Hið opinbera
25.1.2012
Pólitískan vilja þarf til að ná settum markmiðum
3.1.2012
2011 leið hjá án þess að tækist að örva fjárfestingar og atvinnusköpun
13.12.2011
Til Alþingis frá SA: Virkjum tækifærin og rjúfum kyrrstöðuna
Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu. Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. „Eitthvað annað" stefnan er fullreynd.
Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt.
Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins.
Sækjum fram. Rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þau tækifæri sem blasa við.
Sent til allra alþingismanna 13. desember 2011.
25.10.2011
Hvað er efst á baugi í umhverfisráðuneytinu?
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins og Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðuneytisins fjalla um þau mál sem efst eru á baugi hjá umhverfisráðuneytinu, m.a. með hliðsjón af þingmálaskrá umhverfisráðherra og aðildarviðræðum við ESB, á fundi hjá Samtökum atvinnulífsins miðvikudaginn 26. okt. kl 8.30-10.
18.10.2011
Þriðjungur fyrirtækja telur aðgerðir stjórnvalda sitt helsta vandamál
6.10.2011
Veikleikar í fjárlagafrumvarpinu 2012
Halli á ríkissjóði er því áætlaður 17,7 ma.kr., eða 1,0% af vergri landsframleiðslu (VLF). Frumjöfnuður (þ.e. án tillits til vaxtagjalda og vaxtatekna) er áætlaður verða jákvæður um 39,6 ma.kr., eða 2,2% af VLF. Markmiði um afgang á heildarjöfnuði er seinkað um eitt ár, til ársins 2014, auk þess sem hann verður minni en stefnt var að áður eða sem nemur 0,9% af VLF.
26.9.2011
Formaður LÍÚ: Hægt að skapa hundruð nýrra starfa ef óvissu um sjávarútveginn verður eytt
Adolf sagði að allt frá því núverandi ríkisstjórn var mynduð vorið 2009 og setti fram stefnu sína um svokallað fyrrningarleið hafi íslenskur sjávarútvegur verið í uppnámi. Hann gagnrýnir harðlega að enginn úr atvinnugreininni hafi verið fenginn að málum og engin fræðileg úttekt gerð á afleiðingum lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða áður en það var lagt fram á Alþingi sl. vor. Með frumvarpinu sé markvisst stefnt að því að gera aflaheimildir útgerðanna verðlausar og færa þær til ríkisins með ómældu tjóni fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og íslenskt efnahagslíf.
26.9.2011
Framkvæmdastjóri ÍSTAKS: Dýrkeypt að gera ekki neitt
Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Kolbeinn sagði tekjur fyrirtækisins hér á landi hafi dregist mikið saman undanfarin ár og það væri til marks um erfiða stöðu á innanlandsmarkaði að það hafi ekki verið fyrr en í september sem fyrsti nýi innlendi verksamningur árins hafi verið undirritaður. ÍSTAK hefur brugðist við samdrættinum með því að leita verkefna á erlendum mörkuðum en Kolbeinn segir mikilvægt að hefja uppbyggingu innanlands og snúa þróuninni við. Atvinnuleysi sé að festast í sessi sem afleiðing af „það er öruggast að gera ekki neitt" stefnunni sem sé dýrkeypt.
2.9.2011
Opinber útgjöld að frátöldum ellilífeyrisgreiðslum eru hvergi hærri hlutfallslega en á Íslandi
Ísland er í hópi þeirra ríkja sem verja hvað mestu til almennrar opinberrar þjónustu, heilbrigðismála og menntamála. Ísland ver þriðja hæsta hlutfalli landsframleiðslu til almennrar opinberrar þjónustu, fjórða hæsta hlutfallinu til heilbrigðismála og hæsta hlutfallinu til menntamála.










