Jafnréttismál
28.9.2007
Erlent starfsfólk ein meginforsenda hagvaxtar
Í ljósi mikillar opinberrar umræðu um erlent starfsfólk á Íslandi þá telja Samtök atvinnulífsins rétt að benda á mikilvægi þess fyrir íslenskan vinnumarkað og íslenskt þjóðfélag. Samkvæmt mannfjöldaspá SA sem birt var í vor mun Íslendingum fjölga í um 400 þúsund árið 2050. Íslendingum á vinnumarkaði mun hins vegar fjölga tiltölulega hægt á komandi árum og mun fjölgunin stöðvast eftir u.þ.b. tvo áratugi. Því verður vinnuframlag erlends starfsfólks ein meginforsenda hagvaxtar.
19.9.2007
Jafnréttisviðurkenning 2007 - tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2007. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 24. september n.k. Sjá nánar á vef Jafnréttisráðs











