Beint á leiðarkerfi vefsins

Jafnréttismál

29.11.2001

Kynjakvóti andstæður reglum EES

Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemd við að við Oslóarháskóla sé tiltekinn fjöldi stöðugilda frátekinn fyrir konur. Stofnunin segir það andstætt reglum EES að auglýsa stöður þar sem umsóknir frá körlum komi ekki einu sinni til greina.

18.10.2001

Launamunur kynjanna og ábyrgð á heimilunum

Atvinnurekendur hafa engan hag af því að mismuna fólki eftir kyni eða af öðrum ómálefnalegum ástæðum, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA, í grein í Morgunblaðinu í dag.

4.10.2001

Skýringar á launamun kynjanna

Allt að 80% af launamun kynjanna skýrast af hlutlægum, mælanlegum þáttum, en sá munur sem eftir stendur af ómælanlegum, persónubundnum þáttum. Þetta kemur fram í niðurstöðum ítarlegrar rannsóknar dönsku samtaka atvinnulífsins og dönsku hagstofunnar.

4.10.2001

Helmingur stærri fyrirtækja gerir jafnréttisáætlanir

Tæpur helmingur stærstu fyrirtækjanna er að vinna að gerð jafnréttisáætlana, en einungis 4% fyrirtækja með 25-50 starfsmenn, skv. niðurstöðum könnunar SA. Þetta kemur ekki á óvart, en ekki er hefð fyrir svo formlegum samskiptum í minni fyrirtækjum þar sem menn hafa nóg með sinn rekstur.

30.8.2001

ESB: hærra hlutfall kvenna á vinnumarkaði

Innan ESB hefur meðaltalshlutfall kvenna á vinnumarkaði aukist úr um 50% árið 1995 í um 54% árið 2000. Hæst er það um 72% í Svíþjóð og Danmörku. Á Íslandi er hlutfall kvenna á vinnumarkaði hins vegar 79% og er þó miðað við mun hærri lífaldur.

19.7.2001

Færri sækja um – fleiri fá!

Færri konur sækja um stjórnunarstöður en karlar, en hærra hlutfall kvenumsækjenda hefur erindi sem erfiði, samkvæmt könnun félags danskra lögfræðinga og hagfræðinga.

23.3.2001

Laun kvenna hækka meira en laun karla

Laun kvenna hafa hækkað umtalsvert meira en laun karla á undanförnum árum, eða um 3% meira frá fjórða ársfjórðungi 1997 til jafnlengdar ársins 2000, samkvæmt mælingum Kjararannsóknarnefndar. Um er að ræða stöðuga þróun á tímabilinu.

22.3.2001

Kaupmáttur dagvinnulauna jókst um 4,3%

Samkvæmt niðurstöðum launakönnunar Kjararannsóknarnefndar fyrir 4. ársfjórðung 2000 jókst kaupmáttur dagvinnulauna um 4,3% frá 4. ársfjórðungi 1999. Laun kvenna hækkuðu meira en laun karla.

10.3.2001

Jafnréttislöggjöfin: tími kominn á jákvæða umræðu um framkvæmdina

Tími er kominn á jákvæða umræðu um framkvæmd jafnréttislaga, sagði Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í almennum umræðum á málþingi SA og norrænu ráðherranefndarinnar um Evrópuvinnurétt og jafnréttislöggjöf. Á málþinginu var m.a. fjallað um reynslu fyrirtækja og stéttarfélaga af framkvæmd laganna.

10.3.2001

Jafnrétti kynjanna er hagsmunamál atvinnulífsins

Fyrirtækin þurfa á sem hæfustu starfsfólki að halda og því er jöfn staða kynjanna hagsmunamál atvinnulífsins, sagði Finnur Geirsson, formaður SA, í ávarpi sínu á málþingi um Evrópuvinnurétt og jafnréttislöggjöf. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að jafnréttislöggjöfin kallaði ekki á aukið skrifræði og sagði fyrirtækin best til þess fallin að ákveða hvernig ná mætti almennum markmiðum jafnréttislaga.

22.2.2001

Villandi meðaltalstölur í launakönnun VR

Bornar eru saman ósambærilegar tölur og háum prósentutölum skartað í krafti stóraukins vægis stjórnenda og sérfræðinga meðal svarenda, skrifar Gústaf Adolf Skúlason í grein í Morgunblaðinu í dag.

16.2.2001

Málþing um Evrópuvinnurétt og jafnréttislöggjöf

Að málþinginu standa Samtök atvinnulífsins í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina, dagana 9.-10. mars á Hótel Loftleiðum. Dagskrá, almennar upplýsingar og skráningareyðublöð eru nú komin á vef SA.
RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english