Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.8.2005

Vika símenntunar 2005

Vika símenntunar verður haldin á höfuðborgarsvæðinu dagana 25.-30. september nk., en símenntunarmiðstöðvarnar um landið ákvarða hvenær hún verður haldin á hverju svæði fyrir sig. Vikunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um að menntun er æviverk og að alltaf er hægt að bæta við sig þekkingu. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir vikunni og eru fyrirtæki hvött til að tileinka fimmtudaginn 29. september fræðslumálum starfsmanna. Sjá nánar á vef Menntar.

30.8.2005

Fundur umhverfishóps SA 14. september kl. 8:30

Næsti fundur umhverfishóps SA verður í Borgartúni 35 miðvikudaginn 14. september nk., kl. 8:30 – 10:00.  Þar mun Sigrún Pálsdóttir frá Íslenska járnblendifélaginu gera grein fyrir starfi félagsins að umhverfismálum og greina frá athyglisverðum árangri sem náðst hefur. Auk þess verður farið yfir stöðu þeirra verkefna sem hópurinn hefur verið að vinna að en ráðstefnan sem boðuð hefur verið í lok september („Hreinn ávinningur“) er sprottin af starfi hópsins.

29.8.2005

Guðrún Björk Bjarnadóttir til SA

Guðrún Björk Bjarnadóttir héraðsdómslögmaður hefur hafið störf á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins. Guðrún Björk er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með LL.M gráðu í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla. Áður starfaði Guðrún sem lögmaður á LOGOS lögmannsþjónustu auk þess sem hún hefur verið stundakennari í félagarétti við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

29.8.2005

Jafnréttisviðurkenning 2005 - tilnefninga óskað

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2005. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september nk. Sjá nánar á vefsíðu Jafnréttisráðs.

24.8.2005

Ráðstefna um rafræn viðskipti

Ráðstefna um stjórnun og rafvæðingu innkaupa undir heitinu Falinn fjársjóður, verður haldin þann 15.september n.k. á Grand hótel. Að ráðstefnunni standa ANZA og fjármálaráðuneytið í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið, Landspítala - háskólasjúkrahús og Ríkiskaup. Á ráðstefnunni munu bæði innlendir og erlendir sérfræðingar miðla af reynslu sinni við innleiðingu rafrænnar tækni við innkaup. Á ráðstefnunni gefst tækifæri til að fylgjast með því helsta sem er að gerast á sviði rafrænna viðskipta.

24.8.2005

Alþjóðlegur fundur um eignarrétt og framtíðina

Fimmtudaginn 25. ágúst kl. 9:30 á Hótel Nordica Reykjavík stendur RSE, rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, fyrir alþjóðlegum fundi um eignarrétt og framtíðina. Meðal þátttakenda eru einstaklingar sem eru leiðandi í umræðu um gildi eignarréttar og frjálsra viðskipta. Meðal þess sem verður t.d. fjallað um er spurningin um eignarrétt yfir náttúruauðlindum, hvort þær teljist til einkaeignar eða ríkiseignar. Fundarstjóri er Guðrún Gauksdóttir, Háskólanum í Reykjavík en um stjórn pallborðsumræðna sér Orri Hauksson, Símanum hf. Fundurinn fer fram á ensku og er opinn almenningi. Sjá nánar vef RSE.

22.8.2005

Danir leita fyrirmynda í íslensku viðskiptalífi

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í Danmörku (Dansk Industri), verður horft til þeirra þjóða sem njóta velgengni á sviði viðskipta og efnahagsmála. Yfirskrift fundarins er: Meet the Winners en Dönum er hugleikið að finna leiðir til að bæta árangur sinn á sem flestum sviðum þjóðfélagsins til að koma Danmörku í fremstu röð þjóða á tímum þegar alþjóðleg samkeppni fer sífellt vaxandi. Að mati frænda okkar eru Íslendingar í hópi þeirra sem mestum árangri hafa náð og er fjallað sérstaklega um árangur Íslands á fundinum.

19.8.2005

Verðbólgan minnst hérlendis innan EES

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum lækkaði um 0,1% frá júní til júlí sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,2% frá fyrra mánuði. Frá júlí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES. Lægst var hún á Íslandi, 0,5%, 0,7% í Svíþjóð og 0,9% í Finnlandi. Mest mældist verðbólgan í Lettlandi, 6,3% og í Lúxemborg, 4,0%. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.

19.8.2005

Neyslan vex mun meira hérlendis en í ESB

Átta sinnum meiri vöxtur varð í veltu dagvöruverslunar á Íslandi en að meðaltali í ESB löndunum frá maí 2004 til maí 2005. Vöxturinn hér var 13% á föstu verðlagi en 1,6% í ESB löndunum. Þannig hafa Íslendingar aukið neyslu í mat og drykk margfalt meira en íbúar ESB landanna á síðustu mánuðum. Þessar upplýsingar koma fram þegar bornar eru saman upplýsingar Rannsóknaseturs verslunarinnar og Eurostat sem birtir sambærilegar tölur fyrir aðildarlönd ESB. Sjá nánar á vef SVÞ.

17.8.2005

Útvíkkun á starfsemi Íbúðalánasjóðs ólögmæt og stangast á við reglur EES

Í nýrri álitsgerð um heimildir Íbúðalánasjóðs til lánveitinga, fjármögnunar og áhættustýringar, setur Jóhannes Sigurðsson, prófessor við Rannsóknarstofnun HR í fjármálarétti, fram veigamiklar röksemdir fyrir því að útvíkkun á starfsemi Íbúðalánasjóðs  rúmist ekki innan þeirra lagaheimilda sem um starfsemina gilda og sé auk þess ósamrýmanleg skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum. Jóhannes telur að með lánveitingunum Íbúðalánasjóðs til fjármálafyrirtækja sé farið með ólögmætum hætti í kringum lagaheimildir sjóðsins til íbúðalána og reglur um áhættustýringu.

14.8.2005

2% atvinnuleysi í júlí

Í júlí sl. voru skráðir rúmlega 65.800 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.135 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,0% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,1% í júní sl. en 3,0% í júlí 2004. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

11.8.2005

Ráðstefna: Hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi?

Hreinn ávinningur – hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi? er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hótel miðvikudaginn 28. september nk., kl. 8:30-13:00. Þar munu m.a. fulltrúar fjölda fyrirtækja fjalla um umhverfisstjórnun, þýðingu umhverfisstarfs fyrir ímynd fyrirtækja, menningu og samkeppnishæfni og um fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af umhverfisstarfi. Dagskrá ráðstefnunnar verður kynnt innan tíðar en að henni standa SA, SI, Umhverfisfræðsluráð og ASÍ.

10.8.2005

Umbætur í stærstu ríkjum ESB?

Nýr forsætisráðherra Frakklands hefur auðveldað smærri fyrirtækjum að segja upp starfsfólki og hraðað einkavæðingu. Kristilegir demókratar boða breytingar í svipaða átt í Þýskalandi hafi þeir sigur í væntanlegum þingkosningum, og leiðtogi jafnaðarmanna þar í landi hefur barist fyrir svipuðum umbótum. Ýmislegt bendir því til þess að leiðtogar þessara forysturíkja muni á næstu misserum auka sveigjanleika á vinnumarkaði og frelsi í atvinnulífinu, í þeim tilgangi að auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi.

7.8.2005

Skattalækkanir skoðist m.a. út frá stöðu á vinnumarkaði

Í samtali við Fréttablaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, erfitt að tjá sig um mögulegar breyttar tillögur um skattalækkanir þar sem þær hafi ekki verið kynntar opin-berlega. Hann segir að viðbrögð SA á skattalækkunartillögur ríkisstjórnarinnar hafi verið jákvæð og telur að frekari skattalækkanir þurfi ekki að valda meiri þenslu en viðbótar launahækkanir eða aukin ríkisútgjöld. Það yrði hins vegar mikil goðgá að spila skattalækkunum inn í mögulega upplausn á vinnumarkaði vegna endurskoðunar kjarasamninga.

6.8.2005

Vaxtabótakerfið engin heilög kýr

„Ég held að það hljóti að koma til álita að endurskoða þetta kerfi [vaxtabótakerfið]. Það má ekki vera nein heilög kýr,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgun-blaðið. „Fólk er hvatt til þess að skulda sem mest. Ég held að það sé nú kannski ekki það sem við þurfum á Íslandi,“ segir Ari m.a. en undirstrikar að SA séu ekki með þessu að leggja til að horfið sé frá stuðningi við þá sem höllustum fæti standa á íbúðamarkaði.

4.8.2005

Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel

Fimmtudaginn 20. október munu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir degi samkeppnishæfni í Brussel. Meðal þátttakenda í dagskránni má nefna stjórnendur og stjórnarmenn frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, Siemens, Fiat og Tesco, forseta framkvæmdastjórnar ESB, forseta Evrópuþingsins o.fl. Fyrirtækjastjórnendur alls staðar að úr Evrópu eru hvattir til að mæta. Sjá nánar

4.8.2005

Lagafrumvarp um efni og efnavöru: ábendingar berist SA

SA hafa borist til umsagnar drög að frumvarpi til laga um efni og efnavöru, sem unnið var af nefnd opinberra starfsmanna. Þar er m.a. að finna fjölmargar nýjungar um efnavöru-skráningu, leyfi til markaðssetningar nýrra efna, ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu auk viðamikilla krafna um eftirlit, leyfisveitingar, gjaldtöku og fleira. SA hafa frest til 20. ágúst til að skila inn athugasemdum við frumvarpið og þeir sem vilja kynna sér frumvarpið og gera við það athugasemdir geta snúið sér til SA. Sjá nánar

4.8.2005

Japan í september, Pólland í október

Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Japans dagana 12.-19. september nk. og fer Davíð Oddsson utan-ríkisráðherra fyrir sendinefndinni. Þá fer Valgerður Sverris-dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fyrir viðskiptasendinefnd sem fyrirhuguð er til Póllands í október. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english