Fréttir
16.7.2008
Upphafiđ af víđtćkari ráđstöfunum og hugmyndavinnu
16.7.2008
Ákvörđun um upptöku evru myndi breyta mörgu
15.7.2008
Ár hagrćđingar stendur yfir
15.7.2008
Mörg fyrirtćki hafa eflst á undanförnum árum
15.7.2008
Athyglisverđ hugmynd ađ taka upp evru á grundvelli EES
14.7.2008
Umtalsverđ lćkkun stýrivaxta nauđsynleg
14.7.2008
Látiđ reyna á upptöku evru
14.7.2008
Nýr starfsmenntasjóđur SA og Verkstjórasambands Íslands
Þann 1. júlí 2008 var undirritaður viðauki við kjarasamning verkstjóra og SA og samþykktir fyrir nýjan starfsmenntasjóð Samtaka atvinnulífsins og Verkstjórasambands Íslands (VSSÍ). Markmið þessa nýja starfsmenntasjóðs er að starfandi verkstjórum bjóðist ávallt heildstæð grunn- og endurmenntun sem uppfylli þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma. Starfsmenntasjóður SA og VSSÍ er sjálfstæður sjóður en stofnaðilar skipa fulltrúa í sjóðsstjórnina. Frá 1. júlí 2008 verður greitt sérstakt starfsmenntagjald 0,3% af öllum launum starfandi verkstjóra til sjóðsins. Gert er ráð fyrir að VSSÍ annist reikningshald sjóðsins, sjóðsvörslu og innheimtu gjaldsins.
10.7.2008
Bautasteinn reistur Einari Oddi fyrir framlag til Ţjóđarsáttar
8.7.2008
Gjald launagreiđenda í Endurhćfingarsjóđ
7.7.2008
SA kanna rekstrarhorfur međal félagsmanna
3.7.2008
Ađ óbreyttu stefnir í atvinnuleysi
Seðlabanki Íslands tilkynnti nú í morgun um óbreytta stýrivexti, 15,5%. Fáir höfðu reiknað með því að bankinn lækkaði vexti þrátt fyrir ærið tilefni þannig að framundan er sú braut fyrir atvinnulífið sem mörkuð hefur verið með takmörkuðum aðgangi að erlendu lánsfé og einstaklega óhagstæðum kjörum á innlendu sem erlendu lánsfé. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að óbreyttu stefni í verulega erfiðleika og atvinnuleysi á haustmánuðum. Staðan í atvinnumálum sé einstaklega dökk og tilrauninni með nýrri peningastefnu frá 2001 sé nú lokið. Á næstu mánuðum muni Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin auka enn á samskipti sín vegna þróunar atvinnumála. Mikilvægasta verkefnið sé að skapa atvinnulífinu viðunandi starfsgrundvöll og efla það með fjárfestingum og hagvexti á næstu árum m.a. með stórum verkefnum á sviði virkjana og orkunýtingar.
3.7.2008
Mjög slćmar ađstćđur í efnahagslífinu
Um 76% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum landsins telja að aðstæður í efnahagslífinu séu frekar eða mjög slæmar, um 22% telja þær hvorki góðar né slæmar og einungis 2% telja þær góðar. Þetta kemur fram í ársfjórðungslegri könnun Capacent Gallup um stöðu og horfur í atvinnulífinu sem gerð er fyrir SA, Seðlabankann og fjármálaráðuneytið. Þegar litið er hálft ár fram í tímann eru efnahagshorfur á hinn bóginn skárri. Telja stjórnendur hjá um 32% fyrirtækjanna að aðstæður verði þá betri, um 26% vænta óbreytts ástands en um 42% búast við verri aðstæðum. Vísitala efnahagslífsins miðað við núverandi aðstæður er lægri en áður hefur komið fram í sambærilegum könnunum, allt frá september 2002. Meirihluti fyrirtækjanna býst við óbreyttum starfsmannafjölda en um fjórðungur hyggst fækka starfsfólki.
3.7.2008
Stefnir í 90 milljarđa olíuinnkaup Íslendinga
3.7.2008
Skýrsla um fjölmyntavćđingu atvinnulífsins
2.7.2008
Skipulagsstofnun á villigötum
Skipulagsstofnun virðist í fjölmörgum dæmum hafa farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt á undanförnum misserum. Í fjölda tilvika hefur stofnunin lagt fram skoðun sína á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda í stað þess að leggja megináherslu á að meta hvort matsskýrsla á umhverfisáhrifum framkvæmdanna sé fullnægjandi og uppfylli ákvæði laga. Það er lögbundið hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum frá 2005 og var það m.a. undirstrikað af umhverfisnefnd Alþingis að það væri ekki hlutverk Skipulagsstofnunar að meta hvort rétt væri að ráðast í tilteknar framkvæmdir eða ekki - hlutverk stofnunarinnar væri að leggja mat á hvort sá sem veitir leyfi fyrir tiltekinni framkvæmd sé upplýstur um umhverfisáhrif hennar og athugasemdir almennings þegar afstaða til framkvæmdaleyfis er tekin. Nauðsynlegt er að umhverfisráðuneytið tryggi að stofnunin starfi eftir þeim lögum sem um hana gilda.










