Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.1.2007

Hagsæld í Hafnarfirði

Samtök atvinnulífsins og Alcan á Íslandi efna til stefnumóts fyrirtækja í Hafnarfirði föstudaginn 2. febrúar frá kl. 7:45-10:00 í Hafnarborg. Þar verður rætt um framtíðarþróun atvinnulífs í Hafnarfirði, stækkun álversins í Straumsvík og fyrirhugaða kosningu Hafnfirðinga um nýtt deiliskipulag við álverið. Leitað verður svara við áleitnum spurningum. Til hvers að stækka álverið og hvað felst í stækkun? Hvaða áhrif hefur stækkunin á önnur fyrirtæki í Hafnarfirði? Hvaða áhrif getur kosningin haft á fyrirtæki í Hafnarfirði? Hvað er í húfi fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga?

31.1.2007

Umhverfisáhrif vegna stækkunar álversins í Straumsvík

Verði af stækkun álvers Alcan í Straumsvík verða loftgæði með tilliti til heilsu fólks og mengun gróðurs og jarðvegs undir öllum mörkum sem sett eru innan sem utan lóðamarka álversins. Þetta kom fram á fundi SA um atvinnulíf og umhverfi sem fram fór í morgun. Á fundinum kom jafnframt fram að Alcan hafi tekist á undanförnum árum að draga stórlega úr útstreymi flúors en mælingar sýna að magn flúors í gróðri við álverið er nú svipað og mældist áður en álver Alcan hóf starfsemi árið 1969. Í dag er losun gróðurhúsalofttegunda á hvert framleitt tonn af áli fjórðungur af því sem það var árið 1990 þegar framleiðslan var 87 þúsund tonn. Verði framleiðslugeta álversins í Straumsvík aukin í 460 þúsund tonn verður heildarlosun gróðurhúsalofttegunda litlu meiri en árið 1990.

30.1.2007

Umhverfisfundaröð SA heldur áfram á morgun

Miðvikudaginn 31. janúar heldur fundaröð SA um atvinnulíf og umhverfi áfram en hún hófst á haustdögum 2006. Að þessu sinni verður fjallað um umhverfisáhrif frá álveri Alcan í Straumsvík – fyrir og eftir stækkun. Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi umhverfismála hjá Alcan mun birta yfirgripsmikil gögn sem sýna þróun mála síðustu ár og áratugi og einnig birtir hún gögn um hvaða áhrif fyrirhuguð stækkun álversins mun hafa á umhverfið.

26.1.2007

Hækkun fjármagnstekjuskatts eykur ekki réttlæti

Skatttekjur af fjármagnstekjum hafa aukist gríðarlega og nema 1,6% af landsframleiðslu og nálgast 20 milljarða króna. Fjármagnseigendur greiða því háar fjárhæðir til ríkisins en áður voru skatttekjur af fjármagnstekjum hverfandi. Þetta kemur fram í grein Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, á vef SA. Þar sýnir hann fram á að sú staðhæfing að skattlagning fjármagnstekna sé mun hagstæðari en skattlagning launatekna sé röng. Vilhjálmur bendir á að tekjuaukningin vegna fjármagnstekjuskatts og tekjuskatts fyrirtækja hafi numið um 3,5% af landsframleiðslu eða í kringum 40 milljörðum króna. Þessi mikla tekjuaukning sé forsenda þess að unnt hafi verið að lækka og jafnvel fella niður aðra skatta á síðustu misserum.

26.1.2007

Rætt um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum

Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen og Rannsóknarþjónustan Sýni standa fyrir námstefnu þann 31. janúar undir yfirskriftinni ,,Öryggi og heilbrigði á vinnustað – Hagur allra”. Markmið námstefnunnar er að fylgja eftir nýrri reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs í fyrirtækjum. Samkvæmt reglugerðinni ber atvinnurekanda að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem á að marka stefnu varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum.

24.1.2007

Evrópusamtök atvinnulífsins breyta um nafn

BUSINESSEUROPE er nýtt heiti á Evrópusamtökum atvinnulífsins sem áður flögguðu heitinu UNICE sem stóð fyrir Union of Industrial and Employers' Confederations of Europe. Nýtt heiti er öllu þjálla og er ætlað að draga fram þá staðreynd að það sé lífsnauðsynleg forsenda fyrir því að Evrópa dafni að þar séu stunduð öflug, kraftmikil og arðvænleg viðskipti. Nafn samtakanna er ritað með hástöfum í einu orði og er ætlað að vera vörumerki evrópsks atvinnulífs svo hróður þess megi berast sem víðast.

23.1.2007

Sprotaþing haldið 2. febrúar

Í samstarfi við þingflokka stjórnmálaflokka, ráðuneyti iðnaðar-, viðskipta- og menntamála, háskóla og aðila stoðkerfis og atvinnulífs efna SI og aðildarfélög til Sprotaþings 2007 föstudaginn 2. febrúar næstkomandi. Á þinginu verður fjallað um stöðu og starfsskilyrði sprota- og hátæknifyrirtækja á Íslandi og tillögur þingheims lagðar fram til afgreiðslu. Sprotaþing 2007 markar einnig upphaf Sprotavettvangs sem formlega hefur störf í kjölfarið. SA eru meðal samstarfsaðila um Sprotaþing. Sjá nánar á vef SI.

21.1.2007

Ráðstefna um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum

Vinnueftirlitið efnir til ráðstefnu um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum á Grand Hótel þriðjudaginn 23. janúar frá klukkan 13-16. Á ráðstefnunni verða kynnt ný ákvæði  um skyldu atvinnurekenda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Einnig munu fulltrúar fyrirtækja greina frá reynslu sinni af áhættumati og forvörnum í starfi. Í lokin verða pallborðsumræður með fulltrúum stjórnvalda og fulltrúum atvinnurekenda og launþega. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.

19.1.2007

SA mótmæla ákvörðun HÍ í máli rektors á Bifröst

Samtök atvinnulífsins vilja koma á framfæri óánægju sinni með þá ákvörðun Háskóla Íslands um að synja nýráðnum rektor Háskólans á Bifröst, dr. Ágústi Einarssyni, um launalaust leyfi í þrjú ár. Samtök atvinnulífsins eru meðal aðstandenda Háskólans á Bifröst, tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum hans og beittu sér fyrir ráðningu dr. Ágústs í rektorsstarfið. Í bréfi framkvæmdastjóra SA til rektors HÍ kemur m.a. fram að synjun um launalaust leyfi komi samtökunum mjög á óvart og þau líti svo á að þessi synjun sé í algjöru ósamræmi við stöðu og metnað Háskóla Íslands, í andstöðu við hagsmuni atvinnulífsins vegna uppbyggingar háskólamenntunar í landinu og alls ekki í neinu samræmi við viðleitni til þess að rækta og efla samstarf Háskóla Íslands við atvinnulífið í landinu. SA vilji eiga gott samstarf við HÍ og hvetji eindregið til þess að ákvörðun skólans um að synja Ágústi Einarssyni um launalaust leyfi verði endurskoðuð.

17.1.2007

Hátekjustörf vantar á landsbyggðinni

Á síðustu 10-15 árum hefur tekist að skapa eftirsóknarverð hálaunastörf á Íslandi og hafa umbætur í skattakerfinu átt stóran þátt í að skila langflestum Íslendingum almennt hærri tekjum en nokkru sinni fyrr. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það þó vera vandamál að hálaunastörfin og háu tekjurnar hafi ekki skapast á öllum stöðum á landinu og því hafi nokkrar byggðir setið eftir í þróuninni. Þessar byggðir búi við launajöfnuð sem felist í of jafn lágum tekjum og betra væri fyrir þessi svæði að búa að fólki með háar tekjur – „þau vanti sárlega meiri misskiptingu".

16.1.2007

Styrkir til námskeiða í íslensku

Menntamálaráðuneyti hefur auglýst fyrstu úthlutun styrkja til fræðsluaðila og fyrirtækja sem bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi árið 2007. Styrkveitingar þessar byggja á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. nóvember síðastliðnum þar sem ákveðið var að fela menntamálráðuneyti framkvæmd verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga og verja til þess 100 milljónum króna árið 2007. Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki sem ekki eru fræðsluaðilar þurfa að hafa samning við hæfan fræðsluaðila sem annast kennsluna. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2007. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytis.

15.1.2007

Atvinnuleysi 1,3% að jafnaði árið 2006

Á árinu 2006 mældist að jafnaði 1,3% atvinnuleysi, 1,8% meðal kvenna og 0,9% meðal karla. Mest var atvinnuleysið í upphafi árs, 2,6% en minnkaði jafnt og þétt eftir því sem leið á árið allt fram í október þegar það mældist 1,0%. Síðustu tvo mánuði ársins jókst það lítið eitt og mældist 1,2% í lok árs. Í desembermánuði síðastliðnum voru skráðir 39.464 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að um 1.879 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum eða 1,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Að mati Vinnumálastofnunar má gera ráð fyrir því að atvinnuleysi aukist lítið eitt  í janúar. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

15.1.2007

Guðrún S. Eyjólfsdóttir til SA

Guðrún S. Eyjólfsdóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri á stefnumótunar- og samskiptasviði Samtaka atvinnulífsins. Guðrún mun einkum sinna verkefnum er tengjast menntamálum. Guðrún er með BA-gráðu í frönsku og bókmenntum frá Háskóla Íslands en hún starfaði áður sem sérfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu. Þar sinnti hún m.a. ráðgjöf í umhverfismálum og tók þátt í fundum Sameinuðu þjóðanna um hafréttarmál. Á árunum 2002-2004 var Guðrún fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins í sendiráði Íslands í Brussel. Áður starfaði Guðrún m.a. sem fréttamaður á fréttastofu Útvarps.

12.1.2007

Aftur á bak eða áfram í skattamálum?

„Íslenskt atvinnulíf bíður eftir því að heyra hvort halda eigi áfram eða aftur á bak í skattamálum. Framhaldið mun ráða miklu um það hvort lífskjör á Íslandi haldast áfram í fremstu röð eða hvort við sígum niður úr hópi fremstu þjóða heims.” Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í erindi sem hann flutti á skattadegi Deloitte en þar kallaði hann eftir skýrum skilaboðum frá öllum stjórnmálaflokkum um það hvert þeir ætli að stefna í skattamálum atvinnulífsins. „Á að þróa áfram samkeppnishæft skattkerfi eða á að taka til baka það sem vel hefur tekist? Á að halda fjármagnstekjuskattinum í 10% og lækka tekjuskatt fyrirtækja enn frekar eða á að hækka hvort tveggja?”

11.1.2007

Efla þarf samkeppnishæfni skattkerfisins

Það er ekki í þágu hagsmuna íslensks samfélags að atvinnulífið skuli þurfa að notast við hjáleiðir eins og hollensk eignarhaldsfélög til þess að búa við samkeppnishæft skattumhverfi, segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, en undanfarið hafa borist fréttir af því að íslensk fyrirtæki stofni eignarhaldsfélög Í Hollandi til að ná fram hagstæðara skattaumhverfi. Vilhjálmur bendir á að til að laga þetta þurfi að gera söluhagnað íslenskra fyrirtækja af hlutabréfum skattfrjálsan eins og arð. Slík breyting væri í takt við hugsunina í skattlagningu tekna fyrirtækja og skattlagingu atvinnulífsins í heild. Skattleggja eigi hagnað af hlutafjáreign fyrst og fremst þegar hann er tekinn út úr því til einstaklinga.

11.1.2007

„Daginn sem við losnum við samviskubitið brennum við jakkafötin!”

Á þessum orðum endaði Svafa Grönfeldt nýr rektor HR erindi sitt sem hún hélt á námsstefnunni Virkjum kraft kvenna sem fram fór á hótel Nordica í morgun. Á fimmta hundrað manns fylltu ráðstefnusal hótelsins, hlýddu á fjölbreytt erindi um konur og stjórnun fyrirtækja ásamt því að taka þátt í fjörlegum umræðum. Félag kvenna í atvinnurekstri, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og Samtök atvinnulífsins stóðu að námsstefnunni.

11.1.2007

Mikil aukning tekjuskattsgreiðslna fjármálafyrirtækja

Álagður tekjuskattur fyrirtækja árið 2006 vegna tekna á árinu 2005 nam 34,7 milljörðum króna. Þar af nam álagður tekjuskattur á fjármálafyrirtæki 13 milljörðum króna eða tæplega 40% af tekjuskatti fyrirtækja í heild. Álagður tekjuskattur fjármálafyrirtækja hefur rúmlega sexfaldast frá árinu 2004 þegar hann nam rúmum tveimur milljörðum króna. Þessar upplýsingar er að finna á vef RSK sem nýlega hefur birt sundurliðun álagningar á fyrirtæki eftir atvinnugreinum.

11.1.2007

Tugmilljóna skattahækkun mótmælt

Á fyrsta degi ársins tóku gildi breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun sem fela í sér tugmilljóna króna hækkun á gjöldum fjarskiptafélaga til stofnunarinnar. Breytingarnar voru lagðar fram í frumvarpi til Alþingis á síðustu starfsdögum þess fyrir jólafrí og var afgreitt með hraði án samráðs við atvinnulífið. Samtök atvinnulífsins mótmæltu þessu harðlega en rökstuðning fyrir þessari skattahækkun skortir og  líkur eru á að breytingarnar stangist á við ákvæði Evrópuréttar. Viðbúið er að fjarskiptafyrirtækin láti reyna á lögmæti þessarar auknu skattheimtu.

10.1.2007

ESB: 20% orku verði endurnýjanleg árið 2020

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur sett sér markmið um að árið 2020 verði 20% orkunotkunar innan sambandsins fengin frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Árið 1997 setti ESB sér markmið um að árið 2010 yrði þetta hlutfall 12%, en nú mun ljóst að það markmið muni ekki nást. Á Íslandi er þetta sama hlutfall hins vegar rúm 70% og fer vaxandi með tilkomu nýrra gufu- og vatnsaflsvirkjana. Sjá nánar á vef Samorku.

9.1.2007

Óheftri og órökstuddri skattheimtu mótmælt í umsögn til Alþingis

Í umsögn til landbúnaðarnefndar Alþingis lýsa Samtök atvinnulífsins eindreginni andstöðu við frumvarp um breytingar á lögum um eldi og heilbrigði sláturdýra, enda feli það í sér ógegnsæja og órökstudda skattlagningu á fyrirtæki. Bent er á að engin tilraun sé gerð til að leggja bönd á þann kostnað sem Landbúnaðarstofnun geti lagt á fyrirtæki, engin takmörk verði lögð á gjaldtöku á kjöti og engar áætlanir liggi fyrir um upphæð gjalda og ráðstöfun þeirra. SA mótmæla ennfremur vinnubrögðum landbúnaðarráðuneytisins sem hefur ítrekað hafnað því að ganga til samstarfs við hagsmunaaðila um að semja nútímalega eftilitslöggjöf. Ekki er lagst gegn því að greitt verði sanngjarnt gjald fyrir nauðsynlegt opinbert eftirlit.

8.1.2007

Skattadagurinn 2007

Skattadagur Deloitte, Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins verður haldinn föstudaginn 12. janúar á Grand Hótel Reykjavík frá kl. 8:15 til 10:30. Dagskráin fer fram í Gullteig og er hún fjölbreytt. Meðal þeirra sem flytja erindi er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en hann mun fjalla um samkeppnishæfni skattkerfisins. Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku á netfangið skraning@deloitte.is eða í síma 580-3000. Léttur morgunverður á boðstólum, verð kr. 2.500. Sjá nánari dagskrá.

4.1.2007

Virkjum kraft kvenna – skráning í fullum gangi

Boðið verður upp á fjölbreytta og glæsilega dagskrá á námsstefnunni Virkjum kraft kvenna sem fram fer á Hótel Nordica fimmtudaginn 11. janúar næstkomandi. Fjallað verður um konur og stjórnun fyrirtækja út frá ýmsum sjónarhornum en námsstefnan er bæði ætluð körlum og konum. Hvaða eiginleikum eru leiðtogar gæddir, hvernig stjórnendur eru konur, hvaða skyldur fylgja stjórnarsetu og hvað ræður vali í stjórnir? Leitað verður svara við þessum spurningum og fleirum þann 11. janúar. SA ásamt iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og Félagi kvenna í atvinnurekstri standa að námsstefnunni.

3.1.2007

Fræðsluferð til Kasakstan

Útflutningsráð Íslands mun á árinu halda með viðskiptasendinefnd í fræðsluferð til Kasakstan. Dagskrá viðskiptasendinefnda Útflutningsráðs fyrir árið 2007 hefur nú verið mótuð og stefnan tekin á nýja og spennandi markaði. Viðskiptasendinefndir munu halda til Suður-Afríku, Indlands, Kína, Ungverjalands og Rúmeníu, Bandaríkjanna, Þýskalands, Norður-Englands og Brasilíu auk Kasakstan. Áhersla er lögð á að auka gæði viðskiptafunda fyrir þau fyrirtæki sem taka þátt og tengslum komið á milli fyrirtækja áður en fundirnir fara fram. Í Kasakstan og Brasilíu verður þó áhersla lögð á kynningar og heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir frekar en viðskiptafundi. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english