Jafnréttismál
15.9.2008
Lokaráđstefna Jafnréttiskennitölunnar - 19. september
Ráðstefna um nýtingu mannauðs í stjórnun og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja verður haldin í Salnum í Kópavogi þann 19. september næstkomandi. Með ráðstefnunni lýkur verkefninu um Jafnréttiskennitöluna, sem unnið hefur verið af Rannsóknasetri í vinnurétti og jafnréttismálum við Háskólann á Bifröst en Samtök atvinnulífsins eru meðal samstarfsaðila að verkefninu. Ráðstefnan er jafnframt liður í afmælisdagskrá Háskólans á Bifröst á 90 ára afmælisári hans.
11.9.2008
SA styđja tvćr nýjar rannsóknir á launamun kynja
Samtök atvinnulífsins, Hagstofa Íslands og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um rannsókn á launamun kvenna og karla sem byggir á gagnasafni Hagstofunnar. Er samstarfið gert í framhaldi af bókun með kjarasamningi ASÍ og SA frá 17. febrúar 2008 um áherslur samningsaðila í jafnréttismálum og nær til gagna um laun og störf á almennum vinnumarkaði. Þá hafa SA og ASÍ gert samstarfssamning við ParX, Viðskiptaráðgjöf IBM, um rannsókn á launamun kynja fyrir árið 2008 á grundvelli gagnasafns ParX um launagreiðslur.











