Fréttir
31.8.2006
Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ
Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2006. Öll félög í sjávarútvegi koma til greina sem handhafar verðlaunanna sem eiga skip og eru félagar í LÍÚ. Frestur til tilnefningar er til 25. september nk. Sjá nánar á vef LÍÚ.
23.8.2006
Ný efnalöggjöf Evrópusambandsins
Gert er ráð fyrir því að ný efnalöggjöf ESB verði samþykkt í vetur. Unnið hefur verið að löggjöfinni (REACH) í mörg ár en nú er unnið að lokasamræmingu milli Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnarinnar. REACH er ætlað að koma í stað 40 ólíkra núgildandi lagabálka, en löggjöfin felur m.a. í sér almenna skyldu fyrir framleiðanda eða innflytjanda um að skrá öll efni, hrein eða í efnablöndum, sem framleidd eru eða flutt inn í meira magni en einu tonni á ári af viðkomandi aðila. Í pistli á vef Samtaka iðnaðarins er vakin athygli á þessari nýju löggjöf og þeim breytingum sem hún getur haft í för með sér. Sjá nánar á vef SI.
22.8.2006
Varað við hærri gjaldtöku á byggingavöru
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu vara við hærri gjöldum á byggingavöru. Umhverfisráðherra hyggst leggja fram frumvarp um stofnun Byggingastofnunar sem fari með byggingarmál, brunamál, eftirlit með byggingavörum á markaði, rafmagnsöryggismál og eftirlit með lyftum. Til að fjármagna þann þátt sem varðar eftirlit með byggingavörum er gert ráð fyrir að sérstakt gjald verði lagt á byggingavörur. SVÞ segja að gjaldtakan muni bæði leiða til hærri byggingarkostnaðar og eftirlitskostnaðar með innheimtunni. Sjá nánar á vef SVÞ.
21.8.2006
Einkarekstur opinberrar þjónustu þjóðhagslega hagkvæmur
Í nýrri úttekt sem unnin var fyrir sænsku samtök atvinnulífsins (SN) kemur fram að Svíar geti sparað sér allt að 15 milljarða sænskra króna á ári (0,5% af landsframleiðslu), án þess að það komi niður á gæðum eða magni, með því að nýta sér kosti einkarekstrar í opinberri þjónustu. Reynsla Svía af útboðum á opinberri þjónustu hefur til þessa verið góð en árið 2004 greiddu sveitarfélög um 10% af útgjöldum sínum til einkafyrirtækja vegna þjónustuverkefna. Í úttektinni kemur fram að tækifærin blasi við á sviði heilsugæslu og umönnunar aldraðra, barnagæslu og í menntakerfinu.
18.8.2006
Vladivostok, Jóhannesarborg, Leeds, San Francisco...
Útflutningsráð skipuleggur í vetur ferðir viðskiptasendinefnda m.a. til Vladivostok, Jóhannesarborgar, Leeds, San Francisco, Madrídar, Kiev og Lviv í Úkraínu. Á vef ráðsins er hægt að senda inn tillögur um áfangastaði fyrir árið 2007. Þá eru áhugasamir um einstakar ferðir hvattir til að skrá sig og fá þannig sendar nýjar upplýsingar um þær ferðir, en slík skráning er ekki bindandi yfirlýsing um þátttöku. Sjá nánar í ágústfréttum Útflutningsráðs.
16.8.2006
Misráðin vaxtahækkun
Hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum í 13,5% er misráðin ákvörðun sem byggir á röngu mati á þróun mála á tveimur lykilmörkuðum hagkerfisins, vinnumarkaðnum og fasteignamarkaðnum. Brýnt er að Seðlabankinn gangi í takt við efnahagslífið og taki mark á öllum þeim teiknum sem nú eru um niðursveifluna í efnahagslífinu. Bankinn verður að hefja vaxtalækkunarferil strax við næstu vaxtaákvörðun þannig að hann gegni hlutverki sínu með eðlilegum hætti, en eins og staðan er nú gæti Seðlabankinn gert að engu þá atlögu að verðbólgunni sem SA, ASÍ og ríkisstjórnin hafa staðið fyrir.
16.8.2006
Einkavæðing og samkeppni skiluðu forystuhlutverki
Á síðasta áratug náðu Svíar forystusæti á sviði upplýsingatækni og fjarskipta, ásamt með Finnum, Írum og Bandaríkjamönnum. Þessar greinar hafa verið meðal þeirra mikilvægustu í sænsku efnahagslífi undanfarin ár, en óhætt er að álykta sem svo að lykilforsenda þessa góða árangurs hafi verið sú staðreynd að Svíar voru fyrr á ferðinni en flestar samanburðarþjóðir að einkavæða og koma á samkeppni á þessum sviðum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umfjöllun um Svíþjóð í ritinu In Search of Best Nordic Practice, sem samtök atvinnulífsins á Norðurlöndunum fimm hafa gefið út.
15.8.2006
Samkeppni eykur gæði í skólastarfi
Sænskir einkaskólar fá sömu greiðslur með hverjum nemanda frá hinu opinbera og þeir skólar fá sem eru í opinberum rekstri. Nýlegur samanburður sænskra menntayfirvalda sýnir að námsárangur nemenda er betri í einkaskólunum en í skólum í opinberum rekstri, einnig þegar tekið hefur verið tillit til ýmissa félagslegra þátta og efnahags. Þá kemur fram að því hærra sem hlutfall einkaskólanna er í hverju sveitarfélagi, því betri er námsárangur nemenda í skólum í opinberum rekstri innan sveitarfélagsins. Samkeppnin virðist því hafa jákvæð áhrif á gæði skólastarfsins, hvort sem horft er til einkaskólanna eða til skóla í opinberum rekstri.
14.8.2006
Ekkert eitt norrænt módel, en margar fyrirmyndir
Norðurlöndin státa um þessar mundir öll af sterkri stöðu í alþjóðlegri samkeppni. Þrátt fyrir að margt sé líkt með löndunum fimm geta þau hins vegar ýmislegt gagnlegt lært hvert af öðru, þar sem ekki er til neitt eitt norrænt módel. Þetta eru helstu niðurstöður í nýju riti sem samtök atvinnulífsins í löndunum fimm hafa gefið út sameiginlega – Í leit að bestu norrænu leiðinni. Í ritinu er í stuttu máli fjallað um sérstaka styrkleika í hverju landanna fyrir sig, m.a. um skattalagabreytingar á Íslandi, finnska nýsköpunarumhverfið og afnám takmarkana á atvinnufrelsi og innleiðingu samkeppni í sænsku atvinnulífi.
11.8.2006
Mismunandi skattar – mismunandi forsendur
Tekjuskattur einstaklinga hefur tekjujöfnunarhlutverk milli skattgreiðenda, ólíkt tekjuskatti fyrirtækja og fjármagnstekjuskatti. Raunveruleg skattprósenta í tekjuskatti einstaklinga er ýmist lægri eða hærri en hinar skattprósenturnar allt eftir því hvað tekjur eru háar. Tekjuskattur einstaklinga getur verið allt frá 0% upp í að nálgast 36,7 prósentin ef tekjur eru mjög háar. Þá eru barna- og vaxtabætur dæmi um einkenni neikvæðs tekjuskatts einstaklinga á meðan áherslan hefur verið á að fjármagnstekjuskatturinn sé einfaldur í framkvæmd og skatthlutfallið lágt. Þess vegna leggst hann m.a. á verðbætur og vaxtagjöld eru ekki frádráttarbær.
11.8.2006
ESB-embættismenn sendir til starfa í fyrirtækjum
Í stað þess að semja lög og reglur fyrir atvinnulífið munu 350 háttsettir embættismenn framkvæmdastjórnar ESB verja einni viku á næstu misserum innan smárra og meðalstórra fyrirtækja og kynnast þar daglegum veruleika í rekstri. Tilgangurinn er sá að auka innsýn þessara embættismanna – sem alla jafna semja lög og reglur fyrir atvinnulífið – í þennan daglega veruleika í fyrirtækjunum og að þeir öðlist betri skilning á þeim viðfangsefnum sem þar er við að glíma. Í kjölfarið er vonast til að gæði lagatextanna muni batna. Sjá nánar á vef framkvæmdastjórnar ESB.
11.8.2006
1,4% atvinnuleysi í júlí
Í júlímánuði síðastliðnum voru skráðir 45.902 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.184 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,3% í júní sl. en 2,0% í júlí 2005. Að mati Vinnumálastofnunar bendir flest til að atvinnuleysi í ágúst muni aukast lítillega frá því í júlí og verða á bilinu 1,3%-1,6%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
10.8.2006
Ekki snúa baki við framförum
Útilokað er að ræða um fjármagnstekjuskatt og tekjuskatt á fyrirtæki af sæmilegri skynsemi án þess að taka verðbólguna með í reikninginn. Miðað við eðlilegar forsendur má segja að einstaklingur sem ætlar að leggja launin sín inn í hlutafélag og taka þau út í gegnum hagnað og arð sé að greiða milli 34% og 35% skatt af rauntekjum. Fjármagnstekjur hafa ekki vaxið á kostnað launatekna því að þær hafa vaxið hratt og voru hærri á árinu 2005 en nokkru sinni fyrr, sama á hvaða mælikvarða er reiknað. Því er afar hættulegt að rjúka til í miðri ágústumræðunni um tekjur einstaklinga og hafa á lofti mikla svardaga um breytingar á skattkerfinu. Það er hvorki almenningi né atvinnulífinu til framdráttar.
9.8.2006
Úrskurðað gegn sérstöku gjaldi Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Síðastliðinn vetur gagnrýndu
8.8.2006
Skólafólk spreytir sig í rekstri fyrirtækja í stað bæjarvinnu
Í nokkrum sveitarfélögum á Skáni í Svíþjóð býðst skólafólki að kynnast rekstri fyrirtækja í sumarfríinu, í stað hefðbundnari sumarstarfa á vegum sveitarfélaganna. 15 til 17 ára unglingar fá þannig tækifæri til að fræðast almennt um fyrirtækjarekstur, heimsækja fyrirtæki og spreyta sig á framkvæmd eigin viðskiptaáætlunar. Hugmyndin með slíkum verkefnum er fyrst og fremst sú að efla frumkvöðlaanda meðal unga fólksins. Sjá nánar á vef sænsku samtaka atvinnulífsins.
7.8.2006
Suður-Afríka, Rússland, Úkraína, Spánn...
Línur eru farnar að skýrast hvað varðar viðskiptasendinefndir Útflutningsráðs seinni hluta þessa árs. Verið er að undirbúa ferðir viðskiptasendinefnda til Leeds, San Francisco, Jóhannesarborgar í Suður-Afríku, Vladivostok og Petropavlovsk í Rússlandi, Kiev og Lviv í Úkraínu og til Madrídar og Barcelona á Spáni. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
7.8.2006
UNICE dagurinn 17. október: Hvað varðar fyrirtækin um ESB?
Þriðjudaginn 17. október standa UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, fyrir opnum fundi í Brussel um starfsumhverfi fyrirtækja innan Evrópusambandsins. Á fundinum mun fjöldi atvinnurekenda, stjórnmálamanna og emættismanna ESB fjalla um innri markaðinn, þjónustuviðskipti, fríverslun, reglubyrði, efnahagsstjórnun o.fl. Meðal þátttakenda má nefna stjórnarformann Nokia og Shell, stjórnarformann PSA Peugeot Citroën, framkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO, forseta framkvæmdastjórnar ESB, forseta UNICE og forseta Finnlands sem þá verður jafnframt forseti leiðtogaráðs ESB. Aðgangur er ókeypis en skráning á vef UNICE. Sjá nánar á vef UNICE.










