Beint á leiðarkerfi vefsins

Menntamál

31.12.2005

Nýtum tækifærin

Undanfarin ár hafa Íslendingar verið að ná glæstum árangri í efnalegu tilliti, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Hann segir vonir standa til að framhald verði á þessari þróun, en til að svo megi verða þurfi að halda vel um efnahagsstjórnina. Ingimundur fjallar um leiðir til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar sem ekki síst séu í því fólgnar að skapa skilyrði til aukinnar hagræðingar, og nefnir m.a. aukið viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur í því sambandi með tilheyrandi verulegri lækkun á matvælaverði til neytenda. „Ekkert eitt atriði annað er nú líklegra til þess að stuðla að bættum lífskjörum hér á landi,“ segir Ingimundur.

9.12.2005

Fleiri framhaldsskólanemar ætla í framhaldsnám

Í nýrri könnun sem Rannsóknir og greining gerði fyrir menntamálaráðuneytið meðal framhaldsskólanema á Íslandi haustið 2004, kemur fram að mun fleiri framhaldsskólanemar hyggja á framhaldsnám eftir stúdentspróf nú en árið 2000. Bæði á það við um framhaldsnám í háskólum og í skólum sem ekki eru á háskólastigi. Nemendur á höfuðborgarsvæðinu telja tekjumöguleika sína besta þar eða í útlöndum. Landsbyggðarnemendur telja tekjumöguleika sína einnig mesta á höfuðborgarsvæðinu en þeir vilja þó síst búa þar. Meira þarf til að freista framhaldsskólanema frá námi í dag með góðu atvinnutilboði en árið 2000.

29.11.2005

Beinar greiðslur fyrirtækja í fræðslusjóði verkafólks

Í kjarasamningum vorið 2004 var samið um beinar greiðslur atvinnurekenda í fræðslusjóði verkafólks. Frá 1. janúar 2006 er gjaldið 0,05% af launum, en verður 0,15% frá 1. janúar 2007. Á samningssvæði Flóabandalagsins verður gjaldið innheimt af lífeyrissjóðum samhliða innheimtu annarra sjóðagjalda en á landsbyggðinni verður samið við lífeyrissjóði eða stéttarfélög um innheimtuna.

8.11.2005

Færri ár í framhaldsskóla

Fjöldi framhaldsskólakennara mótmælir um þessar mundir fyrirhugaðri fækkun ára í framhaldsskóla. Í grein í Morgunblaðinu spyr Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA, m.a. hvers vegna íslenskir nemendur þurfi að ljúka framhaldsskólastigi einu til tveimur árum síðar en nemendur í nágrannalöndunum, og hvort auknar ævitekjur nemenda og aukin þjóðarframleiðsla upp á milljarða króna skipti ekki máli í þessu samhengi.

7.11.2005

Áhersla á hagnýta menntun fyrir atvinnulífið

Starfsmenntaverðlaunin árið 2005 voru afhent þann 4. nóvember, en þau hlutu að þessu sinni Landsvirkjun, stéttarfélagið Efling og Ingibjörg Hafstað. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin en það eru Mennt og Starfsmenntaráð sem standa fyrir afhendingu þeirra. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun, hvort sem um er að ræða skóla, samtök, frumkvöðla eða fyrirtæki sem sinna vel fræðslumálum starfsmanna sinna.

1.11.2005

Lækkun á greiðslum í starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks hefur tekið í notkun nýjan vef þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um skyldur fyrirtækja gagnvart sjóðnum ásamt upplýsingum um rétt þeirra. Almennt borga fyrirtæki 0,15% af launum  verslunar- og skrifstofufólks í  sjóðinn en geta sótt um lækkun á framlaginu í 0,05% ef þau standa sig vel í starfsmenntamálum. Að auki geta þau sótt um styrki til sjóðsins. Sjóðurinn er eign Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Landssambands ísl. verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins. Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Sjá nánar: www.starfsmennt.is.

27.10.2005

Starfsmenntaverðlaunin 2005 - lokafrestur á föstudag!

Starfsmenntaverðlaunin verða veitt þann 4. nóvember næstkomandi. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Tilnefningar sendist Mennt fyrir 28. október á þar til gerðum eyðublöðum. Sjá nánar á vef Menntar.

4.10.2005

Leonardo verkefni undir stjórn Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur fengið styrk frá Leonardo Da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins að upphæð 30 milljónir í tilraunverkefni sem ber titilinn “The Value of Work.”  Verkefnið miðar að því að þróa aðferðir til að meta raunverulega færni einstaklinga í atvinnulífinu. Fræðslumiðstöðin mun stýra verkefninu. Samstarfslönd eru Danmörk, England, Kýpur, Slóvenía og Svíþjóð.

3.10.2005

”Meet the winners”: Ísland

Á aðalfundi dönsku samtaka iðnaðarins á dögunum var fjallað um Ísland undir fyrirsögninni Meet the Winners. Að mati Dana eru Íslendingar í hópi þeirra þjóða sem hafa náð framúrskarandi árangri á sviði viðskipta og efnahagsmála. Hagstætt og samkeppnishæft skattaumhverfi, ríkur frumkvöðlakraftur og viljinn til að vinna eru Dönum efst í huga um Ísland.

8.9.2005

Uppskriftin að velgengni Norðurlanda á heimsvísu birt

Samtök atvinnurekenda á Norðurlöndum hafa búið til sameiginlega uppskrift að því hvernig Norðurlöndin geti tryggt áframhaldandi velgengni sína á heimsvísu. Uppskriftin er birt í skýrslunni The Nordic recipe for global success. Skýrslan fjallar um það hvernig Norðurlöndin geti brugðist við sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni og í henni kemur fram að Norðurlandaþjóðirnar verði að sækja í sig veðrið, með því að bæta starfsumhverfi atvinnulífsins og efla menntun fólks enn frekar, ef takast eigi að tryggja velferð þjóðanna til framtíðar.

31.8.2005

Vika símenntunar 2005

Vika símenntunar verður haldin á höfuðborgarsvæðinu dagana 25.-30. september nk., en símenntunarmiðstöðvarnar um landið ákvarða hvenær hún verður haldin á hverju svæði fyrir sig. Vikunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um að menntun er æviverk og að alltaf er hægt að bæta við sig þekkingu. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir vikunni og eru fyrirtæki hvött til að tileinka fimmtudaginn 29. september fræðslumálum starfsmanna. Sjá nánar á vef Menntar.

3.5.2005

Hagsmunir atvinnulífsins eru almannahagsmunir

Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður samtakanna, m.a. um mikilvægi samkeppnishæfs starfsumhverfis og lagði hann áherslu á að hagsmunir atvinnulífsins væru almannahagsmunir. Gjöld og álögur á fyrirtæki væru á endanum borin af neytendum. Þá sagði hann einungis fjórðung hækkunar verðlags stafa af hækkun á verði vöru og þjónustu. Einsýnt væri að ekki yrði litið framhjá þessu við mat á verðlagsþróun og eðlilegum viðbrögðum hennar vegna.

3.5.2005

Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áherslur sínar í ellefu málaflokkum sem varða starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja. Um er að ræða niðurstöður víðtæks og kraftmikils málefnastarfs þar sem fjöldi fólks frá aðildarfélögum samtakanna, einstökum fyrirtækjum og fleiri aðilum lögðu drög að stefnu SA, sem vilja tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði, landsmönnum öllum til hagsbóta. Sjá nánar

19.4.2005

Samþykktar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum

Stjórn SA hefur samþykkt texta í nýjar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum, sem drög hafa verið lögð að í öflugu málefnastarfi samtakanna undanfarna mánuði. Fjallað er um efnahagsmál, vinnumarkaðsmál, skattamál, reglubyrði og eftirlit, samkeppnismál, menntamál, rannsóknir og nýsköpun, umhverfismál, jafnréttismál, lífeyrismál og alþjóðamál.

16.3.2005

Styrkir vegna starfsmenntunar

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Í ár njóta forgangs umsóknir sem snúa að tækifærum miðaldra og eldra fólks til starfs-menntunar, og að yfirfærslu þekkingar og reynslu innan fyrirtækja og stofnana. Til úthlutunar eru 55 milljónir og umsóknarfrestur er til 18. mars. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.

28.1.2005

Kynntar áherslur Starfsmenntaráðs

Árlegur opinn fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2, þriðjudaginn 8. febrúar nk. kl. 12. Á fundinum verða kynntar áherslur við úthlutun úr starfs-menntasjóði árið 2005. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.

26.1.2005

Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis

Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2005. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.

17.1.2005

Menntadagur iðnaðarins 18. janúar

Samtök iðnaðarins halda menntadag iðnaðarins í Versölum Hallveigarstíg þriðjudagsmorguninn 18. janúar. Yfirskrift dagskrárinnar er Mannauður, þekking, menntun. Meðal annars verður fjallað um um nýtingu mannauðs og hvernig auka megi þekkingu og færni starfsfólks. Sjá nánar á vef SI.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english