Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

22.5.2012

Atvinnuleysiđ er ţjóđinni dýrkeypt

Samtök atvinnulífsins hafa barist ötullega fyrir því á undanförnum misserum að atvinnulífinu verði sköpuð hagstæð rekstrarskilyrði svo fyrirtækin í landinu geti sótt fram, ráðið til sín fólk og þar með minnkað atvinnuleysið sem er þjóðinni dýrkeypt. Í úttekt Morgunblaðsins í dag kemur fram að greiddar atvinnuleysisbætur frá hruni stefni í 100 milljarða króna en Samtök atvinnulífsins telja kostnaðinn enn meiri fyrir samfélagið.

21.5.2012

Veik fjárfestingaáćtlun ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórnin reynir að afla sér bandamanna í kvótamálinu með loforðum um að nýta arðinn af veiðigjöldum í ýmsar fjárfestingar. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við fréttastofu RÚV. Ríkisstjórnin hefur kynnt fjárfestingaáætlun fyrir árin 2013 til 2015 sem gerir ráð fyrir að tekjur af fyrirhuguðu veiðigjaldi ásamt arði og eignasölu ríkissins í bönkunum fari í ýmsar fjárfestingar á þessum tíma.

21.5.2012

Vinnum saman ađ lausn sjávarútvegsmála

Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur skorað á stjórnvöld að draga sjávarútvegsfrumvörpin til baka og hvetur þau til að leggja grunn að samráðsvettvangi svo skapa megi sátt um deilur um stjórn fiskveiða. Samtök atvinnulífsins taka undir áskorun LÍÚ og telja brýnt að ná sátt um starfsumhverfi sjávarútvegsins.

19.5.2012

Rćtt um framtíđ lífeyrismála á Íslandi á mánudaginn

Mánudaginn 21. maí verður efnt til ráðstefnu um framtíð lífeyrismála á Íslandi. Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 13-16, allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Samtök atvinnulífsins, Öldrunarráð Íslands, Landssamtök lífeyrissjóða og Alþýðusamband Íslands standa að ráðstefnunni.

16.5.2012

Best fyrir Ísland ađ gjaldeyrishöftum verđi aflétt - gögn frá opnum fundi SA

StundarglasSamtök atvinnulífsins efndu til opins fundar 16. maí um mikilvægi þess að gjaldeyrishöft verði afnumin sem fyrst. Mikill áhugi er á málinu innan íslensks atvinnulífs og var salurinn á Hótel Nordica fullskipaður. Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga, að höftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt meiri skaða. Áætlun SA, sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði strax í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar. Kynningar frummælenda frá fundinum hafa nú verið birtar á vef SA ásamt stuttri samantekt.

16.5.2012

Fundur SA um afnám gjaldeyrishafta

Opinn fundur Samtaka atvinnulífsins um afnám gjaldeyrishaftanna fór fram í morgun fyrir fullum sal á Hilton Reykjavík Nordica og ljóst að mikill áhugi er á málinu innan íslensks atvinnulífs. Fjallað verður um fundinn hér á vef SA síðar í dag en Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga, að höftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt meiri skaða.  Áætlun SA, sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar.

14.5.2012

Opinn fundur um afnám gjaldeyrishafta á miđvikudag - skráning stendur yfir

Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunfundar um afnám gjaldeyrishafta á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 16. maí kl. 8.30-10. Á fundinum verður m.a. rætt um nýja áætlun SA um afnám gjaldeyrishaftanna en Samtök atvinnulífsins telja það brýnasta hagsmunamál Íslendinga, að höftin verði afnumin sem fyrst þar sem þau valda þjóðinni sífellt meiri skaða. Skráning á fundinn er nú í fullum gangi en skráningu lýkur á morgun.

 

Áætlun SA, sem hefur verið birt á vef samtakanna, gerir ráð fyrir að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og ráðist verði í sérstakar mótvægisaðgerðir til að takmarka tjón skuldsettra heimila af hugsanlegu gengisfalli krónunnar.

11.5.2012

Andri í Ölgerđinni: Afnám gjaldeyrishafta forsenda framfara

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir að það verði að létta gjaldeyrishöftum af Íslandi við fyrsta tækifæri - rífa þau af eins og plástur og kljást við afleiðingarnar. Það sé forsenda þess að hægt sé að koma hlutunum áfram á Íslandi enda hafi gjaldeyrishöftin skaðlegar afleiðingar fyrir íslensk fyrirtæki og efnahagslíf. Andri er einn þeirra fjölmörgu sem hafa lagt fram hugmyndir að uppfærslu Íslands á hugmyndavefnum www.uppfaerumisland.is. Hægt er að horfa á viðtal við Andra hér á vefnum.

10.5.2012

Brýnasta hagsmunamál Íslendinga

„Afnám gjaldeyrishafta er brýnasta hagsmunamál Íslendinga." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs SA. Hann segir höftin valda atvinnulífinu og samfélaginu öllu sífellt meiri skaða og áætlun stjórnvalda um afnám haftanna sé bæði ómarkviss og ótrúverðug. Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna sem gerir ráð fyrir að þau falli niður í árslok. Vilhjálmur skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að hefjast þegar handa við afnám haftanna í stað þess að sitja með hendur í skauti og bíða eftir tillögum frá Seðlabankanum. Gjaldeyrishöftin séu fullkomlega óásættanleg fyrir atvinnulífið. „Nútíma alþjóðatengt atvinnulíf þrífst ekki á Íslandi með gjaldeyrishöftum."

10.5.2012

Áformum um ţreföldun sekta Seđlabankans á einstaklinga og fyrirtćki mótmćlt

Í frumvarpi um gjaldeyrismál sem nú liggur fyrir á Alþingi er lögð til þreföldun á hámarki þeirra sekta sem Seðlabankanum er heimilt að leggja á aðila vegna brota á lögunum. Hámark sekta á lögaðila verði hækkað úr 75 milljónum króna í 250 milljónir og á einstaklinga úr 20 milljónum í 65 milljónir. Samtök atvinnulífsins mótmæla þessari tillögu og telja ekki efni til að hækka sektirnar, þar sem núverandi fjárhæðarmörk séu nægjanlega há til að hafa forvarnargildi.

10.5.2012

Orlofsuppbót 2012

Samkvæmt almennum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2012 er kr. 27.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 21.000. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til starfstíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2011 til 30. apríl 2012, og telst fullt ársstarf í þessu sambandi 45 vikur eða meira fyrir utan orlof. Ekki er greitt orlof af orlofsuppbót.

8.5.2012

33 leiđir til ađ uppfćra Ísland

Á hugmyndavefnum www.uppfaerumisland.is má nú finna 33 leiðir til að uppfæra Ísland, styrkja menntakerfið og efla atvinnulífið. Samtök atvinnulífsins opnuðu vefinn í aðdraganda aðalfundar SA og óskuðu eftir góðum hugmyndum til að gera Ísland að betri stað til að búa á. Vefurinn verður efldur á næstu vikum og mánuðum en stefnan hefur verið sett á að ná 100 hugmyndum að uppfærslu Íslands fyrir sumarið.

7.5.2012

Umsögn SA um tillögu til ţingsályktunar um áćtlun um vernd og orkunýtingu landssvćđa

Samtök atvinnulífsins telja að tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða (727. mál) uppfylli ekki skilyrði laga nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun og að hún geti ekki haft þau réttaráhrif sem henni er ætlað að hafa samkvæmt lögunum. Þetta kemur fram í umsögn SA til Alþingis. Samtök atvinnulífsins telja því að hvorki landeigendur, sveitarstjórnir, orkufyrirtæki né aðrir verði bundnir af samþykkt þeirrar tillögu sem til umfjöllunar er.

7.5.2012

Frá ađalfundi SFF 2012

Aðalfundur Samtaka fjármálafyrirtækja fór fram þann 27. apríl. Á fundinum var Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, kjörinn formaður stjórnar samtakanna. Höskuldur tók við af Birnu Einarsdóttir, bankastjóra Íslandsbanka, sem hefur gegnt stöðu stjórnarformanns undanfarin tvö ár. Birna situr áfram í stjórn samtakanna.

4.5.2012

Plan for lifting capital controls: Áćtlun SA um afnám gjaldeyrishafta á ensku

Samtök atvinnulífsins telja afnám gjaldeyrishafta brýnasta viðfangsefnið í atvinnumálum Íslendinga. SA settu nýverið fram áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna á vef SA þar sem henni er ítarlega lýst og færð fyrir henni rök. Nú má einnig nálgast enska útgáfu áætlunarinnar á vef samtakanna.

4.5.2012

Ţađ ţarf ađ uppfćra menntakerfiđ í Evrópu

Forseti BUSINESSEUROPE, Jurgen Thumann, beindi þeirri ósk til José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, á ársfundi samtakanna í síðustu viku að menntakerfið í Evrópu verði styrkt þannig að það þjóni betur þörfum atvinnulífsins. Verði það ekki gert er lítil von til þess að nýsköpun nái að blómstra í álfunni, efnahagslífið taki við sér og atvinnuleysi minnki.

4.5.2012

Kostnađur foreldra og atvinnulífs vegna skipulagsdaga í leikskólum margfalt meiri en sparnađur sveitarfélaga

Á undanförnum árum hefur skipulagsdögum í leikskólum farið fjölgandi. Stærstu sveitarfélögin tilkynntu foreldrum nýlega að þeim yrði fjölgað úr 5 í 6 á þessu ári. Sveitarfélögin hafa farið þá leið að loka fyrir þjónustu leikskólanna á þessum dögum, væntanlega í sparnaðarskyni, en áður var algengt að skipulagsfundir starfsmanna í leikskólum væru haldnir utan vinnutíma og starfsmönnum greidd yfirvinna fyrir fundartímann. Það er því ákvörðun sveitarfélaganna að skerða þann þjónustutíma sem foreldrum stendur til boða vegna þessarar skipulagsvinnu.

3.5.2012

Frumvörpin verđi dregin til baka

Samtök atvinnulífsins, Samtök fiskvinnslustöðva og Landssamband íslenskra útvegsmanna hafa sent atvinnuveganefnd Alþingis sameiginlega umsögn um frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Með umsögninni fylgir álitsgerð LEX lögmannsstofu og endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Samtökin eru í öllum aðalatriðum ósammála efni frumvarpanna og leggja til að þau nái ekki fram að ganga. Verði frumvörpin að lögum munu þau hafa alvarleg áhrif á íslenskan sjávarútveg og efnahagslíf.

2.5.2012

Samantekt frá ađalfundi SA 2012

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fór fram þann 18. apríl 2012 á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Uppfærum Ísland. Samantekt frá fundinum má nú nálgast á vef SA. Þar er m.a. að finna upplýsingar um kjör formanns, stjórnar og fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins auk ársskýrslu SA 2011-2012. Á vef SA er einnig að finna umfjöllun um opna dagskrá aðalfundar SA, tillögur SA að uppfærslu Íslands og slóð á nýjan umræðuvef þar sem fólk getur lagt fram hugmyndir að alls kyns lausnum sem geta gert Ísland að betra landi til að búa á.

2.5.2012

Gögn frá ráđstefnu um möguleika í atvinnumálum á Snćfellsnesi

Föstudaginn 30. mars efndu Samtök atvinnulífsins og Þróunarfélag Snæfellinga í samstarfi  við Atvinnuráðgjöf Vesturlands til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi um möguleika í atvinnumálum á Snæfellsnesi. Gögn frá ráðstefnunni eru aðgengileg á vef SA en þar var m.a. fjallað um sjávarklasann og vaxtarmöguleika í sjávarútvegi á Snæfellsnesi, nýsköpun í vinnslu sjávarfangs og samstarf vinnslustöðva og rannsóknarstofnana, orkunýtingu til atvinnuuppbyggingar,ferðaþjónustu og afþreyingu allt árið.

2.5.2012

Ţorsteinn Fr. Sigurđsson framkvćmdastjóri Starfs

Þorsteinn Fr. Sigurðsson lög- og rekstrarhagfræðingur hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Starfs - vinnumiðlunar og ráðgjafar ehf. sem er samstarfsfyrirtæki Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um tilraunaverkefni ASÍ og SA um aukna þjónustu við atvinnuleitendur.

30.4.2012

Formađur SA: Gósentíđ eftirlitsstarfseminnar

„Nú ber vel í veiði fyrir þá sem hafa eftirlit með atvinnulífinu í landinu. Það er oft sagt án þess að fyrir því séu endilega sannfærandi rök að hrunið megi kenna slöku eftirliti með atvinnulífinu. Verulega hefur því fjölgað þeim sem sinna fjármálaeftirliti með bönkum og öðrum fjármálastofnunum. Gjaldeyriseftirlit þenst út og þar mun starfsmönnum halda áfram að fjölga. Merki um aukin umsvif eftirlitsstofnana eru víðar. Samdrætti í föstum fjárframlögum er mætt með nýjum gjaldskrárheimildum og hækkun gjalda þar sem unnt er. Eftirlitsstarfsemin treystir tök sín og er ófeimin að beita valdi sínu. Þetta verður meðal annars til þess að fyrirtækin eru ófús að leita eftir leiðbeiningum hjá viðkomandi stofnunum, til að fá upplýsingar um hvernig best sé að fara að lögum og reglum, af ótta við að þau gjaldi þess síðar.

29.4.2012

Skipulagsdagar leikskóla - bera ţjónustulund ekki fagurt vitni

Nýverið barst foreldrum barna á forskólaaldri í Reykjavík tilkynning um að þau þyrftu að óska eftir enn frekara leyfi frá vinnu, þ.e. taka sumarorlof, vegna mikilvægra fundarhalda starfsmanna á leikskólum. Fjöldi skipulagsdaga hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum.

25.4.2012

Áćtlun SA um afnám gjaldeyrishafta: Óásćttanleg gjaldeyrishöft

Afnám gjaldeyrishafta er brýnasta viðfangsefnið í atvinnumálum Íslendinga. Gjaldeyrishöftin voru sett á með lögum 134/2008 en Seðlabankinn hafði þegar þann 10. október 2008 sent frá sér tilmæli um tímabundna temprun á útflæði gjaldeyris. Síðan hafa höftin verið ýmist hert eða framlengd, nú síðast með lögum 17/2012, þar sem m.a. þrotabú gömlu bankanna voru færð undir lögin. Þá er nýtt frumvarp (mál 731/2012) til umfjöllunar í Alþingi þar sem heimildir eru rýmkaðar en refsingar þyngdar.

24.4.2012

Hvetur fyrirtćki til ađ leggja sitt af mörkum viđ uppfćrslu Íslands

Marín Magnúsdóttir eigandi viðburða- og ferðaþjónustufyrirtækisins Practical var ein þeirra sem flutti erindi á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 2012. Marín þakkaði SA fyrir uppbyggjandi og hvetjandi yfirskrift fundarins, Uppfærum Ísland, og lýsti í ræðu sinni þeim aðgerðum sem Practical hefur þurft að grípa til á síðustu árum. 

24.4.2012

Styrkja ţarf innviđi ferđaţjónustunnar

Það gengur vel í íslenskri ferðaþjónustu í dag og erlendum ferðamönnum sem hingað koma fjölgar stöðugt. Árlegur fjöldi þeirra sem hingað koma stefnir óðfluga í eina milljón. Það þarf hins vegar að styrkja innviði ferðaþjónustunnar, byggja betri vegi sem þola þennan mikla fjölda og bæta aðstöðu við fjölfarna ferðamannastaði svo þeir láti ekki á sjá. Þetta kom m.a. fram í máli Kjartans Ragnarssonar, forstöðumanns Landnámsseturs Íslands, á aðalfundi SA 2012. Kjartan sagði jafnframt að dreifa þurfi ferðamönnunum betur yfir landið og árið.

24.4.2012

Menntun fyrir hvern?

Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis, velti fyrir sér menntun á aðalfundi SA 2012 og spurði fyrir hvern hún væri? Edda Lilja sagði skoðanir sínar fyrst og fremst byggðar á fyrri störfum hennar í menntamálaráðuneytinu og Orkuskólanum REYST - þær væru hennar eigin - en ljóst væri að breyta þurfi menntakerfinu. Menntun sé fyrir okkur öll, menntastofnanir séu ekki til án atvinnulífsins og atvinnulífið þurfi á menntuðu starfsfólki að halda. Edda Lilja tók undir tillögur SA í menntamálum sem voru lagðar fram á fundinum en sagði jafnframt ljóst að ekki þurfi fleiri skýrslur, úttektir eða álitsgerðir. Það liggi fyrir hvað þurfi að gera og mikilvægt sé að koma sér að verki! Fjölga þurfi útskrifuðu fólki með verk- og tæknimenntun og auka vægi raungreina í kennaramenntun.

24.4.2012

Hćgt ađ auka verđmćtasköpun verulega međ auknu fiskeldi

Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar matorku, hélt erindi á aðalfundi SA 2012 sem fór nýverið fram. Þar sagði hún hægt að auka verðmætasköpun verulega Íslandi með auknu fiskeldi. Aðstæður hér væru um margt góðar og sérstakar. Hér væri t.d. nóg af hreinu vatni og endurnýjanlegri orku sem mætti nýta til að búa til hágæðaafurðir. Útflutningsverðmæti eldisfisks frá Íslandi nemur nú 2,7 milljörðum króna á ári. Sjöfn sagði að stefna ætti að því að auka útflutningsverðmætið í 400 milljarða á ári en til samanburðar er útflutningsverðmæti sjávarútvegsins um 250 milljarðar á ári.

22.4.2012

Fjárfestum í eigin landi

Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins boða til opins fundar um opinberar fjárfestingar í ljósi rammaáætlunar, samgönguáætlunar og nýs Landspítala. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 25. apríl kl. 8.30 - 10.00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SI.

21.4.2012

Öflug menntun forsenda sterkra fyrirtćkja og góđra lífskjara

Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands fjallaði um mikilvægi menntunar fyrir atvinnulífið á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 2012. Hann sagði að auka verði samvinnu menntastofnana og stjórnvalda við atvinnulífið við að móta áherslur í nýsköpun. Efling nýsköpunar eigi jafnframt að gera að sérstöku forgangsverkefni stjórnvalda og mikilvægt sé að skapa sameiginlega sýn um hvert stefna skuli.

20.4.2012

Ársskýrsla SA 2011-2012 komin á vefinn

Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins 2011-2012 er komin út. Þar er að finna greinagott yfirlit yfir starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Í skýrslunni er einnig ítarleg umfjöllun um þróun efnahags- og atvinnumála undanfarið ár. Rafrænt eintak skýrslunnar má nálgast á vef SA.

18.4.2012

Rćđa formanns Samtaka atvinnulífsins á ađalfundi 2012

Opin dagskrá aðalfundar Samtaka atvinnulífsins 2012 fór fram á Hilton Reykjavík Nordica fyrir fullu húsi fimmtudaginn 18. apríl. Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, ávarpaði fundinn en ræðu hans má lesa í heild á vef SA. Vilmundur kom víða við, ræddi m.a. um skaðsemi gjaldeyrishafta og mikilvægi þess að þau verði afnumin hið fyrsta. Vilmundur sagði lykilforsendu fyrir trúverðugri áætlun um afnám gjaldeyrishafta að fylgja stífri, tímasettri áætlun. Samtök atvinnulífsins leggja til að sett verði lög um afnám gjaldeyrishafta sem komi til framkvæmda í ársbyrjun 2013 og fjallaði Vilmundur um hugmyndir SA í ræðunni.

18.4.2012

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins 2012-2013

Lýst hefur verið kjöri stjórnar Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2012 til 2013. Ný inn í stjórnina koma Ólafur Marteinsson, Ramma hf., Gunnar Sverrisson ÍAV hf., Svana Helen Björnsdóttir, Stika ehf. og Jens Pétur Jóhannsson Rafmagnsverkstæði JRJ ehf. Jens var áður áheyrnarfulltrúi í stjórninni sem fulltrúi SART, Samtaka rafverktaka, en kemur inn sem fullgildur stjórnarmaður eftir að SART og Samtök iðnaðarins sameinuðust í nóvember 2011. SART var áður eitt átta aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins en við sameininguna fækkaði þeim í sjö.

18.4.2012

Vilmundur Jósefsson formađur Samtaka atvinnulífsins 2012-2013

Vilmundur Jósefsson var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2012-2013. Rafrænni kosningu meðal aðildarfyrirtækja SA lauk á hádegi í dag og var tilkynnt um kjör Vilmundar á aðalfundi SA sem nú stendur yfir. Vilmundur hlaut 92,6% greiddra atkvæða og var þátttaka góð.

18.4.2012

Sjáumst á ađalfundi SA í dag

Fjórir stjórnendur úr íslensku atvinnulífi munu fjalla um hvernig hægt sé að uppfæra Ísland - á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fer fram í dag 18. apríl á Hilton Reykjavík Nordica. Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar matorku, Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis, Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical og Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands stíga á stokk á opinni dagskrá fundarins og fjalla um þau tækifæri sem eru til staðar til að sækja fram. Mikill áhugi er á fundinum og stefnir í húsfylli á Nordica.

18.4.2012

Tillögur ađ uppfćrslu Íslands

Samtök atvinnulífsins gefa í dag út nýtt rit þar sem er að finna tillögur samtakanna að uppfærslu Íslands. Tillögurnar miða að því að styrkja menntakerfið og efla atvinnulífið með aukinni samvinnu skóla og fyrirtækja. Ritið byggir á umræðu um 100 stjórnenda úr íslensku atvinnulífi en fyrirtæki og samtök í atvinnulífinu kalla eftir sameiginlegri stefnumótun með stjórnvöldum um framtíð og þróun menntakerfisins. Rafrænt eintak má nálgast nú þegar á vef SA en fyrstu eintökum ritsins verður dreift á aðalfundi SA sem fer fram síðar í dag.

17.4.2012

Atvinnulífiđ vantar verk- og tćknimenntađ starfsfólk

Fjölga þarf útskrifuðu fólki úr verkfræði, tækni- og raunvísindanámi á Íslandi. Mikil tækifæri felast í þeim hluta atvinnulífsins sem er kallaður hátæknigeirinn, en nú þegar er æpandi eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar á háskólastigi. Hér er m.a. um að ræða fyrirtæki sem tengjast tölvu- og hugbúnaðargeiranum, heilbrigðistækni, lífvísindum, umhverfistækni og upplýsingatækni. Takist skólakerfinu ekki að svara þessari eftirspurn er hætta á að fyrirtækin muni enn frekar en nú byggjast upp að mestu erlendis en Ísland stendur aftarlega í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að tæknimenntun fólks á aldrinum 25-35 ára.

16.4.2012

Nemendur útskrifist úr framhaldsskóla tveimur árum fyrr

Samtök atvinnulífsins leggja til að nemendur útskrifist úr framhaldsskóla tveimur árum fyrr en nú með því að stytta grunn- og framhaldsskólann. Það verði þó gert án þess draga úr þeim kröfum sem liggja til grundvallar náminu. Tækifæri til þessara breytinga eru fyrir hendi í nýlegum framhaldsskólalögum en tengja verður nám í grunn- og framhaldsskólum þannig að námslok gætu orðið við 18 ára aldur. Jafnframt verður að breyta menntakerfinu þannig að það svari betur eftirspurn atvinnulífsins eftir starfsfólki. Börn og unglingar þurfa að fá innsýn í miklu fjölbreyttari störf en nú er.

16.4.2012

Mikill áhugi á ađalfundi SA á miđvikudaginn

Skráning á aðalfund Samtaka atvinnulífins 2012 gengur vel en hátt á þriðja hundrað stjórnenda úr íslensku atvinnulífi hafa nú þegar boðað komu sína. Yfirskrift fundarins er Uppfærum Ísland en meðal ræðumanna á opinni dagskrá sem hefst kl. 14 er Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, skráning stendur yfir á vef SA og geta því áhugasamir enn bæst í hópinn.

15.4.2012

Kosningu formanns SA lýkur á hádegi á miđvikudag

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni, en henni lýkur kl. 12 miðvikudaginn 18. apríl. Aðalfundur SA fer fram á Hótel Nordica kl. 13-16 sama dag undir yfirskriftinni Uppfærum Ísland. Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast kl. 13 en opin dagskrá hefst kl. 14 og stendur skráning yfir á vef SA.

13.4.2012

Sjöfn, Edda Lilja, Marín, Kjartan og ţú - á ađalfundi SA 18. apríl

Fjórir stjórnendur úr íslensku atvinnulífi munu fjalla um hvernig hægt sé að uppfæra Ísland - á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins þann 18. apríl nk. Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar matorku, Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis, Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical og Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands stíga á stokk á opinni dagskrá fundarins og fjalla um þau tækifæri sem eru til staðar til að sækja fram. Skráning stendur nú yfir á vef SA. Mikill áhugi er á fundinum og því vissara að skrá þátttöku fyrr en seinna.

13.4.2012

Uppfćrum Ísland.is

Nýr vefur fyrir hugmyndir hefur verið opnaður á www.uppfaerumisland.is. Hugmyndin að vefnum er einföld en hann er vettvangur fyrir fólk sem hefur hugmyndir og tillögur að því hvernig hægt er að uppfæra Ísland - gera það að betri stað til að búa á. Tilgangurinn með honum er ekki að finna "bestu" hugmyndina, eina stóra töfralausn sem breytir öllu til hins betra á einu bretti. Markmiðið er frekar að draga fram sem flestar litlar hugmyndir sem bæði eru áþreifanlegar og framkvæmanlegar. Hugmyndir sem hægt er að tala um, meta og gera eitthvað úr.

12.4.2012

Tíu ţúsund starfa reikningur

„Nú stefnir í að landsframleiðsla á næsta ári verði um 100 milljörðum króna lægri en gert var ráð fyrir þegar efnahagsáætlun þáverandi ríkisstjórnar og AGS var samþykkt haustið 2008. Þetta þýðir að störf á Íslandi verða líklega um 10 þúsundum færri en ella. Fólk hefði ekki þurft að flytja úr landi eins og raun hefur verið og atvinnuleysi hefði getað verið komið undir 3% í stað þess að verða um og yfir 6% á næsta ári eins og áætlað er.

 

Í þessum tölum birtist einfaldasta mynd reikningsins sem þjóðin greiðir fyrir hugmyndafræðilega baráttu ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna gegn fjárfestingum í atvinnulífinu og framgangi þess." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA.

10.4.2012

Christoffer Taxell á ađalfundi SA 18. apríl

Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands verður meðal ræðumanna á opinni dagskrá aðalfundar Samtaka atvinnulífsins sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 18. apríl kl. 14-16. Christoffer hefur víðtæka reynslu úr finnskum stjórnmálum og athafnalífi en hann var formaður erlends sérfræðingahóps sem íslensk stjórnvöld fengu til að gera úttekt á menntakerfi, rannsóknum og nýsköpun í kjölfar bankahrunsins.

30.3.2012

Opin dagskrá ađalfundar SA 18. apríl 2012 - skráning í fullum gangi

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2012 fer fram á Hótel Nordica miðvikudaginn 18. apríl á síðasta degi vetrar. Yfirskrift fundarins er Uppfærum Ísland en meðal ræðumanna á opinni dagskrá fundarins sem hefst kl. 14 verður Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands.

Vilmundur Jósefsson, formaður SA flytur ávarp og hópur stjórnenda mun ræða um nauðsyn þess að ráðast strax í að uppfæra Ísland. SA munu einnig leggja fram á fundinum beinar tillögur að uppfærslu Íslands, sterkara menntakerfi og öflugra atvinnulífi.

30.3.2012

Kosning formanns SA stendur yfir

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.

28.3.2012

Kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar skađleg

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gagnrýnir ný kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar sem kynnt voru í upphafi vikunnar. „Við höfum áhyggjur af því að það sé í senn verið að gera breytingar sem minnka arðsemi í greininni og að á sama tíma eigi að leggja þyngri skatta á hana og ég sé ekki hvernig þetta getur gengið upp saman," segir Vilhjálmur aðspurður í Morgunblaðinu um fyrstu viðbrögð SA við nýju kvótafrumvörpunum.

26.3.2012

Ráđstefna um möguleika í atvinnumálum á Snćfellsnesi

Föstudaginn 30. mars nk. efna Samtök atvinnulífsins og Þróunarfélag Snæfellinga í samstarfi við Atvinnuráðgjöf Vesturlands til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi um möguleika í atvinnumálum á Snæfellsnesi. Á ráðstefnunni sem hefst kl. 13.00 verður m.a. fjallað um sjávarklasann og vaxtarmöguleika í sjávarútvegi á Snæfellsnesi, nýsköpun í vinnslu sjávarfangs og samstarf vinnslustöðva og rannsóknarstofnana, orkunýtingu til atvinnuuppbyggingar, ferðaþjónustu og afþreyingu allt árið.

24.3.2012

SA stefna Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm

Samtök atvinnulífsins hafa fyrir hönd Iceland Express stefnt Flugfreyjufélagi Íslands fyrir Félagsdóm vegna ólögmætrar verkfallsboðunar af hálfu félagsins. Er gert ráð fyrir að niðurstaða Félagsdóms liggi fyrir eftir helgi og því verði engin röskun á starfsemi félagsins.

23.3.2012

Kosning formanns SA er hafin

Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.

23.3.2012

Álykun ađalfundar Samtaka ferđaţjónustunnar

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 22. mars, leggur áherslu á að ferðaþjónustan styrki enn stöðu sína sem ein af þremur stoðum í gjaldeyrissköpun þjóðarinnar og nú með auknum ferðamannastraumi yfir vetrartímann. Í ályktun aðalfundar er fagnað markverðum árangri þeirra markaðsherferða sem fyrirtækin í ferðaþjónustunni og opinberir aðilar hafa sameinast um s.s. Inspired by Iceland 2010 og ÍSLAND ALLT ÁRIÐ sem hófst á haustdögum 2011. Ljóst sé þó að nauðsynlegt sé að styrkja innviði og stoðkerfi greinarinnar á sama tíma og er þá helst horft til samgöngumála og eflingu rannsókna í greininni.

22.3.2012

Stjórnendur 400 stćrstu fyrirtćkjanna: Áforma ekki fjölgun starfa á árinu

Helstu niðurstöður könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja, sem gerð var síðari hluta febrúar og byrjun mars, eru þær að næstum allir stjórnendur telja aðstæður í atvinnulífinu enn vera slæmar en þeim fjölgar sem búast við að þær batni eftir sex mánuði. Yfirleitt er nægt framboð af starfsfólki og skortur á því afmarkaður við tilteknar greinar. Að jafnaði er hvorki búist við fjölgun starfsmanna á næstunni né mikilli aukningu fjárfestinga á árinu. Verðbólguvæntingar hafa aukist mikið að undanförnu, sem og væntingar um hækkun stýrivaxta, og búist er við því að gengi krónunnar veikist áfram.

21.3.2012

Hćkkun stýrivaxta mun hafa neikvćđ áhrif á atvinnulífiđ

Seðlabanki Íslands tilkynnti í morgun um hækkun stýrivaxta bankans um 0,25 prósentustig í fimm prósent. Samtök atvinnulífsins gagnrýna hækkunina og telja hana hafa neikvæð áhrif á atvinnulífið. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við fréttastofu RÚV samtökin jafnframt hafa áhyggjur af þeirri vegferð sem Seðlabankinn sé á og boðuðum vaxtahækkunum bankans á komandi mánuðum.

21.3.2012

Svana Helen Björnsdóttir nýr formađur SI

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins sem fór nýverið fram var Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika, kjörin formaður SI. Þetta er í fyrsta sinn sem kona gegnir embætti formanns samtakanna. Svana tekur við af Helga Magnússyni, sem hefur verið formaður Samtaka iðnaðarins síðastliðin 6 ár.

20.3.2012

Eru gjaldeyrishöftin komin til ađ vera?

Í ljósi lagasetningar Alþingis um hert gjaldeyrishöft hefur Félag viðskipta- og hagfræðinga kallað til fjóra sérfræðinga til að ræða það hvort gjaldeyrishöftin séu komin til að vera? Umræðan fer fram á hádegisverðarfundi samtakanna á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 22. mars kl. 12.00-13.30. Þátt taka Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, Davíð Stefánsson, sérfræðingur hjá greiningu Arion banka, Helgi Hjörvar, formaður efnahags og viðskiptanefndar Alþingis og Yngvi Örn Kristinsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

19.3.2012

Íslendingar treysta eigin vinnuveitanda mjög vel

Íslendingar treysta vinnuveitendum sínum mjög vel en traust til vinnuveitenda fær mjög háa einkunn í árlegum mælingum Capacent á trausti. Aðeins Landhelgisgæslan og lögreglan njóta meira trausts meðal fólks. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir SA. Rúmlega þrír af hverjum fjórum (76,2%) eru jákvæðir gagnvart sínum vinnustað og bera mikið traust til eigin vinnuveitanda. Aðeins 10,7% bera lítið traust til eigin vinnuveitanda. Traust fólks á eigin vinnuveitanda eykst milli ára en á sama tíma fer traust fólks á stofnunum þjóðfélagsins almennt þverrandi samkvæmt mælingum Capacent.

16.3.2012

Frá ađalfundi SVŢ - Samtaka verslunar og ţjónustu

Aðalfundur SVÞ fór fram fimmtudaginn 15. mars undir yfirskriftinni „Af fingrum fram." Ítarlega er fjallað um fundinn á vef SVÞ en í ræðu Margrétar Kristmannsdóttur, sem var endurkjörinn formaður samtakanna, benti hún m.a. á að 25% starfsfólks á hinum almenna markaði vinni við verslun og þjónustu. „Fjórði hver launamaður sem ekki tilheyrir opinbera geiranum vinnur í okkar atvinnugrein - og af þeim 20.000 störfum sem skapa þarf hér á landi á komandi árum, mun stór hluti þurfa að koma frá okkar geira, ekki síst þjónustunni."

16.3.2012

Ályktun Iđnţings 2012

Iðnþing Samtaka iðnaðarins fór fram fimmtudaginn 15. mars undir yfirskriftinni „Verk að vinna." Í ályktun þingsins segir m.a. „Það er verk að vinna í íslensku hagkerfi. Lykilatriði er að koma arðbærum fjárfestingum af stað á nýjan leik. Þannig má leggja grunn að hagvexti næstu ár, skapa atvinnutækifæri sem sárlega skortir og uppfæra innviðina í landinu. Þó að enginn opinber ágreiningur virðist um þá nauðsyn, hafa ný fjárfestingarverkefni ekki skapast í ríkum mæli árum saman. Helstu ástæður þessa dráttar framan af voru slæm skuldastaða heimila, fyrirtækja og hins opinbera."

13.3.2012

Hert höft munu stuđla ađ veikingu krónunnar

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, gagnrýnir harðlega þær breytingar sem meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði í gær fram í nýju frumvarpi um hert gjaldeyrishöft. Í umfjöllun Morgunblaðsins í dag segir Vilhjálmur þetta enn eitt skrefið í þeirri sneypuför sem gjaldeyrishöftin eru, enda kalli þau á sífellt harðari aðgerðir. Aðgerðirnar setji allt það sem Seðlabankinn hefur hugsað sér, t.d. með þátttöku lífeyrissjóða eða annarra, í fullkomið uppnám.

12.3.2012

Breytingar stjórnmálamanna á rammaáćtlun um virkjanir frestar uppbyggingu í atvinnulífinu

Ef hugmyndir stjórnarflokkanna ná fram að ganga um að breyta niðurstöðu verkefnisstjórnar að rammáætlun um virkjanir, sem byggir á ríflega 10 ára vinnu og sátt fjölda aðila, mun það hafa neikvæð áhrif á atvinnulífið og umhverfið. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag en þar segir að hugmyndir um að fresta virkjun neðri hluta Þjórsár og fleiri virkjunum fái hörð viðbrögð frá forsvarsmönnum Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar.

12.3.2012

Samtök atvinnulífsins fjölga konum í stjórnum lífeyrissjóđa

Samtök atvinnulífsins hafa tilnefnt 14 stjórnarmenn til setu í stjórnum átta lífeyrissjóða til næstu tveggja ára. Af þeim eru 10 konur eða rúmlega 71%. Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að jafna kynjahlutföll í stjórnum þeirra lífeyrissjóða sem SA tilnefna stjórnarmenn í og munu konur því skipa 44% sæta SA að loknum aðalfundum sjóðanna í vor. Aðeins vantar 1-2 konur í viðbót til að alveg jafnt kynjahlutfall náist meðal 25 fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í stjórnum sjóðanna. Það mun nást á næsta ári þegar 10 sæti koma til tilnefningar og lokaskrefið verður stigið til að jafna hlut kynjanna. Þá verða konur 12 eða 13 af 25 stjórnarmönnum SA, þ.e. annað hvort 48% eða 52%.

8.3.2012

Um forsendur kjarasamninga

„Samtök atvinnulífsins munu tæplega telja það atvinnulífinu eða nokkrum öðrum í hag að slíta kjarasamningum í upphafi næsta árs í aðdraganda kosninga til Alþingis. Sú atburðarás sem þá gæti hafist er með öllu ófyrirsjáanleg," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara nýs fréttabréfs SA þar sem hann fjallar um forsendur kjarasamninganna frá í maí 2011.

8.3.2012

Vilmundur Jósefsson gefur áfram kost á sér sem formađur Samtaka atvinnulífsins

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fer fram á síðasta degi vetrar, miðvikudaginn 18. apríl 2012 á Hótel Nordica.

8.3.2012

200 konur bjóđa sig fram til stjórnarstarfa

Framundan er tími aðalfunda en eftir tæp tvö ár eða í september 2013 taka gildi ný lög sem kveða á um að hlutfall hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórnum stærri fyrirtækja. Alls falla 285 fyrirtæki undir löggjöfina en af þeim uppfylla 45% ákvæði laganna nú þegar. 55% fyrirtækjanna þurfa því að bæta konu eða konum í stjórnina en eitt fyrirtæki þarf að bæta við karli í stjórnina.

8.3.2012

Samtök atvinnulífsins á atvinnumessu í dag

Samtök atvinnulífsins taka þátt í atvinnumessunni sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Um er að ræða sameiginlegt framtak atvinnulífsins, stéttarfélaga og stjórnvalda en messan er hluti af átaksverkefninu Vinnandi vegur sem hóf göngu sína 21. febrúar. Markmið átaksins er að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi. Stefnt er að því að bjóða allt að 1.000 ný störf á messunni.

8.3.2012

Nýjar leiđbeiningar um stjórnarhćtti fyrirtćkja

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja var gefin út í morgun á fjölsóttum morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica. Að útgáfunni standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland. Í þessari 4. útgáfu leiðbeininganna er að finna fjölmargar breytingar frá síðustu útgáfu, sem eiga það þó flestar sammerkt að vera formbreytingar fremur en viðamiklar efnisbreytingar.

8.3.2012

Uppfćrum Ísland: Ađalfundur SA 18. apríl 2012

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2012 fer fram á Hótel Nordica miðvikudaginn 18. apríl kl. 13-16, á síðasta degi vetrar. Yfirskrift fundarins er Uppfærum Ísland en meðal ræðumanna verður Christoffer Taxell, fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands og forystumaður í finnsku atvinnulífi. Hópur stjórnenda mun ræða um hvernig uppfæra má Ísland og lagðar verða fram tillögur þess efnis í nýju riti Samtaka atvinnulífsins. Takið því daginn frá, skráið ykkur til leiks og uppfærið dagbókina. Í lok fundar kveðjum við veturinn, spjöllum saman og fögnum sumri.

5.3.2012

Fjölmörg ný störf í bođi á atvinnumessu 8. mars

Samtök atvinnulífsins eru meðal þátttakanda á atvinnumessu sem fram fer í Laugardalshöll, fimmtudaginn 8. mars nk. kl. 10-16. Um er að ræða sameiginlegt framtak atvinnulífsins, stéttarfélaga og stjórnvalda en messan er hluti af átaksverkefninu Vinnandi vegur sem hóf göngu sína 21. febrúar. Markmið átaksins er að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi. Stefnt er að því að bjóða allt að 1.000 ný störf á messunni.

1.3.2012

Morgunverđarfundur: Fjölbreytni í forystu og góđir stjórnarhćttir skipta máli

Fimmtudaginn 8. mars nk. mun fjölbreyttur hópur úr atvinnulífi og nærumhverfi fyrirtækja fjalla um mikilvægi góðra stjórnarhátta og fjölbreytni í stjórnum, á morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn er m.a. haldinn til að fylgja eftir samstarfssamningi SA, FKA, VÍ, Creditinfo og allra stjórnmálaflokka á Alþingi sem undirritaður var 15. maí 2009 um að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs til loka ársins 2013. Á fundinum verða gefnar út nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.

28.2.2012

Blekkingarleikur međ skattlagningu lífeyrissjóđa

Enn koma fram tillögur um skattlagningu lífeyrissjóðanna frá stjórnmálamönnum sem vilja láta taka sig alvarlega. Nú síðast er lagt til að ríkið „innleysi" skattinneign sína af viðbótarlífeyrissparnaði landsmanna til að fjármagna niðurfærslu Íbúðarlánasjóðs á lánum. Auk þess verði lagðar sérstakar byrðar á lífeyrissjóði vegna hagnaðar af svokölluðum Avens viðskiptum á árinu 2010.

28.2.2012

Vinnandi vegur - kynningafundur fyrir fyrirtćki 1. mars

Í síðustu viku hófst verkefnið Vinnandi vegur sem er nýtt átak til atvinnusköpunar og miðar að því að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi.

 

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök fiskvinnslustöðva boða til fundar fimmtudaginn 1. mars kl. 08:30-10:00 þar sem kynna á verkefnið sérstaklega og hvernig það horfir við fyrirtækjum sem vilja nýta sér þessi úrræði. Fundurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem sinna starfsmannamálum.

21.2.2012

Hagdeild SA: Fjárfestingarstefna lífeyrissjóđa, áhćttustýring og eftirlit

Árið 2008 var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða sú sama og að meðaltali í OECD. Meginástæða neikvæðrar ávöxtunar lífeyrissjóða í heiminum var verðfall hlutabréfa en þau lækkuðu um 50% að meðaltali það ár. Verðlækkun hlutabréfa var hvergi meira en á Íslandi þar sem hlutabréfavísitalan lækkaði um 90%. Fjárfestingarstefna íslensku lífeyrissjóðanna á Íslandi á árunum fyrir efnahagskreppuna var svipuð og hjá lífeyrissjóðum í öðrum ríkjum.

21.2.2012

Vinnandi vegur: Átak til ađ fjölga störfum

Í dag hófst nýtt átak til atvinnusköpunar sem miðar að því að fjölga störfum og fækka atvinnulausum. Um leið er komið til móts við atvinnurekendur með fjárhagslegum stuðningi. Verkefnið kallast Vinnandi vegur og er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, launþega, sveitarfélaga og ríkisins. Með þátttöku í verkefninu eiga atvinnurekendur kost á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda.

17.2.2012

Ađalfundur Samorku: Vonbrigđi međ stöđu rammaáćtlunar

Í ályktun aðalfundar Samorku er lýst vonbrigðum með stöðuna og ferlið við gerð rammaáætlunar. Í drögum að tillögu frá ágúst 2011 hafði verið vikið frá faglegri forgangsröðun verkefnisstjórnar og nú er málið öðru sinni statt í ógegnsæju samningaferli á vettvangi stjórnvalda, eftir miklar tafir og með tilheyrandi óvissu. Að mati Samorku væri vænlegast að styðjast einfaldlega við faglega röðun verkefnisstjórnar, frá í júní 2011. Þá ítrekar fundurinn andstöðu við hugmyndir um að færa auðlindamál undir umhverfisráðuneytið.

17.2.2012

Ađalfundur Samorku í dag

Aðalfundur Samorku verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. febrúar. Oddný G. Harðardóttir, starfandi iðnaðarráðherra, ávarpar opna dagskrá fundarins og þá mun Dr. Daði Már Kristófersson, dósent í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands, flytja erindi um gjaldtöku, leigutíma og arðsemi orkunýtingar.

14.2.2012

Einn lífeyrissjóđur vond hugmynd

Það er afspyrnu vond hugmynd að sameina alla lífeyrissjóði landsins í einn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. Það megi hinsvegar fækka sjóðunum og styrkja þá. Nauðsynlegt sé að samræma lífeyrisréttindi landsmanna án þess að steypa öllum sjóðunum saman.

13.2.2012

Auka ţarf hvata í lífeyriskerfinu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og stjórnarformaður lífeyrissjóðsins Gildis, ræddi um lífeyrismál á Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 12. febrúar. Þar sagði hann m.a. að auka þurfi hvata í lífeyriskerfinu þannig að ávinningur fólks af því að greiða í lífeyrissjóðina verði meiri en nú er samanborið við greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Vilhjálmur sagði lífeyrissjóðina í raun hafa staðið af sér hrun fjármálakerfisins á Íslandi. Ný skýrsla um starfsemi sjóðanna staðfesti það. En á sama tíma er bent á ákveðna þætti sem betur mega fara í starfsemi sjóðanna og taka verður alvarlega.

10.2.2012

Ađild atvinnulífsins ađ stjórnum lífeyrissjóđa styrkir ţá

Samtök atvinnulífsins telja að aðild þeirra að stjórnum lífeyrissjóða hafi verið til góðs fyrir uppbyggingu lífeyrissjóðanna og skipt sköpum við að efla þá til þess að gegna hlutverki sínu. Almennt séð er íslenska lífeyrissjóðakerfið talið eitt það besta í alþjóðlegum samanburði og eitt af því sem Ísland getur státað sig af í samfélagi þjóðanna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í nýju fréttabréfi SA samtökin leggja ofurkapp á að fulltrúar þeirra í stjórnum sjóðanna gæti almennra hagsmuna sjóðanna sjálfra og vinni af fullum heilindum fyrir þá sem njóta lífeyrisréttinda og allt samfélagið.

10.2.2012

Aukin ţjónusta viđ atvinnuleitendur

Í dag var undirritað samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, um aukna þjónustu við atvinnuleitendur. Markmið verkefnisins er efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum sem auki líkur á að atvinnuleitendur fái störf að nýju á vinnumarkaði. Um er að ræða viðbót við núverandi þjónustu á sviði vinnumiðlunar og ráðgjafar.

8.2.2012

Dönsk fjármálafyrirtćki gera kjarasamning til tveggja ára međ 2% hćkkun

Í dag, 8. febrúar, undirrituðu samtök fjármálafyrirtækja í Danmörku og stéttarfélag starfsmanna þeirra, kjarasamning sem gildir í tvö ár frá 1. apríl 2012. Laun hækka almennt um 1% þann 1. júlí 2012 og aftur um 1% þann 1. júlí 2013.

8.2.2012

Ađalfundur SA 18. apríl - takiđ daginn frá

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2012 verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica en Samtök atvinnulífsins hvetja fólk úr atvinnulífinu og aðra áhugasama um uppbyggingu atvinnulífsins til að taka daginn frá.

3.2.2012

Hvađ er samfélagsábyrgđ fyrirtćkja?

Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Fjallað verður um samfélagsábyrgð fyrirtækja út frá sjónarhorni fræðimannsins, fyrirtækja og neytenda. Róbert H. Haraldsson prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og stjórnarformaður Festu, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Brynhildur Pétursdóttir ritstjóri Neytendablaðsins flytja erindi. Að þeim loknum fara fram pallborðsumræður.

1.2.2012

Fundir um samband atvinnulífs og byggđaţróunarsjóđa ESB 6. og 7. febrúar

Samtök atvinnulífsins og utanríkisráðuneytið efna til tveggja opinna funda þann 6. og 7. febrúar í Reykjavík og á Akureyri þar sem fjallað verður um byggðaþróunarsjóði ESB og áhrif þeirra. Veli-Pekka Ihanus, finnskur sérfræðingur í byggðamálum, mun halda erindi um hvernig sjóðirnir hafa verið nýttir til nýsköpunar og fjármögnunar verkefna í Finnlandi auk þess að fjalla um hvernig þeir geta styrkt atvinnulíf innan ESB og möguleika fyrirtækja á styrkjum.

31.1.2012

Af stađ međ Vađlaheiđargöng

Umræðan um Vaðlaheiðargöng er orðin löng og ströng eins og oft vill verða um framkvæmdir í samgöngumálum. Samtök atvinnulífsins hafa hvatt mjög til þess að ráðist verði í þessa framkvæmd þannig að notendur greiddu sérstakt gjald fyrir notkun á göngunum sem stæði undir kostnaðinum við gerð þeirra.

31.1.2012

Ný kaupgjaldsskrá er komin á vef SA

Kaupgjaldsskrá sem gildir frá 1. febrúar 2012 er komin á vef SA. Launahækkanir 1. febrúar 2012 eru samkvæmt kjarasamningum SA og aðildarsamtaka ASÍ, dags. 5. maí 2011. Helstu launabreytingar sem koma til framkvæmda eru þær að kjarasamningsbundnir kauptaxtar hækka um 11.000 kr. á mánuði og að ráðningarsamningsbundin laun og aðrir launatengdir liðir hækka almennt um 3,5%.

30.1.2012

Forvarnaráđstefna VÍS og Vinnueftirlitsins 2012

Fimmtudaginn 2. febrúar, verður árleg ráðstefna um forvarnar- og öryggismál fyrirtækja haldin á vegum VÍS og Vinnueftirlitsins. Stjórnendur fyrirtækja eru sérstaklega hvattir til að mæta. Meðal annars verður fjallað um „núllsýn í öryggismálum" sem gengur út á að öll slys sé hægt að fyrirbyggja, eigin rannsóknir á vinnuslysum, eigið eldvarnaeftirlit, öryggi í vöruflutningum, innleiðingu öryggismenningar og fyrstu skrefin í umhverfismálum. Þá verða forvarnarverðlaun veitt fyrirtækjum sem sköruðu fram úr í forvarnar- og öryggismálum árið 2011.

25.1.2012

Pólitískan vilja ţarf til ađ ná settum markmiđum

„Eitt brýnasta verkefni stjórnkerfisins er breytt vinnulag við gerð fjárlaga sem grundvallast á pólitískum vilja til þess að ná settum markmiðum. Trúverðugleiki fjárlaga er m.a. kominn undir vilja og getu ríkisstjórnarinnar, ráðuneyta og stofnana til þess að halda útgjöldum ríkissjóðs innan heimilda fjárlaga." Þetta sagði Halldór Árnason, hagfræðingur hjá SA, m.a. á ráðstefnu um bætta umgjörð fjárlagagerðar sem fram fór í morgun en hann fjallaði um áhrif opinberra fjármála á atvinnulífið.

23.1.2012

Starfsfólki á vinnumarkađi fjölgađi ekki áriđ 2011. Full störf jafn mörg og 2009

Starfsfólk á vinnumarkaði var samtals 167.300 árið 2011 sem er sama tala og árið 2010 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Heldur fleiri voru starfandi árið 2009, eða 167.800. Flestir urðu starfsmenn á vinnumarkaðnum árið 2008, eða 178.600, en fara þarf aftur til ársins 2005 til þess að finna færri starfsmenn, en þá töldust 161.300 vera í starfi.

20.1.2012

Yfirlýsing Samtaka atvinnulífsins vegna uppsagnarákvćđis kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga hinn 31. janúar næstkomandi þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011. Sérstakt samkomulag milli samningsaðilanna var undirritað í dag sem staðfestir þessa ákvörðun.

20.1.2012

Yfirlýsing samninganefndar ađildarsamtaka ASÍ og SA vegna opnunarákvćđa kjarasamninga 20. janúar 2012

Í kjarasamningum sem undirritaðir voru af Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands og aðildarsamtökum þess 5. maí 2011 eru ákvæði um forsendur samninganna og uppsagnarmöguleika standist þær ekki. Þannig er unnt að segja upp samningum miðað við janúarlok 2012 enda hafi rökstudd ákvörðun um uppsögn verið tekin og hún tilkynnt í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 hinn 20. janúar 2012. Í samningunum segir jafnframt að standist forsendur þeirra ekki skulu samningsaðilar leita sameiginlega viðbragða.

18.1.2012

Sameinum kraftana til nýrrar sóknar - 24. janúar 2012

Iceland Geothermal í samvinnu við Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands standa fyrir áhugaverðu málþingi 24. janúar 2012 um klasa og klasastjórnun. Yfirskrift þingsins er „Sameinum kraftana til nýrrar sóknar" og þar verður fjallað um hvernig hægt er að beita klasastjórnun til að bæta samkeppnishæfni atvinnugreina á Íslandi. Samtök atvinnulífsins eru meðal stofnaðila að Iceland Geothermal - íslenska jarðvarmaklasans.

17.1.2012

Sköpun starfa og barátta gegn atvinnuleysinu í forgrunni

Málstaður Samtaka atvinnulífsins snýst fyrst og fremst skapa fleiri störf á Íslandi, ná niður atvinnuleysinu, bæta lífskjörin og komast út úr kreppunni. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið í dag. Hann vísar algjörlega á bug ásökunum Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, þess efnis að SA hafi haldið uppi rangfærslum og áróðri gegn ríkisstjórninni.

17.1.2012

Bréf SA til alţingismanna vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar

Samtök atvinnulífsins hafa sent alþingismönnum bréf þar sem fjallað er um framgang mála í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga 5. maí 2011. Í bréfinu segir að mikið beri í milli á mati SA og ríkisstjórnarinnar á því hvernig tekist hafi til en veigamest af öllu sé að uppgangur í atvinnulífinu hafi ekki orðið eins og stefnt var að. Fjárfestingar í atvinnulífinu aukist ekki eins og þurfi til þess að störfum fjölgi og atvinnuleysi minnki umtalsvert. Bréfið má lesa í heild á vef SA.

13.1.2012

Vanefndir á fyrirheitum ríkisstjórnarinnar

Samtök atvinnulífsins sendu forsætisráðherra bréf í vikunni þar sem farið var yfir efndir ríkisstjórnarinnar á þeim fyrirheitum sem tilgreind eru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í maí 2011. Athugun SA leiddi í ljós að ríkisstjórnin á eftir að efna 2/3 þess sem tilgreint er í yfirlýsingunni.

 

Skömmu síðar barst yfirlýsing frá stjórnvöldum sem líta málið öðrum augum og telja aðeins eitt mál ekki hafa gengið eftir, rúmlega helmingi mála sé lokið og afgangurinn í vinnslu. SA hafa nú tekið saman yfirlit þar sem mismunandi afstaða aðila kemur skýrt fram.

12.1.2012

Ríkisstjórnin hefur skapađ vantraust

Forsendur kjarasamninga á almennum vinnnumarkaði sem gerðir voru í maí 2011 eru í meginatriðum fjórar: Kaupmáttur þarf að hafa vaxið, verðlag hafa verið stöðugt, gengi krónunnar styrkst marktækt og stjórnvöld staðið við gefin fyrirheit. Kaupmáttur hefur vaxið umtalsvert og verðbólga hefur farið minnkandi eftir verðbólguskot á fyrstu mánuðunum í fyrra. Gengi krónunnar hefur lítið styrkst en innflæði af erlendu fjármagni vegna fjárfestinga er helsta forsendan fyrir styrkingu hennar og hefur ekki gengið eftir. Sé eingöngu litið til þessara þriggja þátta í samhengi er ekkert tilefni til endurskoðunar kjarasamninga. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.


Vilhjálmur segir raunverulegt tilefni til opnunar kjarasamninga vegna sérlega slakrar frammistöðu ríkisstjórnarinnar. Hann segir getuleysi ríkisstjórnarinnar við að efna mikilvæga þætti yfirlýsingar sinnar í tengslum við kjarasamningana á engan hátt ásættanlegt. „Ríkisstjórnin hefur úrslitaáhrif á starfsskilyrði atvinnulífsins og hún hefur ekki nema að mjög litlu leyti viljað vinna með atvinnulífinu til að koma málum í betra horf. Þvert á móti hafa verið lagðar og eru boðaðar þungar nýjar álögur á atvinnulífið og vinnumarkaðinn."

12.1.2012

Stjórnendur 400 stćrstu fyrirtćkjanna: Heldur skárra mat á horfum en áđur

Þótt mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telji aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar þá hefur þeim fækkað hlutfallslega síðustu mánuði. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent fyrir SA og Seðlabanka Íslands meðal stærstu fyrirtækja landsins. Nú telja 67% stjórnenda aðstæður vera slæmar en hlutfallið var 72% í síðustu könnun sem gerð var fyrir tveimur mánuðum síðan. 29% telja að þær séu hvorki góðar né slæmar en 4% að þær séu góðar. Á landsbyggðinni er þungt yfir stjórnendum, þar sem fjórir af hverjum fimm telja aðstæður slæmar, og enginn stjórnandi í sjávarútvegi telur aðstæður góðar. Á höfuðborgarsvæðinu telja þrír af hverjum fimm aðstæður vera slæmar en 5% að þær séu góðar. Jákvæðasta matið á núverandi aðstæðum er í ýmsum þjónustugreinum.

12.1.2012

Virkjum fólk til verka - átak hefst 15. febrúar

Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að störfum fjölgi á vinnumarkaði og atvinnuleysi minnki. Einn þáttur í því er að koma því fólki til vinnu sem vill og getur unnið. Samtöl við stjórnendur fyrirtækja gefa til kynna að víða séu óunnin verk og þrátt fyrir djúpa kreppu undanfarinna þriggja ára sé þörf fyrir starfsfólk á tilteknum sviðum. Vegna óvissu og mikils kostnaðar veigri fyrirtæki sér hins vegar við að taka af skarið og ráða fólk. Markmið nýs átaks aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda er að tryggja 1500 atvinnuleitendum vinnu eða starfstengd úrræði, en ef fyrirtæki ráða fólk af atvinnuleysisskrá í ný verkefni, fylgja þeim fullar atvinnuleysisbætur í tiltekinnn tíma.

12.1.2012

Innanlandsflug í hćttu vegna mikilla skattahćkkana

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, telur að miklar skatta- og gjaldskrárhækkanir á innanlandsflug á undanförnum árum leiði til þess að Flugfélag Íslands verði að draga úr umsvifum og minnka þjónustu. Ekki sé hægt að hækka fargjöld til að mæta þessum hækkunum en opinber gjöld á Flugfélag Íslands hafa hækkað úr 206 milljónum króna árið 2009 í 443 milljónir árið 2012 eða um 114%. Á sama tíma hefur farþegum fækkað um 2% og starfsmönnum félagsins fækkað þrátt fyrir aukningu í flugi til Grænlands. Þetta kom m.a. fram á árlegum skattadegi Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og viðskiptablaðs Morgunblaðsins í vikunni.

11.1.2012

Bréf SA til forsćtisráđherra: Stađa mála vegna opnunarákvćđa kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins fjalla nú um stöðu mála vegna opnunarákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011 þar sem taka þarf ákvörðun um hvort samningarnir haldi gildi sínu í síðasta lagi 20. janúar nk. Ef samningunum verður sagt upp eru þeir lausir frá 1. febrúar. Meðal umfjöllunarefna er hvernig yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana hefur gengið eftir. Í bréfi Samtaka atvinnulífsins sem sent var í dag til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, er fjallað ítarlega um framgang einstakra mála eins og þau koma fram í yfirlýsingunni og forsendur samninganna.

 

Fjölmörg áform ríkisstjórnarinnar hafa ekki náð fram að ganga. Af 36 atriðum sem talin eru upp hafa 24 ekki verið efnd, eða í tveimur þriðju tilvika, í 7 atriðum hafa mál gengið eftir eins og um var talað en í 5 atriðum eru mál enn í gangi og gæti hugsanlega lokið farsællega. Afdrifaríkast er að fjárfestingar í atvinnulífi og opinberar framkvæmdir hafa ekki aukist eins og lagt var upp með.

11.1.2012

Formađur SA: Atvinnulífiđ ţarf öflugar rannsóknir og trausta stjórnsýslu

Ríkisstjórnin hefur unnið að breytingum á verkaskiptingu ráðuneyta og stefnir að því að færa rannsóknarstofnanir atvinnuveganna undir umhverfisráðuneytið. Þetta er varasöm stefna sem felur í sér að tengsl milli atvinnuvegaráðuneyta og ákvarðana um nýtingu auðlinda, rannsókna, ráðgjöf og verndun auðlinda verða rofin. Hætt er við að breytingarnar hafi neikvæð áhrif á nýsköpun íslenskra fyrirtækja og vöruþróun. Rétt er að fara aðrar leiðir.

9.1.2012

Mikill áhugi á ráđgjöf um samfélagsábyrgđ fyrirtćkja

Samtök atvinnulífsins í samstarfi við UNDP í Kaupmannahöfn (Skrifstofu þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna) bjóða stjórnendum fyrirtækja á Íslandi ráðgjöf um Global Compact - Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð, miðvikudaginn 11. janúar 2012 á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins, Borgartúni 35, 5. hæð. Mikill áhugi er á ráðgjöfinni og mun fjölbreyttur hópur stjórnenda kynna sér hugmyndafræði Global Compact frá morgni til kvölds en ekki er hægt að taka við fleiri bókunum að sinni.

9.1.2012

Skattadagur Deloitte á morgun - 10. janúar

Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Viðskiptablað Morgunblaðsins, verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 10. janúar 2012 kl. 8.15-10.15.

4.1.2012

4-5% hagvöxtur ef rétt verđur haldiđ á spilunum

Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, vonast til þess að ákveðnar stórframkvæmdir fari á stað á næstunni og vísar þar til framkvæmda í Helguvík og á Norðausturlandi. Rætt var við Vilmund á Bylgjunni í þættinum Reykjavík síðdegis þriðjudaginn 3. janúar um stöðuna í atvinnulífinu og horfurnar framundan. Samtök atvinnulífsins telja 4-5% hagvöxt nauðsynlegan til að vinna til baka töpuð lífskjör þjóðarinnar og kveða niður atvinnuleysið. Vilmundur segir það raunhæft markmið ef rétt er haldið á spilunum.

4.1.2012

Ráđgjöf um samfélagsábyrgđ fyrirtćkja 11. janúar 2012

Samtök atvinnulífsins í samstarfi við UNDP í Kaupmannahöfn (Skrifstofu þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna) bjóða stjórnendum fyrirtækja á Íslandi ráðgjöf um Global Compact - Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð, miðvikudaginn 11. janúar 2012 á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins, Borgartúni 35, 5. hæð.

3.1.2012

2011 leiđ hjá án ţess ađ tćkist ađ örva fjárfestingar og atvinnusköpun

Morgunblaðið fjallaði á gamlársdag um þróun efnahagsmála á árinu 2011 og þau markmið sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld settu sér í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í maí 2011. Samningarnir hvíla m.a. á yfirlýsingu stjórnvalda sem gáfu fyrirheit um að greiða fyrir stórum fjárfestingarverkefnum þannig að umfang fjárfestinga verði 350 milljarðar króna á ári í lok samingstímans. Enn bólar ekkert á stóru fjárfestingarverkefnunum og ekki hefur tekist að ná margboðaðri sátt í sjávarútvegsmálum sem viðheldur óvissu í einum af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og veldur verulegum skaða.

2.1.2012

Formađur SA: Athafnaáriđ 2012

„Í maí 2011 undirrituðu Samtök atvinnulífsins kjarasamninga við helstu viðsemjendur sína sem gilda að óbreyttu fram á árið 2014. Ef forsendur þeirra ganga eftir verður friður á vinnumarkaði tryggður í nær þrjú ár. Það var langt frá því sjálfgefið að samið yrði á þessum nótum og vissulega voru launahækkanir miklar og erfiðar mörgum fyrirtækjum. Samningarnir byggja á að hagur fólks og fyrirtækja batni með aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu og að atvinnuleysi minnki.

 

Laun hækkuðu mest í upphafi en í samningunum er forsenduákvæði um að kaupmáttur aukist, verðlag haldist stöðugt, gengi krónunnar styrkist marktækt og að stjórnvöld standi við fyrirheit í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. Í janúar verða forsendur samninganna metnar en ekkert bendir til annars en að þeir standist þá skoðun og samningarnir haldi gildi. Í janúar 2013 verða forsendur metnar á ný og um niðurstöður þeirrar skoðunar ríkir meiri óvissa enda markið sett hátt á nokkrum sviðum.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english