflokka, en forgangs munu njóta verkefni sem fela í sér frumkvæði og nýsköpun í starfsmenntun og sem líkleg eru til að efla viðkomandi starfsgrein eða atvinnusvæði. Til úthlutunar eru 55 milljónir og umsóknarfrestur er til febrúarloka. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
26.1.2006
Þjónustusamningur um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Undirritaður hefur verið þjónustusamningur SA, ASÍ og menntamála-ráðuneytisins um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, m.a. á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 15. nóvember 2005, sem gefin var út í tengslum við niðurstöðu um áframhaldandi gildi kjarasamninga. Þar er m.a. fjallað um sérstakt átak til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra og einstaklinga sem litla menntun hafa, jafnframt því að bæta stöðu erlends starfsfólks í íslensku samfélagi.
19.1.2006
Vel sóttir fundir SA með framhaldsskólanemum
Um tvö hundruð nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri og Iðnskólans í Reykjavík áttu fundi með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins í vikunni. Fundirnir mörkuðu upphafið að fundaröð SA með framhaldsskólanemum undir yfirskriftinni Ætlar þú að vinna úti?
9.1.2006
Vilt þú senda starfsfólk erlendis til þjálfunar eða fræðslu?
Næsti umsóknarfrestur um styrki til mannaskiptaverkefna úr Leonardó starfsmenntaáætlun ESB er 10. febrúar nk. Kynningarfundur og námskeið í gerð Leonardó mannaskiptaumsókna verður fimmtudaginn 12. janúar nk. kl. 13-15, í Tæknigarði (HÍ), Dunhaga 5. Þátttakendur á landsbyggðinni geta tekið þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað hjá símenntunarmiðstöðvum og háskólum á sínu landsvæði. Sjá nánar um starfsmenntaáætlunina á vef Landsskrifstofu Leonardó á Íslandi.











