Beint á leiđarkerfi vefsins

Menntamál

0 - 10

8.9.2011

Fjárfesting í menntun skilar arđi

„Fjárfesting í menntun er fjárfesting sem skilar arði" sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, við undirskrift samninga um verkefnið Nám er vinnandi vegur, þar sem því var fagnað að átakið hefur fengið fljúgandi byr. Aðilar vinnumarkaðarins sömdu við ríkisvaldið síðastliðið vor um þessa fjárfestingu samhliða kjarasamningum. Markmiðið er að fyrirtæki hafi aðgang á hverjum tíma að vel menntuðu fólki til fjölbreytilegra starfa. Til þess þarf að auka menntunarstig þjóðarinnar og skiptir miklu að þeim, sem af ýmsum ástæðum hafa hætt námi á framhaldsskólastigi, sé gert kleift að mennta sig til starfa sem bjóðast nú og hugur þeirra stendur til.
1 - 10
1 - 10
1 - 10

30.8.2011

Styrkir til vinnustađanáms

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
2 - 10
2 - 10
2 - 10

20.6.2011

Atvinnulífiđ veitir 200 milljónum til HR

Samtök atvinnulífsins (SA), Samtök iðnaðarins (SI) og Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV) hafa tekið höndum saman um að styðja við og efla háskólastarf á Íslandi með 200 milljón króna framlagi til Háskólans í Reykjavík. Þetta kom fram í ávarpi dr. Ara Kristins Jónssonar, rektors Háskólans í Reykjavík, við útskriftarathöfn HR sem haldin var í Hörpu þann 18. júní. SA, SI og SVÍV eru bakhjarlar HR.
3 - 10
3 - 10
3 - 10

19.4.2011

Atvinnulífiđ fjárfestir til ađ minnka atvinnuleysi

Aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar stjórnvalda hafa komist að samkomulagi um fjármögnun menntaátaks fyrir atvinnulausa. Stór hluti átaksins greiðist úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem fjármagnaður er af atvinnurekendum í gegnum atvinnutryggingagjald. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir fólk og fyrirtæki í baráttunni gegn atvinnuleysi sem er nú í sögulegu hámarki.
4 - 10
4 - 10
4 - 10

28.2.2011

Sumarvinnuverđlaun stúdenta og SA

Atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa tekið höndum saman og hvetja íslensk fyrirtæki til að ráða háskólanema til sín í vinnu nú í sumar. Sérstök verðlaun og viðurkenningar verða veitt þeim fyrirtækjum sem flesta stúdenta ráða til sín í vinnu fyrir sumarið.

5 - 10
5 - 10
5 - 10

15.2.2011

Mikil tćkifćri í tölvuleikjaiđnađi á Íslandi

Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um 10 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra  Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware auk þess að kenna í Háskólanum í Reykjavík. Betware var m.a. útnefnt frumkvöðull ársins 2010 af Viðskiptablaðinu en stafræna byltingin og netið hafa skapað einstök tækifæri  og leikjaframleiðendur hér á landi hugsa hátt. Þeir benda á að ef rétt verður  að málum staðið megi ná því markmiði árið 2021 að starfsmenn í íslenskum leikjaiðnaði verði um fimm þúsund og þeir skapi um 70 milljarða króna útflutningsverðmæti. Ólafur Andri segir þó að til að ná þessu háleita markmiði þurfi rétt skilyrði og nefnir þar fyrst efnahagslegan stöðugleika.

6 - 10
6 - 10
6 - 10

9.12.2010

Starfsafl fékk Starfsmenntaverđlaunin 2010

Starfsafl, starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins,  fékk í gær Starfsmenntaverðlaunin í flokki  félagasamtaka og einstaklinga fyrir verkefnið Fræðslustjóri að láni. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.

7 - 10
7 - 10
7 - 10

8.11.2010

Starfsmenntaverđlaunin 2010: Óskađ eftir tilnefningum

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur verið falin umsjón með Starfsmenntaverðlaununum árið 2010. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.  Tilnefningar/umsóknir skal senda inn rafrænt á vefnum www.frae.is. Frestur til að senda inn tilnefningar/umsóknir er til og með 15. nóvember nk.

8 - 10
8 - 10
8 - 10

9.9.2010

Ísland á eftir í menntamálum

OECD hefur birt árlega skýrslu sína um menntun (e. Education at a glance). Í henni er að finna tölulegan samanburð á flestu því sem viðkemur menntun í aðildarríkjunum, m.a. fjölda á skólastigum, kostnað, menntun kennara, laun og fjölda erlendra stúdenta. Tölurnar sem nú birtast eru frá 2008. Fram kemur að menntunarstig hér á landi er að hækka, en að talsvert er í land að ná samsvarandi árangri og nágrannalöndin. Átak þarf til að ná markmiði sem sett var í kjarasamningum 2008 um að árið 2020 verði ekki meira en 10% fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar.
9 - 10
9 - 10
9 - 10

8.7.2010

Umbćtur nauđsynlegar í menntakerfinu

Lækka þarf kostnað á nemanda í íslensku skólakerfi með því að gera skipulag grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla markvissara. Þrátt fyrir að útgjöld til menntamála á Íslandi séu hærri en í öðrum OECD ríkjum sem hlutfall af landsframleiðslu þá skilar það sér ekki sem skyldi í árangri í menntun. Menntunarstig landsmanna 25-64 ára er töluvert undir meðaltali OECD ríkja.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english