Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

0 - 1

1.2.2012

Fundir um samband atvinnulífs og byggðaþróunarsjóða ESB 6. og 7. febrúar

Samtök atvinnulífsins og utanríkisráðuneytið efna til tveggja opinna funda þann 6. og 7. febrúar í Reykjavík og á Akureyri þar sem fjallað verður um byggðaþróunarsjóði ESB og áhrif þeirra. Veli-Pekka Ihanus, finnskur sérfræðingur í byggðamálum, mun halda erindi um hvernig sjóðirnir hafa verið nýttir til nýsköpunar og fjármögnunar verkefna í Finnlandi auk þess að fjalla um hvernig þeir geta styrkt atvinnulíf innan ESB og möguleika fyrirtækja á styrkjum.

 

Fyrri fundurinn fer fram í Reykjavík, í Húsi atvinnulífsins á 6. hæð, Borgartúni 35 kl. 13-15. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.

 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU

 

Seinni fundurinn fer fram í samstarfi við Háskólann á Akureyri þriðjudaginn 7. febrúar. Fundurinn fer fram í  stofu M203  (í nýju byggingu HA á 2. hæð) kl. 10-12.  Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.

 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english