Fréttir
31.1.2008
Við segjum já
24.1.2008
Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við loftslagsbreytingum
23.1.2008
Orkuverð hækkar vegna útstreymiskvóta í Evrópu
22.1.2008
Tími krónunnar liðinn
21.1.2008
Samningstíminn mikilvægur
18.1.2008
Áhersla á lengri samninga
15.1.2008
Versnandi staða og óviss framtíð í atvinnulífi
10.1.2008
Skynsemi, raunsæi og framsýni
Í dag funda Samtök atvinnulífsins með fjórum landssamböndum verkalýðsfélaganna, Starfsgreinasambandinu og Flóabandalaginu, Rafiðnaðarsambandinu, VR/LÍV og Samiðn. Á þessum fundum verður farið yfir stöðuna í viðræðum um nýja kjarasamninga í ljósi þess að á sameiginlegum fundi í gær gáfu Alþýðusambandið og landssamböndin það til kynna að nú væru samningamálin ekki lengur á sameiginlegu borði þar sem ríkisstjórnin hefði tekið svo dræmt í þær hugmyndir sem þau vildu leggja til grundvallar nýjum kjarasamningum. Á fundunum í dag verður farið yfir hina nýju stöðu. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, nauðsynlegt að halda áfram viðræðunum á grundvelli skynsemi, raunsæis og framsýni. Það sé öllum í hag að kjarasamningarnir varði leiðina að lægri verðbólgu og að launakostnaðarhækkunum sé forgangsraðað til þeirra sem eru með lægstu launin eða þeirra sem ekki hafa notið neins launaskriðs.
10.1.2008
Hagsmunir Íslands í loftslagsmálum verði tryggðir
Við gerð nýs alþjóðlegs samkomulags um loftslagsmál hljóta íslensk stjórnvöld að leggja áherslu á sérstöðu Íslands og þann árangur sem náðst hefur í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Endurnýjað íslenskt ákvæði verður að tryggja að hægt verði að ráðast í þau verkefni sem þegar eru áætlanir um og að hægt verði að halda áfram uppbyggingu hér á landi á þeim tíma sem nýju samkomulagi er ætlað að vara. Þannig tryggja stjórnvöld hagsmuni íslensks atvinnulífs og um leið þjóðarinnar í bráð og lengd.
10.1.2008
Jaðaráhrif í tekjuskattkerfinu og tekjutengdur persónuafsláttur
Mikil umræða hefur átt sér stað um tillögur ASÍ í skattamálum sem lagðar voru fram í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður og ríkisstjórnin hefur hafnað. SA telja að þessar tillögur ASÍ í skattamálum myndu hafa neikvæð áhrif á vinnumarkaðinn þar sem stórauknir jaðarskattar myndu draga úr hvata fólks til að vinna og skerða möguleika þess til að afla sér aukinna tekna.Tillaga ASÍ felur í sér tekjutengdan viðbótarpersónuafslátt á mánaðarlaun á bilinu 150-300 þúsund krónur. Þessi leið hefur aukna jaðarskatta í för með sér fyrir fólk á þessu tekjubili og myndi það greiða 48,3% af síðustu 1.000 krónunum sem það aflaði sér á mánuði í stað 34,3% eins og nú. Tillaga ASÍ felur í sér hækkun á hæstu jaðaráhrifum í 67% sem þýðir að einstaklingar með mánaðartekjur á bilinu 150 til 300 þús. kr. á mánuði, með barnabætur vegna þriggja barna, vaxtabætur og námslánaskuldir, myndu einungis halda eftir þriðjungi þess tekjuauka sem þeir ynnu sér inn með aukinni vinnu eða hærri launum. Þetta má m.a. sjá í greinargerð sem SA hefur tekið saman um jaðaráhrif í skattkerfinu og tekjutengdan persónuafslátt.
9.1.2008
Skattar verða lækkaðir
Fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen, segir að skattar verði lækkaðir á yfirstandandi kjörtímabili. Þetta kom fram á Skattadegi Deloitte sem haldinn var í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð og Viðskiptablað Morgunblaðsins á Grand Hótel Reykjavík. Þó sagði Árni ekki tímabært að greina frá því hvenær það yrði gert eða með hvaða hætti í ljósi óvissu í efnahagsmálum og framvindu kjarasamninga. Uppselt var á Skattadaginn þar sem fjölbreytt erindi á sviði skattamála voru flutt. Fram kom m.a. að Ísland hefði enn fjölmörg tækifæri til að auka hér tekjur og velmegun með því að lækka skatta.
8.1.2008
SA funda um gjaldmiðilsmál og ESB
Samtök atvinnulífsins efna til umræðufundar um gjaldmiðilsmál fimmtudaginn 17. janúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Fundurinn er opinn fulltrúum í stjórn SA og aðildarsamtaka SA auk starfsmanna samtakanna. Frummælendur eru Daniel Gros, framkvæmdastjóri Center for European Policy Studies, Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings og Guðmundur Magnússon, prófessor emeritus og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.
7.1.2008
Stefnan í launamálum hins opinbera verði ljós
Mikilvægt er að vita hvaða stefnu sveitarfélögin og ríkið taka í launamálum sinna starfsmanna, í kjölfar samninga á almennum vinnumarkaði, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í Morgunblaðinu í dag. Vilhjálmur segist jafnframt ekki telja tímabært að ríkisstjórnin komi með innlegg sitt til lausnar kjaraviðræðna fyrr en meiri skriður komist á viðræðurnar, þær séu í eðlilegum farvegi. Gert er ráð fyrir að fulltrúar SA og Starfsgreinasambands Íslands muni hittast á fimmtudaginn. Í samtali við Morgunblaðið segir Vilhjálmur mikilvægt að það fáist á hreint hvort menn séu tilbúnir að ræða saman á þeim grunni sem Samtök atvinnulífsins lögðu upp með, það er að nýta svigrúm til launahækkana til að hækka laun lágtekjufólks.
4.1.2008
Fyrirlestur Laffers um skattamál kominn á vefinn
Samtök atvinnulífsins efndu nýlega til hádegisfundar, í samstarfi við ýmsa aðila, með prófessor Arthur B. Laffer – einum kunnasta hagfræðingi heims. Fundurinn fór fram í Bókasal Þjóðmenningarhússins 16. nóvember en upptaka af erindi Laffers er nú komin á vefinn. Í afar líflegu erindi fjallaði hann um áhrif skattalækkana og skattahækkana á einstaklinga, fyrirtæki og þjóðfélög. Vísaði hann til reynslu Bandaríkjamanna í þeim efnum allt frá byrjun 20. aldar til dagsins í dag. Laffer vakti heimsathygli þegar hann setti fram þá kenningu á 8. áratug 20. aldar, að skatttekjur ríkisins þyrftu ekki að minnka, heldur gætu jafnvel aukist, þegar skattar væru lækkaðir.
2.1.2008
Róbert Trausti Árnason til SA
Róbert Trausti Árnason hefur verið ráðinn verkefnastjóri Evrópumála á stefnumótunar- og samskiptasviði Samtaka atvinnulífsins og hefur þegar tekið til starfa. Um nýtt starf er að ræða og mun Róbert Trausti verja um helmingi starfstímans í Brussel. Verkefni Róberts Trausta munu m.a. snúa að því að fylgja eftir hagsmunamálum atvinnulífsins í tengslum við þær breytingar sem á hverjum tíma er verið að vinna að á Evrópulöggjöfinni. Vera íslenskum fyrirtækjum innan handar í Brussel, viðhalda tengslaneti innan stjórnkerfisins hér á landi, aðildarsamtaka SA, einstakra fyrirtækja og víðar ásamt því að vera tengiliður íslensks atvinnulífs við stjórnvöld í Brussel.
2.1.2008
Skattadagurinn 9. janúar
Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Viðskiptablað Morgunblaðsins, verður haldinn miðvikudaginn 9. janúar 2008 á Grand Hótel Reykjavík. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, setur fundinn en meðal frummælenda er Richard Teather skattasérfræðingur og kennari við háskólann í Bournemouth. Hann mun fjalla um skattasamkeppni á milli landa, en hún felur í sér að einstök lönd reyna að laða til sín fjármagn og starfsfólk með því að bjóða fram lága skatta. Teather segir skattasamkeppni vera öllum í hag, sérstaklega þeim löndum, sem nýti sér kosti alþjóðlegrar verkaskiptingar og frjálsra viðskipta. Skattasamkeppni haldi jafnframt í skefjum viðleitni stjórnmálamanna til að hækka skatta. Með því auki hún hagsæld og auðveldi fjárfestingar.










