Fréttir
30.10.2006
Ráðstefna um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja
Háskólinn í Reykjavík stendur fyrir ráðstefnunni Þitt tækifæri – allra hagur í samstarfi við KOM almannatengsl á hótel Nordica þann 15. nóvember næstkomandi. Ráðstefnan fjallar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja (Corporate Social Responsibility - CSR ). Markmiðið er að auka skilning og vekja áhuga á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja. Á ráðstefnunni munu innlendir sem erlendir fyrirlesarar í fremstu röð á sviði samfélagslegrar ábyrgðar flytja stutta fyrirlestra um málefnið. Fjallað verður um hvernig íslensk fyrirtæki standi að samfélagslegri ábyrgð og framtíðarsýn þeirra. Auk þess verður fjallað um viðhorf stjórnmálamanna og fjölmiðla. Nánari upplýsingar og skráning hér.
27.10.2006
Starfsmenntaverðlaunin 2006 – tilnefningar fyrir 31. október
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2006 verða veitt í nóvember. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Nánari upplýsingar um verðlaunin, verðlaunahafa síðustu ára og tilnefningar er hægt að nálgast á vef Menntar.
26.10.2006
Háir jaðarskattar skaða danskt efnahagslíf
Háir jaðarskattar íþyngja dönsku atvinnulífi um þessar mundir og fullyrða dönsku samtök iðnaðarins (DI) að skattheimtan stefni hagvexti Danmerkur í voða. Mikill skortur er á starfsfólki í Danmörku en háir jaðarskattar gera það að verkum að erfiðlega gengur að fjölga fólki á vinnumarkaði, fólk vill síður bæta við sig vinnu og erfitt reynist að fá erlent starfsfólk til landsins þar sem hvatinn til vinnu er lítill. Um 14 þúsund vel menntaðir Danir hafa yfirgefið landið til að vinna annars staðar síðustu tuttugu árin og þar spilar skattkerfið stórt hlutverk. Mikill meirihluti þeirra segir háa skatta ástæðu þess að þeir flytji ekki aftur heim.
24.10.2006
SPRON hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs
Viðurkenning Jafnréttisráðs árið 2006 hlýtur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, SPRON. Að mati ráðsins sýnir SPRON gott fordæmi í jafnréttismálum. Þannig hefur t.d. allt frá árinu 1997 verið unnið eftir virkri jafnréttisáætlun en sérstök jafnréttisnefnd hefur það verkefni að fylgja henni eftir til hlítar. Hjá fyrirtækinu starfa 40 stjórnendur og þar af 21 kona. Frá árinu 2004 hefur konum fjölgað í efstu stjórnendastöðum en formaður stjórnar sjóðsins er Hildur Petersen. Sjá nánar á vef félagsmálaráðuneytisins, en Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra afhenti viðurkenninguna.
20.10.2006
Mikilvægt að Seðlabankinn hefji strax lækkun vaxta
„Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa reynst vanhugsaðar og leitt til mikillar útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Þessi staða hefur leitt til óeðlilegrar styrkingar krónunnar og valdið sjávarútveginum gríðarlegum tekjumissi. Mikilvægt er að Seðlabankinn hefji strax lækkun vaxta og stjórnvöld leiti allra leiða til þess að draga úr þeirri þenslu sem er í efnahagslífinu í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktunum aðalfundar LÍÚ, en þar var einnig ályktað um hvalveiðar, starfsskilyrði sjávarútvegsins og um aukið samstarf atvinnurekenda í sjávarútvegi. Sjá nánar á vef LÍÚ.
19.10.2006
Á að einkavæða orkugeirann?
Páll Harðarson, stjórnarformaður Landsnets hf., flutti áhugavert erindi á Orkuþingi um eignarhald orkufyrirtækja og fór yfir rök með og á móti einkavæðingu þeirra. Rétt er að taka fram að Páll lýsti þar eigin sjónarmiðum en talaði ekki fyrir hönd Landsnets. Hann sagði helstu rökin gegn því að einkavæða orkufyrirtæki á Íslandi vera þau að íslensk raforkufyrirtæki hafi til þessa staðið sig ágætlega. Svigrúm til að
17.10.2006
Útflutningur á orku frá Íslandi meiri en innflutningur
16.10.2006
Háir tollar ígildi innflutningsbanns
Ástæðan fyrir því hve lítið er flutt inn af kjöti liggur í þeim afar háu tollum sem lagðir eru á innflutninginn til verndar innlendri framleiðslu. Þá er í gildi tæknileg viðskiptahindrun í því formi að óheimilt að flytja inn ferskar kjötvörur og verður innflutt kjöt að hafa verið frosið í 30 daga. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 9. október segir að almennir tollar á innfluttum kjötvörum verði lækkaðir um allt að 40% þann 1. mars 2007. Ekki á að lækka tolla á mjólkurvörum né ýmsum unnum kjötvörum. Við kynningu málsins er tollalækkununum ætlað að hafa marktæk áhrif á verðlag og því verður að ganga út frá því að 40% lækkun verði á tollum á þeim vörum sem eru í einhverri samkeppni við innlendar kjötvörur, innflutt nautakjöt, svínakjöt og kjúklingakjöt.
13.10.2006
Verðlagsáhrif fyrirhugaðra skatta- og tollalækkana á matvæli
Með afnámi tolla og vörugjalda mætti koma matarverði niður á sama stig og í Finnlandi og Svíþjóð, án þess að lækka núverandi lægra þrep virðisaukaskatts (VSK). Stjórnvöld hafa valið aðra og kostnaðarsamari leið en komið hefur fram að meginástæðan fyrir háu verðlagi á matvælum á Íslandi liggur í tollvernd innlendrar kjöt- og mjólkurafurða og brenglandi áhrifum vörugjalda og mishárrar álagningar VSK á matvæli. Útfærsla fyrirhugaðrar tollalækkunar ríkisstjórnarinnar á matvæli liggur ekki fyrir en yfirlýst er að þær eigi að skila umtalsverðum verðlækkunum. Það eru vonbrigði að ekki hafi náðst samstaða um að fella alfarið niður hin úreltu vörugjöld af matvælum.
13.10.2006
Bjartsýni ríkir í atvinnulífinu
Aðstæður í efnahagslífinu eru hagstæðar um þessar mundir ef marka má niðurstöður könnunar Capacent Gallup á stöðu og framtíðarhorfum hjá 400 stærstu fyrirtækjum landsins og ívið betri en í samsvarandi könnun í maí. Horfur eru að vísu lakari þegar litið er 6 og 12 mánuði fram í tímann, en óvissa um framtíðarhorfur er samt minni en í könnunum fyrr á árinu. Áfram er skortur á starfsfólki í mörgum greinum atvinnulífsins, en flest fyrirtæki gera þó ráð fyrir óbreyttum fjölda starfsfólks á næstu sex mánuðum. Könnunin er gerð ársfjórðungslega fyrir
12.10.2006
Ofvöxtur hins opinbera nálgast hættumörk í Danmörku
Áttatíu prósent Dana eru á þeirri skoðun að tímabært sé að hefta áralangan vöxt hins opinbera. Þetta kemur fram í nýlegri könnun fyrir DI, dönsku samtök iðnaðarins. Að þeirra mati er ofvöxturinn farinn að nálgast hættumörk en Danir njóta þess vafasama heiðurs að vera í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar hlutfall opinberra starfsmanna á vinnumarkaði. DI segir Dani ekki hafa efni á þessari útþenslu lengur, nauðsynlegt sé að skýra hlutverk hins opinbera betur og bjóða út ákveðin verkefni til einkaaðila til að ná fram hagræðingu. Yfir 70% Dana eru fylgjandi því að einkaaðilar taki að sér veitingu opinberrar þjónustu svo fremi sem gæði þjónustunnar haldist.
11.10.2006
Fundir um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði
Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrsti fundur af þremur verður á Grand hótel þriðjudaginn 17. október nk. kl. 8:30-10:00. Fundinn ávarpa Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar, Rakel Ýr Guðmundsdóttir starfsmannastjóri SPRON og Sigurður Guðmundsson frá fjármálaráðuneytinu. Annan fundinn 9. nóvember ávarpar m.a. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.10.2006
1% atvinnuleysi í september
10.10.2006
Heilbrigðiseftirlitið verði fært frá sveitarfélögum
Það virðist há Umhverfisstofnun að hún hefur ekki boðvald í eftirliti sínu með því hvernig sveitarfélög standa að heilbrigðiseftirliti heldur einungis leiðbeinandi hlutverk. Fyrir vikið er erfitt að samræma þetta eftirlit. Rétt kann að vera að breyta núverandi fyrirkomulagi á þessu eftirliti og þá eftir atvikum færa framkvæmdina frá sveitarfélögum til ríkisins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Umhverfisstofnun. SA hafa ítrekað bent á að óeðlilegt sé að í landinu starfi 10 heilbrigðiseftirlit sem ekki lúti samræmdri stjórnun. Samtökin hafa sett fram ítarlegar tillögur um að ábyrgð á eftirlitinu verði flutt til ríkisins. Svo má fela einkareknum faggiltum skoðunarstofum framkvæmd eftirlitsins.
9.10.2006
Góð reynsla af erlendu starfsfólki
Um níu af hverjum tíu fyrirtækjum í Danmörku sem hafa ráðið til sín erlent starfsfólk segja reynsluna af því vera jákvæða og hyggjast halda því áfram. Aðeins tvö prósent fyrirtækja telja reynslu af ráðningu erlends starfsfólks vera neikvæða. Þetta kemur fram í nýlegri könnun DI, dönsku samtaka iðnaðarins, meðal rúmlega 600 danskra fyrirtækja. Mikill skortur er á starfsfólki í Danmörku og hyggjast um 40% danskra fyrirtækja bregðast við með því að ráða til sín erlent starfsfólk.
6.10.2006
Lýsa furðu á aðgerðum sem beinlínis leiði af sér gengishækkun
Barátta Seðlabankans við ofþenslueinkennin með sífelldri hækkun stýrivaxta er afar ómarkviss og bitnar harkalega á fyrirtækjum í útflutnings- og samkeppnisgreinum, segir í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva. Fundurinn lýsir furðu á þeim aðgerðum í efnahags- og peningamálum sem beinlínis leiði af sér gengishækkun krónunnar, en slíkar aðgerðir grafi um leið undan undan rekstri útflutningsfyrirtækja í landinu. Þá segir m.a. að það skipti gríðarlegu máli fyrir þjóðarbúið og lífskjörin í landinu að við nýtum þau tækifæri sem felast í eðlilegri nýtingu á auðlindum þjóðarinnar, og að kappkosta þurfi að slík nýting verði innan skynsamlegra marka og vandað verði til alls undirbúnings með hliðsjón af umhverfi og náttúruvernd.
5.10.2006
Einelti gegn atvinnulífi
Þær umræður um stóriðju og virkjanir sem nú eru fyrirferðarmiklar í fjölmiðlum minna um margt á einelti, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir þetta ekkert nýtt, löng hefð sé fyrir því hérlendis að hvers kyns vitleysa og fordómar séu sett fram gegn einstökum atvinnugreinum, þótt umræðan gegn stóriðju nú sé reyndar venju fremur skrautleg. Vilhjálmur bendir hins vegar á að Ísland væri ekki á lista yfir þjóðir með bestu lífskjörin ef eineltishreyfingin gegn heildsölum, bændum, kvótakerfi, einkavæðingu, stórmörkuðum, einkareknu millilandaflugi og stóriðju hefði fengið að ráða.
5.10.2006
Stjórn SA samþykkir áherslur í loftslagsmálum
Mikilvægt er að hafa í huga að loftslagsbreytingar eru alþjóðlegur vandi. Leggja verður áherslu á að draga úr útstreymi með rannsóknum, tækniþróun, bindingu gróðurhúsalofttegunda og fræðslu auk aðlögunar að loftslagsbreytingum. Þetta kemur fram í áherslum Samtaka atvinnulífsins í loftslagsmálum sem stjórn samtakanna samþykkti á dögunum. Þar segir jafnframt að íslensk stjórnvöld geti ekki tekið ákvörðun um að hætta nýtingu orkulindanna þar sem slíkt myndi stangast á við öll sjónarmið um sjálfbæra þróun og markmið loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna um aukna nýtingu endurnýjanlegrar orku á heimsvísu. Sjá áherslur SA í loftslagsmálum.
5.10.2006
Þörf á fjármálareglum fyrir sveitarfélög
4.10.2006
Umhverfishópur SA fundar 11. október
Á vegum SA er starfræktur umhverfishópur þar sem fjallað er um umhverfismál og hagsmuni atvinnulífsins. Hópurinn hefur reglulega fundartíma sem er 2. miðvikudagur í hverjum mánuði kl. 8:30. Næsti fundur verður miðvikudaginn 11. október og er þá von á ráðuneytisstjóra umhverfisráðuneytisins í heimsókn. Hann mun gera hópnum grein fyrir þeim málum sem umhverfisráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi á vetri komanda og spjalla um fleiri mál sem félagar í hópnum vilja ræða. Starf hópsins er opið félagsmönnum SA en þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir um að tilkynna þátttöku á netfangið petur@sa.is.
4.10.2006
Nýsköpunarverðlaun SAF - óskað eftir ábendingum
Stjórn SAF kallar eftir ábendingum frá félagsmönnum og fleirum til Nýsköpunarverðlauna SAF, sem veitt eru í nóvember í tengslum við afmæli SAF. Verðlaunin eru ætluð til að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar með því að veita verðlaun/viðurkenningar fyrir athyglisverðar nýjungar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að 300.000 kr. fyrir hvert verkefni og að veita viðurkenningar fyrir vöruþróun sem stjórn sjóðsins telur að muni styrkja ferðaþjónustuna. Ábendingum skal skilað fyrir 12. október. Sjá nánar á vef SAF.
3.10.2006
Fjárlögin: Aga þörf á kosningaári
„Frumvarpið er skynsamlega sett upp og ekkert sem kemur á óvart. Afgangurinn er heldur meiri en menn höfðu reiknað með fyrirfram, og ég held það væri mjög gott ef það væri hægt að halda þessu aðhaldi, og ná verðbólgunni niður á næsta ári,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2007. Hann segir eðlilegt að framkvæmdir aukist þegar hægi á og tekist hafi að ná tökum á verðbólgunni, en rétt sé að hafa í huga að kosningaár fari í hönd og stjórnvöld verði að beita sig aga, mikilvægt sé að engar U-beyjur verði á fjárlögunum í þinginu.
2.10.2006
Sigrún tekur við af Evu Margréti fyrir SA í Brussel
Sigrún Kristjánsdóttir hefur hafið störf á Evrópuskrifstofu Samtaka atvinnulífsins í Brussel. Sigrún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt numið Evrópufræði við Europa- Kolleg í Hamborg. Áður hefur Sigrún m.a. starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA, Héraðsdómi Reykjavíkur og Vinnueftirliti ríkisins. Hún tekur við af Evu Margréti Ævarsdóttur sem lætur innan skamms af störfum á Evrópuskrifstofunni og hefur lögmannsstörf á Lex lögmannsstofu. Samtök atvinnulífsins þakka Evu Margréti vel unnin störf og óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.










