Fréttir
31.1.2011
Atvinnuleysiđ gleymdist í ályktun Samfylkingarinnar
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki málefnalegt hjá Samfylkingunni að senda frá sér ályktun þar sem fjallað er um atvinnumál án þess að minnast einu orði á atvinnuleysið þegar 14 þúsund manns eru án vinnu eða 8% af vinnuaflinu. Flokksstjórn flokksins hefur gagnrýnt SA fyrir að gera kröfu um sátt um framtíð fiskveiðistjórnunarkerfisins. Vilhjálmur segir það málefnalega kröfu.
31.1.2011
Hćkkun launa í sjávarútvegi um tugi prósenta hefđi áhrif á allar atvinnugreinar
30.1.2011
Áhugaleysi ríkisstjórnar og ASÍ á atvinnuleysinu áhyggjuefni
„Við teljum að það sé útlátalaust fyrir ríkisstjórnina að girða sig í brók og fara að klára einhver mál svo við getum farið að koma okkur upp úr þessari djúpu holu sem við erum í en ekki halda áfram að moka á botninum." Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, í ítarlegu viðtali í helgarútgáfu Fréttablaðsins um atvinnumálin, yfirstandandi kjaraviðræður og stjórnmálin. Vilmundur segir að það hafi komið SA á óvart hvað ASÍ og ríkisstjórnin hafi litlar áhyggjur af atvinnuleysinu. „Það er eins og það sé bara sjálfsagt mál að það séu hér fjórtán þúsund manns atvinnulausir."
29.1.2011
Forsćtisráđherra haldi ró sinni
28.1.2011
Opinn fundur um atvinnumálin í Reykjavík miđvikudaginn 9. febrúar kl. 8:30-10:00
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um atvinnumálin í Reykjavík miðvikudaginn 9. febrúar kl.8:30-10:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum. Þá munu stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja fjalla um mikilvægi þess að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni en ekki verði farin leið atvinnuleysis- og verðbólgu sem mun viðhalda stöðnun í þjóðfélaginu næstu árin.
28.1.2011
Međ hagsmuni ţjóđarinnar ađ leiđarljósi
Það er mikill misskilningur að kröfur atvinnurekenda í yfirstandandi kjaraviðræðum snúist einungis um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þetta segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að reynt sé að gera önnur samtök en sjávarútvegs tortryggileg með því að í viðræðunum sé verið að ganga erinda LÍÚ, eins aðildarfélaga SA.
Helgi segir þetta ekki rétt því verið sé að ganga erinda alls alls atvinnulífsins í þeirri vegferð að koma hér á öflugum hagvexti að nýju með því að fara atvinnuleið í stað atvinnuleysisleiðar. Með því að fara atvinnuleiðina megi eyða atvinnuleysinu, auka kaupmátt fólks og bæta hag fyrirtækja. „Þannig göngum við erinda allrar þjóðarinnar."
27.1.2011
Sjávarútvegurinn skiptir alla launţega máli
Starfsskilyrði og afkoma eins af helstu atvinnuvegum þjóðarinnar hafa víðtæk áhrif á efnahagslífið og vinnumarkaðinn í heild og það er reginmisskilningur að rekstrarskilyrði sjávarútvegsins komi meirihluta launafólks á Íslandi ekki við. Þetta segir Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins í leiðara í dag. „Í stjórnarliðinu eru á kreiki hugmyndir um róttækar breytingar á fiskveiðistjórnun, sem geta sett afkomu og tekjur sjávarútvegsins í fullkomið uppnám, þótt ekki sé nema vegna hugsanlegra áhrifa á gengi krónunnar og þar með verðlag í landinu og skuldabyrði almennings. Á meðan óvissa ríkir um fiskveiðistjórnunina halda sjávarútvegsfyrirtækin að sér höndum í fjárfestingum og ný störf verða ekki til, hvorki hjá þeim né fyrirtækjum sem vinna fyrir sjávarútveginn. Meðal annars af þessum sökum kemur hlutskipti sjávarútvegsins öllum launþegum á Íslandi við."
26.1.2011
Félagsdómur mun úrskurđa um lögmćti verkfallsbođunar
25.1.2011
Förum atvinnuleiđina - höfnum verđbólguleiđinni
Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, ræddu um alvarlega stöðu atvinnumála á opnum fundi í Reykjanesbæ í gærkvöld og um mikilvægi þess að brugðist verði sem fyrst við til að kveða niður atvinnuleysið. Um 14 þúsund eru án vinnu, langtímaatvinnuleysi fer vaxandi og hefur Vinnumálastofnun spáð því að atvinnuleysi aukist enn frekar.
25.1.2011
Fundur um Árósasamninginn í Húsi atvinnulífsins 27. janúar
24.1.2011
Um verkaskiptingu ráđuneyta og stofnun umhverfis- og auđlindaráđuneytis
Samtök atvinnulífsins eru alfarið andvíg fyrirhugaðri uppstokkun verkefna milli ráðuneyta og stofnun sérstaks umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að rofin eru tengsl milli atvinnuvegaráðuneyta og ákvarðana um nýtingu auðlinda, rannsókna, ráðgjöf og verndun auðlinda. Samtökin telja þvert á móti nauðsynlegt að viðhalda tengingu atvinnuvegaráðuneyta og ákvarðana um auðlindanýtingu við rannsóknastofnanir og auðlindarannsóknir.
23.1.2011
Aukinn kaupmáttur nćst međ aukinni vinnu
Besta kaupmáttaraukningin sem hægt er að ná er að fólk sem er án atvinnu fái vinnu. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir ekkert slá út slíkri kaupmáttaraukningu en um 14.000 manns eru nú á atvinnuleysisskrá og hefur Vinnumálstofnun spáð því að atvinnuleysi fari vaxandi í mánuðinum. AGS hefur sagt að það sé eitt helsta verkefni Íslendinga að ná atvinnuleysinu niður. Samtök atvinnulífsins telja atvinnuleysið mikið áhyggjuefni og tímabært sé að bregðast við með nýrri atvinnusókn.
SA hafa boðað til opins fundar í Reykjanesbæ mánudaginn 24. janúar í Stapa kl. 17-19 um stöðuna á vinnumarkaðnum. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.
21.1.2011
Vögguvísa yfir erlendum fjárfestingum og atvinnulífinu
Samtök atvinnulífsins leggja á það megináherslu nú þegar unnið er að gerð nýrra kjarasamninga að stjórnvöld grípi til allra nauðsynlegra ráðstafana til að skapa skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar og þá sérstaklega í útflutningsgreinum. Þar er átt við greinar sem nýta orku til framleiðslu sinnar, sjávarútveg, sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
20.1.2011
Opinn fundur um stöđu atvinnumála á mánudaginn - skráning stendur yfir
19.1.2011
Samdráttur á vinnumarkađi á síđasta ári samkvćmt Hagstofu
19.1.2011
Nýjar vegaframkvćmdir geta skapađ hundruđ starfa
Nýjar arðbærar vegabætur munu bæta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þar með þjóðfélaginu stórfé á ári hverju. Umfangsmiklar vegaframkvæmdir eru eitt þeirra stóru og mikilvægu mála sem eru uppi á borðum samningsaðila í yfirstandandi kjaraviðræðum og kalla á aðkomu ríkisstjórnarinnar. Samtök atvinnulífsins leggja á það höfuðáherslu að stórum fjárfestingarverkefnum í atvinnulífinu verði komið á skrið og í nýlegri aðgerðaáætlun ASÍ er lagt til að stórum framkvæmdum í samgöngumálum verði hrint í framkvæmd með stofnun félags í eigu ríkissjóðs sem taki lán hjá langtímafjárfestum til langs tíma.
18.1.2011
SA og ASÍ undirrita viđrćđuáćtlun um sameiginleg mál
17.1.2011
Mikiđ atvinnuleysi áhyggjuefni
17.1.2011
Morgunfundur um samfélagsábyrgđ fyrirtćkja 19. janúar
14.1.2011
Stöđnun ekki bođleg
Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs.
Óhugsandi er að hefja sókn þjóðarinnar til framfara og aukins útflutnings og fjárfestinga án þess að sjávarútvegurinn, ein helsta útflutningsgreinin og um leið ein helsta stoð samfélagsins, eigi þar öflugan hlut að máli.
13.1.2011
Samstađa um atvinnusókn
Í leiðara nýs fréttabréfs SA fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni. „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."
13.1.2011
Atvinnutryggingargjald verđi lćkkađ
Samtök atvinnulífsins hafa sent Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að atvinnutryggingargjald verði lækkað um tæpt 1% í samræmi við lög þar sem gjaldið er nú of hátt. Tekjur Atvinnuleysistryggingarsjóðs af gjaldinu á þessu ári eru áætlaðar um sjö og hálfum milljarði króna hærri en útgjöld sjóðsins vegna atvinnuleysis. Lög um tryggingagjaldið kveða á um að við þær aðstæður beri fjármálaráðherra að flytja frumvarp um lækkun gjaldsins en það hefur ráðherrann ekki gert. Lækkun gjaldsins er sérstaklega mikilvægt hagsmunamál lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
12.1.2011
Meginmarkmiđ ađ ţjóđin nái fyrri styrk
Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.
11.1.2011
Gögn frá Skattadegi Deloitte 2011
4.1.2011
Hóflegar launabreytingar í OECD-ríkjunum
4.1.2011
Yfirlit kjarasamninga á Norđurlöndum 2009-2011: Hćkkunum stillt í hóf
3.1.2011
Formađur SA: Sköpum 2011
Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að hefja á árinu 2011 nýja sókn sem byggir á bættum samkeppnisskilyrðum atvinnulífsins, sókn til fjölgunar starfa og bættra lífskjara í landinu.











