Jafnréttismál
27.10.2008
Alcao Fjarđaál fćr jafnréttisviđurkenningu Jafnréttisráđs
24.10.2008
Stađall búinn til um launajafnrétti kynja
15.9.2008
Lokaráđstefna Jafnréttiskennitölunnar - 19. september
11.9.2008
SA styđja tvćr nýjar rannsóknir á launamun kynja
Samtök atvinnulífsins, Hagstofa Íslands og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um rannsókn á launamun kvenna og karla sem byggir á gagnasafni Hagstofunnar. Er samstarfið gert í framhaldi af bókun með kjarasamningi ASÍ og SA frá 17. febrúar 2008 um áherslur samningsaðila í jafnréttismálum og nær til gagna um laun og störf á almennum vinnumarkaði. Þá hafa SA og ASÍ gert samstarfssamning við ParX, Viðskiptaráðgjöf IBM, um rannsókn á launamun kynja fyrir árið 2008 á grundvelli gagnasafns ParX um launagreiðslur.
11.8.2008
Jafnréttissjóđur auglýsir eftir umsóknum
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði en tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm. Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið. Umsóknarfrestur er til 1. september 2008 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2008.
13.6.2008
Barcelona myndi falla ef ţví vćri stjórnađ eins og háskóla
12.6.2008
Íslenskir feđur taka ţýska karla í nefiđ
5.6.2008
Konum fjölgar í stjórnum og ćđstu stjórnendastöđum
Rannsóknasetur vinnuréttar hefur birt upplýsingar um hlutfall kvenna í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda í 120 stærstu fyrirtækjunum á Íslandi fyrir árið 2008. Helstu niðurstöður eru þær að konur skipa 13% stjórnarsæta og eru æðstu stjórnendur fyrirtækja í 8% tilvika. Hlutfall kvenna meðal æðstu yfirmanna, þ.e. þeirra sem koma næstir í skipuriti á eftir æðsta stjórnanda, er 19%. Þetta er jákvæð breyting frá árinu 2007 því konum hefur fjölgað milli ára í stjórnum og æðstu stjórnendastöðum. Í þrettán af 120 stærstu fyrirtækjum landsins er stjórnarformaðurinn kona en árið 2007 voru aðeins þrjár konur stjórnarformenn í 100 stærstu fyrirtækjunum. Þeim fyrirtækjum fækkar töluvert milli ára þar sem engin kona er í stjórn. Birting upplýsinganna er liður í verkefninu Jafnréttiskennitalan, en SA eru meðal samstarfsaðila þess.
14.5.2008
Vel heppnuđ jafnréttisnámskeiđ SA
Samtök atvinnulífsins hafa undanfarnar vikur boðið félagsmönnum sínum upp á námskeið um jafnréttisáætlanir fyrirtækja, gerð þeirra og framkvæmd samkvæmt nýjum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Námskeiðin voru afar vel sótt og heppnuðust vel en um var að ræða vinnustofu þar sem þátttakendur tóku virkan þátt en efni námskeiðanna var lagað að þörfum þátttakenda hverju sinni og fyrirtækjum þeirra. Fjallað var sérstaklega um samþættingu á gerð jafnréttis- og framkvæmdaáætlana skv. lögunum við stefnumótun fyrirtækja og mannauðsstjórnun þeirra. Leiðbeinendur voru frá Attentus, mannauði og ráðgjöf auk þess sem Samtök atvinnulífsins kynntu sjónarmið sín á sviði jafnréttismála.
6.5.2008
Jákvćđ ţróun á íslenskum vinnumarkađi
5.5.2008
Nýtt jafnréttisnámskeiđ SA í fyrramáliđ
Námskeið Samtaka atvinnulífsins um gerð jafnréttisáætlana og framkvæmd þeirra halda áfram í fyrramálið. Nær fullbókað er á námskeiðið en örfá sæti eru þó laus. Um er að ræða vinnustofu þar sem þátttakendur taka virkan þátt en námskeiðin eru sniðin að þörfum þátttakenda hverju sinni og fyrirtækjum þeirra. Námskeiðið er opið félagsmönnum SA og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig sem fyrst með því að senda tölvupóst á sa@sa.is.











