Menntamál
24.11.2003
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins opnuð
Opnuð hefur verið Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, sem stofnuð var af SA og ASÍ. Fræðslumiðstöðin mun fyrst og fremst sinna þeim hópi, sem ekki hefur lokið framhalds-skóla, innflytjendum og öðrum sambærilegum hópum. Á íslenskum vinnumarkaði er þessi hópur mjög stór eða um 40%.
12.11.2003
Íslenska menntakerfið samkeppnishæfara
Stytting námstíma í framhaldsskóla hefur sem slík ekki mikil bein áhrif atvinnulífið, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Hún mun hins vegar hafa ýmis jákvæð samfélagsleg áhrif og auka samkeppnishæfni íslenska menntakerfisins.
6.11.2003
Kröfur á forsendum fortíðarinnar
Kröfur um gjaldfrjálst háskólanám byggja á forsendum fortíðarinnar en eru ekki í sambandi við það umhverfi óþrjótandi eftirspurnar sem þróast hefur og fagna ber, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Þá verði ekki skilið hvers vegna háskólanám ætti að vera mun ódýrara en t.d. vörubifreiðaréttindi, endurmenntunarnámskeið og leikskóladvöl.
29.9.2003
Stytting náms til stúdentsprófs
SA fagna því að hreyfing sé að komast á styttingu náms til stúdentsprófs, sem verið hefur eitt helsta stefnumál samtakanna í menntamálum. Mikið þjóðhagslegt hagræði yrði af slíkri breytingu og hagsmunir atvinnulífsins af sumarvinnu skólafólks standa ekki í vegi fyrir lengingu skólaársins í þessu skyni, sé það gert fyrri hluta sumars.
19.9.2003
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum? Lands-skrifstofa Leonardó á Íslandi lýsir eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 3. október 2003.
12.9.2003
Starfsmenntaverðlaunin til Eimskips, Eftirmenntunar vélstjóra og Verkmenntaskólans á Akureyri
Starfsmenntaverðlaunin í ár hljóta Eimskip í flokki fyrirtækja, Eftirmenntun vélstjóra í flokki skóla og fræðsluaðila og Verkmenntaskólinn á Akureyri í opnum flokki.
8.9.2003
Vika símenntunar hafin
Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september. Málþing, sérstakur símenntadagur í fyrirtækjum o.fl. er meðal þess sem verður á döfinni, en þema vikunnar að þessu sinni er „fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms.“ Sjá nánar á heimasíðu vikunnar.
12.6.2003
Íslendingar reiðubúnari að taka þátt í kostnaði við menntun sem tryggt getur þeim störf
Íslendingar eru reiðubúnari til að taka þátt í kostnaði við menntun sem tryggt getur þeim störf, en almennt gildir um EES-borgara. Nær helmingur EES-borgara, eða 47%, er ekki reiðubúinn að taka þátt í slíkum kostnaði, en hérlendis er þetta hlutfall 38%.
5.6.2003
Skólagjöld og rekstrarform háskóla
Að sögn OECD er lítil kostnaðarþátttaka nemenda helsta ástæða fremur langs námstíma íslenskra háskólanema, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir suma stjórnendur við ríkisháskóla telja afar brýnt að losna undan hamlandi og ósveigjanlegu lagaumhverfi hins opinbera vinnumarkaðar.
3.6.2003
Fyrirtæki minnt á fræðslusjóði atvinnulífsins
Á árinu 2000 gerðu Samtök atvinnulífsins samninga við helstu viðsemjendur um stofnun sérstakra fræðslusjóða á almennum vinnumarkaði. Rétt er að minna fyrirtæki á að líkt og launþegar geta þau sótt um styrki til þessara sjóða vegna starfsmenntamála.
25.5.2003
Félagsfundur Menntar á miðvikudag
Félagsfundur Menntar - samstarfsvettangs atvinnulífs og skóla - verður haldinn miðvikudaginn 28. maí, í stofu 201 í Odda, HÍ. Fjallað verður um frumkvöðlamenntun, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, diplómanám í verslunar-stjórnun o.fl. Sjá nánar á heimasíðu Menntar.
15.5.2003
Ráðin framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf., sem ætlað er að standa fyrir víðtæku menntunar- og starfsfræðsluátaki fyrir þau 42% á íslenskum vinnumarkaði sem hafa aðeins lágmarksmenntun eða mjög takmarkaða skólagöngu að baki.
12.5.2003
Samstarfsnet Evrópuáætlana og -skrifstofa á Íslandi
Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum ESB á sviði rannsókna, mennta, menningar og æskulýðsmála. Umsjón með samstarfinu hérlendis er á höndum ólíkra aðila. Sjá nánar á heimasíðu Útflutningsráðs.
8.5.2003
Skipting í skólahverfi á að heyra sögunni til
Sjálfstæðir skólar eiga að fá sömu fjárframlög á hvern nemanda og skólar í opinberum rekstri. Það er svo foreldra og nemenda að velja hvert féð rennur en hagsmunir allra skólanna að laða til sín nemendurna. Skipting í skólasvæði á að heyra sögunni til, á öllum skólastigum, segir m.a. í skýrslunni Bætum lífskjörin!
29.4.2003
Bætum lífskjörin!
Í nýrri skýrslu fjalla Samtök atvinnulífsins um leiðir til að bæta lífskjörin í landinu með kerfisumbótum. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, kynnti skýrsluna á aðalfundi samtakanna. Heilbrigðiskerfið hlýtur að verða höfuð-viðfangsefni ríkisfjármálanna á næstu árum, að mati hans.
3.4.2003
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Undirritaður hefur verið þjónustusamningur SA og ASÍ við menntamálaráðuneytið um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem ætlað er að stuðla að „öðru tækifæri“ til náms fyrir þá sem standa höllum fæti á vinnumarkaði, auk vottunar o.fl. FA mun þó ekki standa sjálf fyrir námskeiðahaldi.
3.4.2003
Átak á sviði starfsmennta
Víðtækt samkomulag hefur náðst um starfsfræðslu- og menntaátak Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf. Mjög miklu máli skiptir, bæði fyrir einstaklingana og allt atvinnulífið, að góður árangur náist, segir Jón Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.
3.4.2003
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Undirritaður hefur verið þjónustusamningur SA og ASÍ við menntamálaráðuneytið um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem ætlað er að stuðla að „öðru tækifæri“ til náms fyrir þá sem standa höllum fæti á vinnumarkaði, auk vottunar o.fl. FA mun þó ekki standa sjálf fyrir námskeiðahaldi.
3.4.2003
Átak á sviði starfsmennta
Víðtækt samkomulag hefur náðst um starfsfræðslu- og menntaátak Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf. Mjög miklu máli skiptir, bæði fyrir einstaklingana og allt atvinnulífið, að góður árangur náist, segir Jón Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.
3.4.2003
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Undirritaður hefur verið þjónustusamningur SA og ASÍ við menntamálaráðuneytið um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem ætlað er að stuðla að „öðru tækifæri“ til náms fyrir þá sem standa höllum fæti á vinnumarkaði, auk vottunar o.fl. FA mun þó ekki standa sjálf fyrir námskeiðahaldi.
3.4.2003
Átak á sviði starfsmennta
Víðtækt samkomulag hefur náðst um starfsfræðslu- og menntaátak Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins ehf. Mjög miklu máli skiptir, bæði fyrir einstaklingana og allt atvinnulífið, að góður árangur náist, segir Jón Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.
18.2.2003
Samræming vetrarfrídaga
Samræming starfsdaga grunn- og leikskóla innan hverfa er algert lágmarkstillit við fjölskyldur og atvinnulíf og því fagnaðarefni. Samræming vetrarfrís grunnskóla borgarinnar getur einnig orðið til bóta. Vetrarfríin munu þó áfram valda röskun, en ákvörðun um þau var tekin án nokkurs samráðs við umhverfi skólanna.
5.2.2003
Ört vaxandi atvinnuleysi háskólagenginna
Háskólagengnu fólki á atvinnuleysiskrá hefur fjölgað ört undanfarna mánuði og misseri. Um síðustu áramót voru 363 háskólagengnir á atvinnuleysiskrá á landinu öllu. Fjöldi atvinnulausra háskólamanna á landinu jókst um tæp 75% á síðasta ári og á síðustu tveimur árum hefur fjöldinn þrefaldast.
30.1.2003
Hverjir eru atvinnulausir?
Með versnandi atvinnuástandi og vaxandi atvinnuleysi eykst þörf fyrir tölulegar upplýsingar um atvinnuleysi og samsetningu þess. Samtök atvinnulífsins hafa skoðað tölur um atvinnuleysi eftir menntun.
3.1.2003
Mikilvægt að samkeppni ríki milli háskóla
Æskilegt er að nám mótist á grundvelli framboðs og eftirspurnar og mikilvægt að samkeppni ríki á milli aðila, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í erindi um þróun háskólanáms. Hann sagði kostnaðarþátttöku nemenda vinna á móti offjárfestingu á háskólasviðinu.











