Erlent
13.12.2011
Nýir kjarasamningar í Svíþjóð
6.12.2011
Kjarasamningar í Finnlandi til tveggja ára
21.9.2011
Framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE: Ísland velkomið í ESB
Phillippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE ræddi um hagvaxtarhorfur í Evrópu, evruna og ESB á opnum morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins sl. föstudag. Hann fjallaði m.a. umsókn Íslands að ESB og sagði það að sjálfsögðu ákvörðun Íslendinga hvort þeir gangi inn en Ísland sé nú þegar mikilvægur þátttakandi á innri markaði Evrópu á fjölmörgum sviðum og hafi margt fram að færa, s.s. á sviði endurnýjanlegrar orku, sjávarútvegs, áliðnaðar og ferðaþjónustu.
20.9.2011
Evran staðið fyrir sínu og verður ekki kennt um kreppuna
16.9.2011
Framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE: Útflutningsdrifinn hagvöxtur og sköpun nýrra starfa lykilatriði
Phillippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUOROPE (samtaka atvinnulífsins í Evrópu) flutti rétt í þessu erindi á opnum morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Þar ræddi hann um hagvaxtarhorfur í Evrópu, evruna, stöðu atvinnulífsins, og leiðir til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja í álfunni og bæta lífskjör. Ræða Philippe de Buck hefur nú verið birt á vef SA en þar lagði hann meðal annars mikla áherslu á útflutningsdrifinn hagvöxt og sköpun nýrra starfa í einkageiranum ásamt því að ná aukinni hagkvæmni og sjálfbærni í rekstri hins opinbera.
5.9.2011
Hvert stefnir Evrópa? Opinn fundur SA og SI föstudaginn 16. september á Nordica
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 16. september á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-10.00. Efni fundarins er staða atvinnulífsins í Evrópu og hagvaxtarhorfur ásamt mögulegum áhrifum á íslenskt efnahagslíf.










