Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30.5.2009

Óbreyttar launahćkkanir ekki í myndinni

SA og ASÍ funduðu í gær hjá ríkissáttasemjara ásamt samningsaðilum á opinberum vinnumarkaði. Til umræðu var tillaga SA um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga ASÍ og SA gerðum 17. febrúar 2008 og síðar. Um þessa tillögu hefur ekki náðst samkomulag en af hálfu SA var tekið skýrt fram að samningsbundnar hækkanir komi ekki til framkvæmda óbreyttar þann 1. júlí næstkomandi og 1. janúar 2010.

29.5.2009

Skattahćkkanir rýra lífskjör

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að skattahækkanir stjórnvalda rýri lífskjörin í landinu. Auknar álögur á bensín, olíu, áfengi og tóbak komi þó ekki á óvart. Það sé gamalkunn leið að skattleggja umferð og syndir.

28.5.2009

Unniđ gegn misnotkun á bótakerfi

Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur meðal annars eftirlit með misnotkun.

28.5.2009

Óţarfar áhyggjur af ţjónustutilskipun ESB

 „Skoðun okkar er að þessir fyrirvarar séu sprottnir af óþarfa áhyggjum," segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá Samtökum atvinnulífsins, um fyrirvara ríkisstjórnarinnar við þjónustutilskipun ESB. Ríkisstjórnin áskilur sér rétt til að reka alla almannaþjónustu áfram eftir sínu höfði og að réttindi á íslenskum vinnumarkaði haldist. Guðrún Björk segir í samtali við mbl.is að ákveðins misskilnings gæti um að tilskipunin fjalli um vinnurétt. Þá undirstrikar hún að verði almannaþjónusta skilgreind öðruvísi í íslenskum lögum en annars staðar, þá komist íslensk stjórnvöld ekki upp með það.

27.5.2009

Formađur SA rćr á ný miđ

Þór Sigfússon, formaður SA, mun láta af störfum hjá Sjóvá en nýr forstjóri, Hörður Arnarson, var ráðinn í dag. Þór mun starfa við hlið Harðar um sinn við að leggja grunn að endurskipulagningu á rekstri félagsins. Hörður Arnarson, var áður forstjóri Marel Food Systems og er SA að góðu kunnur en hann gekk úr stjórn Samtaka atvinnulífsins í vor eftir að hafa setið þar um tveggja ára skeið.

27.5.2009

Komin á endapunkt međ krónuna

Aðilar vinnumarkaðarins og hið opinbera leita nú leiða til þess að koma á stöðugleikasáttmála. Hluti af stöðugleikasáttmála er að hækka gengið og festa það, segir framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið í dag. „Menn eru komnir á endapunkt með gjaldmiðilinn og reyna að leita allra leiða. Hluti af stöðugleikasáttmála er að hækka gengið og festa það. Þetta er eitt af því sem menn eru mikið að velta fyrir sér," segir Vilhjálmur Egilsson. Hann segir gjaldeyrishöftin staðfesta að menn þori ekki að vera með frjálsan gjaldmiðil. „Á meðan við erum með gjaldeyrishöftin er erfitt að byggja upp tiltrú á krónuna."

26.5.2009

Fundur á föstudag gćti skipt sköpum

Aðilar vinnumarkaðarins og hins opinbera munu hittast á fundi á föstudag sem gæti skipt sköpum í þeim viðræðum sem hafa staðið yfir. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við mbl.is. Hann segir hækkun vísitölu neysluverðs ekki hafa áhrif á viðræðurnar en hækkunina megi nánast eingöngu rekja til gengis krónunnar. Formaður SA átti fund í gærkvöld með forystumönnum ríkisstjórnarinnar og öðrum aðilum á vinnumarkaði um stöðugleikasáttmála sem unnið er að því að koma á.

25.5.2009

Gátlisti fyrirtćkja vegna inflúensufaraldurs

Á vef SA má nálgast gátlista sem tekinn var saman fyrr á þessu ári af aðilum sem unnu að landsáætlun vegna viðbragða við alheimsinflúensu. Beinist listinn sérstaklega að fyrirtækjum og er ætlað styðja þau við gerð eigin viðbragðsáætlana vegna mannskæðra inflúensufaraldra og fyrirbyggja að rekstur fyrirtækja rofni vegna þeirra. Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi.

25.5.2009

Eignaumsýslufélags ríkisins hafi sem minnst ađ gera

„Breytingarnar allar eru til bóta," segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um nýtt frumvarp um stofnun eignaumsýslufélags ríkisins, en Hannes fundaði með efnahags- og skattanefnd Alþingis á föstudaginn sem hefur málið til umfjöllunar. Hannes segir í samtali við Fréttablaðið að með nýju frumvarpi verði það aðeins örfá fyrirtæki sem endi hjá slíku eignaumsýslufélagi. SA óski þess að félagið muni hafa sem minnst að gera.

25.5.2009

Bankarnir geri upp í erlendum gjaldmiđli

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skynsamlegra að bankarnir geri reikninga sína upp í evrum eða öðrum erlendum gjaldmiðli en að erlendum lánum viðskiptavina bankanna sé breytt í íslenskar krónur eins og viðskiptaráðherra hefur lagt til. Reikna megi með því að greiðslubyrði af venjulegu erlendu láni yrði fjórfalt hærri nú ef það væri fært yfir í krónur miðað við stöðuna fyrir ári. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

20.5.2009

Fyrningarleiđin er ţjóđnýtingarstefna

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ákvæði um upptöku aflaheimilda sem hefjast á haustið 2010. Í sjávarútveginum hafa menn þungar áhyggjur af þessum áformum og sama gildir um bankana, birgja og aðra viðskiptamenn sjávarútvegsins. Sjávarútvegurinn þarf, eins og aðrar atvinnugreinar, að búa við stöðugleika og sæmilega vissu um framtíðarskilyrði til þess að framþróun og nauðsynlegar fjárfestingar eigi sér stað. Þessi áformaða eignaupptaka án bóta hefur þegar haft áhrif á  fjármögnun í bönkum þar sem óvissa hefur verið aukin um tryggingar og framtíðarhorfur fyrirtækjanna.

20.5.2009

Tillaga SA um breytingar á kjarasamningum

Samtök atvinnulífsins lögðu fram í morgun tillögu um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga ASÍ og SA gerðum 17. febrúar 2008 og síðar. Tillöguna má nálgast hér á vef SA þar sem munu birtast reglulega fréttir af framgangi viðræðna.

20.5.2009

Leggja ţarf grunn ađ stöđugleika

Breitt samráð samtaka launafólks, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga hófst formlega í gær. Verkefnið er að ná breiðri samstöðu um markvissa áætlun í efnahags- kjara- og félagsmálum. Stefnt er á að niðurstaða liggi fyrir 9. júní. Á fundinum voru hátt í sextíu fulltrúar af öllum vinnumarkaðnum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að mikið sé undir.

19.5.2009

Forgangsmál ađ tryggja atvinnu

Rætt var við formann SA, Þór Sigfússon, í morgunþætti Bylgjunnar í morgun. Tilefnið var stefnuræða forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, sem flutt var í gær. Þór sagði atvinnulífið hafa miklar áhyggjur af ákveðnum stefnumálum ríkisstjórnarinnar, t.d. boðaðri fyrningarleið í sjávarútvegi sem snerti mikinn fjölda fyrirtækja og hafi í raun nú þegar áhrif á allt atvinnulífið. Mjög alvarlegt sé fyrir heimili og fyrirtæki að ríkisstjórnin finni ekki leiðir til að lækka vexti og styrkja gengi krónunnar.

19.5.2009

Horft til framtíđar á fjármálamarkađi

Ársrit Samtaka fjármálafyrirtækja 2009 er komið út. Yfirskrift þess er Horft til framtíðar en þar er að finna yfirgripsmikið yfirlit yfir þróun á fjármálamörkuðum og framtíðarhorfur. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF, segir m.a. í formála að framtíð íslenska hagkerfisins velti að miklu leyti á því að vel takist til við að endurreisa fjármálakerfið. Öflug fjármálafyrirtæki séu forsenda sterks atvinnulífs. Til skemmri tíma sé  mjög brýnt að ná stýrivöxtum verulega niður og skapa aðstæður til að afnema gjaldeyrishöft.

19.5.2009

Málţing: Ađ tala fyrir Íslands hönd

Málþing sem ber yfirskriftina Að tala fyrir Íslands hönd verður haldið í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 20. maí kl. 8.15-12.00. Þar verða m.a. kynntar niðurstöður úr viðhorfsrannsókn í Danmörku, Þýskalandi og Bretlandi um viðhorf almennings til Íslands. Boðað er til málþingsins í samstarfi hinna ýmsu samtaka atvinnurekenda m.a. SA, Útflutningsráðs, Almannatengslafélags Íslands og Ferðamálastofu. Innlendir og erlendir fyrirlesarar munu fjalla um orðspor Íslands, fortíð og framtíð.

18.5.2009

Ágreiningur banka og lífeyrissjóđa fyrir dómstóla

Líklegt er að leysa þurfi úr ágreiningi skilanefnda bankanna og lífeyrissjóðanna vegna gjaldmiðlavarnarsamninga fyrir dómstólum. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er hlynntur dómstólaleiðinni en tugir millarða eru í húfi.

18.5.2009

Ótrúleg afstađa fulltrúa AGS

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, er gáttaður á því að fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vilji ekki að stýrivextir verði lækkaðir á Íslandi. Franek Rozwadowsky, sendifulltrúi AGS, sagði á fundi Samtaka fjármálafyrirtækja á fimmtudaginn að ótímabært væri að lækka stýrivexti frekar þvert á það sem Seðlabankinn hefur boðað, það er að óbreyttu megi búast við því að stýrivextir verði lækkaðir umtalsvert í byrjun júní. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

15.5.2009

Fjölbreytni í atvinnulífinu verđi aukin

Samtök atvinnulífsins, FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands telja nauðsynlegt að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs.  Á næstu fjórum árum munu þessir aðilar því hvetja til þess og leggja ríka áherslu á að konum í forystusveit íslensks viðskiptalífs verði fjölgað þannig að hlutfall hvors kyns verði ekki undir 40% í lok árs 2013. CreditInfo mun árlega mæla árangur verkefnisins.

15.5.2009

Aukiđ flćkjustig og misráđin neyslustýring

Heilbrigðisráðherra hefur viðrað hugmyndir um sérstakan skatt á sykraða gosdrykki í þeim tilgangi að draga úr neyslu þeirra og stuðla með þeim hætti að bættri tannheilsu landsmanna. Þessi áform ganga þvert á þá skattastefnu sem Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög þeirra hafa barist fyrir um árabil sem felst í einföldun, hlutleysi og skilvirkni skattkerfisins.

15.5.2009

Brýnt ađ lćkka vexti

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir mjög brýnt að lækka stýrivexti verulega. Hinir háu vextir sem Íslendingar búi við leiði til gjaldþrota og rýrnunar á eignum bankanna. Hannes segist hafa orðið fyrir vonbrigðum að heyra talsmann AGS lýsa því að ekki væri tilefni til að lækka stýrivexti frekar. Samtök atvinnulífsins séu því ósammála. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

14.5.2009

Víđtćk samvinna nauđsynleg

Í ítarlegri samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna er þung áhersla lögð á samvinnu við aðila vinnumarkaðarins á fjölmörgum sviðum. Þessar áherslur eiga sér líklega ekki fordæmi hér á landi og endurspegla annars vegar það grafalvarlega ástand sem ríkir í efnahagslífinu og þá ríku kröfu sem gerð hefur verið um fjölþætt samstarf leiðandi aðila með það að markmiði að tryggja stöðugleika til frambúðar og efla atvinnustarfsemi. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA sem kemur út í dag.

14.5.2009

Óraunhćfar hugmyndir um styttingu vinnuviku

Í samstarfsyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er ákvæði um aðgerðir til þess að sporna gegn atvinnuleysi og þess getið í því samhengi að metnir verði kostir þess að stytta vinnuvikuna. Þetta kemur nokkuð á óvart því vinnutími er viðfangsefni kjarasamninga og meðal samningsaðila hafa undanfarin ár ekki farið fram neinar umræður um styttingu vinnuvikunnar. Orlof er töluvert lengra á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum og sérstakir frídagar sömuleiðis fleiri. Ársvinnutími í dagvinnu er hvergi lægri nema í Þýskalandi og Frakklandi og hvorki eru tilefni né aðstæður til þess nú að eyða miklum tíma í skoðun á því hvort stytta eigi vinnuvikuna á Íslandi.

14.5.2009

Bandaríkin gegna lykilhlutverki í loftslagsmálunum

Um þessar mundir stendur yfir samningaferli þar sem aðildarríki loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna freista þess að komast að niðurstöðu um hvernig skuli draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá 2013. Á árinu 2012 lýkur tímabili Kyoto-bókunarinnar sem hófst á síðasta ári en samkvæmt henni var gert ráð fyrir að útstreymi frá iðnríkjum verði 5% minna á tímabilinu borið saman við árið 1990. Ný ríkisstjórn Bandaríkjanna gegnir lykilhlutverki í þessum samningum. Nýlega hefur aðalsamningamaður Bandaríkjanna lagt línurnar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og felast skilaboðin í 10 meginþáttum.

14.5.2009

SA tengiliđur viđ Global Compact verkefni SŢ

Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með því vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum.

14.5.2009

SA og Félagsráđgjafafélag Íslands semja

Samtök atvinnulífsins og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert með sér kjarasamning sem nær til félagsmanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins og gegna störfum sem krefjast háskólamenntunar. Samningurinn tekur gildi 1. júlí 2009. Með samningnum gengur FÍ inn í kjarasamning sem SA gerðu við 14 aðildarfélög BHM á síðasta ári.

13.5.2009

Orlofsuppbót 2009

Þann 1. maí síðastliðinn hófst nýtt orlofsár. Samkvæmt flestum kjarasamningum SA greiðist orlofsuppbót þann 1. júní ár hvert. Við útreikning orlofsuppbótar er litið til vinnutíma og starfshlutfalls á síðasta orlofsári, þ.e. frá 1. maí 2008 til 30. apríl 2009. Full orlofsuppbót á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2009 er kr. 25.200 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 19.000.

12.5.2009

Óvissa um kvótann kippir stođunum undan sjávarútvegsfyrirtćkjum

Ríkisbankarnir hafa yfirtekið fjögur stór fyrirtæki vegna mikilla rekstrarerfiðleika síðustu mánuði en búist er við að þeir fái mun fleiri félög í fangið á næstu mánuðum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að óvissa um fiskveiðistjórnunarkerfið valdi því að endurfjármögnun sjávarútvegsfyrirtækja og uppbygging í greininni sé í uppnámi og bankarnir haldi að sér höndum.

11.5.2009

Skortur á erlendu lánsfé ţrengir ađ fólki og fyrirtćkjum

Skortur á erlendu lánsfé kemur til með að þrengja kosti fólks og fyrirtækja á lánamarkaði. Samningar um að erlendir kröfuhafar eignuðust nýju bankana hefðu breytt allri þeirri mynd og líkast til orðið til að styðja við gengi krónu, að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins.

11.5.2009

Bráđavandi atvinnulífsins verđi leystur

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, segist í samtali við fréttastofu RÚV vera í meginatriðum sammála nýrri ríkisstjórn um áherslur í efnahagsmálum. Einkum því að skapa atvinnu, lækka vexti, afnema gjaldeyrishöft, koma fjárfestingum af stað og skapa þær aðstæður að fyrirtæki þori að ráða fólk í vinnu. Vilhjálmur segist þó vera ósammála þeim leiðum sem fara eigi í sjávarútvegi. Einnig að stofna eigi eignaumsýslufélag um illa stödd fyrirtæki.

8.5.2009

Mikil samneysla á Íslandi

Af pólitískri umræðu mætti stundum ætla að Ísland ætti langt í land með að flokkast sem norrænt velferðarríki. Það er þó fjarri sanni þegar litið er á mælikvarða á borð við hlutdeild samneyslu og heildartekjur hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu.

8.5.2009

Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins skora á Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda sjávarútvegsfyrirtækja. Það er mikilvægt að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra fyrirtækja. Á þeim erfiðu tímum sem í hönd fara er samvinna og samstarf stjórnvalda og atvinnulífsins nauðsynlegt. Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin til þess að eiga gott samstarf við nýja ríkisstjórn en þær aðferðir sem kynntar hafa verið gagnvart sjávarútvegi og afleiðingar þeirra tefla óhjákvæmilega slíku samstarfi í tvísýnu.

8.5.2009

Stórt skref fyrir Seđlabankann en lítiđ fyrir atvinnulífiđ

„Þetta er stórt skref fyrir Seðlabankann en mjög lítið skref fyrir atvinnulífið," segir Þór Sigfússon, formaður SA, í samtali við Fréttablaðið um lækkun stýrivaxta Seðlabankans um 2,5 prósentustig. „Þessi aðgerð kemur ekki í veg fyrir að fyrirtækjunum í landinu haldi áfram að blæða út," segir Þór. Vextirnir þurfi að komast undir tíu prósent sem fyrst og helst lægra."

7.5.2009

Enginn ráđinn og ekkert fjárfest vegna ofurvaxta

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að fyrirtæki þori hvorki að fjárfesta né ráða til sín fólk vegna himinhárra vaxta.  „Í stað þess að lækka vexti um 2,5 prósentur ættu stýrivextirnir að vera 2,5 prósent," segir Vilhjálmur. Um mikið fall á gengi krónunnar sem myndi fylgja slíkri lækkun telur Vilhjálmur að þau áhrif yrðu tímabundin og jákvæð til lengri tíma.

7.5.2009

Lćkkun stýrivaxta fagnađ í Evrópu

Seðlabanki Evrópu lækkaði í dag stýrivexti um 0,25 prósentur og eru þeir nú 1%. Danski seðlabankinn fylgdi í kjölfarið og lækkaði stýrivexti í 1,65% en Íslendingar mega búa við 13% stýrivexti eftir lækkun dagsins hjá Seðlabanka Íslands. Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, fagna því að stýrivextir séu nú aðeins 1% á evrusvæðinu og segja nauðsynlegt að grípa til óhefðbundinna meðala til að koma krafti í atvinnulífið á nýjan leik.

7.5.2009

Stýrivextir ćttu ađ vera 2,5%

 „Vissulega er 2,5 prósentustiga vaxtalækkun meiri lækkun en þeir hafa áður kynnt, það er vissulega jákvætt. Við hefðum hins vegar ekki viljað sjá vextina lækka um 2,5 prósentur heldur að þeir hefðu verið færðir niður í 2,5%," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við mbl.is. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 2,5 prósentur í 13,0%.

6.5.2009

Atvinnulífiđ hrópar eftir ađgerđum

Samtök atvinnulífsins telja að það muni valda óbætanlegum skaða ef stýrivextir verði ekki lækkaðir verulega í vikunni. SA áttu í gær fund með fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna ásamt aðilum vinnumarkaðarins. Þór Sigfússon, formaður SA, segir atvinnulífið hrópa eftir aðgerðum og því hafi verið komið til skila.

5.5.2009

Háir vextir eru ađ sliga atvinnulífiđ

Það sem helst leiðir til þess að fyrirtæki í vandræðum fá ekki þá aðstoð frá bönkunum sem þau þurfa á að halda eru slæm lánakjör og þar ræður vaxtastigið mestu. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið í dag. Hann segir nauðsynlegt að stýrivextir verði lækkaðir sem allra fyrst. Þeir eru nú 15,5 prósent og taka lánakjör banka mið af þeim. „Hjá fyrirtækjunum er staðan að versna dag frá degi öðru fremur vegna vaxtanna," segir Vilhjálmur.

4.5.2009

Frambođ á starfsnámi verđi aukiđ í atvinnulífinu

„Ég held að það sé gríðarlega þýðingarmikið núna að skoða alla þessa fleti og get ekki annað sagt en að mér finnst allar hugmyndir Vinnumálastofnunar til sóma og rétt að ræða þær," segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, í frétt í Morgunblaðinu í dag.

4.5.2009

Gátlisti fyrirtćkja vegna inflúensufaraldurs

Á vef SA má nú nálgast gátlista sem tekinn var saman fyrr á þessu ári af aðilum sem unnu að landsáætlun vegna viðbragða við alheimsinflúensu. Beinist listinn sérstaklega að fyrirtækjum og er ætlað styðja þau við gerð eigin viðbragðsáætlana vegna mannskæðra inflúensufaraldra og fyrirbyggja að rekstur fyrirtækja rofni vegna þeirra.

2.5.2009

Störf og verđmćti tapast vegna óvissu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV störf og verðmæti tapast í atvinnulífinu meðan þess er beðið að ný ríkisstjórn verði mynduð. Vegna óvissu í stjórnmálum hafi atvinnurekendur þurft að bíða með margar ákvarðanir varðandi rekstur, fjárfestingar og mannahald. Vilhjálmur segir ekki óðeðlilegt að það taki tíma að mynda ríkisstjórn en atvinnulífið þurfi á vissu að halda um framtíðina.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english