Fréttir | Eldri fréttir | Á döfinni | Fréttabréf










English 

Starfsfólk SA



 

Samtök atvinnulífsins
Borgartúni 35
IS-105 Reykjavík
Sími: 591 0000
Bréfsími: 591 0050
Netfang: sa@sa.is




Aðalfundur 
Samtaka atvinnulífsins

Eftirtaldar tillögur stjórnar SA um breytingar á samþykktum SA voru samþykktar samhljóða á aðalfundinum 15. maí 2001.

Lækkun félagsgjalda

3. og 4. málsliður 1. mgr. 11. gr. orðist svo:

Á árinu 2002 er árgjald 0,17% og iðgjald til vinnudeilusjóðs 0,04%, eða samtals 0,21% af framangreindum stofni. Séu gjöld greidd á eindaga skv. 1. mgr. 13. gr. er veittur 5% afsláttur af árgjaldi og iðgjaldi, enda séu öll eldri gjöld í skilum.

1. - 3. málsliður 3. mgr. 11. gr. orðist svo:

Þrátt fyrir framanritað er óskylt að greiða hærra árgjald en sem svarar 0,074% af rekstrartekjum liðins árs og er þá iðgjald til vinnudeilusjóðs SA innifalið. Séu gjöld greidd á eindaga skv. 1. mgr. 13. gr. er veittur 5% afsláttur, enda séu öll eldri gjöld í skilum.

Réttarverndarsjóður

Við 54. gr. bætist ný málsgrein sem orðist svo: Stjórn SA er heimilt, í samráði við stjórn vinnudeilusjóðs, að ákvarða greiðslu úr vinnudeilusjóði til réttarverndarsjóðs, sem starfar skv. XV. kafla samþykkta SA.

Við samþykktirnar bætist nýr kafli XV. Númer annarra greina breytist til samræmis.

XV. kafli Réttarverndarsjóður

55. gr. 
Samtök atvinnulífsins starfrækja réttarverndarsjóð sem hefur það hlutverk að standa straum af kostnaði vegna málareksturs og annarrar réttarvörslu í málum sem snerta hagsmuni atvinnulífsins eða margra félagsmanna.

Stjórn réttarverndarsjóðs skipa þrír menn, tveir kosnir af framkvæmdastjórn SA til eins árs í senn og einn skipaður af framkvæmdastjóra SA.

Stjórn réttarverndarsjóðs setur nánari reglur um greiðslur úr sjóðnum.

Ákvæði til bráðabirgða 
Stofnfé réttarverndarsjóðs er kr. 10.000.000, sem greiðist úr vinnudeilusjóði á árinu 2001.



Aftur á fréttasíðu