Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30.9.2008

Framkvćmdastjórn SA fundar í Brussel

Framkvæmdastjórn SA fundaði í dag með embættismönnum Evrópusambandsins á sviði samkeppnismála. Lýstu þeir áhyggjum af stöðu mála á alþjóðlegum fjármálamörkuðum en fram kom að á vettvangi ESB er nú verið að undirbúa breytingar á löggjöf sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir að núverandi kreppa endurtaki sig. Þær breytingar munu einkennast af hlutlægni, gegnsæi, jafnræði og auknu eftirliti með aðilum á fjármálamarkaði.

30.9.2008

Ályktun ađalfundar Samtaka fiskvinnslustöđva

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva fór fram föstudaginn 26. september 2008. Í ályktun fundarins segir m.a. að áhrif 33% minnkunar á þorskveiðiheimildum hafi komið mjög illa við öll fyrirtæki í sjávarútvegi og minnkað til muna þá framlegð sem þurfi að vera eftir í fyrirtækjunum. Áhrif gengisbreytinga hafi aukið rekstrartekjur í sjávarútvegi en einnig hækkað erlendar skuldir og aðföng. Hagsmunir sjávarútvegsins felist ekki í miklu flökti á gengi íslensku krónunnar umfram aðra gjaldmiðla, heldur í stöðugra gengi hennar - þar sem horft verði til mikilvægis útflutnings- og samkeppnisgreina. Samtök fiskvinnslustöðva skora á Seðlabankann að lækka stýrivexti sem allra fyrst.

26.9.2008

Samskipti viđ ESB efld - stađa Íslands styrkt

Forysta Samtaka atvinnulífsins heimsækir Evrópusambandið í Brussel í byrjun næstu viku. Samtökin munu hitta og ræða við valda aðila innan og utan ESB. „Ferðin er liður í umræðum innan aðildarsamtaka Samtaka atvinnulífsins um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu," segir Þór Sigfússon, formaður SA. „Markmið okkar með þessari ferð eru að fá nánari vitneskju um hvernig evrópsku atvinnulífi farnast innan ESB, hver sé líkleg þróun ESB á næstu árum og hvernig efla megi samskipti íslensks atvinnulífs og ESB."

24.9.2008

Árlegur símenntunardagur í fyrirtćkjum í dag

Miðvikudagurinn 24. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, t.d. með því kynna starfsmönnum fræðslustefnu fyrirtækisins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum, stéttarfélögum eða styrktarsjóðum.

23.9.2008

Samningur viđ ljósmćđur hefur ekki áhrif á almenna kjarasamninga

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að samningur ríkisins við ljósmæður muni ekki hafa áhrif á samninga á almennum vinnumarkaði. Núgildandi kjarasamningar gildi til þriggja ára og að vonir standi til að þá verði hægt að framlengja í mars þegar þeir komi til endurskoðunar. Almennt séu SA fylgjandi því að gera sem lengsta kjarasamninga sem hingað til hafi átt þátt í að auka stöðugleika. Vilhjálmur segir ljóst að forsendur kjarasamninga séu brostnar en það komi jafnt niður á starfsfólki og fyrirtækjum.

22.9.2008

Ađildarfélög SA rćđa gjaldmiđilsmál

Í byrjun október á síðasta ári beindi stjórn SA því til allra aðildarsamtakanna að taka gjaldmiðilsmál  til umfjöllunar. Kannað yrði hvort breytingar á íslensku atvinnu- og efnahagslífi kalli á endurmat á því hvort einstakar atvinnugreinar telji sér betur borgið með öðrum gjaldmiðli en íslensku krónunni. Í samtali við Fréttablaðið í dag segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, að tilefni hafi verið fyrir hendi þegar ákveðið var að fara í þessa vinnu og það tilefni hafi ekki minnkað. Það verði stöðugt brýnna að málið klárist.

22.9.2008

Vika símenntunar stendur yfir

Vika símenntunar stendur yfir dagana 22.-28. september 2008. Markmiðið er að auka símenntun í íslensku atvinnulífi og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2008 er lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun.

19.9.2008

Kynjahlutföll jöfnuđ í lífeyrissjóđunum

Samtök atvinnulífsins skipa í 24 sæti stjórnarmanna í 9 lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóðirnir eru mikilvægt fjárhagslegt afl en í árslok síðasta árs nam hrein eign allra lífeyrissjóðanna í landinu um 1.650 milljörðum króna. Þór Sigfússon, formaður SA, segir gríðarlega mikilvægt fyrir landsmenn að sjóðunum sé stjórnað faglega en Samtök atvinnulífsins hafa viljað auka fjölbreytni stjórnarmanna og rétta hlut kynjanna innan stjórnanna. Árið 2008 voru konur helmingur tilnefndra stjórnarmanna SA og skipa nú konur fjórðung af þeim sætum sem SA skipa í lífeyrissjóðunum. Áfram verður haldið á þessari braut.

19.9.2008

Klókt ađ auka fjölbreytni í atvinnulífinu

Auka má fjölbreytni verulega í íslensku atvinnulífi og á tímum þegar blæs á móti eiga stjórnendur að nýta tækifærið til að taka til í rekstrinum - leita nýrra leiða til aukinnar hagsældar. Það er klókt að auka nú fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja og í stjórnunarstöðum. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA, á afmælisráðstefnu Háskólans á Bifröst í dag sem fram fór í Salnum í Kópavogi. Hann hvatti til þess að á næstu 18 mánuðum yrði gert átak til að auka fjölbreytni þannig að fjölbreytni í viðhorfum, aldri og kyni fái notið sín í íslensku atvinnulífi.

18.9.2008

ESB styrkir íslenska starfsmenntun

Fjögur stór íslensk verkefni fá úthlutað styrk úr Leónardó-hluta menntaáætlunar ESB, en markmiðið er að styrkja og ýta undir ný viðhorf í stefnumótun og framkvæmd starfsmenntunar í Evrópu. Verkefnin fjögur fá styrk að upphæð 19-26 milljónir hvert. Til viðbótar fengu rúmlega 200 íslenskir nemendur í starfsnámi, stjórnendur og starfsfólk á vinnumarkaði styrki til starfsnáms og kynnisferða í 31 Evrópulandi.

17.9.2008

Eldri starfsmenn - akkur vinnustađa

Geta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Leitað verður svara við þessari spurningu á málþingi á vegum Verkefnisstjórnar 50+ í Ketilhúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september 2008 kl. 13:00 - 16:00. Málþinginu stýrir Kristín Ástgeirsdóttir.

15.9.2008

Lokaráđstefna Jafnréttiskennitölunnar - 19. september

Ráðstefna um nýtingu mannauðs í stjórnun og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja verður haldin í Salnum í Kópavogi þann 19. september næstkomandi. Með ráðstefnunni lýkur verkefninu um Jafnréttiskennitöluna, sem unnið hefur verið af Rannsóknasetri í vinnurétti og jafnréttismálum við Háskólann á Bifröst en Samtök atvinnulífsins eru meðal samstarfsaðila að verkefninu. Ráðstefnan er jafnframt liður í afmælisdagskrá Háskólans á Bifröst á 90 ára afmælisári hans.

12.9.2008

Háir stýrivextir forsenda verđbólgunnar?

Það er kominn tími til að menn velti því fyrir sér hvort vaxtastefna Seðlabankans og háir stýrivextir séu ekki orðnir forsenda verðbólgunnar í stað þess að vinna gegn henni, segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins. Rætt var við Þór á Morgunvaktinni á Rás 1. Hann segir vexti Seðlabankans virka sem sleggju á íslenskt atvinnulíf og á meðan fyrirtæki komist ekki í erlenda sjóði séu þau nauðbeygð að fjármagna sig á þessum háu vöxtum. Seðlabankinn horfi hins vegar ekkert til þessa en segi vexti lækka þegar verðbólgan lækki. SA hafi áhyggjur af því að þessir háu stýrivextir séu ein af forsendunum fyrir stöðu verðbólgunnar.

11.9.2008

Raunhćfar vćntingar um stöđugleika og hagvöxt

Afstýra verður því að atvinnulífið og almenningur festist í fjötrum tveggja stafa verðbólgu og óstöðugleika. Það má ekki gerast að núverandi erfiðleikar leiði til gamaldags víxlhækkana launa og verðlags sem á sínum tíma gengu nærri bæði starfsfólki og fyrirtækjum. Framfarir verða að byggja á stöðugleika, þannig eru mestar líkur á því að árangur náist. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfs SA og segir að það verði eitt af helstu og mikilvægustu viðfangsefnum SA á næstu mánuðum að ræða við ASÍ, ríkisstjórnina og aðra aðila til að stuðla að stöðugleika á ný og tryggja hagvöxt í framtíðinni.

11.9.2008

SA styđja tvćr nýjar rannsóknir á launamun kynja

Samtök atvinnulífsins, Hagstofa Íslands og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um rannsókn á launamun kvenna og karla sem byggir á gagnasafni Hagstofunnar. Er samstarfið gert í framhaldi af bókun með kjarasamningi ASÍ og SA frá 17. febrúar 2008 um áherslur samningsaðila í jafnréttismálum og nær til gagna um laun og störf á almennum vinnumarkaði. Þá hafa SA og ASÍ gert samstarfssamning við ParX, Viðskiptaráðgjöf IBM, um rannsókn á launamun kynja fyrir árið 2008 á grundvelli gagnasafns ParX um launagreiðslur.

11.9.2008

Viđskiptahindranir gagnast ekki í baráttunni viđ loftslagsbreytingar

Samtök atvinnulífsins á Norðurlöndum og Samtök breska iðnaðarins hafa í sameiningu sent frá sér skýrslu þar sem fjallað er um hugmyndir um sérstakar viðskiptahindranir til að hvetja til þess að dregið verði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda í ríkjum sem ekki hafa sett sér útstreymisþak. Hugmyndir um slíkar viðskiptahindranir hafa verið til umræðu í Evrópusambandinu. Í skýrslu samtakanna er sýnt fram á að þessar hugmyndir séu ekki líklegar til að skila árangri í baráttu við loftslagsbreytingar, þær hafi slæm áhrif á lífskjör almennings og skekki samkeppnisstöðu evrópsks atvinnulífs. Þá séu umhverfisáhrifin í besta falli sáralítil og að slíkar aðgerðir geti leitt til gagnaðgerða sem skaði útflutning frá Evrópu.

11.9.2008

Óskađ eftir ađstođ viđ kafbátainnflutning

Ein af mörgum djúpum hugmyndum sem rædd var á Hugmyndaþingi SA sem fram fór á Hofsósi þann 5. september síðastliðinn var innflutningur á kafbáti fyrir ferðamenn. Upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar, Freyr Antonsson,  hefur undanfarið unnið að því að gera innflutninginn að veruleika og leitar nú stuðnings við verkefnið. Hugmynd hans er að starfrækja kafbát fyrir 36 farþega og sigla um Eyjafjörð á 12 sjómílna hraða ofansjávar og 5 sjómílna hraða neðansjávar, skoða undur  hafsins og elta hvali. Kafbáturinn kostar 400 milljónir króna.

11.9.2008

Ákvörđun um byggingu koltrefjaverksmiđju innan seilingar

Það skýrist snemma á næsta ári hvort ráðist verður í byggingu koltrefjaverksmiðju í Skagafirði en undirbúningsathugun vegna byggingu verksmiðjunnar lýkur á næstu mánuðum. Verði verkefnið að veruleika skilar það Skagfirðingum um 5 milljarða króna fjárfestingu og allt að 120 nýjum störfum. Ætlunin er að í verksmiðjunni verði framleiddur koltrefjaþráður sem nýtist til iðnframleiðslu en gríðarleg aukning er áætluð í notkun koltrefja á næstu árum eða um 15 - 20% á ári. Með notkun á koltrefjum í vöruframleiðslu sparast orka og vörurnar verða umhverfisvænni. Koltrefjar eru m.a. notaðar í felgur á bíla, í báta, skip og farþegaflugvélar.

11.9.2008

Menntun og nýsköpun forsenda öflugs mannlífs

Áhersla á menntun og nýsköpun er ein af grundvallarforsendum þess að hægt verði að snúa við þeirri þróun sem landsbyggðin hefur þurft að glíma við í atvinnu- og byggðarmálum. Þetta er mat Ólafs Sigmarssonar, framkvæmdastjóra hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, en KS hefur með margvíslegum hætti unnið að uppbyggingu atvinnulífs í Skagafirði ásamt því að styðja við nýsköpunarverkefni. KS veltir um 14,2 milljörðum króna á ári og hjá því starfa um 600 manns.

10.9.2008

Kvikmyndaframleiđsla atvinnugrein á uppleiđ

Góðir möguleikar eru á að byggja upp þjónustu í kringum kvikmyndaframleiðslu á landsbyggðinni.  Á þetta benti Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi á Hugmyndaþingi SA á Hofsósi. Sagði hann sveiflur á íslensku krónunni hafa valdið greininni miklum skaða en aðstæður nú séu hagstæðar til að laða erlend verkefni til landsins. Nauðsynlegt sé að efla innlend kvikmyndafyrirtæki til að takast á við krefjandi verkefni en þau hafi í gegnum tíðina verið of mörg og smá.

10.9.2008

Öllum ber ađ kaupa slysatryggingu

Samkvæmt kjarasamningum SA ber öllum atvinnurekendum að kaupa slysatryggingu vegna launamanna sem hjá þeim starfa. Vanræksla getur verið dýrkeypt. Samtök atvinnulífsins minna atvinnurekendur jafnframt á að mikilvægt er að tilkynna um öll vinnuslys án tafar til Vinnueftirlits ríkisins.

9.9.2008

Mikilvćgi hins smáa og fjölbreytta

Steinunn Jónsdóttir, athafnakona, var meðal frummælenda á Hugmyndaþingi SA sem fram fór nýverið á Hofsósi. Þar fjallaði hún um mikilvægi hins smáa og fjölbreytta við atvinnuuppbyggingu. Steinunn sagði tækifærin oft liggja í næsta nágrenni okkar og nefndi í því sambandi Listasetrið Bæ á Höfðaströnd sem er aðsetur listamanna og arkitekta yfir sumartímann. Listasetrið er eini staðurinn á landinu þar sem listamenn með ólíkan bakgrunn dvelja samtímis og skiptast á reynslu og þekkingu en markmiðið er að staðurinn nái alþjóðlegri viðurkenningu innan fárra ára sem einstakur staður fyrir listafólk og arkitekta sem geti m.a. sótt sér innblástur í séríslenskar aðstæður.

9.9.2008

SA styđja álver á Bakka

Samtök atvinnulífsins styðja heilshugar þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er við álver á Bakka á Húsavík og telja mikilvægt að stjórnvöld sýni virkan stuðning við verkefnið og ekkert sé gert til að leggja stein í götu þess, tefja framkvæmdir eða gera hlutina erfiðari en nauðsynlegt er.

8.9.2008

Hćgt ađ ná árangri ţótt á móti blási

Staða atvinnulífs á landsbyggðinni var til umræðu á Hugmyndaþingi SA sem fram fór á Hofsósi  þann 5. september. Þingið var mjög vel heppnað en um 70 manns mættu til leiks í Vesturfarasetrinu og hlýddu á valinkunna aðila úr íslensku athafnalífi deila reynslu sinni af atvinnuuppbyggingu auk þess að ræða nýjar leiðir í þeim efnum. Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA af þessu tilefni í kvöldfréttum Sjónvarps og á Morgunvaktinni á Rás 1.

4.9.2008

Mikill áhugi á Hugmyndaţingi SA á Hofsósi

Það stefnir í húsfylli á Hugmyndaþingi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer í Vesturfarasetrinu á Hofsósi, föstudaginn 5. september. Yfirskrift þingsins er Hagvöxt um land allt! Valinkunnir aðilar úr íslensku athafnalífi munu þar deila reynslu sinni af atvinnuuppbyggingu og draga upp mynd af framtíð atvinnulífs á landsbyggðinni. Þinginu stýrir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, en það hefst klukkan 14 og verður lokið um 16:30. SA hvetja áhugasama til að skrá sig sem fyrst á vef SA til að tryggja sér sæti.

4.9.2008

Aukin áhersla á endurhćfingu á norrćnum vinnumarkađi

Á Norðurlöndunum eru 10-15% fólks á vinnualdri utan vinnumarkaðar tímabundið eða til frambúðar vegna heilsufarsvanda. Í öllum ríkjunum er nú reynt að bregðast við með því að stórauka endurhæfingu en útlit er fyrir að fólki muni fækka á norrænum vinnumarkaði á næstu árum og áratugum. Aldurssamsetning þjóðanna er að breytast - fjölmennir árgangar eru að fara á eftirlaun og árgangar fólks sem koma út á vinnumarkaðinn eru fámennari auk þess sem ungt fólk byrjar seinna að vinna en áður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri sameiginlegri skýrslu samtaka atvinnulífsins á Norðurlöndum um stöðu og horfur á norrænum vinnumarkaði. Ísland stendur vel að vígi í norrænum samanburði en skýrslan var kynnt á árlegum fundi formanna og framkvæmdastjóra samtakanna sem fram fór í Reykjavík.

4.9.2008

Kjarasamningur gerđur viđ ađildarfélög BHM

Samtök atvinnulífsins hafa undirritað kjarasamning við 14 aðildarfélög BHM og tekur hann gildi 1. október nk. Samningurinn nær til félagsmanna í hlutaðeigandi stéttarfélögum sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA og gegna störfum sem krefjast háskólamenntunar.

3.9.2008

Íslenska efnahagsundriđ er engin bóla

„Þrátt fyrir mjög alvarlega stöðu í íslenskum efnahagsmálum um þessar mundir þá megum við ekki gleyma því að íslenska efnahagsundrið er engin bóla og ef við stöndum rétt að málum þá er Ísland land tækifæranna og horft verður til Íslands um fyrirmyndir á næstu árum og áratugum." Þetta segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, í grein í Markaðnum í dag. Þór sat í síðustu viku fund formanna samtaka atvinnulífsins á Norðurlöndum þar sem var gerður samanburður á framtíðarhorfum milli OECD-landa. Þar kom skýrt fram að Ísland er í forystu í Evrópu á sviðum sem talin eru skipta miklu máli þegar horft er til framtíðarhorfa og langtímahagvaxtar.

3.9.2008

Hćgt ađ rjúfa umsátriđ um íslenska fjármagnsmarkađinn

Morgunblaðið fjallar í dag um lántöku ríkissjóðs á 30 milljarða króna gjaldeyrisláni til að styrkja gjaldeyrisvaraforðann. „Þetta er mjög gott merki um að við getum brotist út úr þessu umsátri um íslenska fjármagnsmarkaðinn," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við blaðið en Íslendingar hafa undanfarið ekki notið eðlilegra lánskjara. Vilhjálmur segir mikilvægt að ríkið haldi áfram á sömu braut og að bankarnir eigi að geta fylgt í kjölfarið með lántöku á eðlilegum kjörum. „Bankarnir fá eðlilegan aðgang að lánsfé ef ríkið er að fá lán á þessum kjörum. Þetta eru því mjög jákvæð tíðindi."

2.9.2008

Haldiđ verđi áfram á sömu braut

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist í samtali við Vísi.is ánægður með þær fréttir sem bárust af Alþingi í dag að ríkissjóður væri að ganga frá gjaldeyrisláni upp á rúma þrjátíu milljarða. Hann segir þetta mjög gott skref í rétta átt og nú sé brýnt að halda áfram á sömu braut. „Þetta er mjög jákvætt og um að gera að byrja einhvers staðar," segir Vilhjálmur og telur að styrkja eigi gjaldeyrisvarasjóðinn enn meira með frekari lántöku.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english