Jafnréttismál
1.12.2005
Atvinnulífið græðir á jafnrétti
Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, að jafnréttismál hafi lengi verið knýjandi umræðuefni í samfélaginu, en það sé þó ekki fyrr en á allra síðustu árum að sjónir hafi beinst meira að stöðu karla í þessu sambandi og að jafnrétti í ákvörðunum og skyldum á heimilunum sé jafn mikilvægt og þurfi að haldast í hendur við jafnrétti í stjórnarherbergjunum og atvinnulífinu almennt.
1.12.2005
Karlar um borð
Karlar fjölmenntu í dag í Salinn í Kópavogi til að ræða jafnréttismál út frá sjónarhóli karla á ráðstefnunni Karlar um borð. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins var meðal frummælenda, en í erindi sínu fjallaði hann um það hvernig atvinnulífið græðir á jafnrétti og mismunun feli í sér sóun. Nefndi Ari einnig að áhersla á jafnrétti og fjölbreytileiki innan fyrirtækja tengdist betri stjórnunarháttum og betri afkomu fyrirtækja. Ari benti m.a. á þá jákvæðu þróun að á síðustu fimm árum hefur konum í stöðu framkvæmdastjóra í skráðum hlutafélögum fjölgað umtalsvert - íslenskt þjóðfélag stefni því í rétta átt þó allt of hægt miði.











