Jafnréttismál
18.12.2006
Svafa Grönfeldt ræðir um leiðtoga 11. janúar
Fimmtudaginn 11. janúar næstkomandi fer fram á Hótel Nordica námsstefna um konur og stjórnun fyrirtækja. Nýr rektor Háskólans í Reykjavík, Svafa Grönfeldt, er meðal þeirra sem þar stíga á stokk en Svafa mun ræða um leiðtoga og hlutverk þeirra. Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, mun ræða um konur og stjórnarsetu og öflugar konur munu ræða um konur og stjórnun ásamt því að segja eigin reynslusögur. Þær eru Elín Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsbanka, Hafdís Jónsdóttir, aðstoðar-framkvæmdastjóri Lauga, Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri Radisson SAS Sögu og Steinunn Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Glitnis í
24.10.2006
SPRON hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs
Viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2006 hlýtur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, SPRON. Að mati ráðsins sýnir SPRON gott fordæmi í jafnréttismálum. Þannig hefur t.d. allt frá árinu 1997 verið unnið eftir virkri jafnréttisáætlun en sérstök jafnréttisnefnd hefur það verkefni að fylgja henni eftir til hlítar. Hjá fyrirtækinu starfa 40 stjórnendur og þar af 21 kona. Frá árinu 2004 hefur konum fjölgað í efstu stjórnendastöðum en formaður stjórnar sjóðsins er Hildur Petersen. Sjá nánar á vef félagsmálaráðuneytisins, en Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra afhenti viðurkenninguna.
18.9.2006
Jafnréttisviðurkenning 2006 - tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2006. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september n.k. Sjá nánar á vef Jafnréttisráðs.
26.6.2006
Karlar skipta frekar en konur um starf vegna launa
Ríflega þrisvar sinnum fleiri konur en karlar nefna fjölskylduábyrgð sem ástæðu fyrir skiptum á vinnuveitanda og tæplega helmingi fleiri karlar en konur nefna „hærri laun/launatengt“. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar sem IMG
26.5.2006
Jafnréttiskennitala
Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst hefur birt upplýsingar um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum (miðað við veltu) hér á landi fyrir árið 2005. Fram kemur m.a. að konur skipuðu 12% stjórnarsæta, og að 5% stjórnarformanna og 10,5% æðstu stjórnenda fyrirtækjanna voru konur. Í 5% fyrirtækjanna voru konur í 50% stjórnarsæta eða meira. SA eru meðal styrktaraðila verkefnisins, en niðurstöður þess er að finna á vef Viðskiptaháskólans á Bifröst.
11.4.2006
SA aðilar að þróun jafnréttiskennitölu fyrirtækja
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur vegna verkefnisins jafnréttiskennitala fyrirtækjanna. Þróuð verður jafnréttiskennitala 100 stærstu fyrirtækja á landinu og er henni ætlað að sýna hvaða árangri fyrirtækin hafa náð í jafnréttismálum. Að verkefninu standa viðskiptaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið, SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa, auk Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst sem fara mun með framkvæmd verkefnisins.
1.2.2006
Er þinn vinnustaður fjölskylduvænn?
Hollvinir hins gullna jafnvægis hafa í hyggju að veita í þriðja sinn viðurkenningu fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Viðurkenningin „Lóð á vogarskálina“ verður afhent á ráðstefnunni „Hið gullna jafnvægi: Gjöfult verkefni“ sem haldin verður á Nordica hótel 16. febrúar nk. Samtök atvinnulífsins eru meðal hollvina hins gullna jafnvægis. Tekið er á móti ábendingum á vefsvæðinu www.hgj.is til 10. febrúar.











