Fréttir
29.12.2011
Séreignarsparnađur ađ hámarki 2%
29.12.2011
Ár glatađra tćkifćra
27.12.2011
Stjórnmálamenn vinni fyrir laununum sínum
21.12.2011
Múrarameistarafélag Reykjavíkur og Félag dúklagninga- og veggfóđrarameistara ganga til liđs viđ SI og SA
Í dag voru undirritaðir samningar um aðild Múrarameistarafélags Reykjavíkur (MM) og Félags dúklagninga- og veggfóðrarameistara (FDV) að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Helgi Magnússon, formaður SI, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Sigurður Heimir Sigurðsson, formaður MM og Jón Ólafsson, ritari FDV skrifuðu undir samningana. Samtökin fagna þessum góða liðsauka og vænta mikils af auknum styrk og samtakamætti félaga í byggingariðnaði.
20.12.2011
Ađilar taki höndum saman um sköpun nýrra starfa
16.12.2011
Samstarf um ađgerđir gegn langtímaatvinnuleysi
14.12.2011
Formađur SA: Atvinnumálin verđi sett í forgang
Það er ótalmargt sem betur mætti fara í atvinnulífinu hér á landi og þess vegna beinum við því til Alþingis og alþingismanna að þeir vakni af þyrnirósarsvefni og geri sér grein fyrir stöðunni. Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. í samtali við Morgunblaðið í dag en Samtök atvinnulífsins sendu öllum alþingismönnum bréf í gær þar sem þeir eru hvattir til að setja atvinnumálin og baráttuna gegn atvinnuleysi í forgang. Vilmundur segir að verið sé að draga fyrirtæki niður í svaðið með óhóflegri skattheimtu en þar má t.d. nefna hækkun kolefnisgjalds, sérstakan launaskatt á banka, óhóflega hækkun veiðigjalds, framlengingu og hækkun auðlegðarskatts.
13.12.2011
Stefnir í ađ 2011 verđi nćst mesta brottflutningsár Íslendinga
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra: „Fólksflutningar núna eru ekkert meiri en í venjulegu árferði. Þeir voru töluverðir árið 2009 og 2010 en það hefur stöðvast miðað við þann mikla brottflutning sem var áður. Þannig að við erum bara á svipuðu róli og var þá." Þetta er því miður ekki rétt hjá forsætisráðherra.
Á vef Hagstofunnar kemur fram að brottfluttir umfram aðflutta hafi verið tæplega 1.400 á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta voru 1.320 og erlendir voru 80. Ef fram heldur sem horfir verða brottfluttir Íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta 1700-1800 á árinu öllu. Ef svo fer verður árið 2011 næst mesta brottflutningsár Íslendinga í sögunni í fjölda einstaklinga talið. Einungis árið 2009 er hærra með tæplega 2.500 brottflutta Íslendinga umfram aðflutta en árið 2010 voru þeir 1.700.
13.12.2011
Til Alţingis frá SA: Virkjum tćkifćrin og rjúfum kyrrstöđuna
Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu. Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. „Eitthvað annað" stefnan er fullreynd.
Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt.
Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins.
Sækjum fram. Rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þau tækifæri sem blasa við.
Sent til allra alþingismanna 13. desember 2011.
13.12.2011
Nýir kjarasamningar í Svíţjóđ
12.12.2011
Veikar undirstöđur hagvaxtar rćddar á Sprengisandi
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 11. desember. Þar sagði hann m.a. að nýjar tölur Hagstofunnar um 3,7% hagvöxt á fyrstu 9 mánuðum ársins ekki gefa vísbendingar um að viðsnúningur til hins betra hafi orðið í atvinnulífinu. Hagvöxturinn skýrist af aukinni einkaneyslu vegna tímabundinna ástæðna og aukinnar makrílveiði sem hafi reynst þjóðarbúinu mikilvæg búbót.
Hannes bendir á að störfum fjölgi nánast ekki neitt, mikill flótti fólks sé frá landinu og fáar vísbendingar um að umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu séu framundan. Hagvöxturinn hvíli því á veikum grunni, en auka þurfi verðmætaframleiðslu atvinnulífsins, skapa ný störf og efla rekstur starfandi fyrirtækja með arðbærum fjárfestingum.
12.12.2011
Nýr skattur bitnar á almennu lífeyrissjóđunum
8.12.2011
Af dyggđum og löstum stjórnenda og stjórnmálamanna
Vilhjálmur segir að ef atvinnulífið fái að blómstra komist Ísland út úr kreppunni. „Mikill heilbrigður metnaður er til staðar í atvinnulífinu og í langflestum fyrirtækjum landsins er fólk sem hefur til margra ára gengið til starfa sinna með aga og heiðarleika í fyrirrúmi. Það sem vantar á er að stjórnmálamennirnir leyfi atvinnulífinu að nýta tækifærin."
8.12.2011
Hagvöxtur í bođi makrílsins
8.12.2011
Ótraustur grunnur tekjuspár fjárlaga
8.12.2011
Helle Johansen: Tími kominn til ađ horfa fram á veginn
6.12.2011
Kjarasamningar í Finnlandi til tveggja ára
2.12.2011
Meistarafélag húsasmiđa gengur til liđs viđ Samtök iđnađarins
30.11.2011
Auđlegđarskattur skađlegur
Samtök atvinnulífsins lýsa miklum vonbrigðum með áform ríkisstjórnarinnar um að framlengja gildistíma auðlegðarskatts til ársins 2015. Auðlegðarskatturinn, sem tekinn var upp fyrir tveimur árum, er almennt talinn óréttlátur en fæst nálæg lönd leggja eignarskatta á þegna sína. Enn á ný er hert á skattlagningunni og lagt til viðbótarskattþrep, þ.e. 2% skatt á hreina eign yfir 150 milljónum króna hjá einstaklingi og 200 milljónum króna hjá hjónum.
29.11.2011
Desemberuppbót 2011 greiđist eigi síđar en 15. desember
Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbótin fyrir árið 2011 er kr. 48.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 55.400. Uppbótin greiðist fyrir fullt starf fyrir a.m.k. 45 unnar vikur hjá sama vinnuveitanda á árinu 2011, en er hlutfallsleg fyrir styttri starfstíma og minna starfshlutfall.
Auk þess greiðist sérstakt álag á desemberuppbót, kr. 15.000, að þessu sinni vegna ákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011.
29.11.2011
Lífleg umrćđa um atvinnumálin á opnum fundum SA
28.11.2011
Fjármálaráđherrra fellur frá breikkun gjaldstofns kolefnisgjalds
Samtök atvinnulífsins og fulltrúar helstu fyrirtækja sem ætlað var að greiða kolefnisgjald af föstu kolefni áttu í dag fund með fjármálaráðherra og fulltrúum iðnaðarráðuneytisins og umhverfisráðuneytisins.
Fjármálaráðherra lýsti yfir því að hann myndi leggja til hliðar áform um breikkun stofns kolefnisgjalds sem finna má í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Hann ítrekaði einnig fyrirheit um að tryggja samkeppnisstöðu fyrirtækja sem reka starfsemi sína hér á landi gagnvart erlendum samkeppnisaðilum. Einnig leggja stjórnvöld áherslu á að tryggja að forsendur þeirra fjárfestingaverkefna sem unnið hefur verið að raskist ekki.
Á fundinum var ákveðið að aðilar myndu í framhaldinu eiga samráð um innleiðingu evrópska viðskiptakerfisins með losunarheimildir (ETS) og önnur skattamál þeim tengd.
28.11.2011
Landsmenn borga reikninginn
Ef tekið er mið af nýjustu þjóðhagsspá Seðlabankans þá verður landsframleiðsla Íslands 105 milljörðum króna lægri við árslok 2013 en hagspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerði ráð fyrir í nóvember árið 2008, samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins (SA).
„Landsmenn eru að borga reikninginn fyrir þessa ríkisstjórn, sem nýtir ekki þau tækifæri sem eru til staðar," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Vilhjálmur bendir á að sú upphæð sem þjóðarbúið verður af, sökum minni hagvaxtar en spáð hafði verið, nemi á þriðja hundrað milljarða króna á árunum 2011- 2013.
24.11.2011
Stjórnendur 400 stćrstu fyrirtćkjanna: Ađstćđur slćmar og versnandi horfur
Yfirgnæfandi meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar samkvæmt nýrri könnun Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann. Samkvæmt könnuninni telja 72% stjórnenda aðstæður vera slæmar, 26% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar. Fleiri stjórnendur telja að ástandið versni en batni á næstunni, þótt flestir telji að þær breytist ekki. Meiri svartsýni ríkir á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu í þessu efni og meiri svartsýni gætir í iðnaði og sjávarútvegi en í öðrum atvinnugreinum.
23.11.2011
Formađur SA: Samningsrof ríkisstjórnarinnar
„Fjármálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um að leggja á kolefnisgjald á rafskaut í orkufrekum iðnaði frá ársbyrjun 2013. Ráðherra gengur þarna gegn samkomulagi sem gert var við Samtök atvinnulífsins og stóriðjufyrirtækin í desember 2009. Þar féllust Alcoa á Reyðarfirði, Alcan í Straumsvík, Elkem og Norðurál á að greiða fyrirfram tekjuskatta á árunum 2010-12 til að létta undir með rekstri ríkissjóðs. Þess í stað féll ríkið frá álagningu kolefnisgjalds á rafskaut. Markmið samkomulagsins var að þegar viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir tæki gildi 2013 yrðu starfsskilyrði fyrirtækjanna almennt ekki verri en í Evrópu.
22.11.2011
Opinn fundur SA um atvinnumálin á Akureyri á fimmtudag kl. 8.30
22.11.2011
Opinn fundur SA um atvinnumálin á Húsavík á fimmtudag kl. 12
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar á Húsavík, fimmtudaginn 24. nóvember, um stöðu atvinnu- og efnahagsmála. Fundurinn fer fram á veitingahúsinu Sölku kl. 12-14 og eru allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. Formaður SA, Vilmundur Jósefsson, og framkvæmdastjóri SA, Vilhjálmur Egilsson, munu kynna hugmyndir Samtaka atvinnulífsins um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin auk þess að efna til umræðu um leiðir út úr kreppunni. Jón Helgi Björnsson formaður bæjarráðs Norðurþings, mun fjalla um iðnaðaruppbyggingu á svæðinu.
22.11.2011
Opinn fundur SA um atvinnumálin á Reyđarfirđi á föstudag kl. 12
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar á Reyðarfirði, föstudaginn 25. nóvember, um stöðu atvinnu- og efnahagsmála. Fundurinn fer fram á Fjarðahóteli kl. 12-14 og eru allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. Formaður SA, Vilmundur Jósefsson, og framkvæmdastjóri SA, Vilhjálmur Egilsson, munu kynna hugmyndir Samtaka atvinnulífsins um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin auk þess að efna til umræðu um leiðir út úr kreppunni.
21.11.2011
SART og SI sameinast
17.11.2011
Leiđari fréttabréfs SA: Rjúfum kyrrstöđuna
„Nú er áformað að skattleggja tilteknar atvinnugreinar sérstaklega, þ.e. fjármálafyrirtæki, sjávarútveg og stóriðju. Þetta er óráðlegt, afleiðingarnar verða skaðlegar og munu seinka nauðsynlegum efnahagsbata. Kyrrstaðan í efnahagslífinu verður ekki rofin nema stjórnvöld tryggi fyrirtækjum rekstrarumhverfi þannig að þau hafi svigrúm til fjárfestinga. Gangi áformin eftir leggja stjórnvöld enn sitt af mörkum til að viðhalda atvinnuleysinu, fæla frá fjárfesta og seinka nauðsynlegum bata lífskjara almennings."
Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í leiðara fréttabréfs SA sem fjallar um nýja skýrslu samtakanna um leiðir til betri lífskjara.
17.11.2011
Höfum tapađ tveimur og hálfum árgangi á síđustu 10 árum
17.11.2011
Heimsmeistarar í höftum á erlenda fjárfestingu
17.11.2011
Krónan sökkvandi gjaldmiđill
16.11.2011
Fundaröđ SA um Ísland hefst á Akureyri 24. nóvember
Samtök atvinnulífsins efna til fundaraðar um Ísland á næstu vikum undir yfirskriftinni Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara. Fyrsti fundurinn verður haldinn á Akureyri, fimmtudaginn 24. nóvember, annar fundur verður á Húsavík sama dag og sá þriðji verður haldinn á Reyðarfirði föstudaginn 25. nóvember. Fundirnir eru öllum opnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.
Formaður SA, Vilmundur Jósefsson, og framkvæmdastjóri SA, Vilhjálmur Egilsson, munu kynna hugmyndir Samtaka atvinnulífsins um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin auk þess að efna til umræðu um stöðu atvinnulífsins og leiðir út úr kreppunni.
16.11.2011
Hleđslutćkjahaldari líklegur til framleiđslu
14.11.2011
Rjúfum kyrrstöđuna: Samantekt frá fundi SA 11.11.11
Samtök atvinnulífsins gáfu út nýtt rit föstudaginn 11. nóvember um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin. Kynning á helstu atriðum þess fór fram á opnum fundi SA í Hörpu en um 200 manns úr íslensku atvinnulífi sóttu fundinn auk þess sem fjölbreyttur hópur stjórnenda steig á stokk og fjallaði um skýrslu SA og efni hennar. Samantekt frá fundinum hefur nú verið birt á vef SA en þar má einnig nálgast rafrænt eintak skýrslunnar.
Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA kynntu rit SA en auk þeirra tóku til máls Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins, Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, Finnur Árnason, forstjóri Haga og Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðideildar Eimskips.
14.11.2011
Heiđrún Jónsdóttir: Traustur hlutabréfamarkađur mikilvćgur í uppbyggingunni
14.11.2011
Björk Ţórarinsdóttir: Eiginfjárstađa bankanna sterk
Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, segir eiginfjárstöðu íslensku bankanna sterka. Margt hafi áunnist á síðastliðnum þremur árum og fljótt ættu að geta skapast forsendur fyrir fjármálakerfið til að styðja við framgang og fjárfestingu fyrirtækja hér á landi. „Útlánageta er til staðar og sé rétt á málum haldið getur hagkvæmt og skilvirkt fjármálakerfi lagt sitt af mörkum við að rjúfa kyrrstöðu og stuðlað að uppbyggingu blómlegs atvinnulífs."
14.11.2011
Stjórnarformađur HS Orku: Öflug nýsköpun í íslenskum orkuiđnađi
14.11.2011
Framkvćmdastjóri Suđurverks: Enginn verksamningur í hendi og ástandiđ svart
14.11.2011
Forstjóri HB Granda: Sjávarútvegurinn getur leikiđ lykilhlutverk í endurreisn efnahagslífsins
11.11.2011
Nýtt rit SA: Rjúfum kyrrstöđuna. Leiđir til betri lífskjara
Samtök atvinnulífsins gáfu í dag út nýtt rit um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin. Kynning á helstu atriðum þess fór fram á opnum fundi SA í Hörpu í morgun en Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA kynntu ritið.
Um 200 manns úr íslensku atvinnulífi sóttu fundinn en fjölbreyttur hópur stjórnenda steig á stokk og fjallað um skýrslu SA ásamt því að beina sjónum að því hvernig rjúfa megi kyrrstöðuna út frá sjónarhóli þeirra atvinnugreina.
Til máls tóku, Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins, Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, Finnur Árnason, forstjóri Haga og Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðideildar Eimskips.
11.11.2011
Forstjóri Haga: Kjötskortur reyndist íslenskum neytendum dýr
11.11.2011
Framkvćmdastjóri Bláa Lónsins: Byggja ţarf upp hvetjandi umhverfi fyrir fjárfestingar og eyđa óvissu
Dagný H. Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins, ræddi um nauðsynlega hvatningu og hvata í atvinnumálmu á opnum fundi SA sem fram fór í Hörpu í morgun undir yfirskriftinni Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara. „Það er mikill hugur og uppgangur í ferðaþjónustu á Íslandi. Stjórnvöld og ferðaþjónustufyrirtæki hafa tekið höndum saman, snúið ógn upp í tækifæri og náð frábærum árangri í landkynningu á síðustu mánuðum. Í því samhengi er mikilvægt að einblína ekki einungis á fjölda ferða manna heldur einnig hvers konar ferðamenn við sækjum og muna það að okkar mikilvæga auðlind og söluvara landsins, náttúran, er viðkvæm, takmörkuð og þarf því að vernda og fjárfesta í."
11.11.2011
Forstjóri Ölgerđarinnar: Fáránlegt vaxtastig hamlar fjárfestingu og hćkkar verđlag
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir vaxtastig á Íslandi fáránlegt, það hamli fjárfestingu og hækki verðlag í landinu. Andri var á meðal fjölmargra stjórnenda sem stigu á stokk á fundi SA um atvinnu- og efnhagsmál sem fram fór í Hörpu í morgun undir yfirskriftinni Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara. Andri sagði íslensku krónuna rýra stórkostlega möguleika íslenskra iðnfyrirtækja til útflutnings og vísaði til nýrrar skýrslu SA sem kom út í dag. Þar er bent á að krónan hafi nú aðeins 0,05% af því verðmæti sem hún hafði gagnvart dönsku krónunni árið 1920 eða frá því að hún öðlaðist sjálfsætt gengi.
11.11.2011
Ályktun stjórnar SA um skattamál
„Stjórn Samtaka atvinnulífsins mótmælir framkomnum áformum ríkisstjórnarinnar um skattahækkanir. Ríkisstjórnin virðist hafa gefist upp á verkefni sínu. Hún reynir þess í stað að afla sér stundarvinsælda með hækkunum skatta á þann hluta atvinnulífsins sem er henni ekki pólitískt þóknanlegur ásamt hækkunum á auðlegðarskatti sem að miklum hluta eru farnar að snúast um eignaupptöku.
11.11.2011
Framkvćmdastjóri SA: Ţurfum ađ gera miklu betur
11.11.2011
Formađur SA: Rauđa ljósiđ hefur logađ of lengi á Íslandi
11.11.2011
Opinn fundur SA hefst kl. 8.30 í Hörpu
Til máls taka Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins, Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, Finnur Árnason, forstjóri Haga og Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðideildar Eimskips.
10.11.2011
Ályktun stjórnar SA um samskipti atvinnulífsins og fjármálafyrirtćkja
„Viðbrögð fjármálafyrirtækja við dómum Hæstaréttar um ólögmæt gengisbundin lán fyrirtækja og nú síðast um fjármögnunarleigusamninga valda vonbrigðum. Ekki er að mati Samtaka atvinnulífsins tekið tillit til skýrra fordæmisgefandi efnisdóma sem skyldi.
Það er brýn nauðsyn fyrir atvinnulífið, ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki, að úr þessum vanda sé leyst nú þegar.
10.11.2011
Ályktun stjórnar SA um ađildarviđrćđur Íslands ađ Evrópusambandinu
„Samtök atvinnulífsins leggjast gegn því að aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði dregin til baka og aðildarviðræðum slitið. Samtökin telja að leiða eigi viðræðurnar til lykta.
Samningurinn yrði síðan lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar í þjóðaratkvæðagreiðslu."
10.11.2011
Rjúfum kyrrstöđuna - skráningu á fund SA lýkur í dag
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar í Hörpu föstudaginn 11. nóvember kl. 8.30-10.00 þar sem raddir atvinnulífsins munu hljóma. Yfirskrift fundarins er Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu kynna nýtt rit samtakanna en auk þeirra mun stór hópur stjórnenda fjalla um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna og bæta lífskjörin.
Til máls taka Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa Lónsins, Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda
Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðideildar Eimskips.
4.11.2011
Rjúfum kyrrstöđuna 11.11.11
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 11. nóvember í Hörpu - Silfurbergi kl. 8.30 -10.00. Á fundinum munu SA kynna nýtt rit um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin.
Í riti SA er m.a. fjallað um gjaldmiðilsmálin, brottflutning Íslendinga frá landinu í hálfa öld, leitina endalausu að stöðugleika í efnahagsmálum, þróun á vinnumarkaði, tækifæri til að draga úr atvinnuleysinu og auka samkeppnishæfni þjóðarinnar.
3.11.2011
Svört vinna skekkir samkeppnisstöđu fyrirtćkja
2.11.2011
Vaxtahćkkun Seđlabankans seinkar efnahagsbata
Samtök atvinnulífsins lýsa vonbrigðum með þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að hækka stýrivexti um 0,25%. Vaxtahækkun við ríkjandi aðstæður sem einkennast af allt of lágu fjárfestingarstigi, miklum slaka í efnahagslífinu, stórfelldu atvinnuleysi og hóflegum vexti almennrar eftirspurnar er til þess fallin að draga úr og seinka þeim efnahagsbata sem nauðsynlegur er þannig að atvinnuleysi minnki í ásættanlegt horf og fyrirtækin fái lífvænleg starfsskilyrði.
Verðbólgan á skemmri tíma mælikvarða er á niðurleið og kostnaðaráhrif kjarasamninga annað hvort kominn fram eða bundin næstu árin og þar með utan áhrifasviðs peningastefnunnar. Lækkandi hrávörðuverðshækkanir á alþjóðamörkuðum, lakari efnahagshorfur erlendis og styrking krónunnar ættu að stuðla að því að verðbólgumarkmið bankans verði í sjónmáli innan fárra missera.
31.10.2011
LÍÚ: Stjórnkerfi fiskveiđa byggi áfram á aflamarkskerfinu
28.10.2011
Stefnukreppa á Íslandi
VÍB stóð í vikunni fyrir fræðslufundi undir yfirskriftinni Ísland - í endurreisn eða stefnukreppu? Martin Wolf, yfirhagfræðingur á Financial Times, ásamt Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Katrínu Ólafsdóttur, lektor í Háskólanum í Reykjavík og Heiðari Má Guðjónssyni, fjárfesti, ræddu efnahagslega stöðu Íslands. Vilhjálmur velti upp þeirri spurningu hvort stjórnvöld væru fær um að skapa réttu aðstæðurnar fyrir kröftuga atvinnusköpun og umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu sem væri lykillinn að því að komast út úr kreppunni.
28.10.2011
Gjaldeyrishöftin dýr mistök og hamla hagvexti
27.10.2011
Kakan minnkar á međan karpađ er
Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki var yfirskrift fundar Deloitte, Samtaka fjárfesta, Kauphallarinnar og Samtaka atvinnulífsins sem fram fór 21. október sl. Skattastefna stjórnvalda var harðlega gagnrýnd á fundinum og hún beinlýnis sögð skaðleg. Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, velti því upp hvort ekki væri orðið tímabært að stofna samtök skattborgara en hann líkti eignaskattsstefnu stjórnvalda við eignaupptöku.
25.10.2011
Vinnuverndarvikan 2011 stendur nú yfir
25.10.2011
Hvađ er efst á baugi í umhverfisráđuneytinu?
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins og Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri ráðuneytisins fjalla um þau mál sem efst eru á baugi hjá umhverfisráðuneytinu, m.a. með hliðsjón af þingmálaskrá umhverfisráðherra og aðildarviðræðum við ESB, á fundi hjá Samtökum atvinnulífsins miðvikudaginn 26. okt. kl 8.30-10.
23.10.2011
Samfélagsábyrgđ og sóknarfćri í atvinnulífinu. Morgunverđarfundur og námskeiđ 25. október
Stjórnendur fyrirtækja eru sérstaklega hvattir til að mæta en fundurinn og námskeiðið er öllum opið. Fjöldi þátttakanda er þó takmarkaður en áhugasamir geta enn bæst í hópinn. Skráningu lýkur á mánudag. Enginn aðgangseyrir.
21.10.2011
Glćrur frá skattafundi Deloitte, Samtaka fjárfesta, Kauphallarinnar og SA
20.10.2011
Horfur á ađ útflutningur og erlend starfsemi fyrirtćkja aukist
Sóknarhugur er í fyrirtækjum sem starfa í útflutningsgreinum eða eru með starfsemi erlendis. Ríflega helmingur þeirra (56%) hyggst auka útflutning eða erlenda starfsemi á næstu 2-3 árum, tæpur þriðjungur (29%) telur það óvíst en 15% fyrirtækjanna hyggjast ekki gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins á rekstrarhorfum fyrirtækja innan SA sem gerð var dagana 6.-11. október 2011. Um 27% fyrirtækjanna sem tóku þátt í könnuninni starfa í útflutningi eða eru með starfsemi erlendis.
19.10.2011
Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtćki
Föstudaginn 21. október efna Deloitte, Samtök fjárfesta, NASDAQ OMX Iceland (Kauphöllin) og Samtök atvinnulífsins til opins morgunverðarfundar um skattamál. Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki er yfirskrift fundarins.
19.10.2011
Núverandi vinnumiđlun er ábótavant
18.10.2011
Ţriđjungur fyrirtćkja telur ađgerđir stjórnvalda sitt helsta vandamál
18.10.2011
Samfélagsábyrgđ og sóknarfćri í atvinnulífinu. Morgunverđarfundur og námskeiđ
Stjórnendur fyrirtækja eru sérstaklega hvattir til að mæta en fundurinn og námskeiðið er öllum opið. Fjöldi þátttakanda er þó takmarkaður og eru áhugasamir því hvattir til að skrá sig sem fyrst. Enginn aðgangseyrir.
13.10.2011
Framkvćmdastjóri SA: Ryđjum hindrunum úr vegi
„Skortur á fjárfestingum, slakur hagvöxtur og viðvarandi atvinnuleysi eru stóru atriðin sem vantar í þá glæsimynd sem stjórnvöld draga upp af árangri sínum af samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þrátt fyrir að segjast í orði sem á borði vera sammála aðilum vinnumarkaðarins um nauðsyn fjárfestinga og hagvaxtar hafa hugmyndafræðileg vandamál og þörf fyrir blóraböggla staðið í vegi fyrir því að góð tækifæri hafi nýst og árangur lætur á sér standa." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, m.a. í leiðara fréttabréfs SA.
Vilhjálmur lítur yfir farinn veg í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá efnahagshruninu í október 2008. Hann segir árangur efnahagsáætlunarinnar með AGS fyrst og fremst hafa falist í auknum aga í efnahagsmálum en með óhóflegum skattahækkunum og niðurskurði hafi í stórum dráttum tekist að ná utan um hallarekstur ríkissjóðs. Hann segir að mistekist hafi að skapa stórum sem smáum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum eðlilegt fjárfestingarumhverfi. Skapa þurfi aðstæður sem fyrst til að þau geti sótt fram, ráðið fólk í vinnu og skapað verðmæti.
13.10.2011
Kyrrstađa á almennum vinnumarkađi og slakar horfur
Á næstu sex mánuðum hyggjast sex af hverjum tíu (63%) aðildarfyrirtækjum SA ekki gera breytingar á starfsmannafjölda, 18% áforma fjölgun starfsmanna en 19% fækkun. Þegar niðurstöðurnar eru vegnar með starfsmannafjölda atvinnugreinanna þá koma fram heldur meiri áform um fækkun starfsmanna þar sem fyrirtæki með 21% starfsmannafjöldans hyggjast fækka en þau með 17% starfsmannafjöldans hyggjast fjölga.
13.10.2011
Enn horfur á lítilli atvinnuvegafjárfestingu
Nærri sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 27% telja það óvíst en einungis 14% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna.
Þegar svörum er skipt eftir atvinnugreinum kemur í ljós að niðurstöður í sjávarútvegi, iðnaði, og verslun og þjónustu eru svipaðar heildarniðurstöðunni, þ.e. 11-14% fyrirtækjanna í þessum greinum áforma fjárfestingar á næsta ári, en 55-62% ætla ekki að gera það. Fjárfestingaáformin eru algengust í ferðaþjónustu þar sem 26% fyrirtækjanna hyggjast ráðast í fjárfestingar en 35% ekki. Í fjármálaþjónustu hyggjast 79% fyrirtækjanna ekki ráðast í fjárfestingar.
12.10.2011
Draumur í dós
Hin árlega hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, Snilldarlausnir Marel, stendur nú yfir en þetta árið er skorað á framhaldsskólanema að búa til sem mest virði úr dós sem þátttakendur mega túlka hvernig sem þeir vilja. Hvort sem það er niðursuðudós, kókdós, skyrdós, rafmangsdós eða eitthvað allt annað. Nota má fleiri en eina dós og eins marga aðra hluti til stuðnings og hver og einn vill. Þó verður dósin að vera í aðalhlutverki og það er hið aukna virði hennar sem telur.
Samtök atvinnulífsins og mennta- og menningarmálaráðuneytið eru stuðningsaðilar keppninnar, Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur er umsjónaraðili keppninnar en Marel er aðalbakhjarl Snilldarlausna.
12.10.2011
Samfélagsábyrgđ og sóknarfćri í atvinnulífinu. Morgunverđarfundur og námskeiđ
10.10.2011
Mörg stór verkefni bíđa
10.10.2011
4-5% hagvöxtur nauđsynlegur
6.10.2011
Veikleikar í fjárlagafrumvarpinu 2012
Halli á ríkissjóði er því áætlaður 17,7 ma.kr., eða 1,0% af vergri landsframleiðslu (VLF). Frumjöfnuður (þ.e. án tillits til vaxtagjalda og vaxtatekna) er áætlaður verða jákvæður um 39,6 ma.kr., eða 2,2% af VLF. Markmiði um afgang á heildarjöfnuði er seinkað um eitt ár, til ársins 2014, auk þess sem hann verður minni en stefnt var að áður eða sem nemur 0,9% af VLF.
6.10.2011
Ráđstefna um ţjónandi forystu í Skálholti
5.10.2011
Formađur SA: Af meintri fyndni Samtaka atvinnulífsins
3.10.2011
Kreppa út áratuginn án aukinna fjárfestinga í atvinnulífinu
1.10.2011
46.000.000.000 krónur
30.9.2011
Fjölga ţarf störfum á íslenskum vinnumarkađi
30.9.2011
Ályktun ađalfundar Samtaka fiskvinnslustöđva
Í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva sem fram fór föstudaginn 23. september er skorað á ríkisstjórnina að draga til baka frumvarp sjávarútvegsráðherra sem lagt var fram á Alþingi í sumar. „Markmið frumvarpsins er augljóslega að kollvarpa rekstri sjávarútvegsfyrirtækja, stórauka skattheimtu á sjávarútveginn, breyta aflahlutdeildarkerfinu og auka vald ráðherra og pólitísk afskipti af sjávarútveginum.
Skömmu fyrir þinglok samþykkti meirihluti Alþingis fyrra frumvarp ráðherra sem ætlað er að vera hluti af hinu síðara og fela ákvæði þess í sér aukna skattheimtu á sjávarútveginn og fleiri íþyngjandi ákvæði. Álit og umsagnir hagsmunaaðila og sérfræðingahóps sjávarútvegsráðherra hafa verið mjög neikvæðar og þar er sterklega varað við þeim skaða sem boðaðar breytingar munu hafa á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja og lífskjör þjóðarinnar."
29.9.2011
Formađur SA: Atvinnupólitík Samtaka atvinnulífsins
„Í Fréttablaðinu í gær sakar Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mig um að hafa farið með ósannindi á fundi SA um atvinnumál í Hörpu á mánudaginn. Ekki vil ég sitja undir því en á fundinum lýsti ég hvernig ríkisstjórnin hefur ítrekað hvorki getað né viljað standa við eigin yfirlýsingar m.a. um málefni iðnaðarráðherra.
28.9.2011
Athugasemd vegna ummćla forsćtisráđherra
26.9.2011
Samantekt frá fundi SA um atvinnumál
26.9.2011
Háskattalandiđ Ísland
Hannes sagði mikilvægt að ná jöfnuði í ríkisfjármálum á Íslandi og stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs. Vænlegast til árangurs í opinberum fjármálum væri að stuðla að fjölgun skattgreiðenda og auknum umsvifum í hagkerfinu. Hvetja verði til nýsköpunar og fjárfestinga í atvinnulífinu sem leiði til fjölgunar starfa og dragi úr bótagreiðslum. Frekari skattahækkanir geti valdið efnahagslífinu skaða.
26.9.2011
Formađur LÍÚ: Hćgt ađ skapa hundruđ nýrra starfa ef óvissu um sjávarútveginn verđur eytt
Adolf sagði að allt frá því núverandi ríkisstjórn var mynduð vorið 2009 og setti fram stefnu sína um svokallað fyrrningarleið hafi íslenskur sjávarútvegur verið í uppnámi. Hann gagnrýnir harðlega að enginn úr atvinnugreininni hafi verið fenginn að málum og engin fræðileg úttekt gerð á afleiðingum lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórn fiskveiða áður en það var lagt fram á Alþingi sl. vor. Með frumvarpinu sé markvisst stefnt að því að gera aflaheimildir útgerðanna verðlausar og færa þær til ríkisins með ómældu tjóni fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og íslenskt efnahagslíf.
26.9.2011
Formađur SVŢ: Brýnt ađ skapa nýja ţjóđarsátt
Þetta sagði Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu í upphafi ávarps á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Margrét fjallaði um þær hindranir sem eru framundan og ryðja þarf úr vegi til að hefja nýja atvinnusókn. Hún ræddi um Evrópumálin, stuðning SVÞ við aðildarumsókn Íslands að ESB og gjaldmiðilsmál Íslendinga auk þess að ræða þau tækifæri sem hægt er að nýta til að efla land og þjóð.
26.9.2011
Framkvćmdastjóri ÍSTAKS: Dýrkeypt ađ gera ekki neitt
Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri ÍSTAKS, var á meðal frummælenda á opnum fundi SA um atvinnumál sem fram fór fyrr í dag. Kolbeinn sagði tekjur fyrirtækisins hér á landi hafi dregist mikið saman undanfarin ár og það væri til marks um erfiða stöðu á innanlandsmarkaði að það hafi ekki verið fyrr en í september sem fyrsti nýi innlendi verksamningur árins hafi verið undirritaður. ÍSTAK hefur brugðist við samdrættinum með því að leita verkefna á erlendum mörkuðum en Kolbeinn segir mikilvægt að hefja uppbyggingu innanlands og snúa þróuninni við. Atvinnuleysi sé að festast í sessi sem afleiðing af „það er öruggast að gera ekki neitt" stefnunni sem sé dýrkeypt.
26.9.2011
Varaformađur SA: Bćtum hag ţjóđarinnar međ ţví ađ kveđa niđur atvinnuleysiđ og skapa ný störf
Í dag eru rúmlega 11 þúsund manns án vinnu en með því að koma þeim til starfa er hægt að bæta hag ríkis og sveitarfélaga um 26 milljarða króna á ári. Atvinnuleysi 11 þúsund manna og kvenna kostar einnig launagreiðendur um 20 milljarða króna á ári en atvinnulífið fjármagnar atvinnuleysistryggingarsjóð. „Þessir fjármunir gætu nýst til nýsköpunar, vöruþróunar og fjárfestinga í fyrirtækjunum og til að bæta stöðu okkar á samkeppnismarkaði."
26.9.2011
Formađur SA: Samtök atvinnulífsins munu ekki hafa frumkvćđi ađ frekari samskiptum viđ ríkisstjórnina
Vilmundur Jósefsson, formaður SA setti fundinn og vék að samskiptum við aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórn Íslands. Hann sagði samskipti við verkalýðshreyfinguna hafa gengið vel en nú væri svo komið að hvorki væri hægt að taka mark á orðum ríkisstjórnarinnar né skriflegum yfirlýsingum en allt frá því ríkisstjórnin hafi verið mynduð hafi Samtök atvinnulífsins reynt að fá hana til samstarfs um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi, fjölga störfum og efla hagvöxt til að bæta lífskjörin í landinu.
26.9.2011
Fundur SA um atvinnumál hefst kl. 12 í Hörpu
Á fundi SA mun m.a. koma fram hægt væri að bæta þjóðarhag um 46 milljarða króna á ári með því að útrýma atvinnuleysinu en um 11 þúsund manns eru án vinnu. Atvinnuleysið kostar nú atvinnulífið 20 milljarða króna á ári en frá hruni hafa verið greiddir 70-80 milljarðar króna í atvinnuleysisbætur í gegnum atvinnuleysistryggingarsjóð.
24.9.2011
Ţorgerđur Katrín: Ţjóđin kjósi um ESB
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður, tók þátt í umræðum um hagvaxtarhorfur í Evrópu og möguleg áhrif á Ísland á fundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins sem fram fór föstudaginn 16. september sl. á Hótel Nordica. Þar sagði hún m.a. ástandið á evrópskum fjármálamörkuðum grafalvarlegt og spár sumra stórnmálamanna og sérfræðinga um mögulega framvindu hrollvekjandi. Þorgerður sagði sorglegt að fylgjast með umræðunni hér heima og erlendis þar sem ákveðnir aðilar hlakki yfir ástandinu vegna pólitískrar afstöðu til ESB. Það muni hins vegar allir tapa ef ekki takist að ná tökum á ástandinu og efnahagsumrótið í Evrópu snerti Ísland vissulega með beinum hætti.
23.9.2011
Skráning í fullum gangi á opinn fund SA um atvinnumál á mánudaginn
Samtök atvinnulífsins efna til opins umræðufundar um hvernig nýta megi sóknarfæri í atvinnulífinu, mánudaginn 26. september í Hörpu - Silfurbergi á 2. hæð. Fundurinn hefst kl. 12 og verður lokið ekki síðar en 13.30. Yfirskrift fundarins er Ryðjum hindrunum úr vegi - atvinnulíf í uppnámi. Skráning stendur nú yfir og ljóst að fundurinn verður vel sóttur.
Í síðasta mánuði spáði Seðlabanki Íslands 1,6% hagvexti á Íslandi á næsta ári. Í vikunni var svo greint frá lækkaðri hagvaxtarspá AGS fyrir heimsbúskapinn sem mun hafa neikvæð áhrif hér á landi. Þetta þýðir að áfram verður mikið atvinnuleysi á Íslandi og lök lífskjör nema brugðist verði við, hindrunum rutt úr vegi og ný atvinnusókn hafin.
23.9.2011
Már Guđmundsson: Lausafjárvandi en ekki greiđsluvandi í Evrópu
Már Guðmundsson seðlabankastjóri, tók þátt í umræðum um hagvaxtarhorfur í Evrópu á fundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins sem fram fór föstudaginn 16. september sl. á Hótel Nordica. Már fór vel yfir þá flóknu stöðu sem þjóðir Evrópu standa frammi fyrir en hann sagði það sitt mat að vandinn á evrópska bankamarkaðnum sé fyrst og fremst lausafjárvandi sem felist einkum í skorti á dollurum.
22.9.2011
Árni Oddur: Ísland verđi hluti af stóru myntbandalagi
21.9.2011
Framkvćmdastjóri BUSINESSEUROPE: Ísland velkomiđ í ESB
Phillippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUROPE ræddi um hagvaxtarhorfur í Evrópu, evruna og ESB á opnum morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins sl. föstudag. Hann fjallaði m.a. umsókn Íslands að ESB og sagði það að sjálfsögðu ákvörðun Íslendinga hvort þeir gangi inn en Ísland sé nú þegar mikilvægur þátttakandi á innri markaði Evrópu á fjölmörgum sviðum og hafi margt fram að færa, s.s. á sviði endurnýjanlegrar orku, sjávarútvegs, áliðnaðar og ferðaþjónustu.
21.9.2011
Nýsköpun lykillinn ađ öflugum hagvexti og bćttum lífskjörum
20.9.2011
Evran stađiđ fyrir sínu og verđur ekki kennt um kreppuna
16.9.2011
Framkvćmdastjóri BUSINESSEUROPE: Útflutningsdrifinn hagvöxtur og sköpun nýrra starfa lykilatriđi
Phillippe de Buck, framkvæmdastjóri BUSINESSEUOROPE (samtaka atvinnulífsins í Evrópu) flutti rétt í þessu erindi á opnum morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Þar ræddi hann um hagvaxtarhorfur í Evrópu, evruna, stöðu atvinnulífsins, og leiðir til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja í álfunni og bæta lífskjör. Ræða Philippe de Buck hefur nú verið birt á vef SA en þar lagði hann meðal annars mikla áherslu á útflutningsdrifinn hagvöxt og sköpun nýrra starfa í einkageiranum ásamt því að ná aukinni hagkvæmni og sjálfbærni í rekstri hins opinbera.
8.9.2011
Loforđakvóti ríkisstjórnarinnar búinn
„Að sjálfsögðu gagnrýna forystumenn ríkisstjórnarinnar alla þá sem þeim virðast ekki sjá ljósið en skilja ekki að þeim, sem vanist hafa myrkrinu, verður minnsta skíma að skínandi leiftri." Vilhjálmur segir loforðakvóta ríkisstjórnarinnar búinn en hún hafi enn svigrúm til að skapa skilyrði fyrir nauðsynlegar fjárfestingar, aukna atvinnu og bætt lífskjör.
8.9.2011
Kaupmáttur bóta hefur hćkkađ mun meira en kaupmáttur launa síđastliđinn áratug
8.9.2011
Söfnun vegna Grímsvatnagoss gengur vel - mikilvćgt framlag atvinnulífsins
8.9.2011
Fjárfesting í menntun skilar arđi
7.9.2011
Ráđstefna um fjármálalćsi föstudaginn 9. september
5.9.2011
Forsćtisráđuneytiđ klórar í bakkann
5.9.2011
Hvert stefnir Evrópa? Opinn fundur SA og SI föstudaginn 16. september á Nordica
Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins efna til opins morgunverðarfundar föstudaginn 16. september á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-10.00. Efni fundarins er staða atvinnulífsins í Evrópu og hagvaxtarhorfur ásamt mögulegum áhrifum á íslenskt efnahagslíf.
2.9.2011
Forsćtisráđherra fer rangt međ
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í ræðu á Alþingi í dag að hlutur launa í landsframleiðslu hafi aldrei verið lægri en nú eða um 59% samanborið við yfir 72% árið 2007. „Lækkunin svarar til 13% af landsframleiðslu sem farið hafa frá launþegum til fyrirtækja, í krónum talið um 200 milljarðar króna," sagði Jóhanna.
Þetta er ekki rétt. Umrædd hlutföll, 59% og 72%, eru af hugtakinu vergum þáttatekjum, ekki landsframleiðslu. Vergar þáttatekjur eru mun lægri fjárhæð en verg landsframleiðsla. Árið 2010 er landsframleiðslan áætluð 1.539,5 milljarðar króna en þáttatekjurnar 1.338,3 milljarðar króna. Mismunurinn á þessum tveimur hugtökum felst aðallega í óbeinum sköttum.
2.9.2011
Opinber útgjöld ađ frátöldum ellilífeyrisgreiđslum eru hvergi hćrri hlutfallslega en á Íslandi
Ísland er í hópi þeirra ríkja sem verja hvað mestu til almennrar opinberrar þjónustu, heilbrigðismála og menntamála. Ísland ver þriðja hæsta hlutfalli landsframleiðslu til almennrar opinberrar þjónustu, fjórða hæsta hlutfallinu til heilbrigðismála og hæsta hlutfallinu til menntamála.
2.9.2011
Er hćgt ađ losa gjaldeyrishöftin?
1.9.2011
SFF: Niđurfćrsla lána einstaklinga 143,9 milljarđar króna í 80 ţúsund málum
Lán heimila höfðu í lok júlí 2011 verið færð niður um 143,9 milljarða króna frá bankahruni. Þetta kemur fram í upplýsingum sem Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa aflað meðal aðildarfélaga sinna, hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Þar kemur einnig fram að rúmlega 87 þúsund lántakar hafa fengið eða leitað eftir niðurfærslu hjá fjármálafyrirtækjum, Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum á grunni 110% leiðar, sértækrar skuldaaðlögunar og endurútreiknings á gengistryggðum fasteignaveðlánum og bílalánum.
31.8.2011
Útflutningur tćknifyrirtćkja í sjávarklasanum vex á árinu 2011 - stöđnun á innanlandsmarkađi vegna óvissu
30.8.2011
Styrkir til vinnustađanáms
25.8.2011
Almenn viđhorfsbreyting nauđsynleg gegn svartri vinnu
24.8.2011
Sjávarútvegsfrumvarp stenst ekki stjórnarskrá og leiđir til fjöldagjaldţrota
Í umsögninni er bent á að verði frumvarpið að lögum muni sjávarútvegsfyrirtækin gjaldfæra samstundis allar eignfærðar aflaheimildir. Þetta mun lækka eigið fé greinarinnar um 180 milljarða króna og leiða til fjöldagjaldþrota í greininni. Einnig hefur frumvarpið þau áhrif að lækka mögulegar skatttekjur ríkissjóðs um marga milljarða króna.
23.8.2011
Samorka: 23% orkugetu í nýtingarflokk
Drög að þingsályktun um rammaáætlun sem kynnt voru á dögunum gera ráð fyrir að orkukostir sem skilað gætu um 13.900 gígavatt stundum (GWh) á ári fari í verndarflokk, 11.900 í nýtingarflokk og 11.000 í biðflokk. Mesta áætlaða orkuvinnslugetan er þó innan svæða sem hlotið hafa friðlýsingu, eða 15.100 GWh. Þetta kemur fram í umfjöllun Samorku en segja má að um 23% orkuvinnslugetunnar sem til umfjöllunar var í vinnu verkefnisstjórnar fari í nýtingarflokk. Verndarflokkurinn er stærstur.
17.8.2011
Vaxtahćkkun verđi dregin til baka
Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega 0,25% vaxtahækkun Seðlabankans og hvetja bankann til þess að draga hana til baka við næstu vaxtaákvörðun. Vaxtahækkunin gengur þvert á viðleitni til þess að auka fjárfestingar og hagvöxt í landinu og gerir það erfiðara að ná niður atvinnuleysi og bæta lífskjör almennings.
17.8.2011
Hćkkun stýrivaxta Seđlabankans óhugguleg
16.8.2011
Bréf SA til forsćtis- og fjármálaráđherra: Aukin skattheimta felur í sér uppgjöf
Samtök atvinnulífsins mótmæla áformum um skattahækkanir á stóriðju, sjávarútveg og banka vegna fjárlagagerðar fyrir árið 2012. Samtök atvinnulífsins telja áformin afar misráðin og benda á að allt kapp verði að leggja á að auka fjárfestingar og hagvöxt eins og stefnt var að við gerð kjarasamninga og fram kemur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí sl.
Þetta kemur fram í upphafi bréfs Samtaka atvinnulífsins til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra en lesa má bréfið í heild á vef SA.
11.8.2011
Skattar og opinber útgjöld eru há á Íslandi í alţjóđlegum samanburđi
Skattar eru mjög háir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði, hvort sem um er að ræða óbeina skatta, tekjuskatta eða eignarskatta. Í aðdraganda fjárlaga fyrir næsta ár og í ljósi vanda sem við er að etja í opinberum fjármálum er enn farið að ræða um skattahækkanir. Sem fyrr er stefnt að því að fara svokallaða blandaða leið skattahækkana og lækkunar útgjalda. Því er jafnframt haldið fram að skattar séu ekki sérstaklega háir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði, einkum í samanburði við hin Norðurlöndin, og því sé fyrir hendi svigrúm til skattahækkana.
Í skýrslu AGS um íslenska skattkerfið, sem gefin var út í júní 2010, kemur fram að Ísland er háskattaríki og bentu skattasérfræðingar AGS á að fara þyrfti mjög varlega í aukna tekjuöflun því annars gæti íslenskt efnahagslífið orðið fyrir alvarlegum skaða. Ísland var í 4.-5. sæti með Noregi yfir hæstu skatthlutföll þjóða heimsins árið 2009, þegar skattar sem renna til lífeyristrygginga eru dregnir frá, en nýlegar skattahækkanir hafa fest landið enn frekar í sessi sem eitt af háskattalöndum heimsins. Þetta kemur m.a. fram í nýrri umfjöllun hagdeildar SA um skatta á Íslandi í alþjóðlegum samanburði.
11.8.2011
Lögfesting á greiđsluskyldu launagreiđenda til VIRK - Starfsendurhćfingarsjóđs frá og međ september 2011
9.8.2011
Tími skattahćkkana er liđinn
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir tíma skattahækkana í landinu liðinn og SA muni berjast gegn frekari skattahækkunum. Þetta kemur fram á mbl.is en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fullyrti að rætt hafi verið innan ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á matvæli til að vinna á hallanum á rekstri ríkissjóðs.
8.8.2011
Án hagvaxtar verđur atvinnuleysiđ áfram mikiđ
14.7.2011
Nýjasta tćkni og vísindi nauđsynleg atvinnulífinu
13.7.2011
Ban Ki-moon hvetur fyrirtćki til ađ skrifa undir Global Compact
11.7.2011
Ţörf á varanlegum hagvexti
9.7.2011
Formađur SA: Ađ breyta dođa í dug
7.7.2011
Ađhald Seđlabankans ađ hverju?
Áform í peningastefnunefnd Seðlabankans um hækkun vaxta valda áhyggjum. Þau áform geta ekki valdið heimilum og fyrirtækjum öðru en skaða. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs SA. Hann segir vissulega tilefni til að hafa áhyggjur af verðlagsþróun undanfarið en verðbólgan muni hjaðna á ný. Bent hefur verið á að verðbólgan er að mestu leyti innflutt og að hækkun vaxta við núverandi aðstæður muni magna skuldakreppu Íslendinga og fjölga gjaldþrotum.
Hannes segir vexti Seðlabankans bíta nú sem aldrei fyrr. Í ljósi þess mikla slaka sem er í efnahagslífinu og birtist í stöðnun einkaneyslu, fjárfestingum í sögulegu lágmarki, samdrætti opinberra umsvifa, fjöldaatvinnuleysi og fjöldagjaldþrotum séu margir forviða yfir áformum í Seðlabankanum um aukið aðhald með hækkun stýrivaxta.
7.7.2011
Vaxtahćkkun skađar efnahagslífiđ
Undanfarna 5 mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,4% eða álíka mikið og 17 mánuði þar á undan. Á sama tíma hefur gengisvísitalan hækkað um 4,3%. Það er því ekki að ástæðulausu að fari fram umræða um hvernig sporna megi við áframhaldandi vexti verðbólgu og verðbólguvæntinga. Að mati SA skiptir mestu að grípa nú þegar til ráðstafana í ríksfjármálum sem tryggi jákvæðan frumjöfnuð á árinu 2011 og að hvatt verði til fjárfestinga á öllum sviðum efnahagsstarfseminnar.
7.7.2011
Hagvaxtarhorfur nćstu misseri: Vöxtur hvílir á sjávarútvegi og auknum fjárfestingum
Miðað við horfur í einkaneyslu og fjárfestingu er líklegt að magn og verðmæti sjávarafurða muni gera útslagið um hvort og þá hversu mikill vöxtur verði í íslensku efnahagslífi á næstu misserum. Það skýtur því skökku við að á sama tíma gangi stjórnvöld fram fyrir skjöldu og leggi til breytingar á stjórn fiskveiða sem draga verulega úr rekstrarhagkvæmni fyrirtækja í sjávarútvegi og leiða til minnkandi verðmætis sjávarfangs. Slík stefna gengur þvert á markmið nýgerðra kjarasamninga um styrkingu gengis krónunnar, hjaðnandi verðbólgu og aukinn kaupmátt launa. Þetta kemur m.a. fram í umfjöllun hagdeildar SA um hagvaxtarhorfur.
7.7.2011
Vinnustađaskírteini ná til fleiri atvinnugreina
6.7.2011
Formađur Mannvirkis: Ein brú verđi bođin út
4.7.2011
Formađur SI: Hugsum stórt
„Þjóð sem hefur efni á að greiða 80 milljarða í atvinnuleysisbætur á 3 árum, hlýtur frekar að hafa efni á að greiða milljarðatugi í atvinnuskapandi, arðbær og uppbyggileg verkefni. Þessari skoðun hreyfði fyrrverandi samgönguráðherra, Kristján Möller, á einkar vel heppnuðum morgunfundi Samtaka atvinnulífsins þann 29. júní sl. um stórframkvæmdir í samgöngum á Íslandi." Þetta segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins (SI) m.a. í grein í Morgunblaðinu í dag.
29.6.2011
Fjárfestum í samgöngum: Samantekt frá fundi SA
29.6.2011
Framkvćmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Suđurlandi: 120 milljarđa í samgönguátak
29.6.2011
Formađur iđnađarnefndar Alţingis: Aukinn hagvöxtur eina leiđin út úr kreppunni. Ekki eftir neinu ađ bíđa
Kristján Möller, alþingismaður og formaður iðnaðarnefndar Alþingis, var meðal frummælenda á opnum fundi SA um samgöngumál sem fram fór í morgun. Kristján sagði að aðgerða væri þörf til að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi. Í stöðunni væru tveir kostir, að efna til ca. 40 milljarða króna flýtiframkvæmda á umferðaræðunum að og frá höfuðborgarsvæðinu sem stæðu yfir í fjögur ár, og yrðu fjármagnaðar með lánum sem endurgreidd yrðu með notendagjöldum, eða fara hefðbundna leið ríkisframkvæmda sem tæki 15-25 ár. Lagði hann áherslu á hagvöxt og fjárfestingar sem skiluðu auknum útflutningi.
29.6.2011
Framkvćmdastjóri SI: Nú er tćkifćri ađ auka öryggi á vegum og efla hagvöxt
29.6.2011
Formađur SVŢ: Mikilvćgt ađ ná samstöđu um brýnar samgönguframkvćmdir
28.6.2011
Samgöngufundur SA í fyrramáliđ - skráning á sa.is
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar í fyrramálið um samgöngumál, miðvikudaginn 29. júní, kl. 8.30 - 10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að ráðast nú þegar í arðbærar samgöngufjárfestingar til að auka öryggi, fjölga störfum og efla hagvöxt. Frummælendur er Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Kristján Möller, alþingismaður og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
28.6.2011
Formađur SA: Ađ standa vörđ um atvinnuleysiđ
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, skrifar grein í Morgunblaðið sl. laugardag þar sem hann furðar sig á því að Samtök atvinnulífsins hvetji til þess að ráðist verði í umfangsmiklar samgöngubætur á Suðvesturlandi. Reyndar hefur ríkisstjórnin bæði 2009 og nú aftur 2011 gefið yfirýsingu um að reyna skuli til þrautar að ráðast í þessar framkvæmdir. Og Alþingi hefur að auki heimilað ráðherra samgöngumála að stofna félag um framkvæmdirnar.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana í maí kemur fram eindreginn vilji til að auka fjárfestingar í landinu og að þær séu besta leiðin til að efla hagvöxt og um leið draga úr atvinnuleysi og leggja grunn að því að lífskjör fólks geti batnað.
27.6.2011
Fjárfestum í samgöngum - opinn fundur SA miđvikudaginn 29. júní
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um samgöngumál miðvikudaginn 29. júní kl. 8.30 - 10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að ráðast nú þegar í arðbærar samgöngufjárfestingar til að auka öryggi, fjölga störfum og efla hagvöxt. Frummælendur er Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Kristján Möller, alþingismaður og Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
24.6.2011
Atvinnuleiđin forsenda árangurs í ríkisfjármálum
23.6.2011
Innanríkisráđherra á móti eigin yfirlýsingu
22.6.2011
Stjórnendur 400 stćrstu fyrirtćkjanna: Flestir telja ađstćđur slćmar
Mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar samkvæmt reglubundinni könnun Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í maí og júní 2011, telja 78% stjórnenda aðstæður slæmar, 21% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar. Þetta er nánast sama niðurstaða og fékkst í mars síðastliðunum þegar 79% stjórnenda töldu aðstæður slæmar.
21.6.2011
Samtök atvinnulífsins sýna ábyrgđ og stađfesta kjarasamninga ţrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnar Íslands
SA telja að atvinnuleiðin sé eina færa leiðin fyrir þjóðina út úr kreppunni og stöðugleika á vinnumarkaði nauðsynlegan til þess að hægt sé að bæta lífskjör og minnka atvinnuleysi.
Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram fjárfestingar- og hagvaxtaráætlun, sem liggja átti fyrir í lok maí, en fjárfestingar eru lykilforsenda þess að hér náist 4-5% hagvöxtur á árunum 2012 og 2013.
Sérfræðinefnd ríkisstjórnarinnar gaf stefnu hennar í sjávarútvegsmálum falleinkunn og sama hefur OECD gert. SA krefjast þess að ríkisstjórnin standi við eigin yfirlýsingar um raunverulega sátt um hagkvæman sjávarútveg.
Samtök atvinnulífsins vinna að því að tryggja hag alls atvinnulífsins og þjóðarinnar. Tækju samningarnir ekki gildi 22. júní hefði það mikla röskun og óvissu í för með sér. Samtök atvinnulífsins telja slíka ákvörðun ekki réttlætanlega þrátt fyrir vanefndir ríkisstjórnarinnar.
Atvinnuleiðin og hagvöxtur eru forsendur þess að atvinnulífið rísi undir kjarasamningunum og að unnt verði að auka kaupmátt fólks á næstu árum.
20.6.2011
Atvinnulífiđ veitir 200 milljónum til HR
20.6.2011
Leggur ţú ţitt af mörkum?
Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Ríkisskattstjóri skrifuðu undir samkomulag þann 14. júní um sérstakt tímabundið átak til að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli. Samkomulagið byggir á yfirlýsingu sem gerð var samhliða undirritun kjarasamninga 5. maí sl. Átakið er undir yfirskriftinni Leggur þú þitt af mörkum? Athyglinni verður beint sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum séu skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni.
13.6.2011
Virkur vinnustađur - ţróunarverkefni í samstarfi viđ fyrirtćki og stofnanir
1.6.2011
Ný kaupgjaldsskrá er komin á vef SA
1.6.2011
Á skjön viđ gefin loforđ
1.6.2011
Íslenski sjávarklasinn máttarstólpi íslensks efnahagslífs
31.5.2011
Fyrirtćkjasöfnun vegna Grímsvatnagoss 2011 gengur vel
30.5.2011
14.101 án vinnu í lok apríl
27.5.2011
Álag á orlofsuppbót ekki til greiđslu um mánađamótin
Kjarasamningar sem SA skrifuðu undir við ASÍ og flest landssambönd þess þann 5. maí sl. hafa nú verið samþykktir af samningsaðilum. Launafólk sem samningarnir ná til fá því sérstaka eingreiðslu kr. 50.000 um mánaðamótin. Eingreiðslan miðast við fullt starf á tímabilinu 1. mars til 31. maí og er hugsuð sem uppbót fyrir þá frestun sem varð á gildistöku nýrra kjarasamninga. Á vinnumarkaðsvef SA geta aðildarfyrirtæki SA nálgast ítarlegar upplýsingar um launaútreikninga vegna eingreiðslunnar.
Rétt er að taka fram að ekki kemur í ljós fyrr en 22. júní hvort 10 þúsund króna álag verður greitt á orlofsuppbót 2011 en það ræðst af því hvort forsendur fyrir þriggja ára samningi halda eða ekki.
25.5.2011
Fyrirtćkjasöfnun vegna Grímsvatnagoss 2011
24.5.2011
Fundur um endurnýjanlega orku fyrir samgöngur
20.5.2011
Frumvörp sjávarútvegsráđherra ávísun á áralangar deilur og skađa fyrir ţjóđfélagiđ
Frumvarpsdrög sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða ganga þvert á ítrekaðar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði til langs tíma. Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin til samráðs og samvinnu við ráðherra þannig að unnt verði að ná sátt um rekstrargrunn þessarar mikilvægu atvinnugreinar.
Ljóst er að frumvarpsdrögin geta ekki orðið grundvöllur að sátt. Þau munu kalla fram áframhaldandi deilur og átök á komandi árum og verða tilefni stöðugra breytinga á fiskveiðistjórninni. Þessi átök geta ekki leitt til neins annars en þess að afkoma sjávarútvegsins verður verri en ella og um leið rýra þau hag fyrirtækjanna, fólksins sem hjá þeim starfar, þjónustuaðila, sveitarfélaga og um leið þjóðarinnar allrar.
19.5.2011
Íslendingar fari atvinnuleiđina út úr kreppunni
Hagsmunir allra Íslendinga eru miklir af því að fara atvinnuleiðina út úr kreppunni en margt þarf að ganga upp til þess að það gerist. Kjarasamningarnir sem slíkir með fyrirsjáanleika á vinnumarkaði fram á árið 2014 eru mikilvægt framlag til atvinnuleiðarinnar og vegferðarinnar út úr kreppunni. Kjarasamningarnir setja vissulega byrðar á atvinnulífið en atvinnuleiðin er fær og í raun eina skynsamlega leiðin fyrir land og þjóð. Því hljóta allir sem ábyrgð hafa að þurfa að leggja sig fram um að tryggja að atvinnuleiðin verði farin. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna sem kemur út í dag.
19.5.2011
50.000 kr. eingreiđsla til launafólks
Verði nýir kjarasamningar samþykktir fær launafólk sem samningarnir ná til sérstaka eingreiðslu kr. 50.000. Eingreiðslan miðast við fullt starf á tímabilinu 1. mars til 31. maí og er hugsuð sem uppbót fyrir þá frestun sem varð á gildistöku nýrra kjarasamninga. Á vinnumarkaðsvef SA geta aðildarfyrirtæki SA nálgast ítarlegar upplýsingar um eingreiðsluna vegna launaútreikninga.
19.5.2011
Sýnum fjölbreytni í forystu
Alþjóðaráðstefna Félags kvenna í atvinnurekstri, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands fór fram á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 13. maí. Ráðstefnan var liður í verkefni sem hófst með samstarfssamningi árið 2009 milli SA, Viðskiptaráðs, FKA, Creditinfo og fulltrúa allra stjórnmálaflokka um að auka hlutdeild kvenna í viðskiptalífinu. Fram kom á ráðstefnunni að konur eru enn í miklum minnihluta stjórnarmanna, þó stærstu fyrirtækin hafi aukið hlut þeirra síðustu árin.
19.5.2011
Sumarvinnuverđlaun stúdenta og SA
18.5.2011
Um forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkađi
Samtök atvinnulífsins vilja í ljósi umræðu í fjölmiðlum um nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði taka fram að SA geta ekki rift samningunum einhliða fyrir 22. júní næstkomandi. Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamninga til þriggja ára við ASÍ og flest aðildarsamtök þess þann 5. maí. Margir fyrirvarar eru í samningunum sem verður að uppfylla til að þeir haldi til þriggja ára.
Gerður var sérstakur aðfararsamningur sem framlengdi alla kjarasamninga aðila til 22. júní. Til þess tíma hefur ríkisstjórn Íslands frest til að efna tiltekin mál í samræmi við yfirlýsingu sem gefin var út í tengslum við samningana. Forsendur þess að samningar haldi til þriggja ára eru að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum.
18.5.2011
SA gera kjarasamning viđ Verkstjórasamband Íslands
Samtök atvinnulífsins og Verkstjórasamband Íslands (VSSÍ) hafa skrifað undir nýjan kjarasamning. Um er að ræða sambærilegan samning og SA gerðu við ASÍ og aðildarsambönd þess þann 5. maí sl.
17.5.2011
Samtök atvinnulífsins samţykkja nýja kjarasamninga
17.5.2011
Ríkisstjórnin standi viđ gefin fyrirheit í sjávarútvegsmálum
16.5.2011
SA gera kjarasamning viđ SSF
Samtök atvinnulífsins og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) skrifuðu í morgun undir nýjan kjarasamning. Um er að ræða sambærilegan samning og SA gerðu við ASÍ og aðildarsambönd þess þann 5. maí sl.
16.5.2011
Endurskipulagning skulda fyrirtćkja hefur gengiđ of hćgt
14.5.2011
SA semja viđ Verkalýđsfélag Akraness
Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamning við Verkalýðsfélag Akraness föstudaginn 13. maí hjá ríkissáttasemjara. Samningurinn tekur sömu breytingum og um var samið 5. maí við Starfsgreinasamband Íslands.
12.5.2011
SA semja viđ Framsýn og Verkalýđsfélag Ţórshafnar
Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir kjarasamning við Framsýn og Verkalýðsfélag Þórshafnar síðdegis á þriðjudag hjá ríkissáttasemjara. Samningar félaganna taka sömu breytingum og um var samið 5. maí við Starfsgreinasamband Íslands.
9.5.2011
Kynningarfundur fyrir félagsmenn SA um nýja kjarasamninga
6.5.2011
Formađur SA: Hlutverk ríkisstjórnarinnar ađ koma hagkerfinu af stađ
5.5.2011
Skrifađ undir kjarasamninga til ţriggja ára: Blásiđ til sóknar í atvinnumálum
Samtök atvinnulífsins hafa skrifað undir nýja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði til þriggja ára við Alþýðusamband Íslands og landssambönd þess. Samningarnir fela í sér umtalsverðar launahækkanir, mun meiri en í samkeppnislöndum Íslands. Laun hækka mest á fyrsta ári samninganna en þeir byggja á þeirri sýn að hagur fólks og fyrirtækja batni með aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu og atvinnuleysi minnki. Án uppsveiflu í atvinnulífinu eru samningarnir hins vegar ávísun á verðbólgu og aukið atvinnuleysi. Aðildarfyrirtæki SA munu kjósa um gildistöku samninganna í rafrænni atkvæðagreiðslu.
5.5.2011
Virkjum karla og konur til athafna 13. maí
3.5.2011
Aftur sest ađ samningaborđinu
29.4.2011
Yfirlýsing framkvćmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins
Undanfarna mánuði hafa Samtök atvinnulífsins og ASÍ og landssambönd þess unnið að gerð þriggja ára kjarasamnings sem byggir á atvinnuleiðinni. Með henni er sköpuð ákveðin framtíðarsýn þar sem áherslan er lögð á hagvöxt, öruggt og tryggt starfsumhverfi fyrir allar atvinnugreinar, aukningu kaupmáttar og að draga úr atvinnuleysi. Til þess að ná þessu fram var aðkoma ríkisstjórnarinnar nauðsynleg.
Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið og hafa því ákveðið að láta reyna á vilja ASÍ og landssambandanna til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings með aðfarasamningi til 15. júní nk. Þetta kemur m.a. fram í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar SA sem kynnt var í morgu. Yfirlýsinguna í heild má lesa á vef SA.
28.4.2011
Atvinnuleysiđ minnkar ef atvinnuleiđin verđur farin
28.4.2011
Reynt til ţrautar ađ gera kjarasamninga til ţriggja ára
Í samtali við fréttastofu RÚV segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, að þeir kjarasamningur sem liggi fyrir í drögum séu mjög dýrir fyrir atvinnulífið. Það sé á mörkunum að fyrirtækin geti staðið við svona miklar launahækkanir nema útlit sé fyrir aukin umsvif og vöxt í efnahagslífinu þannig að Ísland komist út úr kreppunni. Vilmundur segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að reynt verði til þrautar að gera kjarasamninga til þriggja ára áður en skammtímasamningar verði skoðaðir.
26.4.2011
Yfirlýsing framkvćmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins
26.4.2011
Samtök atvinnulífsins skipa sjálf eigin nefndir
„Atvinnurekendur hafa aldrei gert athugasemdir við hverjir skipi samninganefndir stéttarfélaga. Ég vænti því að fulltrúar launamanna séu ekki með slíka íhlutun í okkar mál," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands krafðist þess í fréttum RÚV í gærkvöldi að fulltrúar LÍÚ vikju frá samningaborði aðila vinnumarkaðarins.
26.4.2011
Ekki forsendur fyrir eins árs kjarasamningi
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, útilokar að gengið verði að tilboði Starfsgreinasambandsins um kjarasamning til eins árs og hækkun lágmarkslauna í tvö hundruð þúsund krónur. Vilhjálmur segir að ekki sé hægt að taka tölur úr þriggja ára samningum sem rætt hefur verið um að gera og setja í samning til eins árs án þess að atvinnuleiðin verði farin. Til þess að geta réttlætt þessar launahækkanir verði að tryggja meiri fjárfestingar og hagvöxt en spár gera ráð fyrir.
20.4.2011
Atvinnuleiđin er besti kosturinn
„Skammtímasamningur strandar á því að SA vilja að í honum felist að aðilar vinni áfram saman að atvinnuleiðinni meðan Alþýðusambandið vill að með honum sé ákveðið að hefja nýjar deilur og setja framhaldið á vinnumarkaðnum í enn meiri óvissu. Merkilegt er að hvorki í viðræðum um atvinnuleiðina né um skammtímasamkomulag strandaði svo teljandi væri á launatölum."
20.4.2011
Arđbćrar vegaframkvćmdir eru nauđsynlegar
20.4.2011
Kjarasamningur viđ verk- og tćknifrćđinga samţykktur
Kjarasamningur SA við stéttarfélög verk-, tækni-, bygginga- og tölvunarfræðinga var samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal aðildarfyrirtækja SA. Samningurinn gildir frá 1. apríl og nær hann til félagsmanna í SV, KTFÍ, SFB og ST sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA.
20.4.2011
Hvađ hefđi Jón forseti sagt um atvinnulífiđ?
19.4.2011
Nýr kjarasamningur SA og verkalýđsfélaganna vegna Elkem
19.4.2011
Atvinnulífiđ fjárfestir til ađ minnka atvinnuleysi
19.4.2011
Best fyrir ţjóđina ađ fara atvinnuleiđina
19.4.2011
Reyndir stjórnmálamenn leggi grunn ađ sátt um stjórn fiskveiđa
17.4.2011
Vonast til ađ kjaraviđrćđur hefjist á ný eftir páska
16.4.2011
Yfirlýsing SA: Vilja stríđ ţegar friđur er í bođi
16.4.2011
ASÍ hafnar 100 ţúsund krónum til launţega
Í dag varð ljóst að ekki tækist að gera kjarasamning til langs tíma á almennum vinnumarkaði. SA buðu því ASÍ að gera kjarasamning til skemmri tíma sem fylgdi 50 þúsund króna eingreiðsla til launþega í byrjun maí með möguleika á þremur 16.700 króna greiðslum til viðbótar í lok júní, júlí og ágúst, samtals kr. 50 þúsund.
SA lögðu fram tillögu til umræðu um sameiginlegan rökstuðning fyrir skammtímasamningi og buðu jafnframt að ASÍ legðu fram eigin tillögu ef ekki væri falllist á tillögu SA. Því var hafnað og hurfu fulltrúar ASÍ af vettvangi úr Karphúsinu rétt fyrir miðnætti.
15.4.2011
Sáttatillaga SA í sjávarútvegsmálum felur í sér viđamiklar breytingar
Sáttatillögur SA má nú lesa á vef SA ásamt tillögum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur en það er mat samtakanna að ekki sé hægt að skilja sjávarútveginn eftir í óvissu um framtíðina. Á Íslandi er rekinn öflugur, sjálfbær og arðbær sjávarútvegur og mikilvægt að tryggja að svo verði áfram þannig að atvinnugreinin geti áfram lagt sem mest til samfélagsins.
15.4.2011
Horfđu og hlustađu: Fjórir stjórnendur segja atvinnuleiđin fćra
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2011 fór fram á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 7. apríl undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin út úr kreppunni. Um 400 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi mættu til fundarins en þar fjölluðu m.a. fjórir öflugir stjórnendur um mikilvægi þess að atvinnuleiðin verði farin á Íslandi.
Jóhann Jónasson, framkvæmdastjóri 3X Technology, Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, Guðmundur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri EFLU verkfræðistofu og Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, stjórnarformaður Íslenskra fjallaleiðsögumanna horfðu til framtíðar og sýndu fram á þau fjölmörgu tækifæri sem eru til staðar ef atvinnulífið fær að blómstra. Hægt er að horfa á erindi þeirra hér á vef SA.
14.4.2011
Kjarasamningar í höndum ríkisstjórnarinnar
13.4.2011
Kemur ríkisstjórnin Íslandi í gang?
Það besta sem gæti komið fyrir Ísland væri að gerðir yrðu kjarasamningar til þriggja ára og ríkisstjórnin tæki alvöru ákvarðanir um að setja Ísland í gang. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld. Ljóst er að senn dregur til tíðinda í yfirstandandi kjaraviðræðum en samninganefndir SA og ASÍ hittast hjá ríkissáttasemjara í dag. Þar mun ráðast hvort hægt verði að gera kjarasamninga til þriggja ára en bæði SA og ASÍ hafa hafa lýst því yfir að aðkoma ríkisins að slíkum samningum sé nauðsynleg.
12.4.2011
Bendum á ţađ sem vel er gert og ţađ sem ţarf ađ bćta
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, skrifar í dag grein í Fréttablaðið vegna gagnrýni forseta Íslands á forsvarsmenn íslensks atvinnulífs. Helgi mótmælir því að samtök í atvinnulífinu séu að tala atvinnulífið niður og minnir t.d. á átakið Ár nýsköpunar sem SI hafa staðið fyrir síðan í október sl. „Við teljum það hins vegar skyldu okkar að minna á það sem hamlar gegn endurreisn þjóðfélagsins og kemur í veg fyrir bætt kjör fólks og fyrirtækja vegna ómarkvissrar efnahagsstefnu og rangra ákvarðana. Við teljum ástæðulaust að breiða yfir það sem er að," segir Helgi m.a. í grein sinni.
12.4.2011
Atvinnuleiđin út úr kreppunni er enn fćr
11.4.2011
Yfirlýsing stjórnar Samtaka atvinnulífsins
8.4.2011
Ţetta ţarf ekki ađ vera svona
Það er löngu tímabært að bregðast við og breyta hlutunum. 15 þúsund eru án vinnu, þriðja hvert heimili hefur orðið fyrir barðinu á atvinnuleysi frá hruni, langtímaatvinnuleysi hefur fjórfaldast milli ára og þúsundir hafa flúið land - okkar besta fólk er að fara. Þetta þarf ekki að vera svona. Með því að fara atvinnuleiðina og hleypa fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum af stað getur rofað skyndilega til. Atvinnuleiðin er fær eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi SA. Horfðu á atvinnuleiðina.
8.4.2011
Sjávarútvegsfyrirtćki nýti fiskveiđiheimildir til veiđa
8.4.2011
Samţykkt Icesave er liđur í endurreisninni
„Samtök atvinnulífsins álíta mikilvægt að Icesave-samkomulagið frá því í desember síðastliðnum verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn og telja hagsmunum atvinnulífsins og alls samfélagsins best borgið með því að ljúka málinu. Menn geta hér á landi verið ósammála alþjóðlegu matsfyrirtækjunum um neikvæð áhrif þess að Icesave-samningurinn verði felldur, á sama hátt og menn voru ósammála umfjöllun Danske Bank um íslenska bankakerfið fyrir nokkrum árum.
Það breytir því ekki að á þessi fyrirtæki er hlustað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og áhrif mats þeirra eru mikil. Samþykkt Icesave-laganna styrkir forsendur kjarasamninganna um hagvöxt, framkvæmdir og fjárfestingar. Það er einn þáttur í endurreisn hagkerfisins og liður í því að opna atvinnulífinu aðgang að innlendu og erlendu lánsfé á viðráðanlegum kjörum og unnt verður að afnema gjaldeyrishöftin hraðar en ella."
8.4.2011
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins 2011-2012
8.4.2011
Góđ samvinna stjórnvalda og atvinnulífs lykilatriđi
7.4.2011
Rćđa formanns SA á ađalfundi samtakanna 2011
Vilmundur Jósefsson, formaður SA, lauk rétt í þessu ávarpi sínu á aðalfundi SA sem nú stendur yfir. Vilmundur kom víða við í ræðu sinni, ræddi m.a. stöðu kjaraviðræðna, nauðsynlegan viðsnúning í efnahagslífinu og samskiptin við stjórnvöld. Vilmundur sagði aðeins eina leið vera færa út úr kreppunni, en það væri atvinnuleiðin, með kröftugri uppbyggingu atvinnulífsins.Aðeins þannig mætti skjóta styrkum stoðum undir velferðarkerfið og koma í veg fyrir aukinn hallarekstur ríkissjóðs og frekari niðurskurð á opinberri þjónustu.
7.4.2011
Vilmundur Jósefsson formađur Samtaka atvinnulífsins 2011-2012
7.4.2011
Opin dagskrá ađalfundar SA hefst kl. 14
Um 400 stjórnendur úr íslensku atvinnulífi hafa boðað komu sína á opna dagskrá aðalfundar Samtaka atvinnulífsins sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag fimmtudaginn 7. apríl. Yfirskrift fundarins er Atvinnuleiðin út úr kreppunni og er ljóst af áhuganum að það er ríkur vilji atvinnulífsins að beina sjónum að framtíðinni. Opin dagskrá hefst stundvíslega kl. 14.00 með ávarpi Vilmundar Jósefssonar, formanns SA og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.
7.4.2011
Kosningu formanns SA lýkur kl. 12
Rafrænni kosningu formanns Samtaka atvinnulífsins lýkur í dag kl. 12 fimmtudaginn 7. apríl. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Úrslit verða kynnt á aðalfundi SA sem fram fer í dag á Hótel Nordica kl. 13-16 undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin út úr kreppunni. Opin dagskrá hefst kl. 14 og stendur skráning yfir á vef SA.
6.4.2011
Mikill áhugi á ađalfundi SA
5.4.2011
Sáttatillaga SA í sjávarútvegsmálum felur í sér viđamiklar breytingar
4.4.2011
Icesave já eđa nei: Áhrif á efnahagsţróun
4.4.2011
Hvers vegna flýja fyrirtćki Ísland?
4.4.2011
Kosningu formanns SA lýkur á hádegi á fimmtudaginn
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni en henni lýkur kl. 12 fimmtudaginn 7. apríl. Aðalfundur SA fer fram á Hótel Nordica kl. 13-16 sama dag undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin út úr kreppunni. Opin dagskrá hefst kl. 14 og stendur skráning yfir á vef SA.
4.4.2011
Berjast fyrir ţví ađ atvinnuleiđin verđi farin
3.4.2011
Kjaraviđrćđur halda áfram
3.4.2011
Ríkiđ getur aukiđ tekjur sínar um einn milljarđ á mánuđi
Ef ráðist verður nú þegar í þau stóru atvinnuverkefni sem liggja á borðinu,t.d. byggingu álvers í Helguvík, gæti ríkið aukið tekjur sínar um einn milljarð á mánuði. Þetta kom fram í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, um stöðu atvinnulífsins og yfirstandandi kjaraviðræður. Sagði Vilhjálmur m.a. að SA vilji fara atvinnuleiðina út úr kreppunni, með áherslu á sköpun starfa og auka fjárfestingu í atvinnulífinu sem sé orðin hættulega lítil. Benti Vilhjálmur á að ef fjárfestingin aukist ekki muni allt drabbast hér niður og Ísland dragast aftur úr öðrum þjóðum.
1.4.2011
Sendu okkur mynd af atvinnulífinu ţínu!
1.4.2011
Viđrćđur halda áfram í dag
30.3.2011
Beđiđ eftir ađgerđum ríkisstjórnarinnar
29.3.2011
Ţolinmćđi ađila vinnumarkađarins á ţrotum - fundur međ ríkisstjórn á morgun
Kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði eru nú í biðstöðu. Samtök atvinnulífsins greindu ríkisstjórn Íslands frá því í gærkvöld að ekki yrði hafin lokaatlaga að því að ljúka kjarasamningum í vikunni eins og til stóð þar sem svo mörg stór mál standi út af í viðræðum við ríkisstjórnina að slíkt væri ekki mögulegt. Þolinmæði aðila vinnumarkaðarins er nú á þrotum og kalla bæði SA og ASÍ eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar. SA og ASÍ funda með ríkisstjórninni á morgun til að meta næstu skref.
29.3.2011
Boltinn er hjá stjórnvöldum
29.3.2011
Umhverfisráđherra fer rangt međ
Umhverfisráðherra hefur á Alþingi og víðar kvartað yfir því að Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins sýni ekki nægan metnað í umhverfismálum fyrir hönd fyrirtækja landsins. Þessi staðhæfing ráðherra er röng. Samtökin hafa lagt áherslu á að hér gildi sambærilegar reglur og rekstrarskilyrði og hjá öðrum Evrópuþjóðum og hafa hvatt fyrirtækin til að sýna fulla ábyrgð í umhverfismálum.
28.3.2011
Sjáumst á ađalfundi Samtaka atvinnulífsins 7. apríl 2011
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 7. apríl kl. 13-16 undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin út úr kreppunni. Opin dagskrá hefst kl. 14 með ræðu Vilmundar Jósefssonar, formanns SA, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra.
28.3.2011
Kosning formanns SA stendur yfir
28.3.2011
Metnađarlítil áćtlun um afnám gjaldeyrishafta
„Þessi metnaðarlitla áætlun slær mig illa. Gjaldeyrishöftin eru skaðleg nútímafyrirtækjum og svo lengi sem þau gilda eru starfsskilyrði atvinnulífsins lík því sem var fyrir fjöldamörgum árum," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Morgunblaðið. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði á föstudag að stefnt væri að því að afnema gjaldeyrishöft árið 2015. Ráðherrann mun leggja fram tillögu á Alþingi í næstu viku til þess að fá heimild til að fá að framlengja höftin til 2015.
26.3.2011
Icelandair ţjónustufyrirtćki ársins 2011
Icelandair var valið besta þjónustufyrirtæki ársins 2011 á þjónusturáðstefnu SA og SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu sem fram fór í gær. „Þjónustuvitund, stefnumótandi þjónustustefna, viðbragðsflýtir og sveigjanleiki gagnvart utanaðkomandi rekstrarþáttum s.s. krísum og vel skilgreind þjónustukeðja eru helstu ástæður þess að Icelandair varð fyrir valinu," segir í umsögn valnefndar.
25.3.2011
Ályktun ađalfundar SAF
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á aðalfundi SAF sem fram fór í Hofi á Akureyri í gær: „Heildarumsvif ferðaþjónustunnar hafa aldrei verið meiri og voru við síðustu mælingar 209 milljarðar króna. Ferðaþjónustan er á sama tíma burðarás í gjaldeyrissköpun sem nú mælist u.þ.b. 20% af heildargjaldeyrissköpun þjóðarinnar. Það skiptir því miklu að hlúa að rekstrarumhverfi hennar svo hún geti í framtíðinni orðið enn verðmætari og þar liggja stærstu tækifærin í aukinni vetrarferðaþjónustu.
25.3.2011
Hvađ hefđi Jón forseti sagt um ESB og Icesave?
Samtök atvinnulífsins efna til málþings í dag í Hofi á Akureyri um Jón forseta og sýn hans atvinnulífið. Hvað hefði Jón t.d. ráðlagt Íslendingum að gera varðandi ESB og Icesave? Hvað geta leiðtogar samtímans lært af Jóni? Hver er staða okkar í dag í ljósi baráttu Jóns fyrir fullveldi og viðskiptafrelsi? Hvaða hugmyndir og áhrif hafði Jón á atvinnuuppbyggingu? Þetta eru allt spurningar sem leitað verður svara við í dag. Málþingið er öllum opið en það hefst kl. 14 og lýkur 16.30, vinsamlegast skráið þáttöku hér á vef SA.
24.3.2011
Besta ţjónustufyrirtćki ársins verđlaunađ
22.3.2011
Stjórnendur 400 stćrstu: 80% telja ađstćđur slćmar
22.3.2011
Mikill áhugi á ţjónusturáđstefnu SA og SVŢ á föstudaginn
21.3.2011
Fundur um skuldamál fyrirtćkja
19.3.2011
Stefnir í mikinn niđurskurđ og skattahćkkanir ef ekki verđur brugđist viđ
Umfangsmiklar skattahækkanir og niðurskurður opinberra útgjalda blasa við á næsta ári ef ekkert verður að gert að mati framkvæmdastjóra SA. Í stað þess að fyrirtæki fjárfesti blæði þeim út með tilheyrandi tekjusamdrætti ríkisins. Þetta kemur fram í forsíðuumfjöllun Fréttablaðsins í dag. Vilhjálmur Egilsson, segir í samtali við blaðið útlit fyrir 20-30 milljarða aukahalla á ríkissjóði vegna þess að hagvöxtur láti á sér standa og því stefni í meiri háttar skattahækkanir og niðurskurð árið 2012. Þessu megi þó forða með því að koma stórum fjárfestingarverkefnum á skrið, s.s. framkvæmdum við álver Norðuráls í Helguvík og tilheyrandi orkuframkvæmdum.
19.3.2011
Hvađ getur atvinnulífiđ lćrt af Jóni Sigurđssyni?
Í tilefni þess að á árinu verða 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta efna Samtök atvinnulífsins til málþings í Hofi á Akureyri um Jón og sýn hans á atvinnulífið. Fjórir fyrirlesarar fjalla um áhrif Jóns Sigurðssonar á atvinnulífið í fortíð, nútíð og framtíð. Sigríður Á. Snævarr sendiherra, mun m.a. fjalla um hvað leiðtogar samtímans geti lært af Jóni og Þorsteinn Pálsson fv. ráðherra, mun fjalla um nútímann í ljósi baráttu Jóns fyrir fullveldi og viðskiptafrelsi.
18.3.2011
Formađur SVŢ: Hingađ og ekki lengra
16.3.2011
Skattar hćkka og niđurskurđur eykst án uppsveiflu í atvinnulífinu
15.3.2011
Spjótin standa á ríkisstjórninni
Kjaraviðræðurnar mjakast nú áfram og eru stjórnvöld smám saman að koma að viðræðum um einstök mál og aðgerðir, sem aðilar vinnumarkaðarins telja nauðsynlegar til að greiða fyrir gerð kjarasamninga. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Morgunblaðsins í dag. Nú er liðinn hálfur fjórði mánuður frá því kjarasamningar losnuðu á almenna vinnumarkaðnum, og tveir mánuðir frá því SA og ASÍ lögðu fram sín áherslumál gagnvart ríkisstjórninni. Ljóst er að niðurstöður munu ekki nást í viðræður SA og ASÍ um launabreytingar í væntanlegum samningum fyrr en það skýrist hvað ríkisstjórnin er tilbúin að leggja af mörkum til að skapa þær aðstæður að hægt verði að gera kjarasamninga til þriggja ára.
14.3.2011
Framúrskarandi ţjónusta međ bros á vör
11.3.2011
Vonin ein dugir ekki
11.3.2011
Mikiđ traust til íslenskra fyrirtćkja
Íslendingar bera mjög mikið traust til eigin vinnuveitenda og eru jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja. Traust þeirra til eigin vinnuveitanda skorar einna hæst í árlegum mælingum Capacent á trausti til stofnana og embætta. Aðeins Landhelgisgæslan og lögreglan njóta meira trausts meðal fólks. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir SA. Nærri þrír af hverjum fjórum (74,3%) eru jákvæðir gagnvart sínum vinnustað og bera mikið traust til eigin vinnuveitanda. Aðeins 11,1% bera lítið traust til eigin vinnuveitanda.
11.3.2011
Kosning formanns SA er hafin
11.3.2011
Ályktun Iđnţings 2011
10.3.2011
Engin framtíđ međ gjaldeyrishöft og lokađan fjármagnsmarkađ
10.3.2011
Viđrćđur viđ stjórnvöld ganga afar hćgt
Líkur hafa minnkað á að takist að ljúka kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og ASÍ um miðjan mars eins og stefnt hefur verið að. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segist í samtali við mbl.is ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í næstu viku eins og staðan er. Viðræður standa nú yfir og eru viðsemjendur lítillega byrjaðir að ræða launalið væntanlegra samninga. Vilhjálmur segir að viðræðurnar að undaförnu við ASÍ og sérsamböndin um sérmál og sameiginleg mál hafi gengið ágætlega en viðræður við stjórnvöld gangi afar hægt fyrir sig.
9.3.2011
Nýsköpun í brennidepli á Iđnţingi 2011
7.3.2011
Málţing um Jón Sigurđsson og atvinnulífiđ í Hofi á Akureyri
4.3.2011
Áhugaverđ málţing háskólamanna um sjávarútvegsmál
3.3.2011
Mikilvćgasta verkefniđ
Eitt mikilvægasta verkefni íslensku þjóðarinnar er að koma atvinnulífinu í gang þannig að fyrirtækin geti farið að fjárfesta á ný og skapa störf. Til að svo geti orðið þurfa stjórnvöld að tryggja eftir föngum stöðugleika í efnahagsmálum og stilla í hóf skattlagningu fyrirtækja og einstaklinga þannig að hún letji ekki til fjárfestinga og sparnaðar. Þá mega almenn starfs- og rekstrarskilyrði atvinnugreina til langs tíma ekki vera síðri en erlendra fyrirtækja á samkeppnismarkaði. Þetta segir Halldór Árnason, hagfræðingur hjá SA, m.a. í grein í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag.
2.3.2011
Stjórnvöld skapi atvinnulífinu hagstćđ skilyrđi
1.3.2011
Öflugt atvinnulíf forsenda aukins kaupmáttar
28.2.2011
Viđrćđur um launaliđ hefjast í vikunni - stjórnvöld komi ađ málum
Samninganefndir SA og ASÍ funduðu fyrir hádegið hjá Ríkissáttasemjara um stöðu kjaraviðræðna en þær halda áfram af fullum krafti í vikunni. Undanfarið hefur verið rætt við sérsambönd ASÍ um ýmis sérmál en viðræður um sameiginleg mál SA og ASÍ eru einnig hafnar, s.s. lífeyrismál og menntamál. Áætlað er að á fimmtudag hefjist viðræður um launalið komandi kjarasamninga en enn er stefnt að því að gerðir verði samningar til þriggja ára sem taki gildi í júní. Vonast er til að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars.
28.2.2011
Sumarvinnuverđlaun stúdenta og SA
Atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa tekið höndum saman og hvetja íslensk fyrirtæki til að ráða háskólanema til sín í vinnu nú í sumar. Sérstök verðlaun og viðurkenningar verða veitt þeim fyrirtækjum sem flesta stúdenta ráða til sín í vinnu fyrir sumarið.
25.2.2011
Kjaraviđrćđum ljúki um miđjan mars
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is að viðræður um gerð nýs kjarasamnings gangi vel. Hann vonast eftir að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars. Í febrúar náðist samkomulag á milli Samtaka atvinnulífsins og landssambanda ASÍ um að hefja vinnu við gerð langtímasamnings til þriggja ára sem hefði það að markmiði að auka kaupmátt og viðhalda stöðugleika í hagkerfinu. Sú vinna er nú í fullum gangi en samninganefndir SA og ASÍ munu hittast á mánudaginn til að meta stöðuna.
25.2.2011
Orkustefna fyrir Ísland byggđ á veikum grunni
25.2.2011
Icelandair hlaut Ţekkingarverđlaunin 2011
Íslensku þekkingarverðlaunin voru afhent á Íslenska þekkingardeginum sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Flugfélagið Icelandair hlaut verðlaunin og var Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair jafnframt valinn viðskiptafræðingur ársins. Forseti Íslands afhenti verðlaunin en auk Icelandair hlutu Samherji og Rio Tinto Alcan á Íslandi viðurkenningu fyrir verðmætasköpun fyrirtækjannna.
21.2.2011
Formađur SI: Aukin fjárfesting í öllum greinum atvinnulífsins nauđsynleg
21.2.2011
Kjaraviđrćđur halda áfram
Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands hittust á fundi hjá Ríkissáttasemjara í morgun til að ræða stöðu og framvindu kjaraviðræðna og lauk þeim fundi rétt fyrir hádegið. Undanfarna viku hafa staðið yfir viðræður við sérsambönd ASÍ um ýmis sérmál en ákveðið var að nú yrði settur kraftur í viðræður um sameiginleg mál SA og ASÍ. Áfram er unnið að því að leggja grunn að þriggja ára kjarasamningi sem taki gildi í júní 2011 og er stefnt að því að ljúka viðræðum á næstu vikum.
21.2.2011
Samrćmd launastefna nauđsynleg
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vísar því á bug í samtali við fréttastofu RÚV að hagsmunum starfsmanna í útflutningsgreinum sé fórnað með samræmdri launastefnu. Ef starfsmenn útflutningsgreina eigi nú að njóta góðs af gengisfalli krónunnar hefði allt eins átt að berjast fyrir því að laun starfsmanna þeirra lækkuðu þegar staðan var erfiðari.
18.2.2011
Ađalfundur Samorku: Ný gjaldtaka og styttri leigutími auđlinda ţýđir hćrra orkuverđ
18.2.2011
Allt of langan tíma tekur ađ fá svör um skipulags- og byggingarmál
17.2.2011
Vilmundur Jósefsson gefur áfram kost á sér sem formađur Samtaka atvinnulífsins
Formaður Samtaka atvinnulífsins, Vilmundur Jósefsson, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður SA. Kosning formanns fer fram með rafrænum hætti meðal aðildarfyrirtækja SA í aðdraganda aðalfundar samtakanna sem fer fram fimmtudaginn 7. apríl 2011 á Hótel Nordica.
17.2.2011
Úrskurđarnefnd virđir ekki lög
Samtök atvinnulífsins hafa kannað hversu langan tíma það tekur úrskurðarnefnd sem starfar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir að kveða upp úrskurði í þeim málum sem þangað er beint. Þau mál sem nefndin fjallar um tengjast meðal annars starfsleyfum fyrirtækja og ýmsum þáttum sem umrædd lög taka til. Aðeins í eitt skipti af 20 hefur úrskurðarnefndin kveðið upp úrskurð innan lögbundinna tímamarka en að meðaltali tók það nefndina 40 vikur að kveða upp úrskurð sinn eða sem nemur tíföldum lögbundnum fresti (4 vikur) í hefðbundum málum.
17.2.2011
Eru hugsjónir stjórnmálamanna hafin yfir lög?
15.2.2011
Verkfalli starfsmanna í fiskimjölsverksmiđjum aflýst
15.2.2011
Ţriđja hvert heimili orđiđ fyrir barđinu á atvinnuleysinu
15.2.2011
Mikil tćkifćri í tölvuleikjaiđnađi á Íslandi
Tólf fyrirtæki með um 600 starfsmenn á Íslandi framleiða tölvuleiki og er ársvelta þeirra um 10 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram á menntadegi iðnaðarins í máli Ólafs Andra Ragnarssonar en hann er einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Betware auk þess að kenna í Háskólanum í Reykjavík. Betware var m.a. útnefnt frumkvöðull ársins 2010 af Viðskiptablaðinu en stafræna byltingin og netið hafa skapað einstök tækifæri og leikjaframleiðendur hér á landi hugsa hátt. Þeir benda á að ef rétt verður að málum staðið megi ná því markmiði árið 2021 að starfsmenn í íslenskum leikjaiðnaði verði um fimm þúsund og þeir skapi um 70 milljarða króna útflutningsverðmæti. Ólafur Andri segir þó að til að ná þessu háleita markmiði þurfi rétt skilyrði og nefnir þar fyrst efnahagslegan stöðugleika.
14.2.2011
Kjaraviđrćđur halda áfram í dag
Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa orðið ásátt um að hefja á nýjan leik viðræður um nýjan kjarasamning til þriggja ára sem taka myndi gildi í júní 2011. Aðilar vinnumarkaðarins munu funda í dag hjá ríkissáttasemjara en stefnt er að því að viðræðum verði lokið á næstu vikum og á þeim tíma verði unnið að samkomulagi um laun og aðra þætti samningsins. Á sama tíma verður rætt við ríkisstjórn og Alþingi um starfsskilyrði atvinnulífsins og áherslumál verkalýðshreyfingarinnar. SA vilja fara atvinnuleiðina út úr kreppunni og eru þriggja ára kjarasamningar einn lykilþáttur í þeirri leið.
11.2.2011
Hćstiréttur dćmir umhverfisráđherra
Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað bent á það á vef SA að neitun umhverfisráðherra á að staðfesta skipulag hreppana við Þjórsá væri bæði ómálefnaleg, andstæð lögum og einungis til þess fallin að tefja fyrir mikilvægri uppbyggingu og fjárfestingum hér á landi. Með framferði sínu væri hún einungis að þóknast þröngum pólitískum hagsmunum Vinstri grænna.
10.2.2011
Atvinnuleiđin er fćr
Það veldur erfiðleikum í yfirstandandi kjaraviðræðum að einstök verkalýðsfélög krefjast þess að sérstök stefna um launahækkanir verði mótuð fyrir útflutningsgreinar vegna lágs gengis krónunnar og önnur stefna fyrir aðrar atvinnugreinar. Að mati SA er þetta óframkvæmanlegt þar sem umsamdar hækkanir í útflutningsgreinum myndu óhjákvæmilega flæða yfir aðrar greinar. Þegar gengi krónunnar hefur verið sterkt, eins og raunin var áratuginn fyrir efnahagshrunið 2008 lutu útflutningsgreinarnar hinni almennu launastefnu sem mótuð var í kjarasamningum á hverjum tíma og engum datt annað í hug. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í leiðara nýs fréttabréfs samtakanna.
10.2.2011
Rúmur fimmtungur mannaflans ţiggur bóta- eđa veikindalaunagreiđslur
10.2.2011
Frumvarp um breytingar á lögum um náttúruvernd óljóst og getur leitt til réttaróvissu
10.2.2011
Rótgróin sjávarútvegsfyrirtćki burđarásar í atvinnulífinu á landsbyggđinni
Þau tuttugu fyrirtæki í sjávarútvegi sem fá úthlutað mestu aflamarki gera út 126 skip, veiða 84% kvótans, hafa 4.355 manns í vinnu og einungis tvö þeirra eru innan við 30 ára gömul. Flest þeirra hafa starfað á sama stað í 40 - 70 ár og allt að 100 árum. Þau eru burðarásar í atvinnulífinu vítt og breitt um landið. Þetta kom fram í erindi Péturs H. Pálssonar, framkvæmdastjóra Vísis hf. í Grindavík á fundi SA um atvinnuleiðina.
10.2.2011
Óvissa í sjávarútvegi hefur neikvćđ áhrif á íslenskan málmiđnađ
Á fundi SA um atvinnuleiðina gerði Bolli Árnason, framkvæmdastjóri GT tækni grein fyrir stöðunni í málmiðnaði en hann lagði áherslu á mikilvægi stöðugs starfsumhverfis. Bolli sagði fleiri málmiðnaðarmenn vanta í greinina en í undirbúningi væri átak til að auka áhuga ungs fólks á iðnnámi. Hann sagði þó blikur á lofti vegna kjaramála og óvissu í sjávarútvegi sem hafi haft neikvæð áhrif á íslenskan málmiðnað.
10.2.2011
Mikilvćgt ađ ná aftur stöđugleika
Kristín Guðmundsdóttir, forstjóri Skipta, sagði á fundi SA um atvinnuleiðina langmikilvægast að ná aftur stöðugleika í rekstrarumhverfi fyrirtækja hér á landi. Það yrði best gert með samningum um hóflegar launahækkanir til þriggja ára til að ná aftur fyrri styrk. Skipti er móðurfélag Símans en Kristín sagði símreikninga bera nú með sér að neysla landsmanna hafi dregist hratt saman frá síðasta hausti.
10.2.2011
Mikil tćkifćri í vetrarferđamennsku
9.2.2011
Óviđunandi ađ 14.000 séu án vinnu
Samtök atvinnulífsins kynntu í morgun atvinnuleiðina, sýn SA á leiðina út úr kreppunni á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík. Yfir 200 manns úr íslensku atvinnulífi mættu til fundarins. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sagði tímabært að hefja nýja atvinnusókn og kveða atvinnuleysið niður sem hafi verið mikið frá hruni. Vilhjálmur sagði jafnfamt áhyggjuefni að svo virðist eins og atvinnuleysið sé að gleymast og landsmenn að dofna fyrir þeirri staðreynd að 14.000 manns eru án vinnu. Þessu verði að breyta hið fyrsta og því vilji SA fara atvinnuleiðina, skapa ný stöf og bæta hag fólks með aukinni vinnu og tekjum.
9.2.2011
Formađur SA: Vinna skapar velferđ
„Það vekur óneitanlega undrun að í nýlegri stefnumörkun ríkisstjórnarinnar eru engin markmið um hagvöxt til lengri tíma, engin stefna mörkuð um hvernig skuli hvetja til fjárfestinga og lítið fjallað um atvinnuleysið. Það er nánast látið að því liggja að ástandið sé nú harla gott og enginn ástæða til sérstakra viðbragða. Það getur aldrei orðið ásættanlegt að 14 þúsund manns séu atvinnulausir og að Íslendingar flytjist þúsundum saman úr landi." Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. á fundi SA um atvinnumál sem nú stendur yfir á Grand Hótel Reykjavík.
9.2.2011
Fundur um stöđu atvinnumála og kjaraviđrćđna hefst kl. 8:30 á Grand Hótel Reykjavík
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um atvinnuleiðina í dag, miðvikudaginn 9. febrúar kl. 8:30-10:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík en atvinnuleiðin er sýn Samtaka atvinnulífsins á leiðina út úr kreppunni. Stjórnendur fyrirtækja á ýmsum sviðum fjalla um mikilvægi þess að landsmenn velji að fara atvinnuleiðina í stað verðbólguleiðarinnar með viðvarandi stöðnun í þjóðfélaginu og miklu atvinnuleysi næstu árin.
8.2.2011
Starfsmenn fiskimjölsverksmiđja fái sömu launahćkkun og ađrir
7.2.2011
Starfsmenn fiskimjölsverksmiđja ekki hćkkađir umfram ađra
6.2.2011
Lođnubrestur af mannavöldum yfirvofandi
3.2.2011
Verkfall dćmt ólögmćtt
3.2.2011
Alţingi ljúki Icesave-málinu sem fyrst
2.2.2011
Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins vilja koma eftirfarandi á framfæri og leiðrétta misskilning, sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga. Samtök atvinnulífsins eru fylgjandi þeirri sáttastefnu, sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir markaði og hrinti í framkvæmd með stofnun og starfi endurskoðunarnefndar um stjórn fiskveiða.
1.2.2011
ATVINNULEIĐIN: Samhljóđa ályktun stjórnar SA
Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur eindregið til samstöðu milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar og Alþingis um að marka ATVINNULEIÐ út úr því kreppuástandi sem nú ríkir í atvinnulífinu og samfélaginu öllu og birtist í slæmri stöðu fjölda fyrirtækja og atvinnuleysi 14000 manns.
ATVINNULEIÐ byggir á kjarasamningum til þriggja ára með samræmdri launastefnu og launahækkunum í takt við nágrannalöndin með áherslu á kaupmáttaraukningu samfara lágri verðbólgu og aukinni atvinnu. Skynsamlegir kjarasamningar til þriggja ára eru ein meginforsenda stöðugleika og tiltrúar á batnandi tíð.
1.2.2011
SVŢ: Sögulegt tćkifćri til ađ ná sátt um sjávarútveginn
Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, segir að nú sé sögulegt tækifæri til að ná víðtækri sátt um sjávarútvegsmálin. Óeining undanfarinna ára sé slæm fyrir alla. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
1.2.2011
Minna atvinnuleysi vegna brottfluttra Íslendinga
31.1.2011
Atvinnuleysiđ gleymdist í ályktun Samfylkingarinnar
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki málefnalegt hjá Samfylkingunni að senda frá sér ályktun þar sem fjallað er um atvinnumál án þess að minnast einu orði á atvinnuleysið þegar 14 þúsund manns eru án vinnu eða 8% af vinnuaflinu. Flokksstjórn flokksins hefur gagnrýnt SA fyrir að gera kröfu um sátt um framtíð fiskveiðistjórnunarkerfisins. Vilhjálmur segir það málefnalega kröfu.
31.1.2011
Hćkkun launa í sjávarútvegi um tugi prósenta hefđi áhrif á allar atvinnugreinar
30.1.2011
Áhugaleysi ríkisstjórnar og ASÍ á atvinnuleysinu áhyggjuefni
„Við teljum að það sé útlátalaust fyrir ríkisstjórnina að girða sig í brók og fara að klára einhver mál svo við getum farið að koma okkur upp úr þessari djúpu holu sem við erum í en ekki halda áfram að moka á botninum." Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, í ítarlegu viðtali í helgarútgáfu Fréttablaðsins um atvinnumálin, yfirstandandi kjaraviðræður og stjórnmálin. Vilmundur segir að það hafi komið SA á óvart hvað ASÍ og ríkisstjórnin hafi litlar áhyggjur af atvinnuleysinu. „Það er eins og það sé bara sjálfsagt mál að það séu hér fjórtán þúsund manns atvinnulausir."
29.1.2011
Forsćtisráđherra haldi ró sinni
28.1.2011
Opinn fundur um atvinnumálin í Reykjavík miđvikudaginn 9. febrúar kl. 8:30-10:00
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um atvinnumálin í Reykjavík miðvikudaginn 9. febrúar kl.8:30-10:00. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum. Þá munu stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja fjalla um mikilvægi þess að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni en ekki verði farin leið atvinnuleysis- og verðbólgu sem mun viðhalda stöðnun í þjóðfélaginu næstu árin.
28.1.2011
Međ hagsmuni ţjóđarinnar ađ leiđarljósi
Það er mikill misskilningur að kröfur atvinnurekenda í yfirstandandi kjaraviðræðum snúist einungis um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þetta segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að reynt sé að gera önnur samtök en sjávarútvegs tortryggileg með því að í viðræðunum sé verið að ganga erinda LÍÚ, eins aðildarfélaga SA.
Helgi segir þetta ekki rétt því verið sé að ganga erinda alls alls atvinnulífsins í þeirri vegferð að koma hér á öflugum hagvexti að nýju með því að fara atvinnuleið í stað atvinnuleysisleiðar. Með því að fara atvinnuleiðina megi eyða atvinnuleysinu, auka kaupmátt fólks og bæta hag fyrirtækja. „Þannig göngum við erinda allrar þjóðarinnar."
27.1.2011
Sjávarútvegurinn skiptir alla launţega máli
Starfsskilyrði og afkoma eins af helstu atvinnuvegum þjóðarinnar hafa víðtæk áhrif á efnahagslífið og vinnumarkaðinn í heild og það er reginmisskilningur að rekstrarskilyrði sjávarútvegsins komi meirihluta launafólks á Íslandi ekki við. Þetta segir Ólafur Stephensen ritstjóri Fréttablaðsins í leiðara í dag. „Í stjórnarliðinu eru á kreiki hugmyndir um róttækar breytingar á fiskveiðistjórnun, sem geta sett afkomu og tekjur sjávarútvegsins í fullkomið uppnám, þótt ekki sé nema vegna hugsanlegra áhrifa á gengi krónunnar og þar með verðlag í landinu og skuldabyrði almennings. Á meðan óvissa ríkir um fiskveiðistjórnunina halda sjávarútvegsfyrirtækin að sér höndum í fjárfestingum og ný störf verða ekki til, hvorki hjá þeim né fyrirtækjum sem vinna fyrir sjávarútveginn. Meðal annars af þessum sökum kemur hlutskipti sjávarútvegsins öllum launþegum á Íslandi við."
26.1.2011
Félagsdómur mun úrskurđa um lögmćti verkfallsbođunar
25.1.2011
Förum atvinnuleiđina - höfnum verđbólguleiđinni
Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, ræddu um alvarlega stöðu atvinnumála á opnum fundi í Reykjanesbæ í gærkvöld og um mikilvægi þess að brugðist verði sem fyrst við til að kveða niður atvinnuleysið. Um 14 þúsund eru án vinnu, langtímaatvinnuleysi fer vaxandi og hefur Vinnumálastofnun spáð því að atvinnuleysi aukist enn frekar.
25.1.2011
Fundur um Árósasamninginn í Húsi atvinnulífsins 27. janúar
24.1.2011
Um verkaskiptingu ráđuneyta og stofnun umhverfis- og auđlindaráđuneytis
Samtök atvinnulífsins eru alfarið andvíg fyrirhugaðri uppstokkun verkefna milli ráðuneyta og stofnun sérstaks umhverfis- og auðlindaráðuneytis. Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að rofin eru tengsl milli atvinnuvegaráðuneyta og ákvarðana um nýtingu auðlinda, rannsókna, ráðgjöf og verndun auðlinda. Samtökin telja þvert á móti nauðsynlegt að viðhalda tengingu atvinnuvegaráðuneyta og ákvarðana um auðlindanýtingu við rannsóknastofnanir og auðlindarannsóknir.
23.1.2011
Aukinn kaupmáttur nćst međ aukinni vinnu
Besta kaupmáttaraukningin sem hægt er að ná er að fólk sem er án atvinnu fái vinnu. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir ekkert slá út slíkri kaupmáttaraukningu en um 14.000 manns eru nú á atvinnuleysisskrá og hefur Vinnumálstofnun spáð því að atvinnuleysi fari vaxandi í mánuðinum. AGS hefur sagt að það sé eitt helsta verkefni Íslendinga að ná atvinnuleysinu niður. Samtök atvinnulífsins telja atvinnuleysið mikið áhyggjuefni og tímabært sé að bregðast við með nýrri atvinnusókn.
SA hafa boðað til opins fundar í Reykjanesbæ mánudaginn 24. janúar í Stapa kl. 17-19 um stöðuna á vinnumarkaðnum. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.
21.1.2011
Vögguvísa yfir erlendum fjárfestingum og atvinnulífinu
Samtök atvinnulífsins leggja á það megináherslu nú þegar unnið er að gerð nýrra kjarasamninga að stjórnvöld grípi til allra nauðsynlegra ráðstafana til að skapa skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar og þá sérstaklega í útflutningsgreinum. Þar er átt við greinar sem nýta orku til framleiðslu sinnar, sjávarútveg, sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
20.1.2011
Opinn fundur um stöđu atvinnumála á mánudaginn - skráning stendur yfir
19.1.2011
Samdráttur á vinnumarkađi á síđasta ári samkvćmt Hagstofu
19.1.2011
Nýjar vegaframkvćmdir geta skapađ hundruđ starfa
Nýjar arðbærar vegabætur munu bæta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þar með þjóðfélaginu stórfé á ári hverju. Umfangsmiklar vegaframkvæmdir eru eitt þeirra stóru og mikilvægu mála sem eru uppi á borðum samningsaðila í yfirstandandi kjaraviðræðum og kalla á aðkomu ríkisstjórnarinnar. Samtök atvinnulífsins leggja á það höfuðáherslu að stórum fjárfestingarverkefnum í atvinnulífinu verði komið á skrið og í nýlegri aðgerðaáætlun ASÍ er lagt til að stórum framkvæmdum í samgöngumálum verði hrint í framkvæmd með stofnun félags í eigu ríkissjóðs sem taki lán hjá langtímafjárfestum til langs tíma.
18.1.2011
SA og ASÍ undirrita viđrćđuáćtlun um sameiginleg mál
17.1.2011
Mikiđ atvinnuleysi áhyggjuefni
17.1.2011
Morgunfundur um samfélagsábyrgđ fyrirtćkja 19. janúar
14.1.2011
Stöđnun ekki bođleg
Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs.
Óhugsandi er að hefja sókn þjóðarinnar til framfara og aukins útflutnings og fjárfestinga án þess að sjávarútvegurinn, ein helsta útflutningsgreinin og um leið ein helsta stoð samfélagsins, eigi þar öflugan hlut að máli.
13.1.2011
Samstađa um atvinnusókn
Í leiðara nýs fréttabréfs SA fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni. „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."
13.1.2011
Atvinnutryggingargjald verđi lćkkađ
Samtök atvinnulífsins hafa sent Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að atvinnutryggingargjald verði lækkað um tæpt 1% í samræmi við lög þar sem gjaldið er nú of hátt. Tekjur Atvinnuleysistryggingarsjóðs af gjaldinu á þessu ári eru áætlaðar um sjö og hálfum milljarði króna hærri en útgjöld sjóðsins vegna atvinnuleysis. Lög um tryggingagjaldið kveða á um að við þær aðstæður beri fjármálaráðherra að flytja frumvarp um lækkun gjaldsins en það hefur ráðherrann ekki gert. Lækkun gjaldsins er sérstaklega mikilvægt hagsmunamál lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
12.1.2011
Meginmarkmiđ ađ ţjóđin nái fyrri styrk
Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.
11.1.2011
Gögn frá Skattadegi Deloitte 2011
4.1.2011
Hóflegar launabreytingar í OECD-ríkjunum
4.1.2011
Yfirlit kjarasamninga á Norđurlöndum 2009-2011: Hćkkunum stillt í hóf
3.1.2011
Formađur SA: Sköpum 2011
Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að hefja á árinu 2011 nýja sókn sem byggir á bættum samkeppnisskilyrðum atvinnulífsins, sókn til fjölgunar starfa og bættra lífskjara í landinu.











