Beint á leiðarkerfi vefsins

Jafnréttismál

6.12.2007

Ályktun stjórnar SA um kjarasamninga og efnahagsmál

Kaupmáttur launa hefur aukist mjög á núverandi samningstímabili og meira en gerist meðal nálægra þjóða. Laun hafa hækkað mikið og verðbólga verið allt of mikil.  Nú er tími til kominn að hægja á launa- og verðbreytingum. Þetta segir stjórn Samtaka atvinnulífsins í ályktun sem samþykkt var þann 4. desember. Í ályktuninni segir ennfremur að nýta eigi svigrúm í komandi kjarasamningum til að hækka lægstu laun og færa kauptaxta nær greiddum launum. Stjórnin telur ekki svigrúm til almennra launahækkana og að þær yrðu beinlínis skaðlegar íslensku efnahagslífi. Stjórnin styður áform um stofnun áfallatryggingasjóðs og hvetur stjórnvöld til ábyrgðar í hagstjórn. Varað er við nýrri og íþyngjandi lagasetningu sem dragi úr samkeppnishæfni atvinnulífsins án sýnilegs ávinnings s.s. á sviði jafnréttismála og samkeppnismála. Stjórn SA telur ekki svigrúm til nýrra kjarasamninga með auknum tilkostnaði atvinnulífsins verði umgjörð hagstjórnarinnar ekki bætt, aðhalds gætt í opinberum útgjöldum og verðbólgumarkmiði Seðlabankans breytt. Stjórn SA leggur áherslu á að launakostnaður opinberra aðila aukist ekki umfram það sem gerist í samningum SA á almennum vinnumarkaði.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english