Menntamál
20.12.2004
Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor nýs sameinaðs háskóla
Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir, núverandi rektor Háskólans í Reykjavík, hefur verið ráðin í starf rektors þegar fyrirhugaðri sameiningu skólans við Tækniháskóla Íslands verður lokið. Í tækni- og verkfræðideild skólans verða kennd rekstrar-verkfræði, fjármálaverkfræði, hugbúnaðarverkfræði og heilbrigðisverkfræði. Einnig er fyrirhuguð stofnun kennslu-fræðideildar og þá verða starfræktar viðskipta- og lagadeild við skólann. Sjá nánar á vef HR.
23.11.2004
Stór hópur án framhaldsmenntunar
Ef skoðaðir eru 22 ára og yngri, miðað við árið 2000, kemur í ljós að hér á landi höfðu 55% lokið framhaldsskóla, en meðal-talið innan EES voru 75%. Hæst var hlutfallið hins vegar í Noregi, tæp 97%. Þetta kom fram í ávarpi Gústafs Adolfs Skúlasonar, formanns stjórnar Fræðslumiðstöðvar atvinnu-lífsins, á ársfundi hennar.
17.11.2004
FA semur við símenntunarmiðstöðvarnar
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Fræðslu-miðstöðvar atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvanna á landsbyggðinni, sem ætlað er að stuðla að því að fólk á vinnumarkaði með litla grunnmenntun fái betri tækifæri til að afla sér menntunar. Aðilar munu m.a. byggja upp sameigin-legt gæðakerfi með það að markmiði að votta gæði fræðslu-aðila utan hins hefðbundna skólakerfis. Sjá nánar á vefsíðu FA.
11.11.2004
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 23. nóv.
Þriðjudaginn 23. nóvember verður haldinn fyrsti ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á hótel Nordica. Fjallað verður um raunfærnimat og er það jafnframt þema veglegs ársrits FA sem dreift verður á fundinum. Meðal ræðumanna verða Jón Björnsson forstjóri Haga hf. og Jón Sigurðsson bankastjóri Seðlabanka Íslands. Sjá nánar á vefsíðu FA.
19.10.2004
Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands sameinaðir
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing menntamálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Verslunarráðs og stjórnenda Háskólans í Reykja-vík og Tækniháskóla Íslands um stofnun nýs háskóla með samruna skólanna tveggja. Stofnað verður einkahlutafélag og verða SA, SI og VÍ hluthafar.
15.9.2004
Starfsmenntaverðlaunin 2004
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2004 hljóta Landsbanki Íslands í flokki fyrirtækja, Samtök verslunar og þjónustu og Viðskiptaháskólinn á Bifröst í flokki fræðsluaðila, og Janus endurhæfing í opnum flokki. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar. Sjá nánar á vef Menntar.
13.9.2004
FA: Óformlegt nám metið til eininga
Menntamálaráðuneytið hefur staðfest mat Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á 5 námsleiðum Mímis-símenntunar til eininga í framhaldsnámi. Á vegum FA er unnið að mati á fleiri námsleiðum, m.a. fagnámi fyrir verslunarfólk. Sjá nánar á vefsíðu FA, samstarfsvettvangs SA og ASÍ um fullorðins- og starfsmenntun á vinnumarkaði.
26.8.2004
Vika símenntunar 12.-18. september
Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september. Að verkefninu standa m.a. menntamálaráðuneytið, Starfs-menntaráð, Mennt, SA, ASÍ og símennuntarmiðstöðvarnar. Vikan er ekki síst hugsuð fyrirtækjum til hvatningar, en að þessu sinni er athyglinni beint að fræðslumálum ungs fólks. Sjá nánar á vef Menntar.
25.8.2004
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum, eða vilt koma því á? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 1. október 2004. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.
28.5.2004
Skemmra komin í markvissri mannauðsstjórnun
Markviss mannauðsstjórnun er skemmra á veg komin hér á landi en í samanburðarlöndunum, skv. fjölþjóðlegri könnun HR o.fl. sem gerð var með stuðningi SA. Þó er ljóst að miklar framfarir hafa orðið á síðustu árum, ekki síst á sviði upplýs-ingamiðlunar til starfsmanna og frá starfsmönnum til stjórnenda.
13.5.2004
Kynnt úthlutun úr starfsmenntasjóði
Kynnt hefur verið úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins til starfsmenntunar í atvinnulífinu, en alls var rúmum 55 milljónum króna úthlutað til 55 verkefna. Meðal þeirra sem hlutu styrk voru SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sem fengu kr. 2,5 milljónir til námsbrautar fyrir verslunarfólk. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
28.4.2004
Starfsmenntaáætlun ESB – kynningarfundur
Fimmtudaginn 29. apríl 2004 verða kynnt ný forgangsatriði í Leonardó starfsmenntaáætlun ESB, sem Íslendingar taka þátt í, á fundi í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, kl. 15 til 17:30. Sjá nánar á vef Landsskrifstofu Leonardó.
19.3.2004
Þróun símenntunar – ráðstefna 26. mars
Föstudaginn 26. mars standa Rannsóknaþjónusta HÍ, menntamálaráðuneytið, SA, ASÍ og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fyrir ráðstefnu um þróun símenntunar á Íslandi og í Evrópu, aðgengi og fjármögnun. Ráðstefnan verður haldin í hátíðarsal HÍ og hana ávarpar hópur innlendra og erlendra sérfræðinga. Sjá nánar á vef Rannsóknaþjónustu HÍ.
7.3.2004
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt yfirlýsingu vegna gerðar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þar sem fjallað er um starfsmenntamál, lífeyrismál, atvinnuleysisbætur og tryggingagjald.
24.2.2004
Auðvelda leit erlendra samstarfsaðila í starfsmenntum
Landsskrifstofa Leonardó og Mennt eru að undirbúa upp-setningu gagnabanka um íslenska aðila sem hafa áhuga á evrópsku samstarfi undir merkjum Leonardó starfsmennta-áætlunar ESB. Tilgangurinn er að flýta fyrir leit íslenskra sem erlendra aðila að samstarfsaðilum. Sjá nánar á vef Menntar.
3.2.2004
Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu
19.1.2004
Eftirspurn eftir iðn- og raungreinamenntuðum
Á næstu þremur árum þurfa fyrirtæki innan SI að bæta við sig 771 nýjum starfsmanni með raungreina-, tækni- og verkfræðimenntun og 2252 starfsmönnum með iðn- og starfsmenntun. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar IMG Gallup á þörfum iðnaðarins fyrir menntun. Sjá nánar á vef SI.











