Beint á leiđarkerfi vefsins

Jafnréttismál

3.12.2009

Barnvćnt samfélag - vel heppnađ málţing

Nýverið fór fram fjölsótt málþing um barnvænt samfélag. Þar kom m.a. fram að ótal leiðir eru til að auka sveigjanleika í vinnu svo starfsmenn geti betur sinnt þörfum barna. Þar getur komið til breytt starfshlutfall til lengri eða skemmri tíma, möguleiki á að færa vinnu heim að hluta eða öllu leyti, tilfærsla á orlofi eða launalaust orlof og tilfærsla á vinnutíma. Þetta byggir þó á gagnkvæmu trausti milli starfsmanna og vinnuveitenda og aðstæður leyfi slíkar breytingar.

15.10.2009

Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna. Nýleg íslensk rannsókn sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best. Á vef SA má nú finna lista yfir fjölmargar öflugar rekstrarkonur sem eru til í að láta frekar til sín taka í íslensku viðskiptalífi.

11.6.2009

Stađlar seljast sem aldrei fyrr

Staðlar seljast vel um þessar mundir en í maí sló salan líkast til met. Í lok ársins 2008 voru tæplega 21 þúsund staðlar í gildi á Íslandi en þegar kreppir að opnast augu fólks fyrir gildi þess að nýta sér stöðluð viðmið, fyrirmyndir og samræmdar aðferðir. Staðlaráð selur staðla, stendur fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina er lýtur að stöðlum og stöðlun. Áfram miðar í starfi ráðsins og aðila vinnumarkaðarins við að búa til staðal til að byggja á vottunarkerfi um framkvæmd jafnlaunastefnu.

15.5.2009

Fjölbreytni í atvinnulífinu verđi aukin

Samtök atvinnulífsins, FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands telja nauðsynlegt að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs.  Á næstu fjórum árum munu þessir aðilar því hvetja til þess og leggja ríka áherslu á að konum í forystusveit íslensks viðskiptalífs verði fjölgað þannig að hlutfall hvors kyns verði ekki undir 40% í lok árs 2013. CreditInfo mun árlega mæla árangur verkefnisins.

21.4.2009

Kynjahlutföll jöfnuđ í lífeyrissjóđum

Samtök atvinnulífsins skipa í 24 sæti stjórnarmanna í 9 lífeyrissjóðum. SA hafa markað þá stefnu að auka fjölbreytni stjórnarmanna og rétta hlut kynjanna innan stjórnanna. Konur skipa nú tæpan helming (46%) þeim sætum sem SA skipa í lífeyrissjóðunum og fjölgar um þrjár milli ára. Árið 2008 skipuðu konur þriðjung af sætum SA.  Þetta kemur m.a. fram í ársskýrslu SA sem kemur út á aðalfundi samtakanna nk. miðvikudag. Yfirlit yfir fulltrúa SA má nú nálgast hér á vefnum.

31.3.2009

Jafnréttisráđ gagnrýnir stjórnir Seđlabanka og Kaupţings

Í nýlegri ályktun Jafnréttisráðs brýnir ráðið stjórnvöld til að halda vöku sinni.  „Það er algjörlega á skjön við anda jafnréttislaga að í nýskipaðri stjórn Seðlabanka Íslands eru 5 karlar og 2 konur og í  sérnefnd um endurskoðun stjórnarskrár eiga sæti 8 karlar og 1 kona," segir Jafnréttisráð.  Í ályktuninni segir ennfremur: „ Á sama hátt og með sömu rökum er gagnrýnisvert að ný stjórn Kaupþings skuli einungis vera skipuð konum."

13.3.2009

Kynbundinn launamunur á undanhaldi

Í viðamikilli rannsókn á launum fólks sem gerð var á vegum Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ParX, mældist enginn launamunur milli kynja meðal fólks á þrítugsaldri. Í sambærilegri könnun árið 2007 mældist munurinn 10%. Athygli vekur að launamunur kynja minnkar samkvæmt könnuninni í öllum aldurshópum. Niðurstöðurnar byggja á gögnum úr launabókhaldi fyrirtækja sem kjósa að taka þátt í árlegri greiningu á launagreiðslum.

20.2.2009

Óskýrđur launamunur kynja mćlist 7%

Ný viðamikil rannsókn sem byggir á upplýsingum úr launabókhaldi 37 fyrirtækja og nær til rúmlega sex þúsund starfsmanna sýnir að konur sem könnunin náði til voru með rúmlega 7% lægri laun en karlar þegar tillit hafði verið tekið til ýmissa þátta sem eru mismunandi eftir kynjum. Í sambærilegri könnun árið 2007 reyndist óskýrður launamunur kynja 12% en rannsakað var hvaða áhrif kyn, starfsheiti, aldur, starfsaldur í fyrirtæki, menntun, vinnutími og fyrirtæki höfðu á föst laun án óreglulegra yfirvinnugreiðslna.

17.2.2009

Aukin fjölbreytni nauđsynleg í íslensku atvinnulífi

Auka má fjölbreytni verulega í íslensku atvinnulífi. Þegar blæs á móti í rekstrinum líkt og nú þarf að taka til og leita nýrra leiða til aukinnar hagsældar. Það er því klókt að auka fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja og í stjórnunarstöðum. Það getur verið ein þeirra leiða sem koma íslensku atvinnulífi fyrr af stað í sókn til bættra lífskjara.

21.1.2009

Vottun jafnra launa mikilvćg

Samtök atvinnulífsins vænta mikils af samstarfsverkefni SA, ASÍ og félags- og tryggingamálaráðuneytis um að fyrirtækjum og stofnunum verði gert kleift að fá vottun þess að jafnlaunastefna sé virk og í heiðri höfð á viðkomandi vinnustöðum. Þetta kom fram hjá Hrafnhildi Stefánsdóttur, yfirlögfræðingi SA, í umræðum á Jafnréttisþingi sem fór nýverið fram. Hrafnhildur lagði áherslu á að árangursríkar og hagkvæmar leiðir verði farnar á vinnumarkaði til að efla jafnrétti í stað þess að auka skrifræði og kostnað atvinnulífsins.

8.1.2009

Jafnréttisţing haldiđ á Hilton Nordica

Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð til jafnréttisþings föstudaginn 16. janúar næstkomandi að Hilton Reykjavík Nordica frá klukkan 9 til 17. Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english