Jafnréttismál
20.10.2003
Samræming vinnu og einkalífs
Þann 10. nóvember verður haldin ráðstefna um samræmingu vinnu og einkalífs á hótel Nordica, ætluð starfsmannastjórum, jafnréttisráðgjöfum o.fl. Skráning til 6. nóvember. Veitt verður viðurkenning fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Óskað er eftir ábendingum vegna hennar. Sjá nánar á vef hins gullna jafnvægis.
1.10.2003
Launamunur kynjanna 3-7% í Danmörku
Samkvæmt nýlegri könnun dönsku aðila vinnumarkaðarins nemur sá launamunur sem ekki næst að útskýra með öðrum þáttum en kyni 3,4 til 7,4%. Byggt var á aðferð sem horfir ekki á kyn sem skýringarbreytu heldur gerir heildstæðar aðskildar rannsóknir á launum kynjanna og ber þau síðan saman. Aðferðinni hefur einu sinni verið beitt hérlendis og var niðurstaðan þá 7,5-11% óútskýrður munur. Ýmis gögn eru þó ófullkomnari hér.
26.9.2003
Jafnréttisviðurkenning 2003: tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviður-kenningar fyrir árið 2003. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október nk. Sjá nánar á heimasíðu Jafnréttisráðs.
8.5.2003
Jafnréttismálin og atvinnulífið
Að velja ekki þann hæfasta eru einfaldlega slakir stjórnunarhættir, sem ekki skila árangri á samkeppnis-markaði, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir tækifæri til breytinga sem stuðla myndu að jöfnun á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og horfir m.a. til starfs- og vetrarfrísdaga í skólum.
3.4.2003
Konur sækjast síður eftir stjórnunarstörfum
Konur eru almennt jafn góðir eða ívið betri stjórnendur en karlar en sækjast mun síður eftir stjórnunarstörfum. Þær eru samviskusamari og liprari í samskiptum en bundnari af fjölskyldu og heimili. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun SA á viðhorfi til kynjanna sem stjórnenda.
20.3.2003
Aukin útgjöld gætu hækkað tryggingagjald
SA taka ekki undir þá túlkun félagsmálaráðuneytisins að Fæðingarorlofssjóður eigi að greiða orlofslaun. Í samtali við Morgunblaðið bendir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, á að veruleg útgjaldaaukning sjóðsins, sem fjármagnaður er með tryggingagjaldi, kalli beint á skattahækkun á atvinnulífið.
5.3.2003
Karlar og konur ráða eins í störf
Það er enginn munur á því hvernig karlar og konur ráða kynin í störf, samkvæmt nýrri könnun meðal danskra stjórnenda. Formaður samtaka þeirra segir þetta bera vitni um að fagleg sjónarmið ráði ferðinni, óháð því hvort karlar eða konur fari með mannaráðningar.
18.2.2003
Samræming vetrarfrídaga
Samræming starfsdaga grunn- og leikskóla innan hverfa er algert lágmarkstillit við fjölskyldur og atvinnulíf og því fagnaðarefni. Samræming vetrarfrís grunnskóla borgarinnar getur einnig orðið til bóta. Vetrarfríin munu þó áfram valda röskun, en ákvörðun um þau var tekin án nokkurs samráðs við umhverfi skólanna.











